Þjóðviljinn - 20.03.1976, Blaðsíða 8
S StÐA — ÞJ6ÐV1LJ1NN Laugardagur 20. mars 1976
Laugardagur 20. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
i
mmmmmmmmmmmmtm
Er loðnuvertíðin á enda að þessu sinni? Þetta er spurning sem margir velta fyrir sér um þessar
mundir, enda standa málin þannig að heildaraflinn i ár er meira en 100 þúsund tonnum minni en var á
sama tima i fyrra,og allir geta séð hvaða afleiðingar það getur haft, ef svo fer sem margir halda að
vertiðinni ljúki i næstu viku. Þeir eru þó til og það ekki neinir viðvaningar i loðnuveiðum, sem halda
þvi fram að vertiðin sé alls ekki búin, mikið magn af loðnu sé i sjónum umhverfis landið, einkum fyrir
vestan og norðan og sú loðna eigi eftir að hnappa sig í torfur. Hins vegar virðist ljóst að ekki sé von á
fleiri göngum austan að og fyrir sunnan land, þann möguleika munu flestir búnir að afskrifa.
Ofan á alla þessa óvissu bætist svo að fádæma ógæftir hafa hamlað veiðum á vertiðinni og það svo
að reyndustu skipstjórar segjast vart muna annað eins,enda koma lægðirnar eins og á færibandi vest-
an aðog yfir landið og svo hefur verið nú um 2ja til 3ja vikna skeið. En hvað um það, við fórum niður
að Reykjavikurhöfn i gær, þar sem mjög margir loðnubátar lágu inni vegna óveðurs á miðunum,og
tókum tvo kunna skipstjóra tali, þá Eggert Gislason skipstjóra á Gisla Arna og Hjörvar Valdemars-
son á Berki NK, en báðir þessir menn eru með kunnustu aflamönnum okkar um þessar mundir.
Trúi því
ekki að
þessi
loðnu-
vertíð sé
búin
— sagði Eggert Gísiason skipstjóri
á Gísla Árna RE
— Ég trúi þvi ekki að þessi
loðnuvertið sé búin. Sú loðna
sem við höfum verið að veiða
siðustu vikuna hér úti i Faxa-
flóa er að visu alveg komin að
þvi að hrygna en það er oftast
hægt að veiða nokkurt magn eft-
ir að hún hefur hrygnt, það
drepst ekki nærri öll loðnan
strax, þannig að eitthvað meira
ætti að vera hægt að veiöa úr
þessari torfu. Hún var i gær al-
veg komin upp i landsteina, við
vorum að veiða hana uppundir
Þormóðsskeri á mjög grunnu
vatni og slæmum botni, slikt er
hættuspil meðsvo djúpar nætur,
sagði Eggert Gislason, skip-
stjóri á aflaskipinu Gisla Arna,
sem lá með 470 tonn af loðnu i
Reykjavikurhöfn i gærmorgun
og beið löndunar.
— Það liggur ekkert á, það er
komin bræla og ekki veiðiveður,
sagði Eggert, en greinilega var
honum ekki rótt frekar en fleiri
loðnuskipaskipstjórum i ótið-
inni. Það var grannt hlustað eft-
Eggert Gislason skipstjóri.
ir þvi i talstöðinni hvort nokkurt
skip hefði fundið loðnu, en svo
var ekki.
— Maður veit ekki hvað er að
marka þessar fréttir um að
loðnan hefði fundist i Reykja-
fjarðarál og fyrir norðan,
maður vonar að þetta sé rétt.
Það er enginn vafi á þvi að það
er nóg loðnumagn i sjónum, það
er bara að finna hana. Og svo
auðvitað þessar dæmalausu
ógæftir. Maður á bara varla orð
yfir hvernig þetta hefur verið.
Fyrst verkfallið sem auðvitað
dró úr veiði og siðan ógæftirnar.
Það er ekki ein báran stök i
þessu.
— Hvað eruð þið komnir með
mikið á þessari vertið?
