Þjóðviljinn - 17.03.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. mars 1976
Svanur Jóhannesson afhenti styttuna af Guögeiri Jónssyni
Afmælisgjafir til ASÍ
A 60 ára afmæli Aiþýöusam-
bands islands sl. föstudag — 12.
mars — bárust sambandinu ýms-
ar gjafir og heillaóskir. Er þar að-
telja veglegastar styttu þá af
Guðgeiri Jónssyni, forseta ASÍ
1942 — 1944, sem Bókbindarafélag
islands færði ASl að gjöf, og val-
inn hefur verið staður i fundarsal
sambandsins.
Dóttir Guðgeirs, Asbjörg,
afhjúpaði styttuna, en viðstaddir
athöfnina voru stjórn Bók-
bindaraféiagsins, forseti ASÍ og
nokkrir miðstjórnarmenn.
Formaður Bókbindarafélagsins,
Svanur Jóhannesson, flutti stutt
ávarp er hann afhenti styttuna en
forseti ASl, Björn Jónsson,'þakk-
aði, og að lokum mælti Guðgeir
Jónsson nokkur orð.
Styttan er eftir Sigurjón Ólafs-
„Samflotinu99 lokið
Frankinn
flýtur einn
áfall fyrir Efnahagsbandalagið
Brússel 15/3 reuter ntb — Eftir
mikinn átakafund fjármála-
ráöherra EBE-ríkjanna aðfara-
nótt mánudags ákvað franska
stjórnin aö draga sig dt Ur gjald-
eyrissamfloti aöildarrikjanna og
láta frankann fijóta einan og
óháöa öðrum gjaldmiðlum
aöildarrikjanna.
Þessi ákvörðun frakka kemur i
kjölfar slversnandi stöðu frank-
ans á gjaldeyrismörkuðum
undanfarnar vikur. 1 siðustu viku
mátti Frakklandsbanki punga út
með 8miljarða franka I erlendum
gjaldeyri til að bjarga honum frá
miklu hrapi en alls hefur bankinn
varið 14 miljörðum i þessu skyni
frá þvi i janúar.
EBE-löndin hafa um nokkurra
ára skeið haldið uppi samfloti i
gjaldeyrismálum sem almennt
gengur undir nafninu „Slangan”.
Samkvæmt þvi mega gjaldmiðlar
aðildarrikjanna ekki sveiflast i
gengi um meira en 2.25% i hvora
átt. Bæði italia og Bretland hafa
þó ekki verið með i slöngunni og
Frakkland var fjarverandi um
halfs annars árs skeið þar til I júli
I fyrra.
A næturfundi ráðherranna
lögðu frakkar fram tillögu um að
gengi frankans yrði leyft að falla
um 3% gegn þvi að gengi þýska
marksins yrði hækkað um 3%.
Þjóðverjar vildu hins vegar fella
frankann um 4% og hækka
markið um 2%. Ekki náðist
samstaða og þvi sögðu frakkar
sig úr slöngunni.
Franski ráðherrann,
Jean-Pierre Fourcade, lýsti
óánægju sinni með að italir og
bretar standa utan slöngunnar en
liran og sterlingspundið hafa
fallið mjög i gengi undanfarnar
vikur. Deildi hann hart á stjórnir
þessara rikja fyrir að leyfa slikar
gengisfellingar, þvi þær stofnuðu
öllu viðskiptajafnvægi milli
bandalagsrikjanna i voða.
Almerint er svo litið á að þessi
ákvörðun frakka sé mikið áfall
fyrir Efnahagsbandalagið og
„evrópska einingu”.
Edduívaf í sögum
son, myndhöggvara, og er hið
fegursta listaverk.
Annað Iistaverk barst ASÍ i til-
efni dagsins. Var það Ragnar
Jónsson i Smára, sem grundvöll-
inn lagði að stofnun Listasafns
ASÍ fyrir rúmum áratug með
hinni stórmerku listaverkagjöf
sinni til ASÍ, og I tilefni afmælis-
ins nú gaf ASl litið málverk eftir
Gunnlaug Scheving.
Er það elsta varðveitt verk
listamannsins, málað á léreft er
hann var 10 ára gamall og sýnir
Ingólfsfjall, séð frá Eyarbakka.
