Þjóðviljinn - 20.03.1976, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. mars 1976
ALÞÝÐUBANDALAG
Alþýðubandalagið Arnessýslu
Það verður haldið átram með umræðufund næst-
komandi laugardag kl. 14.30 að Eyrarvegi 15,
Selfossi. Svanur Kristjánsson, lektor, mun ræða um
málefnið:
Hverjar eru varnir tslands?
Upplýsingar I sima 1659. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Fundur verður haldinn að Bárugötu 9 næstkomandi sunnudag kl 2 e h
Fundarefni:
Landhelgismálið.Framsögumaður: Þörarinn Magnússon.Félagsmála-
nefnd.
Árs hátíð ABR
Árshátið Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður haldin að Hótel Borg
föstudaginn 26. mars n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.
Matargestir tilkynni sig i sima 28655.
Skemmtiatriði nánar auglýst siðar. — Stjórn A.B.R.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
FÉLAGI.
Veist þú:---hvaða.afgreiðslu breytingartillögur bæjarfulltrúa okkar
við fjárhagsáætlun bæjarins hlutu á siðasta bæjarstjórnarfundi-
hvað gert verður i gatnagerðarmálum bæjarins i ár —-hvað er að
frétta af hneykslismálinu fræga, „skifumálinu”?
Þessum spurningum verður svarað á rabbfundi i Þinghól nk. mánu-
dagskvöld og fleiri bæjarmál rædd.
Bæjarmálaráð og þar með bæjarfulltrúar mæta á fundinn sem hefst
kl. 20.30.
Lovisa verður með kaffi á könnunni — — láttu sjónvarpið eiga sig eitt
kvöld og mættu stundvislega.
Stjórn bæjarmálaráðs AB i Kópavogi.
Neskaupstaður
„Samskipti rikis og sveitarfélaga” er efni
erindis sem Logi Kristjánsson, bæjarstjóri, flyt-
ur fyrir almenning i Egilsbúð sunnudaginn 21.
mars kl. 16. Umræður að erindi loðnu. Allir vel-
komnir.
Logi Kristjánsson. Alþýðubandalagið i Neskaupsstað.
AB-félagar, Akureyri
Stefán Jónsson, alþingismaður, mætir á rabb-
fundinn að Eiðsvallagötu 18 kl. 16 á morgun,
sunnudag.
Fundur um heilbrigðismál Reylsvíkinga
Alþýöubandalagið i Reykjavik gengst fyrir fundi um heilbrigðismál
Reykvikinga i Tjarnarbúð (uppi) miðvikudaginn 24. mars kl. 20.30.
Ólafur Mixa, heimilislæknir, flytur erindi og svarar fyrirspurnum.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn A.B.R.
70 ára
í dag
70 ára er i dag Helgi Guölaugsson,
Njálsgötu 31. Þjóðviljinn færir
honum bestu heillaóskir á af-
mælisdaginn.
Gísl
Framhald af bls. 6.
Með aðalhlutverk i ,,Gisl” fara
þau Halldór -Karlsson er leikur
Pat og Þðrey Jónsdóttir er leikur
Meg; aðrir leikarar eru fjórtán.
1 hófi að iokinni frumsýningu
kvaddi bæjarstjórinn, Magnús
Oddsson, sér hljóös og árnaði
leikurum heilla með frammi-
stööuna og kvað I bæjarfulltrúa
fylgjast af ánægju með sifellt
öflugra starfi félagsins og myndu
styðja Skagaleikflokkinn eftir
megni.
Sýningar eru i Bíóhöllinni á
Akranesi er rúmar 350 manns i
sæti.
Þeir gömlu
Framhald af bls. 11
A-riðill.
Vikingur
Þróttur
Armann
Stjarnan
IBK
B-riðiU.
íslendingur
HK
1B1
Bre iðablik
Reynir
C-riðiU. —
Óðinn, Akureyri
Skautafél. Ak.
KS, Sigluf.
Eins og áður segir hefst keppn-
in sunnudaginn 21. mars n.k.
stundvislega kl. 19.00. Leikiö
verður upp á tvær unnar hrinur
og verður reynt að hafa 5 leiki I
A-riðli þá um kvöldiö.
