Þjóðviljinn - 21.03.1976, Síða 9
Sunnudagur 21. mars 1976 ÞJÓÐVILAINN — SIÐA 9
Barbara Valentin i ÓTTIN TORTIMIR SALINNI.
Birgitte Mira og E1 Hedi Ben Salem I hiutverkum sinum i ÓTTINN TORTIMIR
SALINNI.
Óttinn tortímir sálinni
Frægðin kemur að utan. Það
þekkja Islendingar þjóða best.
Sama gildir stundum hjá þjóðum,
sem vegna stærðarhlutfalla
virðast i fljótu bragði ekki eiga
neina samleið með íslendingum.
I Sambandslvðveldinu
Þýskalandi (BRD)_
nokkrir ungir kvikmyndagerðar-
menn verið að baxa við það
undanfarin ár að endurreisa
þýska kvikmyndahefð. Til þess
hafa þeir notið einhverrar hjálpar
af opinberri hálfu. Styrkir hafa
verið veittir til kvikmyndagerðar
frá innanrikisráðuneytinu,
menntamálaráðuneytum hinna
ýmsu rikja og frá opinberum
kvikmyndasjóðum. þessar fjár-
veitingar námu árið 1974 átta til
tiu milljónum marka (600-
700 milljónum islenzkra
króna. Við þetta bætist
siðan verulegur áhugi þýska sjón-
varpsins á þvi að leggja fram fé
til kvikmyndagerðar. 1974 gerði
sjónvarpið samning við kvik-
myndaframleiðendur (Film-
verlag der Autoren) um að leggja
þrjátiu og fjórar milljónir marka
( ca. tvo milljarða islenskra
króna) i púkkmyndir (co-
produetion) á fimm ára bili.
Fyrir sitt framlag fær sjónvarpið
rétt til nokkura sýninga i sjón-
varpi en kvikmyndagerðar-
mennirnir halda öllum öðrum
rétti. En á meðan allir eru á
fleygiferð til að gera eitthvað
fyrir kvikmyndamenninguna
verður einum hlekk i keðjunni
vart lokaö Það eru dreifingar-
fyrirtækin, sem i öllum vest-
rænum löndum eru annað hvort i
eigu eða klóm bandarisku risa-
fyrirtækjanna. (Helmingur að-
gangseyris að kvikmyndum i
BRD er fyrir sýningar á kvik-
myndum amerisku risafyrir-
tækjanna). Til þeirra, sem
stjórna dreifingunni og sýningum
kvikmynda, berast fréttir af
frægðinni að utan.
Það var fyrst eftir hrifningu og
verðlaun erlendis (Verðlaun
gagnrýnenda i Cannes 1974), að
kvikmyndin ÓTTIN TORTIMIR
SÁLINNI (Angst essen Seeleauf)
fékk almennilega dreifingu i
Þýskalandi. Sama er að segja um
kvikmyndir annarra þýskra
höfunda, sem höfða til skynsemi
og næmra tilfinninga. Það var
meðal annars ástæðan fyrir
stofnun Filmverlag der Autoren,
sem er samband óháðra kvik-
myndastjóra og framleiðenda og
er að hluta framleiðslufyrirtæki
en fæst þó aöallega við dreifingu
kvikmynda. t Filmverlag eru
samankomnir flestir þekktustu
ungu kvikmyndagerðarmenn
BRD. Meðal annarra eru þar
Verner Herzog, Alexander Kluge,
Peter Lilienthal, Volker
Schlöndorff, Peter Fleischmann
og Rainer Werner Fassbinder.
Kvikmyndir þessara manna hafa
svo ég viti ekki verið sýndar hér á
landi að undanskildum tveim
kvikmyndum Fassbinders,
ÁV AXTASALI FJÖGURRA
ÁRSTÍÐA (mánudagsmynd fyrir
nokkru) og ÓTTIN TORTIMIR
SÁLINNI, sem nú er sýnd mánu-
dagsmynd í Háskólabiói.
Fassbinder er mikill afkasta-
maður. Frá 1967-1974 stjórnaði
hann átján leiknum kvik-
myndum, samdi átta
klukkustunda sjónvarpsmynda-
flokk og stjórnaði honum einnig,
samdi og/eða sviðsetti tuttugu og
fimm leikrit og lék auk þess i
fjölda kvikmynda sjálfs sin og
annara.
Kvikmyndasagan ÓTTIN
TORTtMIR SALINNI er að ein-
hverju leyti byggð á ameriskri
kvikmynd ,,A11 That Heaven
Allows” frá 1955 eftir
danskan kvikm.stj. Douglas Sirk.
Fullorðin skúringakona, Emmi,
sest inn á krá, þar sem erlendir
verkamenn venja komur sinar.
