Þjóðviljinn - 20.03.1976, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. mars 1976
Myndlistarnemendur fá sér kaffisopa I undirbúningi aö basarnum. Þau eru talin frá vinstri: Haukur
Haraldsson, Guörún Siguröardóttir, Bergljút Ingvarsdóttir (aftar), Jenný Guömundsdóttir, Bergdis
Guönadóttir, Þuriður Una og Guðrún Auöunsdóttir. (Myndir: GFr)
•æmw
Inga Sigriður og Guðrún
Auöunsdóttir i dyragættinni
hjá gamla Bernhöft bakara
Skilningur er nú óðum að
glæðast á þvi aö halda lifandi
tengsium við fortiðina með þvi
að varöveita hús og húsa-
samstæður frá gamalli tið. Nú
um nokkurra ára skeið hefur
staðið yfir barátta um svo-
kallaða Bernhöftstorfu en hún
er eina heillega húsaröðin i
Reykjavik frá fyrri hluta 19.
aldar. Fiestir virðast vera
komnir á þá skoöun að þessi hús
eigi aö fá aö standa áfram.
Líf er að
kvikna í
Bernhöfts-
torfunni
Samt stendur ennþá formleg
samþykkt um byggingu
stjórnarráðs á þessum stað.
Þaö skal tekið fram að mjög
margir ráðamenn hallast gegn
þessari samþykkt. t nóvember
sl. hófust viðræöur milli Torfu-
samtakanna og fjármála-
ráöuneytisins og fékkst þá ieyfi
til aö þrifa ibúðarhús Bernhöfts
gamla bakara og hita það upp.
Núna um helgina stendur yfir
kökubasar myndlistarnema í
þessu húsi og gefst almenningi
þar tækifæri til að lita húsiö að
innan þó aö aðeins bráða-
birgðaviðgerö hafi farið fram.
Kaffi og
Bernhöftsbollur
á basarnum
Blaðamaður Þjóðviljans leit
inn til myndlistarnemanna þar
sem þeir voru i óðaönn að undir-
búa basarinn á fimmtudaginn.
Þeir eru á 3ja ári i námi i Mynd-
listar- og handiðaskólanum og
eru að safna fé til námsferðar
um páskana. Þá er ætlunin að
fara til Hollands til að skoða
listasöfn. Á basarnum er á boð-
stólum margs konar handa-
vinna nemenda, keramik og
grafik. Auk þess eru seldir
happdrættismiðar með 37
málverk i vinning, flest eftir
þekkta listamenn sem hafa
gefið þau til happdrættisins. Þá
er selt kaffi og Bernhöftsbollur.
Basarinn er opinn i dag, laugar-
dag, frá 10-7 og á sunnudaginn
ef eitthvað verður eftir að selja
og aðsókn er sæmileg. Hér er
kjörið tækifæri fyrir fólk að
næla sér i eigulega handunna
vöru og listaverk, fá sér kaffi-
scpa i hryssingnum og lita inn i
eitt hinna umdeildu húsa
Torfunnar.
Ást a gömlum
húsum
Krakkarnir sögðust hafa
byrjað að ryðja þetta hús i 17
stiga frosti i desember. Draslið
var svo mikið i húsinu að það
kostaði óhemjuvinnu að koma
þvi út og hreinsa húsið. Margir
unnu að þessari hreinsun og
einn daginn tók t.d. leik-
Haukur Haraldsson og Inga Sigriður Ragnarsdóttir festa upp
grafikmyndir sem eru til sölu.
Margs konar handunnin vara er á boðstólum
flokkurinn INÚK til hendinni
vegna ástar á gömlum húsum
eins og Brynja Benediktsdóttir
orðaði það við blaðið. Þegar
veggfóður var rifið af veggjum
komu i ljós 8 lög hvert yfir öðru
og hvert öðru fallegra. Málning
hf. i Kópavogi gaf málningu á
veggina og ennfremur var gef-
inn renningur á gólf og fjár-
málaráðuney tiö annaðist
bráðabirgðahitalögn.
Vióræður við
fjármálaráðuneytið
Þjóðviljinn hafði samband við
Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt úr
Torfusamtökunum og sagði hún
að mikil sjálfboðaliðavinna
hefði verið unnin við að þrifa
þetta hús. Hún sagði að i næstu
viku hæfust á ný viðræður við
fjármálaráðuneytið um leyfi til
að þrifa önnur hús i Torfunni.
