Þjóðviljinn - 20.03.1976, Page 7
Laugardagur 20. mars 1976 |>JÓÐV1LJ1NN — SÍOA 7
SVERRIR HÓLMARSSON SKRIFAR
LEIKHÚSPISTIL
Úr Gréta og grái fiskurinn.
gangi er hins vegar boðið upp á
nýjung, sem fólgin er i þvi að lýsa
sviðið með útfjólubláu ljósi en
mála brúður og leiktjöld með lit-
um sem verða sjálflysandi i sliku
ljósi, en stjórnendur eru svart-
klæddir og sjást þvi ekki. Með
þessari tækni sýnir hópurinn nú
leikritið „Gréta og grái fiskur-
inn”, sem unnið er upp úr sam-
nefndri barnabók sem margir
kannast við. Þorbjörg Höskulds-
dóttir, sem oftast hefur unnið með
hópnum að leikmyndagerð, hefur
gert hina fegurstu fiska og neðan-
sjávarmyndir og þegar þetta fer
allt á dillandi hreyfingu undir
tónlistinni hans Atla Heimis
skapast veruleg stemning. Þetta
er áreiðanlega vandmeðfarin
tækni en hér hefur tekist vel og
smekklega til.
Leikbrúðulandshópurinn hefur
unnið gott starf við fremur erfið
skilyrði og er ánægjulegt hversu
mjög hann hefur lagt sig eftir þvi
að auka sifellt við brúðutækni
sina. I Meistara Jakob er t.d.
beitt einum fjórum mismunandi
tegundum leikbrúða, ef mér tald-
ist rétt til. Það sem helst hefur
háð hópnum er skortur á verulega
góðum textum, en það er vist
hægara sagt en gert að bæta úr
þvi.
Listdans
Þjóðleikhúsið hefur rekið
ballettskóla um alllangt skeið, en
það er ekki nema á alsiöustu ár-
um aö þar hefur starfaö fastur
dansflokkur. Hefur hann haldið
nokkrar sýningar og nú síðast á
þremur dansatriöum, tveimur i
klassiskum ballettstfl og einum i
nýtískulegra formi. A hina tvo
klassisku þætti, Dauðann og
stúlkuna og Þyrnirósu, skal ég
engan dóm fella, þar sem ballett
af þessu tagi er mér næsta fram-
andi listgrein, en hygg þó aö þau
skilyrði sem þarf til að þessi
geysikröfuhraða listgrein nái
verulegum þroska séu tæpast fyr-
ir hendi á íslandi.
Þriðji þátturinn, Or borgarlif-
inu eftir Unni Guðjónsdóttur, var
hugþekkur og fallegur. Hann lýsir
lifi venjulegrar fjölskyldu, ástir
takast, dóttir fæðist, dóttir vex úr
grasi og veröur sjálfstæð, faðir
fer að heiman og leggst i fylliri og
kvennafar, dóttir og móðir verða
vinir, faðir vill koma heim aftur,
dóttir og móðir vilja ekki sjá
hann. Góður endir það. Allt var
þetta túlkað mjög einfalt og stil-
hreint, litið um dansspor dans-
sporanna vegna, og greinilega
undir áhrifum frá látbragösleik.
Oftminnti sýningin mig sterklega
á tékkneska Fialka-flokkinn sem
hér var á ferð fyrr i vetur. Þáttur-
inn var i heild skemmtilegur,
fyndinn og fjörugur, en bauð
einnig upp á viðkvæma fegurð,
svo sem eins og i fyrstu sporum
dótturinnar út i heiminn, en þvi
atriöi skilaði Auður Bjarnadóttir
af sérstakri prýöi.
Sverrir Hólmarsson
BRÚÐUR
og DANS
Þó svo aö það sem kalla mætti
„venjulegt” leikhús standi hér
með allmiklum blóma er þvi ekki
á þann veg farið meö ýmsar
hliðargreinar leiklistarinnar, t.d.
listdans, brúðuleik, óperu, lát-
bragðsleik. Þetta er kannski að
vonum — smæð þessa þjóðfélags
hlýtur að setja fjölbreytninni
nokkrar skoröur. Við sumar þess-
ar greinar vildi maöur þó að
meiri rækt væri lögð. Það hefur
sýnt sig i frábærum undirtektum
við Carmen nú i vetur að óperu-
flutningur á hljómgrunn hér,
stóran áhorfendahóp sem ástæða
er til að sinna. A sama hátt á
brúðuleikhús ævinlega greiðan
aðgang að traustum áhorfenda-
skara þar sem eru börnin — eink-
um þau yngstu.
