Þjóðviljinn - 20.03.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 20.03.1976, Blaðsíða 16
djqðviijinn Laugardagur 20. mars 1976 Lissabon: Banatilræði yið Karami BEIRÚT 19/3 — Rashid Karami, forsætisráöherra Libanons, var sýnt banatilræði i dag. Var eld- flaugum skotið á flugvél, sem var i þann veginn að leggja af stað með hann og fleiri leiðtoga múhameðstrúarmanna i landinu til Sýrlands til viðræðna við Ass- ad forseta og aðra þarlenda framámenn. Enginn i sendi- nefndinni hlaut sár eða bana i ár- ásinni, sem ekki er vitað hverjir gerðu. Borgarastyrjöldin i Libanon virðist nú hafin á ný og að þessu sinni með fullri þátttöku hersins, sem virðist skipta sér milli deilu- aðila, sem þar af leiðandi hafa nú bæði skriðdreka og fallbyssur, sem hingað til hefur litt verið not- að i bardögum i landinu. Sagt er að yfir 50 manns hfi i gær og i nótt verið drepnir i Beirút og ná- grenni, og óstaðfestar fréttir greina frá stórskotaliðs- og skrið- drekaorrustu i Tripóli i norður- hluta landsins. íslands- ferðum breskra frétta- manna fækkar í frétt frá landhelgis- gæslunni segir að áber- andi sé hvað ásókn breskra fréttamanna hingað til þess að fylgj- ast með landhelgis- stríðinu hafi minnkað. Ekkert lát er hinsvegar á straumi fréttamanna annarsstaðar frá, og hefur gæslan veitt þeim ýmiskonar fyrir- greiðslu. Þrir sjónvarpsmenn frá bandarisku sjónvarpsstöðinni ABC hafa verið hér ásamt tveimur hollenskum frétta- mönnum, kanadiska útvarpið og þýska blaðið Spiegel sendu einnig menn hingað fyrir skömmu og þýska og kana- diska sjónvarpið hafa einnig notið fyrirgreiðslu gæslunnar. Flestir fréttamannanna hafa farið i gæsluferð með varð- skipi eða i eftirlitsflug. Sænska sjónvarpið er nú að senda hingað vinnuhóp til þess að taka þætti og fréttamyndir vegna fiskveiðideilunnar. Það er bagalegt að bresku fréttamönnunum skuli hafa fækkað, vegna þess að skrif þeirra og ummæli hafa yfir- leitt verið heldur vinsamleg málstað islendinga. t fyrradag voru heimilaðar verðhækkanir frá deginum i dag, er hin „herta” verðstöðvun fellur úr gildi. Þessar hækkanir eru: Afnotagjöid útvarps og sjónvarps, sem hækka um 30%, þjónusta efnalauga sem hækkar um 14% og rakarar fá að hækka sina vinnu um 5%. Aður hefur verið sagt frá hækkun Hitaveitu Reykjavikur um 27%, en hún kemur til framkvæmda nú um helgina. Hér er gefinn forsmekkurinn að. þvi, sem dynja mun yfir á næstunni, nú þegar herta verð- stöðvunin er úr gildi fallin. Verðlagsstjóri, Georg Olafsson, sagði i gær að fjöldi hækkunar- beiðna lægi fyrir. Ekki vildi hann nefna neinar sérstakar, en meðal annarra mun þar vera beiðni frá SVR um hækkun far- gjalda um 35%. Landbúnaðarafurðir munu sennil. hækka i næstu viku, og sitja nú fulltrúar sexmanna- nefndar við að reikna þær hækkanir út. ASI hefur ekki skipaö mann i nefndina, en þar sitja menn frá Sjóma nmafélagi og von a morgum nýjum Reykjavikur, Landssambandi iðnaðarmanna og einn skipaður af félagsmálaráöuneytinu, i stað ASt-fulltrúans. Hins vegar eru svo fulltrúar Framleiðslu- ráðs og Stéttarsambands bænda. Má vænta niðurstöðu af þeirra hendi eftir helgi. Þeir lið- ir sem hækka munu búvörurnar eru launaliður bóndans, og hækkun á honum