Þjóðviljinn - 20.03.1976, Page 13
Laugardagur 20. mars 1976 ÞJOÐVILJINN — SÍDA 13
Sjónvarp í kvöld
Hvurn fjandann vilt þú upp á dekk? (Jr myndinni Uppreisnin á Caine, Humphrey Bogart t.h.
Uppreisn til sjós
Uppreisnin á Caine (The
Caine Mutiny) nefnist banda-
risk biómynd frá árinu 1954,
sem sjónvarpið býður upp á
eftir læknavitleysuna i kvöld.
Aðalhlutverk eru i höndum
Ilumphrey Bogart, José Ferrer,
Frcd McMurray og Van
Johnson.
Það er að visu engin trygging
fyrir þvi að mynd sé góð, að
Humphrey Bogart leiki i henni,
en hann þótti allavega á sinum
tima nokkuð góður leikari, en
leikur einatt nokkuð hrottalega
karaktera, sem gætu verið ókei
inn við beinið, slikar persónur
geta þegar til lengdar lætur
verið nokkuð þreytandi, en hver
veit nema striðsárakynslóðin
geti i kvöld glatt sig við sælar
endurminningar sokkabandsár-
anna, þegar mynd þessi var
sýnd hér i bió
Efnisþráðurinn er ekki til-
takanlega merkilegur. Nýr
skipstjóri er ráðinn á tundur-
spilli og einhverjir úr áhöfninni
halda að hann sé geggjaður,
þegar hann reynir að koma á
aga um borð. Það er þvi gerð
uppreisn gegn honum og er hætt
við að áhorfendur fái að sjá ófáa
pústra fljúga manna i millum
áður en yfir lýkur. En mér er
spurn: Þreytast menn ekki
bráðum á þessari glassúr- upp á laugardag eftir laug-
ameriku sem sjónvarpið býður ardag? ráa
Barnaefni í sjónvarpi
Pollýanna
hœttir
Framhaldsþættirnir um hana
Pollyönnu, sem sjónvarpiö hef-
ur undanfarið sýnt kl. hálfsjö á
laugardögum, hafa notið nokk-
urra vinsælda meðal barna og
unglinga, en sjötti og siðasti
þátturinn er á dagskrá f dag.
Þessi hnellna litla stúlka virð-
isthafa lag á þvi að koma öllum
i betra skap i kringum sig, þar
með talið sjónvarpsáhorfend-
um, en nokkuð eru þættir þessir
væmnir fyrir smekk undirrit-
aðs, þótt varla skemmi það
börnin. Væmnin virðist þvi
miður vera eins konar álög á
barna- og unglingaefni
sjónvarps og er Robinson-fjöl-
skyldan enn eitt dæmi um það,
þótt enginn nefndra þátta kom-
Pollýanna vill gera alla glaða.
ist i hálfkvist við hrossaelii-
heimilisþáttinn, sem var.svo
væmin að hann lak niður sjón-
svarpsskerminn. ráa
útvarp
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Gunnvör Braga heldur
áfram að lesa söguna
„Krumma bolakálf” eftir
Rut Magnúsdóttur (6). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Óskalög sjúkl-
inga kl. 10.25: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30. Iþróttir Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Björn
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. islcn/.kt
mál Asgeir Blöndal
Magnússon cand. mag
flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðuríregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir, Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurningin um framhald
lifsins Sigvaldi Hjálmars-
son flytur erindi.
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
steins Hannessonar.
20.45 Þjóð I spéspegli: Eng-
lendingar Ævar R. Kvaran
leikari flytúr þýðingu sina á
bókaköílum eftir Georg
Mikes (áður útv. sumarið
1969). Einnig sungin brezk
þjóðlög.
21.30 „Moldá”, kafli úr tón-
verki eftir Bedrich Smetana
Filharmoniusveit Berlinar
leikur, Herbert von Karajan
stj.
21.45 i Ljótalandi Pétur
Gunnarsson les úr
óprentuðu handriti sinu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (29).
22.25 (Jtvarpsdans á vorjafn-
dægri — nálægt góulokum.
Fyrir miðnætti leika ein-
vörðungu islenzkar hljóm-
sveitir gamla og nýja dansa
af hljómplötum — en er-
lendar eftir það (23.55
Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
# sjónvarp
17.00 iþróttir Umsjónarmaður
Bjarni F'elixson.
18.30 Pollyanna Breskur
myndaflokkur, gerður eftir
sögu Eleanor H. Porter.