— Rúm 7 þúsund tonn. Ann-
ars er ég að byrja aftur núna
eftir nokkurt hlé, við erum tveir
skipstjórar á Gisla Árna.
— Er nauðsynlegt að hafa
tvo skipstjóra á svona skipi?
— Það held ég, auk þess er
maður að verða gamall og
þreyttur og heldur þetta ekki
eins út og áður.
— Veistu hvað þið gerið þegar
loðnuvertið lýkur?
— Nei, það er ekkert ákveðið.
Við förum bara á þær veiðar
sem best gefa þegar þar að
kemur.
— En er ekki skipið fyrst og
fremst nótaskip?
— Jú, að visu en við getum
einnig stundað linuveiöar, troll
og jafnvel netaveiði, þótt hún sé
kannski óheppilegust fyrir
okkur. Við höfum stundum farið
á linu og troll og það gæti allt
eins gerst i vor; maður veit það
ekki fyrr en þar að kemur.
— Hvað með spærlings- eða
kolmunnaveiðar?
— J á, það er nú stóra
spurningin. Það vantar ekki að
þetta er afbragðs matur, til að
mynda kolmunninnÞað má gera
úr honum dýrindis rétti, en hann
er vandmeðfarinn og það verður
að finna einhverja leið til að
geyma hann þannig að hægt sé
að nýta hann til manneldis. Sem
stendur virðist enginn markað-
ur vera fyrir kolmunna og til
bræðslu fæst svo litið verð fyrir
hann að það borgar sig ekki að.
stunda veiðarnar. En varðandi
veiðar á kolmunna og spærlingi
skulum við ekki gleyma þvi, að
það eru ekki mörg ár siðan að
við fórum að veiða loðnu i
einhverjum mæli. Hér fyrrum
var hún aðeins veidd i beitu, það
hvarflaði ekki að nokkrum
manni að fara að veiða hana i
einhverjum mæli. Kannski liður
ekki langur timi þar til við för-
um að stunda spærlings- eða
kolmunnaveiðar i svipuðum
mæli og loðnuna nú. Það vantar
ekki magnið af þessum fiski hér
i kringum landið.
— Eru menn ánægðir með
loðnuverðið i ár?
— Hvenæreru menn ánægðir;
ekl:i frekar nú en oftast áður.
Og þar með kvöddum við
þennan fræga aflamann Eggert
Gislason.en báðum hann i leið-
inni að kikja út um glugga i
brúnni, svo hægt væri að ná
góðri mynd: — Blessaður vertu
ekki að taka af mér mynd, sérðu
ekki að ég er ótilhafður,
nývaknaður maður, það á aldrei
að taka myndir af fólki nývökn-
uðu, sagði Eggert og hló við, en
við tókum ekki mark á þessum
orðum og smelltum af einni
mynd sem sýnist ekki svo afleit.
— S.dór.
Ógæftirnar eru
að gera útaf
við mann
— sagði Hjörvar Valdemarsson, skipstjóri á Berki NK
— Þetta veðurlag er alveg með
eindæmum og ég fæ ekki betur
séð en að þessar ógæftir séu alveg
að gera útaf við mann á loðnuver-
tiðinni. Þetta er fjórði dagurinn i
þessari viku sem að eru 12 vind-
stig á Stórhöfða og ég man varla
eftir öðru eins, sagði Hjörvar
Valdemarsson, skipstjóri á afla-
skipinu Berki frá Neskaupstað, er
við hittum hann í gær þar sem
skip hans lá inni Reykjavikurhöfn
með litil 100 tonn af loðnu innan-
borðs.
— Við urðum að koma inn
vegna veðurs, það var engin leið
að athafna sig neitt þarna, sem
loðnan var,auk þess sem við átt-
um mjög erfitt um vik að eiga við
hana, hún var á svo grunnu vatni,
25 föðmum eða svo, og maður
tekur ekki þá áhættu, sem fylgir
þvi að kasta svo djúpri nót sem
við erum með á svo grunnu vatni,
auk þess sem botn þarna er m jög
hraunóttur.
— Óttastu að þessi loðnuvertið
sé að verða búin?