Leikirnir fara fram i þessari
röð:
1. Þróttur-tBK
2. Ármann-Stjarnan
3. Vikingur-Þróttur
4. IBK-Armann
5. Vikingur-Stjarnan
30-menningarnir
gerast víkingar
t gær kváðu fulltrúar 30 manna |
hópsins svonefnda að ganga inn i
hið nýstofnaða flugfélag: Viking.
Verður framhaldsstofnfundur
félagsins haldinn einhvern tima
fyrir páska, og fá þeir þá aðild að
stjórn, en núverandi stjórn er
aöeins kosin til bráðabirgða.
A borðið með sér leggja 30
menningarnir um 30 miljónir
króna, og i gær var hlutafé
Vikinganna orðið 36,5 milj.
Samanlagt um 66 miljónir, sem
er meira en nóg til að hefja starf-'
semi. Hlutafjárloforð streyma að
Og verður næstu daga opin skrif-
stofa I Pósthússtræti 13 til að taka
á móti þeim og vinna að undir-
búningi starfseminnar. Er hún
opin til 10 á kvöldin og siminn er
27177.
Á fundi með fréttamönnum i
gær sögðu forráðamenn félags-
ins, að allar horfur væru á að full
starfsemi yrði komin á innan 6
vikna. Kauptilboð myndi verða
gert i flugvélar Air Viking, en ein
þeirra myndi fljúga i upphafi. Er
nú verið að semja um ársskoðun á
henni erlendis. önnur af hinum
tveimur vélunum er sennilega
ekki til annars en fara I varahluti,
en hin var i fullkomnu lagi og
verður send i svokallaða D-skoð-
un sem er mjög viðamikil, ef af
kaupum verður.
t hópi þeirra, sem skráð hafa
sig fyrir hlutafé eru einstak-
lingar, starfshópar og félög, alls
nokkuð á fjórða hundr. Eru
hlutafiárloforðin allt frá 5 þús. kr.
og upp i 10 miljónir, sem er hæst.
Meðal stærstu aðila eru Oliu-
félagið h.f. og Reginn h.f. Ekki
vissu forráðamenn hvort ein-
hverjir eignaraðilar að Flugleið-
um hefðu lofað hlutum. Hins
vegar sögðu þeir að nokkrir
starfsmenn Flugleiða myndu eiga
hluti i Vikingi.
Víkingur mun einkum sinna
innanlandsmarkaði i starfsemi
sinni, og bjóða þar i ferðir á.móti
Flugleiðum. Eins mun félagið
taka erlendum verkefnum sem
bjóðast kunna, en áherslan
verður lögð á innanlandsmarkað-
inn. —erl.
L j óðatónleikar
Enski barritonsöngvarinn
Simon Vaughan heldur Ijóðatón-
leika i Norræna húsinu kl. 4 við
uudirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Á efnisskrá eru lög eftir
þýsk, frönsk, rússnesk og ensk
tónskáld.
Simon Vaughan er ungur
Lundúnabúi, sem nam söng við
Cambridgeháskólann og söng
siðan við English National Opera.
Arið 1971 hlaut hann styrk, sem
nefndur er Richard Tauber
Memorial Scholarship og lærði
siðan i Vinarborg i 2 ár. Siðan 1973
hefur hann verið búsettur i
London og sungið þar.
Simon Vaughan kom til Islands
i fyrra og hélt þá 10 tónleika á
ýmsum stöðum á landinu og segir
islendinga vera góða hlustendur
og vel upplýstaj söng og tónlist.
Nú i vetur söng hann nokkrum
sinnum nautabanahlutverkið i
óperunni Carmen i Þjóðleik-
húsinu og mun syngja hlutverkið
aftur nú á næstunni.
Hjúkrunarkon-
um ógnað
með hervaldi
LISSABON 19/3 — Lögreglan i
Lissabon setti menn á vörð i dag
viðSanta Maria-sjúkrahúsið þar i
borg til þess að varna meðlimum
sjúkrahússtjórnarinnar inngöngu
ibygginguna. Er svo mál að vexti
að sjúkrahússtjórnin neitaði að
hlýða skipun félagsmálaráðu-
neytisins um að reka úr starfi
hjúkrunarkonur, sem gert höfðu
verkfall og snerist ráðuneytið
þannig við óhlýðninni að það rak
sjúkrahússtjórnina lika.