Þar hittir hún Ali, ungan verka-
mann frá Marokkó. Þau taka tal
saman og með þeim takast ástir
öllum til furðu, reiði og hneyksl-
unnar. Hún er ekkja og börn
hennar lifa sinu lifi annarsstaðar
i borginni án þess að hugsa um
hana. Hann vinnur i framandi
samfélagi, vegna þess að heima
er ekki vinnu að fá, það er farið
með hann eins og hvert annað
vinnudýr. Enginn talar við hann
eins og mann. Þau eru bæði jafn
einangruð hvort i sinum heimi.
Það liður ekki á löngu áður en
kynþáttahatrið og fordómarnir
koma i ljós. Skyldmenni, vinnu-
félagar og nágrannar reyna það
sem hægt er til að gera Emmi
lifið óbærilegt. Það er ekki fyrr
en fólkið þarf á hjálp að halda, að
samband er haft við hana á ný.
Vinnufélagar hennar taka hana i
sátt, þegar hún tekur afstöðu með
þeim gegn erlendri verkakonu i
hópnum. Börn hennar sættast
við hana, þegar þau þurfa á
barnagæslu að halda. Kaup-
maðurinn sættist til að hún haldi
áfram að versla við hann o.s.frv.
t fyrri hluta myndarinnar er
athyglinni aðallega beint að
konunni en i seinni hlutanum
beinist hún að Ali. Þó fólkið sætti
sig við samband þeirra smám
saman og taki Emmi i sátt, er
hann eftir sem áður með-
höndlaður sem sýningargripur og
húsdýr. Jafnvel Emmi teur þátt i
þvi. Ali misbýður og leitar á
náðir fyrrverandi vinkonu.
Hvernig sambandinu lyktar
verður áhorfandinn sjálfur að
geta sér til um. Kvikmyndin
endar þar sem Ali erlagður inn á
sjúkrahús með magasár.
Læknirinn fullyrðir að þótt hann
nái sér i þetta skipti muni hann
koma aftur að hálfu ári liðnu.
Erlendu verkmennirnir fá
þennan sjúkdóm vegna þess að
þeir þola ekki andlegu spennuna
sem leiðir af lifi þeirra i þessu
framandi, óvinveitta samfélagi.
Lokakafli myndarinnar nægir
engan vegin til þess að gefa full-
nægjandi lýsingu á hugarástandi
Ali né vandanum frá hans sjónar-
hóli. Óréttlætið gagnvart honum
er sýnt eins og það birtist sem
vandamál Emmiar, ástkonu hans
og eiginkonu. Emmi er aðal-
persónan og það er hennar
hamingja og sorg, sem kvik-
myndin lýsir. Persónan Ali er að
sumu leyti meðhöndlaður i hand-
ritinu á sama hátt og i veru-
leikanum, sem myndin fjallar
um. Óliklegt er að erlendir
verkamenn i sömu aðstöðu og AIi
mundu telja þessa kvikmynd
merkilega lýsingu á vandamáíum
þeirra. Hvort það sé galli eða
ekki, er kannski ekki sérlega frjó
umræða, en hitt er vist að kvik-
myndin er þörf áminning til
hvitra um að taka til athugunar
afstöðu sina gagnvart lituðu fólki
t.d. ef eitthvað þessu likt gerðist i
þeirra eigin fjölslyldu. En sem
kunnugt er telja margir sig hafa
hvitan skjöld i þessum efnum á
meðan vandamálið snertir þá
ekki beint.
Fassbinder hefur sérstæða og
skemmtilega frásagnartækni,
sem byggir á leikhúshefð og
þáttum úr ameriskri klassiskri
kvikmyndalist. Leikur er mjög
stiliseraður og sviðsetning einföld
og skýr. Samtöl gegna miklu
hlutverki svo og val persóna. At-
burðir eru úr daglegu lifi lág-
stéttafólks. Stóratburðum og æsi-
fregnum er algerlega haldið utan
við myndina. Myndakaflarnir
eru svipaðir atriðum i leikriti
hvað snertir staðáetningar.
Helstu staðsetningar eru: tbúð
Emmia-, krá, stigahús. Sáralitið
er vikið frá þessum helstu
stöðum. Þrátt fyrir þetta er ekki
hægt að segja að Fassbinder sé að
kvikmynda leikrit. Fremur er
hann að einfalda kvikmyndafrá-
sögnina. Hann reynir að láta
söguna og atburði speglast i af-
stöðu persóna hverrar til
annarrar. Ef áhersla er á
ákveðnum þáttum, þá er það á
leik og samtölum. Þetta kann að
valda þvi, að sumum finnist hann
gera kvikmyndatækninni lágt
undir höfði.
Birgitte Mira leikur Emmi
mjög trúverðuglega og hlaut fyrir
frammistöðu sina viðurkenningu
sem besta þýska leikkona ársins
1974.
^ff^Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
N
Blóm og gjafavörur i úrvali
■ • tj
Fassbinder að starfi (fyrir aftan tökuvélina)