— Það er engin leið að spá neinu
um það, fiskifræðingarnir geta
það ekki einu sinni. Þessi loðnu-
torfa sem skipin hafa verið að
veiða úr hér úti Flóanum er alveg
komin að þvi að hrygna nú, það
verður sjálfsagt hægt að veiða úr
henni fáeina daga enn, ef gefur,
þvi þótt hún sé búin að hrygna,
kemur alltaf eitthvað af henni
upp aftur áður en hún drepst, en
það verða ekki nema nokkrir
dagar enn sem veiðanlegt verður
úr þessari torfu. Siðan veit maður
ekkert hvað verður. Það er verið
að tala um að loðna sé hér og þar
fyrirvestan eða norðan.en maður
hefur ekki fengið neinar
nákvæmar upplýsingar enn. Við
vitum að hún getur komið fyrir-
varalaust, þannig að það er of
snemmt að spá nokkru.
— Hvað eruð þið komnir með
mikið magn á vertiðinni?
— Það er vist 8500 tonn, það er
ekki neitt, blessaður vertu. Við
fengum 12.500 tonn á vertiðinni i
fyrra og ég hygg að við náum þvi
ekki héðan af. Ef gæftir hefðu
veriðeins og i meðal-ári hefði það
kánnski tekist.
— Veistu hvað tekur við hjá
ykkur þegar loðnuvertið lýkur?
— Nei, ég hef ekki hugmynd um
það enn, það er allt óráðið. Við
fórum á kolmunnaveiðar i fyrra:
hvort það verður gert i ár veit ég
ekki. Það fer allt eftir hvaða verð
fæstfyrir hann. Manni finnst það
•alveg furðulegt að það er alltaf
verið að tala um að nauðsynlegt
sé að veiða aðrar fisktegundir en
þær sem veiddar hafa verið und-
anfarin ár, en samt er ekkert gert
tii að styrkja einhver skip til
slikra tilraunaveiða. Það er ekki
nóg að segja að veiða þurfi meira
af spærling og kolmunna ef svo
ekkert verð fæst fyrir þennan fisk
og enginn markaður er til fyrir
afurðirnar.
— Er ekki Börkur smiðaður
eingöngu til nótaveiða?
— Nei, við getum einnig veitt i
flottroll og höfum gert það, en
nótaveiðin er heppilegust fyrir
hann.
— Hvað er áhöfnin fjölmenn?
— Það eru 15 menn um borð. Að
visu erum við tveir skip-
Það er kalsamt að standa i netabætniiigii i roki og rigningu á út-
iiiáiiuðiim niður á bryggju. Þessi netagerðamaðiir var að huga ,ð nót
eins loðniiskipsiiis sem lá i Reykjavik i gær
stjórarnir, skiptumst á að vera
með skipið, ég var með skipið i
byrjun vertiðar en tók svo fri og
er að taka við aftur nú. Eins eru
þrir vélstjórar og þvi alltaf einn i
frii. Nú, og svo geta aðrir skip-
verjar tekið sér fri af og til, og
aðrir koma þá á meðan og leysa
þá af.
— Er nauðsynlegt að skipstjór-
ar séu tveir á loðnuskipunum?
—• Það held ég. Að vera skip-
stjóri á svona skipi er afar slit-
andi starf. Vökur og aftur vökur,
sérstakléga ef litið veiðist. Þá er
alltaf verið að leita og það starf
lendir að sjálfsögðu á skip-
stjóranum. Enda er það svo að
tveir skipstjórar eru á flestum
stærri nótaskipunum. Þvi má
einnig bæta við að yfir sumarið og
haustið, þá koma menn að heita
má aldrei heim til sin, til að
mynda menn á skipunum sem
fara á Norðursjóinn.
— Eru menn ánægir meö loðnu-
verðið?
— Nei, biddu fyrir þér, það
vantar mikið á, fyrir nú utan það
að spyrja má, hvenær eru menn
ánægðir? En það verð sem verið
hefur i vetur er alltof lágt, sagði
Hjörvar að lokum.
—S.dór