Þjóðviljinn - 21.03.1976, Síða 13

Þjóðviljinn - 21.03.1976, Síða 13
Sunnudagur 21. mars 1976 ÞJÓDVILJINN — SlÐA 13 meöal þeirra stórmeistara sem við könnumst við hér á landi? — Já, það er mér óhætt að segja. Ég get sem dæmi nefnt Lombardy, það er góð vinátta milli okkar, og ljúfmennið Bron- stein, hann er auðvitað vinur allra. — Hvernig náungi er sá frægi maður Tal? — Hann er indælis maður. Hann er mjög liflegur og fljótur að átta sig á hlutunum. — Nú er hann frægur fyrir sinn hvassa skákstil, endurspeglar skákstill hans skapgerð hans? — Ekki að öllu leyti. Sumir skákmenn tefla kannski hvassan Stil, en eru svo einstök ljúfmenni þar fyrir utan. Ég held að sumir fái bara vissa útrás i skákinni, en ekki að skákstill þeirra endur- spegli skapgerðina dags daglega. Hitt er svo lika til að skákstillinn endurspegli skapgerðina, en ég er ekki viss um að það eigi að öllu leyti við Tal. — Eruð þið Larsen ekki kunn- ingjar? — Jú, mér hefur alltaf likað vel við Larsen. Við höfum að visu alltaf verið harðir keppinautar, en ágætis kunningjar. — Hvað um sviann unga Ander- son, er hann efni i mikinn skák- mann? — Ég veit það satt að segja ekki, ég held að hann verði þá að breyta um skákstil. Hann teflir alltof „passivt” sem kallað er. Hann byggir sér upp stöður sem hann er nokkuð viss með að ná jafntefli á, gersneyddar flækjum og spennu, en á móti kemur svo að hann á erfitt með að vinna skákirnar, það vantar það i upp- bygginguna sem veldur þvi að hann geti náð undirtökunum. Hann er jafnvel verri en Petro- sjan að þessu leyti og hefur hann þó þótt tefla varlega. — Hefur þú nokkuð frétt af Fischer? — Nei, ekkert. Hann hefur ekk- ert teflt og maður veit ekkert hvernig ástandið er hjá honum núna. Það má hinsvegar minna á að hann tefldi ekkert i 4 ár, 1966 til 1970 en virtist siður en svo hafa haft slæmt af þvi. Fischer er óút- reiknanlegur. Skákin er allt hans lif, það er honum eðlilegt að stúd- era alla daga, það er ekki vinna i hans augum. Myndin sú arna er af plagati sem Friðrik Ólafsson á, kóngulóavefurinn yfir skákborðinu og svipurinn á andliti skákmanna segja allt sem segja þarf. — Ef við snúum okkur aðeins að þér aftur Friðrik, hvaða áhuga- mál áttu fyrir utan skákina? — Ég hef mjög gaman af góðri tónlist. — Leikur þú kannski á hljóð- færi? — Nei, ég geri það nú ekki. Þá hef ég einnig gaman af að fylgjast með iþróttum almennt. — Það hefur löngum verið deiluefni manna hvort skák sé iþrótt eða list, hvert er þitt álit á þvi máli? — Ætli megi ekki segja að hún sésambland af þrennu, list, iþrótt og keppni. Menn mega ekki gleyma keppnishliðinni i skák, hún er og verður alltaf keppni á milli einstaklinga. Hún er að vissu leyti iþrótt og að vissu leyti list, hjá þvi fer ekki. Ef við litum á hana frá listrænu sjónarmiði þá hafa engir tveir skákmenn sama stil, maður getur oft sagt tii um hver hefur teflt þessa eða hina skákina án þess að manni hafi verið sagt frá þvi fyrirfram, bara af stilnum, þ.e.a.s. ef skákin er einkennandi fyrir stil þessa eða hins meistarans, það bera þó ekki allar skákir snjöllustu skák- manna slik einkenni og ég vil taka fram að þetta á auðvitað aðeins við um snjalla skákmenn. Þú sérð þvi, að skák er eins og list að þvi leyti að menn eru alltaf að skapa eitthvað nýtt. — Er engin hætta á að skák tæmist af nýjungum, þetta eru aðeins 32 menn á 64 reitum? — Ekki held ég það, það er að minnsta kosti enginn hörgull á nýjungum, það er alltaf eitthvað nýtt að koma fram. Einu sinni héldu menn að skákin væri stöðn- uð, lengra yrði ekki komist og þá var talað um að fjölga reitum og mönnum á skákborðinu, en