Þjóðviljinn - 17.03.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.03.1976, Blaðsíða 1
UOWIUINN Miðvikudagur 17. mars 1976 — 41. árg. 60. tbl. SJÓMANNAVERKFALL Á AUSTFJÖRÐUM Hófst á Eskifirði í nótt, á öðrum höfnum í kvöld A miðnætti i nótt hófst verkfall hjá sjómönnum á Eskifirði, og i nótt fara starfsbræður þeirra á Seyðisfirði, Neskaupstað og Fá- skrúðsfirði i verkfall. Sáttafundir stóðu með deiluaðilum á Eski- firði á föstudag og laugardag er upp úr viðræðum slitnaði, og hef- ur nýr fundur ekki verið boðaður. Sáttasemjari er prestur eskfirð- inga, Sigurður Guðmundsson. af eins og þruma úr heiðskíru lofti London 16/3 reuter — Harold Wilson forsætisráöherra Bretlands kom öllum á óvart í dag er hann kvaðst hafa á- kveðið að seg ja af sér um leið og Verkamannaf lokkurinn hefur kosið sér nýjan formann og forsætisráðherra. Wilson hafði ekki sagt einum einasta manni frá þess- ari ákvörðun sinni er hann ók til Buckinghamhallar í dag og tilkynnti drottningunni um hana. Margir þingmenn og f lokksfélagar hans neituðu hreinlega að trúa þegar þeim var sögð fréttin. Búist er við að það taki flokk- inn tvær vikur eða svo að velja sér nýjan formann. Þeir sem helst eru taldir munu veita Callaghan samkeppni eru Denis Healey fjármálaráðh. og Tony Benn orkumálaráðherra sem er einn helsti talsmaður vinstri- armsins. Callaghan hafði vinn- inginn i veömálum sem þegar voru tekin að hrannast upp hjá veðmöngurum. Verið getur að sá sem við tekur telji sig þurfa traustsyfirlýsingu eftir stuttan tima i embætti og efni þvi til nýrra kosninga sem að réttu lagi ættu ekki að vera fyrr en 1979. Litið hafði frést um viðbrögð erlendra stjórnmálamanna við afsögn Wilsons i dag en hún kom alls staðar mjög á óvart. A 7. siðu blaðsins i dag er ferill Wilsons rakinn i stuttu máli og birtar nokkrar myndir af honum. Wilson tilgreindi enga aðra á- stæðu fyrir afsögn sinni en þá að hann væri búinn að vera nógu lengi viö völd. Hann kvaðst hafa skýrt drottningunni frá þvi i des- ember sl. að hann hygðist segja af sér en siðan ákveðið að fresta þvi fram i mars. Upphaflega ætlaði hann að tilkynna þetta á sextugs- afmæli sinu sl. fimmtudag en þá var til afgreiðslu i þinginu van- trauststillaga á stjórn hans svo hann ákvaö að biða þar til hún væri útkljáð. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Margaret Thatcher, krafðist þess að efnt yrði til nýrra kosninga en Wilson hafnaði þvi og gerði mönnum það ljóst að flokkur hans hygðist fara áfram með völd þótt skipt væri um formann. Forysta Verkamannaflokksins kom saman til fundar i dag til að ræða væntanlegar kosningar á eftirmanni Wilsons. Hermdu fregnir að sá sem helst kæmi til greina i það embætti væri James Callaghan utanrikisráðherra. í yfirlýsingu sinni sagðist Wil- son hafa verið leiðtogi flokksins i 13 spennandi og viðburðarik ár, setið 31 ár á þingi, þar af 11 i rik- isstjórn, og „enginn ætti að fara fram á meira”. Kvað hann það skyldu sina við þing og þjóð að gerast ekki of þaulsætinn i em- bætti og ræna með þvi aðra þvi tækifæri að freista þess að kom- ast i það. Margir flokksmenn kváðu&t i daj harma þessa ákvörðun Wil- sons, hún kæmi á mjög viðkvæm- um timum þegar flokkurinn þyrfti á sameiningartákni að halda. — Ég fæ ekki komið auga á neinn sem talist gæti rökréttur eftirmaður hans og þetta gerist þegar við þörfnumst leiðtoga sem getur tryggt einingu flokksins, sagði Joe Gormley forseti sam- bands námuverkamanna. Undanfarið hefur Wilson átt i harðvitugum deilum við vinstri- arm flokksins út af stefnunni i efnahagsmálum. Astandið i þeim efnum er ekki gott, atvinnuleysi er mikið, verðbólga sömuleiðis og pundið hefur hrapað i gengi und- anfarnar vikur. í siðustu viku gerðu 37 vinstrimenn á þingi upp- steyt gegn stjórninni og neituðu að greiða atkvæði með stjórnar- frumvarpi um að skera niður fjárveitingar til rikisfram- kvæmda um 3 miljarða punda. betta varð til þess að frumvarpið var fellt og Wilson bað þingið um traustsyfirlýsingu sem var sam- þykkt með 17 atkvæða mun. Á laugardaginn gerðu sjómenn sáttatilboð til skamms tima. Fól það i sér: 1. Að háseta á.skuttogara verði borguð laun þau, sem lægstlaun- aður verkamaður fær fyrir 12 stunda vinnuvakt i loðnubræðslu. 