Þjóðviljinn - 20.03.1976, Blaðsíða 5
Laugardagur 20. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN — StDA 5
Áskorun stuðnings-
nefnda við KÚRDA
til ríkis-
stjórna
Islands og
Svíþjóðar
Kúrdneskt flóttafólk
Eins og fyrr hefur
veriö frá skýrt í Þjóðvilj-
anum, afhentu formenn
stuöni ngsnef nda við
kúrda á íslandi og í Sví-
þjóð/ Erlendur Haraids-
son og Olof G. Tandberg,
utanríkisráðuneyti
islands og sendiráði Sví-
þjóðar á islandi þann 4.
þ.m. áskorun þess efnis,
að ríkisstjórnir íslandsog
Svíþjóðar veki máls á
högum kúrda í írak á
vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Fer þessi
áskorun íslensku og
sænsku kúrdanefndanna
hér á eftir:
Áskorun vegna kúrda í
Norður-lrak
Með þessari áskorun hvetja
islensku og sænsku kúrdanefnd-
irnar til þess að ráðstafanir
verði gerðar á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna viðvikj-
andi svokölluðu máli kúrda.
Eins og vitað er saman-
stendur rikið trak af þremur
fylkjum úr fyrrverandi stór-
veldi ósmana, og voru þau fylki
kennd við borgirnar Mosúl,
Bagdad og Basra. Svæðið norð-
austur af Bagdad er kallað
Kúrdistan, og er þar um að
ræða þann hluta traks, sem ekki
er byggður aröbum, heldur
aðallega kúrdum. Rétt fyrir lok
fyrri heimsstyrjaldar náðu
herir Bretlands landinu á sitt
vald. Á friðarráðstefnunni i
Sevres 1920 var gerður samn-
ingur milli bandamanna og rikis
ósmana, þar sem viðurkenndur
var réttur kúrda til fullveldis á
þvi svæði, þar sem meirihluti
ibúanna væri kúrdneskur.
Þegar trak varð sjálfstætt og
gekk i Þjóðabandalagið 1932,
var gert að skilyrði fyrir upp-
töku þess i bandalagið að
kúrdar i landinu fengju viss
réttindi sem þjóð. Samn-
ingurinn um þetta var gerður að
lið i stjórnarskrá traks.
trak gekk i Sameinuðu
þjóðirnar 21. desember 1945 og
hét þvi þá skilyrðislaust aö
hlita reglum Sameinuðu þjóð-
anna. Ennfremur átti lrak hlut
að yfirlýsingu allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna frá 11.
desember 1946, þar sem þjóðar-
morð er lýst glæpur samkvæmt
alþjóðalögum og skuli þvi for-
dæmt af öllum hinum sið-
menntaða heimi. 1 sátt-
málanum um refsingar við
þjóðarmorði (sem einróma var
samþykktur á allsherjarþingi
Sameinguðu þjóðanna 9.
desember 1949) er þjóðarmorð
skilgreint með eftirfarandi
orðum: ,,Að fremja athafnir i
þeim tilgangi að eyðileggja,
algerlega eða að nokkru leyti,
þjóðernislega, kynþáttarlega
eða trúarlega heild sem slika.”
Islensku og sænsku kúrda-
nefndirnar eru sannfærðar um
að miðað við ofanskráða skil-
greiningu er tilraun til þjóðar-
morðs staðreynd, hvað
viðkemur kúrdum i Norður-
trak, og leyfa sér þvi að fara
fram á eftirfarandi:
Að fastanefndir Islands og
Sviþjóðar hjá Sameinuðu
þjóðunum fái fyrirmæli um að
hafa frumkvæði að þvi, að
Sameinuðu þjóðirnar sendi
nefnd til þess að komast að raun
um, hverjar séu nú hinar raun-
verulegu kringumstæður kúrda
i Norður-lrak.
Ennfremur leggjum við fram
þá kröfu að Mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna taki kjör
og kringumstæður fólks af kúrd-
nesku þjóðerni i Norður-lrak til
meðferðar og að þess sé æskt af
Mannréttindanefndinni að hún
gefi allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna skýrslu um það, sem
hún kemst að raun um.
Fram til þessa hefur alþjóð-
legum hjálparstofnunum, svo
sem Alþjóðlega Rauða kross-
inum og Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna, sem og öðrum hjálp-
arstofnunum, verið bannaður
aðgangurað Norður-lrak. Það á
einnig við um allar stofnanir á
vegum flóttamannanna sjálfra,
svo og þær stofnanir er vilja
hafa samráð við innlendar
hjálparstofnanir um hagsmuna-
mál flóttamanna.