Um 20.000 rikisráðnár
hjúkrunarkonur i PortúgaJ gerðu
fyrir viku verkfall og kröfðust
hærri launa, en hafa siðan tekið
upp vinnu að nokkru leyti. Rikis-
stjórnin hótar að láta hermenn
yfirtaka sjúkrahúsin ef hjúkr-
unarkonurnar hætti ekki verkfall-
inu alveg. Mikil ókyrrð er nú
einnig meðal iðnverkamanna i
landinu.
Hinn 30. april nk. eru áætlaðir
tónleikar á vegum Tónlistar-
félags Akraness þar sem þau
munu syngja Sigriður Ella
Magnúsdóttir og Simon Vaughan
við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar.
A ljóðatónleikunum i Norræna
húsinu syngur Vaughan lög eftir
Schubert, Brahms, frönsku tón-
skáldin Ravel og DuParc, 4 lög
eftir Stravinski og ensk lög eftir
W. Williams og fleiri. Hann mun
syngja á þýsku, frönsku, rúss-
nesku og ensku.
—GFr
Fjárhagsáætlun
Framhald á bls. 1
króna, til Hliðaskóla um 60
iniljónir króna og til öldusels-
skóia i Breiðholti um 25 miljónir
króna.
En það er einnig á öðrum svið-
um, sem meirihlutamennin hafa
ákveðið að skera niður fjár-
veitingar frá þvi sem þeir höfðu
ætlað við fyrri umræðu fjárhags-
áætlunar i byrjun desember. Til
byggingar drykkjuhælis að
Arnarholti er ætlunin að draga úr
fjárveitingum um 54.8 miljónir
króna og 8 miljónir á að taka af
byggingarfé Borgarspitalans.
Af gatnagerðarfé er ætlunin að
taka 32 miljónir af framkvæmd-
um við iðnaðarhverfi við Súðar-
vog og einnig að fella niður fjár-
veitingu til gatnagerðarfram-
kvæmda við Sætún, en i þá fram-
kvæmd var áætlað i desember að
veita 55.8 miljónum króna.
- áþ
•W
ÞJÖÐLEIKHÚSI-B
BALLETT
þættir úr Þyrnirósu ofl.
Aukasýning i dag kl. 15.
Siðasta sinn.
NATTBÓLIÐ
i kvöld kl. 20.
miðvikudag kl, 20.
CARMEN
40. sýning sunnudag kl. 20.
KARLINN A ÞAKINU
sunnudag kl. 15.
LITLA SVIÐIÐ:
INUK
sunnudag kl. 15.
Miðasala 13,15—20.
Simi 1-1200.
LEIKFÉLAG
YKJAVfKOg
SAUMASTOFAN
i kvöld. —Uppselt
KOLRASSA
sunnudag kl. 15.
VILLIÖNDIN
sunnudag kl. 20,30
4. sýn. Rauð kort gilda.
SKJALPHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30
EQUUS
miðvikudag kl. 20,30
SAUMASTOFAN
fimmtudag kl. 20.30.
VILLIÖNDIN
föstudag kl. 20,30
5. sýn. Blá kort gilda.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14 til
20,30. — Simi 1-66-20.
Hjá
Mjólkurskógi
3. sýning i kvöld kl. 21
sýning sunnudag kl. 21.
sýning mánudag kl. 21
Verð miða: 400 kr.
Miðasalan opin i Lindar-
bæ daglega kl. 17—19.
sýningardaga kl. 17—21
Simi 21971.
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljinn óskar eftir blað-
berum i
Kvisthaga
Ásgarö
Fossvog
Vinsamlegast hafið samband
við afgreiðslu i sima 17500.
Kaupið bílmerki
Landverndar
rÖKUMl
lEKKIl
utanvegS
mrn
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensfnafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavörðustig 25
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar og Pick-Up bif-
reið, er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 23. marz kl. 12 til 3. — Tilboð-
in verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.
Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali