Þjóðviljinn - 20.03.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 20. mars 1976 ÞJÓOVILJINN — SÍÐA 3
Tíöindi úr verstöðvum
Maraþonfundur i borgarstjórn
um fjárhagsáætlun
Y estmannaey j ar
Undrandi á
stœrð ýsunnar
Þorsteinn Ingólfsson I Vest-
mannaeyjum gaf blaðamanni
Þjóðviljans þær upplýsingar að
á vertiðinni I ár væru 56 bátar,
um helmingur á trolli og
helmingur á netum. Þar hafa
verið stanslausar ógæftir, en
aflast allvel þegar gefur. i mars
hefur verið mjög stirð tið.
Aflinn fram til 15. mars var
4741 tonn en var á sama tima I
fyrra 5778 tonn. Flestir bátanna
hafa verið á heimaslóðum en
netabátarnir þó austur i bugtum
og taka þá 2 lagnir. Aflahæsti
báturinn 15. mars var Surtsey
með 258 tonn og næstur Þórunn
Sveinsdóttir með 245 tonn.
Þorsteinn sagðist vita litið um
stærð fisksins en gat þess þó aö
menn væru undrandi á þvi að
ýsan virðist stærri nú en undan-
farin ár og eins virðist þorskur-
inn yfirleitt vera vænn. —GFr
Grindavík
Bullandi ótið
Að sögn Daniels Ilaraldssonar
vigtarmanns i Grmdavik eru
ósköp léleg aflabrögð þar eins
og i fyrra. BuIIandi ótið hefur
verið f mars. Á fimmtudag lönd-
uðu 44 bátar 364 tonnum og var
það gamall fiskur, 5 nátta. A
miövikudag lönduðu 36 bátar
376 tonnum af fjögurra nátta
fiski.
Heildaraflinn 15. mars var
2945 tonn en var á sama tima i
fyrra 3572 tonn. A fimmtudag
var aflinn orðinn um 3700 tonn.
Aflahæsti báturinn, sem landar
i Grindavik, er Jóhannes Gísla-
son með 243 tonn, en næstur
kemur Þorsteinn Gislason með
180tonn. Sandafellið hefur verið
fyrir vestan og ekki landað i
Grindavik en það mun vera litið
eitt hærra en Jóhannes Gunnar.
Bátarnir hafa verið á veiðum
frá Eykjanesi og út á Selvogs-
vita og ennfremur út á Tá, sem
kallað er, syðst á Selvogsbanka.
Daniel sagði að fiskurinn sem
fengist væri vænn þorskur.
Ufsabland væri i þeim bátum
sem mest hefðu aflað að und-
anförnu. Þórkatla landaði mest
á fimmtudageða 22tonnum ogá
miðvikudag 45 tonnum en þar
væri ufsi 2/3 aflans en lágt verð
fæst fyrir hann.
—GFr.
Sandgerði
Allgóður
en leiðindaveðurlag
Þjóðviljinn hafði samband við
Jón Júliusson vigtarmann i
Sandgerði. Hann sagði að þar
hefðu verið allgóð aflabrögð
siðan verkfalli lauk en alltaf
hálfgert leiöindaveður. A
fimmtudag komu 20 bátar inn
og lönduðu 308 tonnum svo að
dæmi séu nefnd, en yfirleitt
landa milli 25 og 32 bátar.
Allir netabátarnir nema einn
eru á grunnslóðum. Hann er á
netum út af Breiðafirði.
Aflinn frá áramótum til 15.
mars er 2933 tonn i 590 sjó-
ferðum en á sama tima i fyrra
var hann 2727 tonn i 479 sjó-
ferðum. Aflahæstur núna er
Berþór meö 370 lestir til 15
Þorlákshöfn
Frekar tregt
mars., en nú er hann kominn
með 424 lestir.
Aðspurður um stærð fisksins
sagði Jón, að hann væri ekki
stór, en þolanlegur. Smáfiska-
dráp væri ekki afgerandi rriikið
en alltaf eitthvað.
Nóg atvinna er i Sandgerði.
—GFr
Gestur ögmundarson vigtar-
inaður I Þorlákshöfn tjáði
blaöamanni Þjóöviljans að hann
myndi bara ekkiaðra eins ótið I
vetur og allur þorri báta með
lágan afla.
Heildarbolfiskaflinn var 15.
mars 3596 tonn en var á sama
tima i fyrra 4356 tonn. Afla-
hæstur er Friðrik Sigurðsson
með 407 tonn en aflahæsti bátur-
inn i fyrra var með 384 tonn á
sama tima.