Af kveðjum og heillaóskum er
bárust, má nefna frá forseta
Islands, forsætisráðherra, fyrr-
verandi forsetum ASÍ, Hannibal
Valdimarssyni og Helga
Hannessyni og Guðgeiri Jónssyni,
félagsmálaráðherra, formönnum
stjórnmálaflokkanna, forseta
Sameinaðs Alþingis erlendum
bræðrasamböndum, fjölmörgum
verkalýðsfélögum, Sambandi
bankamanna, félögum opinberra
starfsmanna, KRON, formanni
og forstjóra SÍS og samtökum
vinnuveitenda, auk fjölda ein-
staklinga.
Alþýðusamband islands færir
öllum þessum félögum og ein-
staklingum þakkir sinar.
Slitnaði upp
úr olíu-
samningum
Wsahington 16/3 reuter — Slitnað
hefur upp úr viðræðum sovéskra
og bandarískra embættismanna
um fyrirhuguð oliukaup banda
rikjamanna i Sovétrikjunum.
Agreiningur hefur risið Ut af
flutningsgjöldum og segja banda-
risku samningamennirnir að hin-
ir sovésku kollegar þeirra hafi
ekki lagt neitt nýtt til málanna i
nokkrar vikur. Sovétmenn vörð-
ust allra frétta i dag.
Samningarnir miðuðu að þvi að
bandarikjamenn keyptu 10
miljónir tonna af oh'u á ári i
Sovétrikjunum eða 200þúsund föt
á dag. Var hér um að ræða hrá-
oliu.
Eldur í blokk
í Asparfelli
Prófessor Haraldur Bessason
frá Winnipeg heldur opinberan
fyrirlestur i boði heimspeki-
deildar Háskóla Islands fimmtu-
daginn 18. mars kl. 5.15istofu 422,
Arnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist:
Edduivaf i sögum
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestri þessum.
Um 11 leytið i gærmorgun var
slökkviliðið kallað að Asparfelli 4.
Hafði þar- kviknað eldur i fata-
skáp uppi á 7. hæð. Húsmóðirin
brást rétt við og lokaði öllu sem
hægt var að loka, fékk siðan tvo
menn sér til aðstoðar og slökktu
þau eldinn með handslökkvitækj-
um sem geymd voru á stigapall-
inum. Hafði þvi slökkviliðið litið
að gera, er það kom á vettvang,
og hafði ekki einu sinni komist
reykur fram á ganginn. Sýnir
þetta dæmi, að fólk getur bjargað
sér sjálft með réttum viðbrögðum
og búnaði við höndina. Mikið
öryggi er þvi fólgið i þvi að hafa
ávallt handslökkvitæki við hönd-
ina, þvi að eldurinn j*erir ekki boð
á undan sér.
Eiginmaður minn
Hallgrimur J.J. Jakobsson, söngkennari,
lést i Borgarspitalanum þriðjudaginn 16. mars.
Margrét Arnadóttir.
Gils
Framhald af 16. siðu.
ráðuneytisstjóri, Jón Jónsson,
forstjóri Hafrannsóknarstofn-
unarinnar, Már Elisson, fiski-
málastjóri og af hálfu stjórn-
málaflokkanna Eyjólfur Konráð
Jónsson frá Sjálfstæðisflokknum,
Gils Guðmundsson frá Alþýðu-
bandalaginu, Haraldur Henrýs-
son frá Samtökum frjálslyndra og
vinstrimanna, Jón Ármann Héð-
irisson frá Alþýðuflokknum og
Þórarinn Þórarinsson frá Fram-
sóknarflokknum.
-dþ.
Algjör samstaða
Framhald af bls. 3.
var ósvikin norsk kveðja frá
norsku alþýðufólki, sem hefur
fullan skilning á mikilvægi þeirr-
ar baráttu, sem háð er til að
vernda fiskistofnana i norðurhöf-
um. Enda samþykkti þingið mjög
eindregna stuðningsyfirlýsingu
við baráttu islendinga fyrir 200
milna fiskveiðilögsögunni og al-
gera fordæmingu á framferði
breta.
Konur í meirihluta
í framkvæmdastjórn
flokksins
— Urðu breytingar á flokksfor-
ustunni á þinginu?
— Kosinn var nýr flokksförmað
ur, Berge Furre, i stað Berit As,
sem nú var kjörinn varaformað-
ur. Berge Furre var áður formað-
ur þingflokksins, en nú var Reid-
ar T. Larsen kjörinn i þá stöðu.