Lokaþáttur. Efni 5. þáttar:
Jimmy fær fast starf sem
garðyrkjumaður Pendle-
tons, en konurnar í kven-
fölaginu treysta sér ekki
til að útvega honum sama-
stað. Pendleton er aft-
ur kominn á fætur. Hann
býður Pollýönnu að koma og
búa hjá sér, og hann viður-
kennir fyrir henni að hann
hafi elskaö móður hennar.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.35 Iiagskrá og auglýsingar
20.35 Krossgáta V Spurninga-
þáttur með þátttöku þeirra
sem heima sitja. Loka-
þáttur. Kynnir Edda
Þórarinsdóttir. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason,
21.05 Læknir til sjós Breskur
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.30 Uppreisnin á Caine
(The Caine Mutiny)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1954. Aðalhlutverk
Humphrey Bogart, José
Ferrer, Fred McMurray og
Van Johnson. Nýr skipstjóri
tekur við stjórn tundur-
spillisins Came. Hann tekur
aðstjórna meðharðri hendi.
en áhöfnin er óvön ströng-
um aga. Sá kvittur kemst á
kreik, að skipstjórinn sé
ekki með réttu ráði og ófær
um að stjórna, og þvi gripur
áhöfnin til sinna ráða. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
23.30 Dagskrárlok
Útvarp í kvöld
Þjóð í spéspegli
I kvöld kl. 20.45 verður endur-
tekinn lestur Ævars Kvaran
leikara á bókarköflum eftir
George Mikes, sem fjalla. um
hið skoplega i fari ensku þjóðar-
innar.
Þessi lestur var áður á dag-
skrá sumarið 1969, en ekki er
vanþörf á að rifja hann upp
núna, meðan á þorskastriðinu
stendur, þvi litið skemmtiefni
hefur fylgt frásögnum af þvi, en
við megum til að gera greinar-
mun á stórveldapólitik eng-
lendinga og ensku þjóðinni, sem
er allt annar handleggur og ólikt
hugnanlegri.
í Ljótalandi
Pétur Gunnarsson skáld
ætlar i kvöld kl. 21.45 að leyfa
úlvarpshlustendum að heyra
brot úr óprentaðri sögu eftir
hann, sem nefnist: í Ljótalandi.
Beta gengur nokkuð langt i þessu .Afram Bretland',
finnst þér ekki?
Útvarp á morgun
Pyndingar
í Uruguay
og fleira
Annað kvöld kl. 20.30 mun Jón
öskar rithöfundur lesa i útvarpi
þýðingu sina á bréfi frá föður
manns sem pyndaður var til
dauða i Uruguay.
Uruguay skipar sama sess
meðal landa heimsins i dag og
Chile, að þvi leyti að þar situr að
völdum einhver sú blóðþyrst-
asta og harðsvirðasta einræðis-
stjórn, sem sögur fara af. Þar
rikir nú einvaldurinn Juan
Maria Bordaberry með fulltingi
öflugs herliðs og einkalögreglu.
27. júni 1973 leysti Bordaberry
upp þjóðþing Uruguay með að-
stoð hersins, og bannaði jafn-
framt alla starfsemi vinstri
sinnaðra stjórnmálaflokka i
landinu. Verkalýðsþingi lands-
ins var lika bannað að koma
saman og komið var á viðtækri
ritskoðun á öllu lesefni, sem
prentað er i landinu. Jafnframt
hófust pólitiskar ofsóknir á
hendur öllum þeim, sem
grunaðir eru um vinstri
sinnaðar skoðanir og voru þeir
hnepptir i fangelsi hvar sem til
þeirra náðist. Hroðalegar
Ivsingar fara af fangelsum i
Uruguay. pyndingum og illum
Jóii Oskar, rithöfundur
aðbúnaði fanga þar, en talið er
að ekkert land hafi hlutfallslega
jafnmarga pólitiska fanga og
Uruguav:
Kona á
Spáni
Gumiar Giimiai'sson. blaða-
maður. mun seinna i útvarps-
dagskránni annað kvöld lesa
frumsamda smásögu. sem hann
nefnir ..Kona á Spáni". Gunnar
er lesendum Þjóðviljans að
góðu kunnur sem blaöamaður.
en margir kannast jafnframt
við skáldsögu hans „Beta
gengur laus", sem út kom i
hitteðfyrra og þótti lofa góðu.