Það eru 26 bátar frá Þorláks-
höfn sem landa þar reglulega og
að auki bátar frá Stokkseyri og
Eyrarbakka, svo að daglega
landa milli 30 og 40 bátar og á
eftirað fara fjölgandi. Allflestir
eru á netum en örfáir á trolli.
Mestur hluti aflans nú er stór
þorskur, en var ufsi fyrir verk-
fall. Gestur sagði að smáfiska-
dráp þekktist ekki. Hér væri um
að ræða svokallaðan vertiðar-
þorsk. Bátarnir þurfa að sækja
langt, alla leið austur fyrir Eyj-
ar. —GFr
ísafjörður:
Gœftir
Hans Haraldsson skrifstofu-
stjóri Norðurtangans á isafirði
gaf Þjóðviljanum þær upplýs-
ingar, að afli togaranna væri
góður og væru þeir nú búnir
að fá um 800 tonn frá áramótum
hver.Lítið féll úr hjá þcim vegna
verkfalls. Þá hefur einnig yf-
irleitt verið gott hjá linubátum
hamla
en steinbitur væri vaxaudi hluti
af aflamagni þeirra. Gæftir
liafa verið það góðar að ckki
hamlaði sjósókn. Þó hefur verið
rysjótt veður á köflum.
Frá þvi að verkfalli lauk hefur
verið stanslaus vinna i landi
jafnt á laugardögum og sunnu-
ekki
dögum sem aðra daga. Mein-
ingin væri að gefa fri i Norður-
tanganum nú á sunnudag til að
fólk geti blásið mæðinni.
Hans sagði að stærð fisksins
væri mjög breytileg. Um daginn
kom togarinn Guðbjartur með
95 tonn og aflinn hefði skipst
þannig að 95% þorsksins lenti i
Gengið að
hugmyndum
minnihlutans
Síðasti borgarstjórnarfundur,
sem hófst á fimmtudagseftirmið-
dag klukkan fimm stóð til klukk-
an sex á föstudagsmorgun. A
fundinum fór fram siðariumræða
um fjárhagsáætlun borgarinnar.
Báru fulltrúar minnihlutans fram
nokkrar eftiislegar breytingartil-
lögur, og var flestum þeirra hafn-
að af meirihlutanum, nokkrar
samþykktar með breytingum og
tvær tillögur samþykktar um-
yrðalaust.
önnur tillagan, sem óbreytt
náði fram að ganga var frá
borgarfulltrúum Alþýðubanda-
lagsins um ýtarlega könnun á þvi
hvort hagkvæmt sé að breyta
reiknisári borgarsjóðs þannig,
að það hefjist 1. mars, það er eftír
að alþingi hefurfariðhöndum um
fjárlög rikisins, en ekki i desem-
ber eins og nú er.
Þá- fluttu borgarfulltrúar
Alþýðubandalagsins tillögu þess
efnis, að vegna slæmrar reynslu
af nýtingufjár til byggingar dag-
vistunarstofnana skyldi Félags-
málaráð sjálft fá veitta upphæð
til þessa verks til ráðstöfunar, i
stað þess að þurfa að sjúga það út
úr borgarsjóði með þeim árangri
á síðastaáritd. aðekki tókst að ná
þaðan þvi fé, sem veitt hafði verið
á fjárhagsáætlun og skakkar þar
miljónum.
Sjálfstæðismenn fluttu breyt-
ingartillögu við þessa tillögu
Alþýðubandalagsins, og fólst i
henni viöurkenning á að ástandið
hefði ekki verið nógu gott, en
sjálfdæmi vildu þeir þó ekki selja
Félagamálaráði.
Frá var visað tillögu frá fram-
sóknarmönnum um brúargerð
yfir Elliðaár, en mikið brúar-
gerðaræði virðist hafa gripið um
sig með framsóknarmönnum.
Tillögu frá fulltrúa Alþýðuflokks-
ins um athugun á að koma upp
heilsugæslustöð i Seljahverfi var
visað frá á þeirri forsendu að ver-
ið væri að athuga með heilsu-
gæslu fyrir breiðhyltinga hvort eð
væri.
Borgarfulltrúar allra minni-
hlutaflokkanna fluttu sjö breyt-
ingartillögur sameiginlega.
Fjallaði ein um að heildarúttekt
verði gerð á borgarkerfinu með
það fyrir augum að auka sparnað
i rekstri borgarinnar, sem áætlað
er að kosti hvorki meira né minna
en 6 miljarða á þessu ári. Að
sjálfsögðu visuðu sjálfstæðis-
menn þessari tillögu frá, og hefur
þótt sem ráðdeild þeirra við
borgarreksturinn væri slik, að
ekki mætti betur gera.
