Þjóðviljinn - 17.03.1976, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 17.03.1976, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 17. mars 1976 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13 Heykögglaverksmiðjan i Gunnarsholti. Ályktanir búnaðarþings Stofnlánadeild landbúnaðarins Búnaðarþing lýsir áhyggjum sinum út af erfiðri afkomu Stofri- lánadeildar landbúnaðarins. Siðan er bent á ýmsar leiðir til úr- bóta. a) Hvortekki sé rétt að veita mis- munandi hátt hlutfall lána miðað við stofnkostaað fram- kvæmda og bústofnskaup eftir þvi, hvers konar framleiðsla hentar á viðkomandi svæði, hvaö framleiðslu- og markaðs- skilyrði snertir. b) Hvort ekki sé eðlilegt og sjálf- sagt að setja hámark á lán til einstakra framkvæmda, likt og nú er gert varðandi ibúðar- húsalán. c) Hvort ekki sé rétt að útiloka lánveitingar til bygginga verk- smiðjubúa likt og norðmenn hafa gert. d) Hvort ekki sé rétt, að ibúðalán í sveithm verði færð til Húsnæðismálastofnunar rikis- ins, enda verði stærðarmörk ibúða i sveitum höfð verulega rýmri en i þéttbýli, þar sem byggja þarf fyrir starfsfólk jafnframt fjölskyldu. e) Hvort ekki sé rétt að fella jarðakaupalánin undir Stofnlánadeild og skylda Byggðasjóð til að veita við- bótarlán i þvi skyni. f) Hvort gengistapi og vísitölu- álagi lánsfjár Stofnlánadeildar verði mætt með hækkuðu bú- vörugjaldi, er komi i fram- leiðslukostnað búvaranna og minnkuð verði þannig þörf á að verðtryggja útlán deildarinnar til bænda. AURA- SÁLIR öTc — Þetta kostar það sama og i siðustu yiku. Hvað skyldi vera að þessu, ætli það sé gallað....? — Jú, ég gróf peningana á vissum , stað, —en þegar mér verður loks sleppt út, verður verðbólgan ábyggilega búin að éta þá upp... Villurí yiðtali við Ólaf Jóhann Ýmsar villur sóttu i viðtal við Olaf Jóhann Sigurðsson sem birt- ist I blaðinu á sunnudag. Meðal annars segir i fyrsta spalta ,,ef mönnum finnst i of mikið ráðið” á að vera „ráðist”. 1 öðrum spalta þar sem segir frá gömlum hjónum er prentað „vissi ég hver hann var” en það á að vera „hver þau voru”. Þá er i þrigang skrifað „eitthvað” i stað- inn fyrir „eitthvert” (eitthvert smáatvik, eitthvert Ermarsund). Við biðjum velvirðingar á þ^ssum villum og fleiri sem hér kurina að hafa gleymst. Vísitala framfærslu- kostnaðar hækkaði um 16 stig i febrúarhefti Hagtiðinda segir að visitala framfærslukostnaðar i Rcykjavik hafi hækkað úr 491 stigi frá því 1. nóv. 1975 i 507 stig 1. febr. 1970 eða um 16 stig. t matvöruflokknum hækkaði verð á kjöti og kjötvörum (2,7 stig nettó), á brauði og brauðvörum (0,2 stig) og á ýmsum matvörum (0,8 stig nettó). Hins vegar lækk- aði verð á sykri og ávöxtum veru- lega, og olli það visitölulækkun um 3,7 stig. 1 fatnaðarflokknum urðu verð- hækkanir svarandi til 5,0 visitölu- stiga, i flokknum „heimilisbúnað- ur, hreinlætisvörur o.fl.” varð hækkun um 1,8 stig, verð á lyfjum og læknataxtar hækkuðu um 1,8 stig vegna nýsettra ákvæða um þátttöku hinna tryggðu i greiðslu sjúkrakostnaðar. Þá hækkaði liðurinn „eigin bifreið” visitöluna um 2,6 stig (bifreiðaverð, bensin), og húsnæðisliður hækk- aði hana um 3,6 stig. Þess má geta að visitala fram- færslukostnaðar hefur fimmfald- ast siðan i febrúar 1968 eða á að- eins 8 árum. — GFr 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.!. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Gunnvör Braga heldur áfram lestri sögunnar „Krumma bolakálfs” eftir Rut Magnúsdóttur (3). Til- kynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriða. Kristnilif kl. 10.25: 1 þessum þætti verður fjallað um kristniboð. Umsjónar- menn: Jóhannes Tómasson og séra Jón Dalbú Hró- bjartsson. Passiusálmalög kl. 11.00: Sigurveig Hjalte- sted og Guðmundur Jónsson syngja við orgelleik dr. Páls Isólfssonar. Morguntónleik- ar kl. 11.20: Pierre Pierlot og kammersveitin Antiqua Musica leika Konsert i d- moll fyrir óbó og strengja- sveit eftir Albinoni Jacques Roussel stjórnar. / Hljóm- sveitin Collegium Musicum leikur Svitu i D-dúr eftir Telemann Kurt Liersch stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Mað- urinn frá Minap” eftir Júlij Daniel. Halldór Stefánsson les fyrri hluta sögunnar i eigin þýðingu. 