Leikbrúöuland
Brúðuleikhús hefur löngum átt
erfitt uppdráttar hérlendis. Um
margra ára skeið vann þó Jón E.
Guðmundsson merkilegt braut-
ryðjendastarf á þessu sviði. Nú
siðustu fjögur árin hefur hins
vegar verið nokkuð regluleg
starfsemi á vegum hóps er kallast
Leikbrúðuland og sýnir i húsi
Æskulýðsráðs við Frikirkjuveg.
Konurnar fjórar sem að Leik-
brúðulandi standa, þær Bryndis
Gunnarsdóttir, Erna Guðmars-
dóttir, Hallveig Thorlacius og
Helga Steffensen hafa sett þar
upp allmargar sýningar og unnið
markvisst að þvi að þróa leik-
brúðutækni sina og auka fjöl-
breytni hennar. Burðarásinn i
þessum sýningum hefur einatt
verið Meistari Jakob með tilheyr-
andi ærslum og gauragangi, en
alltaf hefur verið annað efni i
bland sem hefur höfðað til ann-
arra hluta. Hingaö til hefur þar
mest verið á ferðinni þjóðsögu-
legt efni, nú siðast i vetur þáttur-
inn „Jólasveinar einn og átta”,
nokkuð greinargóð kynning á
fornum siðum og þjóðtrú kring-
um jólin.
A þeirri sýningu sem nú er i
Tveir þættir voru I klassfskum stfl
Leikfélag Seltjarnarness sýnir
gamanleik
Leikfélag Seltjarnarncss var
stofnað 13. október 1971. Fyrsti
formaður féiagsins var Sigurður
Sigmundsson, siðar Jón Jónsson,
en núverandi formaður cr Guðjón
Jónatansson.
Félagið sýndi árið 1972 ein-
þáttúngana Jóðlif eftir Odd
Björnsson og Sköllóttu söng-
konuna eftir Ionesco. Leikstjóri -
var Hákon Waage og Ingunn
Jensd. Arið 1973 barnaleikritið
Gosa eftir Jóhannes Steinsson,
Geimfarann eftir Hreiðar Eiriks-
son árið 1974, og með það leikrit
fór 4 manna leikflokkur til
Alandseyja i tilefni 10 ára
afmælis sambands finnsk-
sænskra áhugaleikara. Leikstjóri
við tvö síðasttöldu verkin var Jón
Hjartarson, sem jafnframt var
kennari á framsagnarnámskeiði.
Hefur félagið efnt til 4 fram-
sagnarnámskeiða, og notið þar
leiðsagnar Péturs Einarssonar,
Hákons Waage, Jóns Hjartar-
sonar og Ingunnar Jensdóttur.
19. febrúar s.l. kom finnskur
leikflokkur frá Braga Dramaten i
Helsinki i boði Leikfélags Sel-
tjarnarness, og hafði hér 4
sýningar i félagsheimilinu við
ágætar undirtektir. Einnig tók
félagið á móti og liðsinnti finnska
leikflokknum Tilateatteri frá
Helsinki árið 1974.
Félagið hefur undanfarin 3 ár
séð um skemmtiatriði á
Seltjarnarnesi 17. júni i samvinnu
við Iþróttafélagið Gróttu.
Núverandi verkefni félagsins
nefnist „Hlauptu af þér hornin”
(Come Blow Your Horn) og er
eftir bandariska leikritaskáldiö
Neil Simon. Höfundurinn hefur
samið fjöldann allan af leikritum
og sjónvarpsþáttum, og hafá
mörg verka hans verið kvik-
mynduð. Hefur Simon bæði hlotið
Emmy og Tony verðlaunin fyrir
verk sin.
Hlauptu af þér hornin er
gamanleikur i þremur þáttum.
Leikstjóri er Helgi Skúlason. en
leikmynd gerði Steinþór Sig-
urðsson. Leiktjaldasmiði og allan
annan undirbúning hafa félags-
menn unnið sjálfir, en nokkur
fyrirtæki hafa lánað leikmuni og
búninga.
Leikendur i þessu verki eru:
Jóhann Steinsson. Hilmar
Oddsson, Jón Jónsson, Jórunn
Karlsdóttir, Þórunn Hallsdóttir.
Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir
og Guðjón Jónatansson.
Leikfélagið hefur mikinn hug á
að fara með leikinn til nærliggj-
andi byggðarlaga, og vill hafa
samvinnu um það við leikfélög
staðanna.
Frumsýning á gamanleiknum
Hlauptu af þér hornin verður i
Félagsheimili Seltjarnarness
þriðjudaginn 23. mars n.k. og
hefst kl. 9 e.h. Næstu sýningar þar
á eftir verða á fimmtudagskvöld
og sunnudagskvöld.