2. Að öðru leyti verði farið eftir sérákvæðum milli samninga- aðila, og 3. Með fyrirvara um samþykki skuttogaramanna.” Þá buðu sjómenn útvegsmönnum að taka skuttogarasamningana út úr bátakjarasamningum. Þessu boði höfnuðu útvegs- menn en gerðu gagntilboð, sem sjómenn töldu fela i sér 2% lækk- un skiptaprósentu frá þvi sem um samdist i Reykjavik. Slitnaði þá upp úr samningum. Kröfur sjómanna eru einkum um hækkun skiptaprósentu, eða bætur sem komið geti i hennar stað. Fara þeir fram á að 33,5% komi til skipta i stað 29,2%, en áður var skiptaprósentan 35,5, að sögn Sigfinns Karlssonar á Norð- firði. Allar tölurnar eru miðaðar við 16 manna áhafnir. Sigfinnur sagði að sá misskiln- ingur hefði gert vart við sig á Eskifirði, að verið væri að boða nýtt verkfall og hefðu nokkrir menn tekið sliku illa. Svo væri þó ekki, þar sem hér væri aðeins að koma til framkvæmda áður boðað verkfall, sem frestað hefði verið að loknum Reykjavikursamning- unum. Sagði Sigfinnur að sjó- menn á togurum frá Norður- landshöfnum og Keflavik reru nú aðeins vegna sambærilegrar frestunar á verkfalli, og gæti það þvi skollið þar á hvenær sem væri. —erl. RíkiSvStjórnin ábyrg vegna vanskila verktaka við járnblendiverksmiðjuna Jónas Árnason kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþingi i gær og kvað rikisstjórninni sið- ferðilega skylt að greiða úr þeim fjárhagsvandræðum sem fjöl- margir aðilar hafa lcnt i vcgna vanskila Jóns V. Jónssonar vcrk- taka við járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, bæði vegna aðildar ríkisins að járnblendifé - laginu og af þvi að talsmenn rlkis- stjórnarinnar hefðu átt hvað mestan þátt í að draga menn til starfa hjá þessum verktaka fé • lagsins.scm hcfur nú með fram- ferði sinu komið hag þessara söinu manna i óhag. Jónas upplýsti að skuldir verk- takans næmu tugum miljóna og m.a. skuldaði hann vinnuvélaeig- endum, sem ynnu sjálfir við vélar sinar, um 12 miljónir. Ennfremur spurðist Jónas fyrir um það hvað járnblendiverk- smiðjan hefði nú kostað rikissjóð, hvort málið verði lagt fyrir al- þingi á ný eftir endurskoðun vegna breyttra viðhorfa og hvort bætt verði þau ógnarlegu spjöll á náttúrunni sem á Grundartanga hafa verið unnin. Gunnar Thoroddsen gaf fremur óljós svör um bætur vegna fjár- hagstjóns en sagðist þó hafa beint þvi til stjórnar járnblendifélags- ins að hún gerði hvað hún gæti til að greiða vanda þeirra sem skuldir ættu. Upphaflegur samn- ingur við Jón V. Jónsson hefði numið 147 miljónum en vegna verðbóta og aukningar verka næmu greiðslur til hans nú 165 miljónum. Gunnar lofaði þvi að skýrsla yrði gefin Alþingi að lok- inni endurskoðun á forsendum verksmiðjunnar og sagði að náttúruspjöll yrðu bætt i vor. Nánar verður sagt frá umræð- um um málið á morgun. —GFr NYR SKUTTOGARI TIL FLATEYRAR Fyrsti skuttogarinn, sem flat- eyringar eignast kom til Flat- eyrar i gær. Er þetta norsk smiði, 431 tonn og hefur verið heitinn Gyllir með einkennis- stafina ÍS-261. Skipstjóri á Gy.li er Grétar Kristjánsson frá Súðavik. Eigandi skipsins er útgerðar- félag Flateyrar, en aðal - eigandi þess er Hjálmur hf. Er Útgerðarfélagið i góöum hönd- um að ætla má, þvi stjórnarfor- maður er sóknarpresturinn, sira Lárus Guðmundsson. I Gylli er 1800 hestafla MKV- vél. Gekk skipið 12 og 14 milur i reynslusiglingu. —úþ Eskimóc indíánai Kanada í vök að Sjá opnu Hvað er í kassanum?' Eða: Hvað er í ríkiskassanum? Verkamenn við uppskipun í Reykjavíkurhöfn á dögun- um. (Ljósm. S.dór) SAMIÐ A AKRANESI Sjá viðtal á baksíðu Jóna%Árnason utan dagskrár á Alþingi í gær: Wilson segir Tilgreinir engar ástœður aðrar en að hann hafi verið nógu lengi í embœtti — Afsögnin kom sér

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.