sem ekki kom til framkvæmda 1. de's-. eins og vera átti. Þá mun hækkun á dreifingarkostnaði i kjölfar siðustu kjarasamninga hafa nokkur áhrif. Verðlagsstjóri sagði i gær, að þótt hertu verðstöðvuninni íyki nú um helgina yrði verðstöðvun áfram i gildi. Er hann var beð- inn að skýra muninn sagði hann að nú að undanförnu hefðu eng- ar hækkanir verið leyfðar, aðr- ar en í beinu sambandi við erlendar verðhækkanir, en á næstunni mætti búast við öðr- um hækkunum, þvi að nóg væri af beiðnum. Munurinn væri þvi kannski sá, að á timum hinnar hertu verðstöðvunar væri hægt verðstöðvun að tala um verðstöðvun, en hömlur. fremur mætti kalla venjulega verðhækkana- — erl Harka í ríkisstarfsmönnum BSRB þar sem samningsréttar- málin yrðu tekin til umræðu. Þessir fundir eru þegar hafnir og hafa þar veriö samþykktar tillög- ur sem sýna, aö rikisstarfsmenn vilja einskis iáta ófreistaö til aö ná viöunandi samningsrétti. Er i samþykktum þessum oröalag, sem ekki veröur skiliö á annan veg en um verkfallshótun sé aö ræöa. Hefur Starfsmannafélag rikisstofnana þar riöiö á vaöiö og hvatt til verkfalls daginn sem kjaradómur á aö fella úrskurö sinn. A fundi i Lögreglufélagi Reykj- avikur i fyrradag var samþykkt einróma ályktun þar sem segir m.a.: „Fundurinn undrast þau vinnu- brögð, sem viðhöfð hafa verið af rikisins hálfu, að hindra fram- gang samkomulags á lokastigi málsins með sifellt nýjum skil- yrðum. Væntir fundurinn þess að sá lokafrestur sem nú hefur verið ákveðinn, verði notaður til að fullreyna sættir og skýra alla þætti málsins. Takist ekki samkomulag um lausn málsins, en einhliða vilja stjórnvalda .verði þröngvað upp á opinbera starfsmenn i nafni Kjaradóms, þá lýsir fundurinn yfir þvi, að öllum opinberum starfsmönnum beri að sameinast gegn sliku, með öllum tiltækum ráðum.” Jónas S. Jónasson formaður Landsambands lögreglumanna sagöi i gær, að þá um kvöldiö yrði haldinn i Stapa fundur með lög- reglumönnum frá ýmsum stöðum suðvestanlands. Sagði hann að lögreglumenn væru i fyllstu sam- stöðu með öðrum félögum BSRB og bjóst við að ályktun yrði gerð á fundinum i sömu átt og sú er birt er hér að ofan. Það er töluvert hörkubragð af henni.sagði Jónas, en annað dugir ekki en sýna hörku og fyllstu samstöðu. Þá gerði aðalfundur Félags flugmálastarfsmanna rikisins svohljóðandi álvktun fyrir skömmu: „Aðalfundur Félags flugmála- starfsmanna rikisins, sem hald- SALISBURY 19/3 - 1 dag slitnaði upp úr samningsviðræðum þeim, sem undanfarið hafa staðið yfir milli Ians Smith, forsætisráð- herra stjórnar hvitra manna i Ródesiu, og Joshua Nkomo, ann- ars aðalleiðtoga Afriska þjóðþingsflokksins (ANC), sem berst fyrir þvi að svartir ibúar landsins fái jafnrétti við hvita. Nkomo sagði á blaðamanna- fundi að siðasta viðræðufundi loknum að upp úr hefði slitnað vegna þess að Smith hefði verið ófáanlegur til að afhenda blökku- mönnum, sem eru um 95% lands Margrét og Snowdon skilin LUNDÚNUM 19/3 — Margrét bretaprinsessa og maður hennar Snowdon lávarður eru skilin að borði og sæng eftir 16 ára hjóna- band. Var þetta tilkynnt frá Kensington-höll i Lundúnum, þar sem þau hjón hafa búið. Hins- vegar hafa þau ekkert fyrirhugað um lagalegan skilnað. Margrét