Þar eð við teljum að fólk af
kúrdnesku þjóðerni sé nú i mik-
ílli útrýmingarhættu, leggja
hinar tvær nefndir okkar
áherslu á mikilvægi þess að
ofannefnd athugunarnefnd á
vegum Sameinuðu þjóðanna fái
eins fljótt og mögulegt er umboð
til þess að fara til Norður-traks,
i þeim tilgangi að framkvæma
hlutlæga rannsókn á raunveru-
legum kjörum og kringum-
stæðum kúrdnesks fólks i
landinu.
Reykjavik 4. mars 1976
Erlcndur Haraldsson
f.h. islensku kúrda-
nefndarinnar.
Olof G. Tandberg
f.h. sænsku kúrdanefndarinnar.
Erlendur Haraldsson og Olof G.
Tandbcrg.
út af
Jerúsalem:
Heitt í kolum
helgum stað
NKW YOIIK, JERÚSALEM 19/3
— Nokkur múhameðsk liki ósk-
urðu þess i dag að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna kæini
saman A'ið fyrstu hentugleika til
þess að ræða ástandið á vestur-.
bakka Jórdanár. Mikil ólga er nú
i Jerúsalem út af þvi hvort bæði
múhameðstrúarmenn og gyðing-
ar skuli hafa rétt (il að hiðjast
l'yrir við AI-Aksa-moskuna þar i
borg eða múhameðstrúarmenn
ein'ir. Moska þessi, sem er hin
þriðja helgasta i múhameðskum
dómi, er byggð á grunni musteris
gvðinga, sem rómverjar brutu
árið 70 c.Kr. Staðurinn er þvi
gvðingum helgur, en þar eö
moskan stendur þar nú, telja
múhameðingar það helgispjöll að
þeir fái að hiðjast þar fvrir.
ísraelskur dómstóll úrskurðaði
nýverið að gyðingum skyldi
heimilt að biðjast þarna fyrir, en
rikisstjórnin sem óttast ókyrrð af
þeim sökum, hefur áfrýjað dómn-
um til hæstaréttar og mælst til
þess við gyðinga að þeir biðjist
fyrir við grátmúrinn sem er þar
skammt frá, i staöinn. Þúsund.ir
araba söfnuðust saman i dag i
Jerúsalemt og viðar i landinu og
mótmæltu bæði ofannefndum
ðómi og hernámi tsraels á
vesturbakkahéruðunum.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN.
AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir að-
stoðarlæknar óskast til starfa á
Svæfingar- og gjörgæzludeild spital-
ans. Annar frá 1. júni n.k. og hinn
frá 1. júli n.k. og er ætlast til að þeir
starfi i eitt ár. Nánari upplýsingar
veitir yfirlæknir. Umsóknir er
greini aldur, námsferil og fyrri störf
ber að senda skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 10. mai n.k.
IIJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast
til starfa á LYFLÆKNINGADEILD
(3-B), BARNASPÍTALA HRINGS-
INS og HJÚKRUNARDEILDINA
við Hátún, svo og til afleysinga á
aðrar deildir. Nánari upplýsingar
veitir forstöðukonan, simi 24160.
KLEPPSSPÍTALINN.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Og
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa hið
fyrsta á Vifilsstaðadeildina. Nánari
upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 38160.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast
til starfa á næturvaktir á Flóka-
deild. Upplýsingar veitir forstöðu-
konan, simi 38160.
Reykjavik, 19. marz 1976.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765
BYGGUNG
— Kópavogi
Aðalfundur félagsins verður haldinn
laugardaginn 27. mars kl. 1 e.h. i Félags-
heimili Kópavogs.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórnin
LESENDAKÖNNUN
Siðastliðinn sunnudag birti Þjóðviljinn á blað-
siðu 11 (14. mars) lesendakönnun. Þessi könn-
un verður ekki birt aftur i sama formi, þar eð
endurtekning mundi gera okkur ókleift að
finna út lesendafjölda á hvert eintak blaðsins.
Við leggjum áherslu á mikilvægi þess að sem
allra flestir fylli út spurningalistann og sendi
okkur sem allra fyrst. Athugið að á listanum
kemur á engan hátt i ljós krafa um að ,,húsráð-
andi” eða kaupandi fylli listann út. Vinsam-
lega merkið umslagið þannig:
,, Lesendakönnun”
Þjóðviljinn
Skólavörðustig 19
Reykjavik