Þjóðviljinn - 17.03.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 17.03.1976, Page 11
Miðvikudagur 17. mars 197« ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11 Framlengja varð tvisvar sinnum í viðureign KR og ÍS og stúdentarnir höfðu það í lokin Leikdagar í 8 liöa úrslitum EB lands- Evrópuknattspyrnusam- bandið, UEFA, hefur ákveðið leikdagana I 8-liöa úrslitum EB landsliða. 24. april fara eftirfarandi leikir fram: Júgú- slavía — Wales i Zagreb Tékkósl.—Sovétrikin I Bratisl. Spánn—V-Þýskal. i Madrid 25. april Holiand—Beigia i llotterdam Siðari umfcrðin fer svo fram 22. mai Wales—Júgósl. i Cardiff Sovétr. — Tékkósl. i Kiev V-Þýskal. — Spánn i Miinch. Belgia — HoIIand i Brussel A-sveit SR vann skíðaboð- gönguna Reykjavikurmeistaramót i 3 x 10 km. skiðaboögöngu var haldið við Skiðaskálann i Hveradölum, laugardaginn 13. mars. kl. 2.30 e.h. Veður var mismunandi, um tima mikil ofan hrið og fennti i slóðina en veðrið batnaði eftir þvi sem leið á gönguna, frostlaust var og mikið til logn. Göngustjóri var Skarphéðinn Guðmundsson og brautarstjóri Haraldur Páls- son. Gengnir voru 5 km. hringir i sömu braut og var rásmark og endamark á sama stað, rétt neðan við lyftuhúsið. Fjórar sveitir mættu til leiks, 2 sveitir frá Skiðaféiagi Reykjavikur, 1 sveit frá Skiöadeild Hrannar og gesta- sveit frá ísafirði. Úrslituröu þessi: Meistaratit- illinn 1976 féll i skaut A.sveitar Skiöafélags Reykjavikur, i henni voru: Páll Guðbjörnsson, Matthias Sveinsson Ingólfur Jónsson Timi sveitarinnar var 141.38 min. Nr. 2 var Skiðadeild Hrannar, i henni voru: Sigurður Sigurðsson Hermann Guðbjörnsson Jóhann Jakobsson Timi sveitarinnar var 143.11 min. Nr. 3 var B. sveit Skiðafélags Reykjavikur, i henni voru. , Dúi Sigurjónsson Sveinn Guðmundsson Freysteinn Björgvinsson Timi sveitarinnar var 155.11 min. Gestasveitin lauk ekki keppni. Verðlaunaafhending fór fram að keppni lokinni og var i fyrsta skipti tekinn i notkun hinn nýi verðlaunapallur Skiðafélags Reykjavikur. Hann varð heldur betur langur leikur KR(a) og tS i annarri um- ferð bikarkeppninnar I körfu. Eft- ir venjulegan leiktima var staðan jöfn, 81—81, þannig að framlengja þurfti leikinn og eftir framleng- inguna var staðan enn jöfn 94-94, önnur framlenging og þá fékkst loks úr þvi skorið hvort liðið kæmist áfram i undanúrslitin. Endirinn varð sá, að KR-ingar ' skoruðu 99 stig, stúdentar 104. t hálfleik var staðan einnig jöfn 37 stig gegn 37 stigum. Stúdentar mega þakka Guðna Kolbeinssyni fyrir sigur i leikn- um, þvi þegar máttarstólpar liðs- ins, Bjarni Gunnar, Jón Héðins- son og Ingi Stefánsson, sem allir áttu góðan leik voru komnir útaf með 5 villur, var það Guðni sem var aðalmaðurinn I öllu hjá þeim. Hann var allsstaðar á vellinum, fiskaði boltann, hirti fráköst og skoraði 8 af þeim 10 stigum sem lið hans skoraði i seinni fram- lengingunni. Félagar hans þökk- uðu honum vel fyrir, tolleruðu hann og flaug hann hátt i loft upp. Bestu menn i liði KR voru að vanda Bjarni Jóhannesson, Birg- ir Guðbjörnsson og Kolbeinn Pálsson ásamt Trukknum, en þeir fóru allir af leikvelli með 5 villur nema Bjarni. Gunnar Jóakimsson kom inná seint i seinni -hálfleik og á þeim stutta tima og i framlengingunum var hann mjög drjúgur. Furðulegt að hann skuli ekki hafa verið settur fyrr inná. Stigin hjá KR(a) skoruðu: Trukkur 29, Kolbeinn 16 Birgir 13, Bjarni og Árni Guðmundsson 12 hvor, Gunnar 8, Eirikur Jóhannesson 6, Gisli Gislason 2 og Asgeir Hallgrimsson 1 stig. Hjá 1S: Bjarni Gunnar 36, Guðni og Jón B. Indriðason 18 hvor, Ingi 16, Steinn Sveinsson 10, Þorleifur Björnsson, Albert Guðmundsson og Þórður Óskars- son 2 stig hver. G.Jóh. Steinn Sveinsson skorar eina af körfum