Þá var visað frá tillögu til
tekjuöflunar fyrir borgarsjóð,
sem í því var fólgin að verð á
kvöldsöluleyfum i borginni hækki
úr 8 þúsund krónum, sem ákveðið
var 1964 i 100 þúsund krónur nú og
beitt þeirri röksemd, að ekki væri
rétt að sækja svo að einum hópi
kaupmanna, en þó var þeim hug-
myndum ekki á lofti haldið, að
stærsta flokki. 4% i miliistærð
og 1% var smáfiskur. Meöal-
skiptaverð i þessum túr var
63.65 kr. Hans sagði að svo væru
menn að segja að hátt verð
fengist fyrir aflann með þvi að
sigla með hann. En þetta hefði
nú að visu verið sérstakt.
—GFr
hækka beri þá gjöld á öðrum
kaupsýslumönnum til samræmis,
heldur var tillögunni einfaldlega
visað frá.
Þá var flutt tillaga um bygg-
ingu 450 ibúða á árunum 1977 —
1982 til þess bæði að skapa at-
vinnu fyrir þá, sem við bygg-
ingariðnað vinna svo og til þess
að leysa húsnæðisvanda ungs
fólks, sem er að hefja búskap,
húsnæðisvanda efnalítils fólks og
húsnæðisvanda eldra fólks, sem
býr i of stóru og óhentugu húsnæði
og vill gjarnan minnka við sig.
Þeirri rökfimi var beitt, að ef til-
laga þessi yrði samþykkt mundi
draga úr byggingu verkamanna-
bústaða, og tillagan felld þar
með.
Enn fluttu borgarfulltrúar
minnihlutans tillögu um kaup á
tveimur skuttogurum til atvinnu-
aukningar i borginni. Tillagan
hljóðaði upp á kaup á togurum af
minni gerð. Einnig fólst i tillög-
unni ákvörðun um smiði nýs full-
komins frystihúss á vegum BÚR i
Bakkaskemmu. Var þessari
tillögu ekki gjörsamlega hafnað,
heldur var henni visað til út-
gerðarráðs, þar sem hún sjálf-
sagt fær svefninn sinn.
Tillaga var flutt um það, að
borgarstjórn kæmi upp vinnu-
stöðum fyrir öryrkja, svo og
áskorun til borgarfyrirtækja um
að þau hafi jafnan tiltekinn fjölda
öryrkja i vinnu. Siðari liður tillög-
unnar var samþykktur óbreyttur,
en flutt var breytingartillaga við
fyrri hlutann á þann veg, að borg-
in komi upp sérstakri vinnumiðl-
un fyrir fólk með skerta vinnu-
getu. Þannig breytt var þessi til-
laga samþykkt, og er þar vissu-
lega nokkrum árangri náð.
Þau undur gerðust svo, að
borgarstjórn samþykkti með 15
samhljóða atkvæðum tillögu frá
minnihlutanum um, að borgar-
stjórn styrki Félag einstæðra
foreldra við húsakaup.
Loks fluttu borgarfulltrúar
minnihlutans tillögu um, að tekin
yrði upp viðræða við ábúanda
Nesjavalla um að draga verulega
úr sauðfjárbúskap á jörðinni
vegna ofbeitar. Meirihlutinn gekk
þá fram fyrir skjöldu og bætti um
betur, flutti breytingartillögu
þess efnis, að sauðfjárbúskapur
skyldi með öllu aflagður að
Nesjavöllum en þess i staðtekið
þar til við skógrækt.
Frá umræðum um fjárhags-
áætlunina verður nánar skýrt i
blöðum eftir helgina. —úþ.
• •
Oll gögn
hafa enn
ekki borist
Hœstarétti
Það mun dragast fram i næstu
viku. að Hæstiréttur úrskurði i
kærumáli gæsluvarðhaldsfang-
anna þriggja sem inni sitja vegna
Geirfinnsmálsins. Nokkuð er
siðan sakadómur sendi sin gögn.
sem eru á annað hundrað bls.. til
Hæstaréttar, en i gær höfðu ekki
borist þangað greinargerðir og
athugasemdir allra réttargæslu-
manna fanganna. Þær ættu hins
vegar að liggja fyrir strax eftir
helgina. og ætti þá fljótlega að
vera hægt að kveða upp úrskurð i
málinu.
—erl