Þetta var gert með tilliti til hinna
ýmsu samtaka, sem flokkurinn er
stofnaður úr. Furre er þannig úr
Sósialiska þjóðarflokknum, Berit
As úr vinstra armi sósialdemó-
krata og Reidar T. Larsen er
fyrrverandi formaður Kommún-
istaflokks Noregs.
Áberandi var hve konur, og sér-
staklega ungar konur, tóku mik-
inn þátt i umræðum og öllum
störfum landsfundarins. Þær
voru ekki allar ánægðar með það,
að kona hvarf á þinginu úr for-
mannssæti flokksins, en bættu sér
það upp að nokkru með þvi að
tryggja sér meirihluta i fram-
kvæmdastjórn flokksins, en átta
af fimmtán fulltruum i henni eru
konur. —dþ
Indíánar
Framhald af bls. 9.
og einkarétt til veiða á 14%
svæöisins i viðbót. Og 225 miljónir
eikfílag:
TKJAVfKDRj
EQUUS
i kvöld kl. 20,30.
VILLIÖNDIN
3. sýn. fimmtudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
föstudag. — Uppselt.
SAUMASTOFAN
laugardag kl. 20,30.
KOLRASSA
sunnudag kl. 15.
VILLIÖNDIN
sunnudag kl. 20,30.
4. sýn. Rauð kort gilda.
SKJALDHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
Miðasalan I Iðnó opin kl. 14 til
20,30. Simi 1-66-20.
l*ÞJÓ0LEIKHÚSIfl
SPORVAGNINN GIRND
i kvöld kl. 20
Næst siðasta sinn.
NATTBÓLID
6. sýning fimmtudag kl. 20
laugardag kl. 20
CARMEN
föstudag kl. 20
BALLETT
þættir úr Þyrnirósu o.fl.
Aukasýning laugard. kl. 15
Siðasta sinn.
KARLINN A ÞAKINU
sunnudag kl. 15.
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
dollara gera 2250 dollara á
manneskju. Það hrekkur
skammt, jafnvel þótt það yrði
fjárfest skynsamlega. Þessi fjár-
hæð verður hlægilega lág þegar
hún er borin saman við það fjár-
magn, sem varið verður til James
Bay-framkvæmdanna i heild.
Talið er að þegar hafi verið varið
til þeirra um 20 miljörðum
dollara. Indiánar og eskimóar
svæðisins fá ekki einu sinni eitt
prósent þeirrar upphæðar. Það er
sjaldgæft, að eitt fyrirtæki fái
hráefni sin á svo hagstæðu verði.
Þvi er ekkert undur að
stjórnarvöldin vilji endilega fá
samninginn staðfestan sem fyrst,
svo að hægt sé að semja við aðra
indiána og eskimóa með hann
sem fyrirmynd. Ekkert undur er
heldur að eskimóarnir i
Povungnituk séu litið hrifnir.
(Úr grein eftir Philip Laurit-
zen I Information.)
ALÞÝÐUBANDALAG
Viðtalstími borgarfulltrúa
Adda Bára Sigfúsdóttir verður til viðtals I dag á Grettisgötu 3 frá kl
17.00 til 18.00. Simi 28655.
Árshátíð ABR
Árshátið Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður haldin að Hótel Borg
föstudaginn 26. mars n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.
Matargestir tilkynni sig I sima 28655.
Skemmtiatriði nánar auglýst siðar. — Stjórn A.B.R.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 16. n.ars kl. 20.15.
Fundarefni:
1. Stefán Jónsson þingmaður reifar spurninguna um eignarnám á
landi. — Hvert er langtimamarkmið Alþýðubandalagsins varðandi
þetta mál?
2. Arni Waag sýnir litskuggamyndir og tekur fyrir efnið: Náttúru-
vernd og sósialismi.
Ka ffiveitingar. Takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsmálanámskeiðið hefst föstudaginn 19. mars. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku i sima:
43357 Asgeir 41962 Baldur
42331 Grétar 40047 Margrét
42462 Ragna Freyja 40671 Þorleifur
Alþýðubandalagið í Neskaupstað
Aðalfundur 1976 verður haldinn i Egilsbúð miðvikudaginn 17. mars kl.
20.30:
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf. 2. Sýndar litskyggnur úr gönguferð i Hellisfjörð. 3.
önnur mál. — Félagar fjölmennið. — Stjórnin.