kemur hér eftir fram opinberlega án þess að hafa Snowdon með sér. Hún heldur umráðarétti yfir börnum þeirra tveimur og árs- launum sinum, sem eru 35.000 sterlingspund. inn var 16. þ.m. lýsir undrun sinni á afstöðu stjórnvalda til samningsréttar opinberra starfs- manna. Það er alkunna, að starfsmenn rikisins hafa lakari rétt til samninga um laun sin en aðrir þegnar þjóðfélagsins og hafa oft orðið að sætta sig við gerðardóm sem lokastig i kjaradeilum. manna, völdin fyrr en eftir tiu til fimmtán ár, en Nkomo hafði talið tvö ár hámarksfrest. Smith lét hafa eftir sér að við- ræðufundi loknum að nú yrði Bretland að taka á sig ábyrgðina á framtið Ródesiu. Ródesia var hluti Bretaveldis þangað til árið 1965, er minnihlutastjórn hvitra manna þar lýsti yfir sjálfstæði. Stjórnmálafréttaskýrendur telja að endalok viðræðnanna hafi i för með sér að aðstaða stjórnar Smiths versni enn að miklum mun, og má hún þó varla mikið verri vera eftir að Mósambik lok- aði landamærum sinum að Rodesiu. Talið er einnig liklegt að lok samningaviðræðanna kunni að leiða til þess að fleiri grannriki Ródesiu, einkum Sambia, sem til þessa hefur verið næsta hógvær i afstöðu sinni til Ródesiu, taki nú upp herskárri stefnu gagnvart stjórn Smiths. Mikið veltur á af- stöðu Suður-Afriku, en svo að segja öll utanrikisviðskipti Ródesiu fara nú fram um það land. Johannes Vorster, forsætis- ráðherra Suður-Afriku, sem á sinum tima átti mikinn þátt i þvi að Smith settist að samningum með Nkomo, sagðist i dag ekki vera vonlaus um að hægt væri að taka samningaviðræðurnar upp aftur. Fundir um samningsréttarmálin standa yfir hjá aðildarfélögunum i gær var hér I blaðinu sagt frá hræringum I aðildarfélögum Ródesia: Slitnaði upp úr sairniingaviðræðum Fundurinn skorar á rikisstjórn að taka þegar i stað upp viðræður við heilarsamtök opinberra starfsmanna i fullri alvöru og beita sér, þegar á yfirstandandi alþingi, fyrir lagasetningu, sem tryggja muni opinberum starfs- mönnum sömu aðstöðu við gerð kjarasamninga og öðrum þegn- um þjóðfélagsins. Fé veitt til hitaveitu á Vestfjörðum I Vestfirska fréttablað- inu, sem gefið er út á ísa- f irði, segir að Orkuráð haf i samþykkt að verja tals- verðu fé til vinnsluborana og hitaveituf ramkvæmda á Vestfjörðum. Hér er um að ræða 15 miljónir til borunar eftir heitu vatni fyrir Isafjörð, 15 miljónir vegna borana í Bolungarvík, 6 miljónir til að gera vinnsluhæfa holu sem boruð var á Suðureyri við Súgandaf jörð sl. sumar og 1,8 miljónir til borunar í Vatnsfirði. r r- Arshátíð AB í Reykjavík Árshátíð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldin á.Hótel Borg n.k. föstudag, 26. mars, og hefst með borðhaldi kl. 19.00 Minnst verður tíu ára afmælis félagsins. Veislustjóri verður Jón Múli Árnason Dagskrá: 1. Stutt ávörp f lytja Ragnar Arnalds og Þröst- ur Ólafsson. 2. Jónas Árnason og Arnmundur Backmann syngja og stjórna fjöldasöng. 3. Þáttur frá Alþýðuleikhúsinu á Akureyri. 4. Söngsveitin Þokkabót skemmtir. Hljómsveit Árna ísleifssonar leikur fyrir dansi. Miðar eru seldir að Grettisgötu 3 (28655) Miðaverð er kr. 3000 með mat og kr. 1000 án matar. Stjórn A.B.R.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.