15.00 Miðdegistónleikar. Yehudi Menuhin og Louis Kentner leika Fantasiu i C- dúr fyrir fiðlu og pianó (Dd34 eftir Franz Schu- bert. Frantisek Rauch og Sinfóniuhljómsveitin i Prag leika Pianókonsert nr. 2 i f- moll eftir Frédéric Chopin. Václav Smetacek stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.10 Dtvarpssaga barnanna: Spjall um Indiána. Bryndis Viglundsdóttir heldur áfram frásögn sinni (6). 17.30 Framburðarkennsla i dönsku og frönsku. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Vinnumál.Þáttur um lög og rétt á vinnumarkaði. Umsjónarmenn: Gunnar Eydal og Arnmundur Back- man lögfræðingar. 20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng- ur. Maria Markan syngur islenzk lög. Beryl Blanche og Fritz Weisshappel leika á pianó. b. Spekingurinn með barnshjartað. Kvöldvöku- þáttur um Björn Gunn- laugsson stærðfræðing á 100. ártið hans. M.a. lesið úr Njólu og bréfum Björns, svo og greinum eftir Þorvald Thoroddsen, Steinþór Sig- urðsson o.fl. Samantekt Baldurs Pálmasonar. c. Kórsöngur. Liljukórinn syngur islenzk þjóðlög i út- setningu Jóns Þórarins- sonar. Söngstjóri: Jón Ás- geirsson. 21.20 Útvarpssagan: „Siðasta freistingin” eftir Nikos Kaz- antzakis. Kristinn Björns- son islenzkaði. Sigurður A. Magnússon les (5). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (26). 22.25 Kvöldsagan: „1 verum”, sjálfsævisaga Theódórs Friðrikssonar. Gils Guð- mundsson les bókarlok (32). 22.45 Djassþáttur. Jón Múli Árnason kynnir. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. s|ónvarp 18.00 Björninn Jógi Bandarisk teiknimyndasyrpa. Þýðandi Jón Skaptason. 18.25 Robinson-fjölskyldan Breskur myndaflokkur byggður á sögu eftir Johann Wyss. 6. þáttur. Lif og dauði 18.50 Ante Norskur mynda- flokkur i sex þáttum um samadrenginn Ante. 1. þáttur. Hvar er Ante? Ante er sendur i heimavistar- skóla fjarri heimkynnum sinum. Allt er honum fram- andi og hann kvelst af heim- þrá: Þýðandi Jóhanna Jó- hannsdóttir. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Vaka Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.20 Biialeigan Mynda- flokkur um Pistulla fjöl- skylduna, sem rekur bila- leigu. Viðskiptavinir hennar eru mislit hjörð og lenda i ýmsum ævintýrum. Þýðandi Briet Héðinsdóttir. 21.45 Baráttan gegn þræla- haldi Lokaþáttur. Frelsið Árið 1832 gerðu þrælar á Jamaika uppleisn, sem skipti sköpum i baráttu þeirra. Foringi þeirra var prédikarinn Daddy Sharp, sem var handtekinn og dæmdur til dauða. Séra William Knibb, hviti sókn- arpresturinn á uppreisnar- svæðinu, dró taum þræl- anna i frelsisbaráttu þeirra. Þvi var hann fluttur nauðugur til Englands. Þar flutti hann fjölmarga fyrir- lestra og átti rikan þátt i að breyta almenningsálitinu. Árið 1834 kom loks að þvi, að þrælahald var afnumið um allt breska samveldið. Þýð- andi Óskar Ingimarsson. 22.35 Dagskrárlok Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá kl. 10—12 og 14—18 föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð. Söluskattur í Kópavogi Söluskattur 4. ársfjórðungs 1975 er fallinn i gjalddaga. Lögtak er úrskurðað vegna vangreidds söluskatts og fer það fram eft- ir 8 daga frá birtingu úrskurðar þessa. Jafnframt verður atvinnurekstur þeirra, sem skulda söluskatt þennan eða eldri stöðvaður án frekari aðvörunar. Bæjarfógetinn i Kópavogi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.