sinum, og Árni Guðmundsson kemur engum vörnum við. Nýliðarnir sterkari en gömlu mennirnir Nýliðar Fram i 1. deildinni i körfu unnu b-lið KR i annarri um- ferð bikarkeppninnar og eru þeir þar með komnir i undanúrslit. i liði KR leika gamlir meistara- flokks- og landsliðsmenn, en reynsla þeirra dugði ekki gegn unguin og sprækum framörum. KR-ingarnir höfðu forustu allan fyrri hálfleikinn og meirihluta þess siðari, en þegar 8 min. voru eftir kom Guðmundur Hallsteins- son inná, og dreif hann framar- ana áfram, skoraði sjálfur 10 stig og átti þátt i öllu sem framararnir gerðu gott eftir þetta, og lokatölur leiksins urðu 61—49, eftir að stað- an I hálfleik hafði verið 29—26 fyr- ir KR og þeir náð 8 stiga forskoti fyrst i siðari hálfleik. Gamli la ndsliðs m aður inn Gunnar Gunnarsson bar af i liði KR og myndi hann sóma sér vel i hvaða 1. deiidar-iiði sem væri. Stigin fyrir KR (b) skoruðu: Hilmar Viktorsson 11, Gunnar, Magnús Þórðarson og Ólafur Fin- sen 10 hver, Kristinn Stefánsson 4, Guðmundur Pétursson og Sófus Guðjónsson 2 hvor. FyrirFram: Helgi Valdemars- son 20, Guðmundur 10, Héðinn Valdemarsson 9, Jónas Ketilsson og Þorvaldur Geirsson 6 hvor, Þorkell Sigurðsson 4, Hörður Agústsson, Arngrimur Thorlacius og Ómar Þráinsson 2 stig hver. G.Jóh. Báöir titlarnir blasa nú við Ármenningum Allt útlit er nú fyrir að Ármann vinni bæði deild ina og bikarkeppnina i körfuknattleik. Fátt virðist geta komið i veg fyrir sigur liðsins i deildinni úr þessu og i bikarnum eru öll sterkustu liðin úr leik nema Ármann, þannig að kraftaverk þarf að koma til ef Ármann á ekki að vinna bikarkeppnina. Valsarar voru þó ekki langt frá þvi að sigra bikarmeistara Ármanns er liðin léku i annari umferð bikarkeppni KKl. Aðeins 10 stig skildu liðin að, 112-102, munur sem fékkst strax i fyrri Sigurvegarar í yngri flokkum Úrslit fengust i yngri flokkun- um i körfubolta nú um helgina. Ekki var siður hart barist hjá unglingunum heldur en hjá körl- unum i deildunum. 1 4. flokki sigraði lið Hauka úr Hafnarfirði og er það i fyrsta skipti sem félagið hlýtur Islands- meistaratitil i „alvöru” körfu- bolta. Tvivegis hefur liöið sigrað i minni-bolta. Haukarnir töpuðu ekki leik i mótinu og voru þeir vel að sigrinum komnir. Lið Tindastóls frá Sauðárkróki varð sigurvegari i 3. flokki og réðust úrslitin á vitaskoti þegar aðeins 1 sekúnda var eftir af leiknum. 1 2. flokki kvenna sigraði lið Harðar frá Patreksfirði lið 1R, en aðeins þessi tvö lið sendu lið til keppni i 2. fl. Lið Laugdæla sigraði siðan i 3. deild og leika þeir þvi i 2. deild að ári. G.Jóh. hálfleik, aðallega fyrir tilstilli Jóns Sigurðssonar sem átti stór- leik. Jór. var aö vanda aðal- maðurinn hjá Ármanni, skoraði óvenju mikið og átti ógrynni af frábærum sendingum. Jimmy Rogers stóð fyrir sinu, en oft hefur hann sýnt betri leik. Aðrir liðinu voru ekki i formi. Pressa Ármenninga var léleg, og veltu menn fyrir sé hvort þeir hafi „fengið hana notaða hjá ein- hverju liði sem hætt var að rota hana”. Þórir Magnússon og Torfi Magnússon voru drýgstir Vals- manna, þó svo að Torfi hafi larið út af með 5 villur snemma i seinni hálfleik. Stigin fyrir Val: Þórir 36, Torfi 24, Þröstur Guðmundsson 13, Hafsteinn Hafsteinsson og Lárus Hólm 8 hvor, Rikharður Hrafn- kelsson 7, Sigurður Þórarinsson 4 og Gisli Guðmundsson 2. Fyrir Ármann: . Jón Sig. 37, Jimmy 27, Björn Cristinsen 10, Haraldur Hauksson og Guðsteinn Ingimarsson 8 hvor, Jon Björg- vinsson 7. Sigurður Ingólfsson 6. Guðmundur Sigurðsson 2 og Atli Arason 2. G.Jóh. Jón Sigurðsson fvrirliði Armanns átti stórleik með liði sinu og eygir hann nú i fyrsta sinn sigur i tslandsmótinu. — Mvnd: G. Jóh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.