Aðalatriðið væri að koma á hita
i húsin þvi annars væri nær
ógjörningur að þrifa þau.
Arðbært að gera
húsin upp
Guðrún sagði að margir
aðilar hefðu sýnt áhuga á að
koma upp starfsemi i húsunum
ef þeir fengju leigusamning til
margra ára. Að öðrum kosti
gætu þeir ekki lagt fjármuni i
viðgerð á þeim. 1 fyrravor var
gerð heildarúttekt á Bernhöfts-
torfunni og lausleg áætlun um
hvað kostar að gera þau sæmi-
lega i stand. Sú áætlun hljóðaði
upp á 30 miljónir en það eru um
9000 kr. á kúbikmetra eða 3/5 af
visitölubyggingarkostnaði.
Sagði Guðrún að þetta yrði
örugglega ekki óarðbær fram-
kvæmd miðað við hversu góður
staður þetta er i bænum. Miðað
við 5000 króna leigu á fermetra
stæði þetta undir kostnaði. Þá
sagði Guðrún að bygging'arnar
væru samtals um 900 fermetrar
að flatarmáli og taldi hæpið að
nýtingarhlutfall á nýrri
byggingu á þessu svæði yrði
betra.
Fáir niðurrifs-
formælendur
Blaðið hafði samband við
Aðalstein Richter skipulags-
stjóra Reykjavikurborgar og
svo var á honum að heyra að
fáir væru orðnir formælendur
þess að rifa Bernhöftstorfuna.
Ef það er staðreynd geta reyk-
vikingar óskað sjálfum sér til
hamingju og hafist handa um
það af fullum krafti að gera við
húsin og færa lif I þau. Ekki
veitir af að lifga upp gamla
miðbæinn þar sem bankar eru
orðnir eins og krabbamein sem
færist smátt og smátt úr einu
húsi i annað. —GFr
Landsflokkaglíman
verður háð í dag
Allir bestu glímumenn landsins meöal keppenda
Úrslit um
helgina í
1. deild
kvenna og
í 2. deild
karla
Um þessa helgi lýkur keppni i
mfl. kvenna í handknattleik, en
segja má að Fram sé þegar
nokkuð öruggt með að sigra i
keppninni. Fram mætir KR um
helgina og getur vart hjá þvi farið
aö Fram vinni þann leik og þar
meö er titillinn i höfn. Armann,
sem er eina liöið sem getur náð
Fram að stigum mætir Vikingi og
ætti Armann að vera öruggt með
sigur og myndi eins og áður segir,
ná Fram að stigum með þvi að
sigra Viking ef Fram tapar fyrir
KR.
Þá ættu úrslit einnig að fást um
helgina i 2. deild karla. Akur-
eyrarliðin komu suður og leika
hér 2 leiki hvort. Þar á meðal
mun KA leika gegn KR og fari svo
að KR sigri er ÍR þar með komið
upp i 1. deild og raunar ef KA
tapar 2 stigum af þeim fjórum
sem liöiðá möguleika á að hreppa
hér syðra um hegina.
Landsflokkagliman 1976 fer
fram i iþróttahúsi Kennara
háskólans i dag og hefst kl. 14.
Allir bestu glimumenn landsins
verða meðal keppenda, þar á
meðal, Pétur Yngvason, glimu-
kóngur tslands 1975, bróðir hans
Ingi Yngvason, sem vann bikar-
glimuna á diigunum svo og Þor-
steinn Sigurjónsson, sem sigraði
i Skjaldarglimu Armanns
vetur.
Keppt verður i 6 flokkum og eru
skráðir keppendur 29 að tölu.
Glimustjóri verður Guðmundur
Ágústsson, yfirdómari Gisli Guð-
mundsson, en aðrir dómarar
Garðar Erlendsson og Yngvi
Guðmundsson.
i Ekki þarf að efast um að þarna
verður um jafna og skemmtilega
keppni að ræða og verður gaman
að fylgjast með viðureign
tviburabræðranna Pétursog Inga
Yngvasona, Guðmundar Ólafs-
sonar og Þorsteins Sigurjónsson-
ar, en þessir fjórir börðust hvað
harðast i bikarglimunni á dögun-
um.