ég held að engin þörf sé á þvi ennþá að minnsta kosti. Aftur á móti má segja, að með aukinni þekk- hættuspil hjá Tal), að hann væri ekki kominn mörg hundruð kiló- metra til tslands, til þess að gera jafntefli. Hann heldur sinu striki, tvinónar ekki við hlutina. Ef það ekki heppnast, þá verður bara að hafa það, þannig er Tal. — Hvaða skák heldur þú að sé sú besta sem þú hefur teflt? — Þessu er nánast ekki hægt að svara. Það eru til svo margar gerðir af skákum og sumum finnst ein gerð fallegri eða skemmtilegri en öðrum. Það eru til skákir sem hafa fallega upp- byggingu, hasarskákir með fórn- um og látum, fléttuskákir og fleira. Maður hefur kannski teflt eina skák af hverri tegund sem manni finnst mest til koma, en eiginlega er ekki hægt að gefa á- kveðið svar við þessari spurn- ingu. Ég vann einu sinni skák á móti Fischer þar sem ég fórnaði skiptamun og vann, mér hefur alltaf þótt gaman að þeirri skák. Liggur skákgáfa í ættum — Frændi þinn einn, Magnús Smith, varð mjög frægur skák- maður vestan hafs, þekkir þú sögu hans? — Ég hafði séð skákir eftir hann i bókinni — t uppnámi — án þess að vita að við værum skyldir og svo hef ég lesið þáttinn sem Gils Guðmundsson skrifaði um hann i bókina Heimdraga. Gils mun hafa flutt þennan þátt fyrst i út- varp, án þess að vita þá að við værum skyldir. Það er greinilegt áskákum Magnúsar-að hann hef- ur verið mjög sterkur skákmaður á þess tima mælikvarða. — Er mikið um sterka skák- menn i þinni ætt? — Ja, ég er nú ekki sterkur i ættfræðinni, en ég get nefnt sem dæmi að við Ingi R. Jóhannsson erum nokkuð skyldir og við Magnús Smith vorum af 2. og 5. lið i móðurætt og ég veit um fleiri frændur mina sem eru ágætir skákmenn. Faðir minn er einnig ágætur skákmaður. Fjögur mót á ári — Nú er það æði misjafnt hve mikið atvinnuskákmenn tefla. Má liða of langur timi á milli móta? — Nei, slikt er mjög óæskilegt, ef menn ætla að haída sér i topp- æfingu. Ég tel að það megi helst ekki liða meira en 2 mánuðir á milli móta, þannig að maður tefli i svona fjórum mótum á ári, ég hygg að það sé hæfilegt. —■ Nokkrir stórmeistarar. eins og til að mynda Anderson, hinn sænski, tefla nærri á hverju móti, þannig var það hjá honum i fyrra. þeir sleppa þá þeirri vinnu sem þið stundið á milli móta? verið tengiliður á milli þessa stils og þess sem svo kemur eftir strið, en það var einmitt Bronstein og einnig Boleslavski sem sköpuðu þann stil sem nú er rikjandi. Auð- vitað koma þarna fleiri menn við sögu, svo sem Keres og aðrir sterkir skákmenn sem komu fram á þessum tima. En ég hygg að Bronstein eigi þarna stærstan þátt. Að visu má segja um Keres að hann hafi frekar verið leik- fléttusnillingur en að hann hafi komið fram með mikið af nýjum hugmyndum. Hann var ákaflega hvass skákmaður, tefldi sóknar- skákir mjög skemmtilega. Bron- stein aftur á móti kom fram með nýjar hugmyndir. Hann breytti hugsunarhætti manna um skák, kom fram með kenningar og til- færði þær. Hann byggði oft á þátt- um sem áður voru algerlega for- dæmdir. Menn áttu alltaf að gæta sin á að fá ekki einangruð peð eða veikleika hér og þar. Bronstein sagði aftur á móti, að hinir „dynamisku” eiginleikar stöð- unnar skiptu öllu máli, þeir vægju fyllilega upp veikleikana. Þá kom hann einnig fram með nýjungar i byrjunum, sem skiptu miklu máli. — Þegar þú nefnir byrjanir, einu sinni sagðir þú að þær væru þin veikasta hlið, og að þú yrðir að yfirstiga þann veikleika, hefur þér tekist það? — Við skulum vona það, segir Friðrik og brosir, en bætir svo við — kannski yfirstigur maður það aldrei fyllilega en það hefur lag- ast mikið. — Einu sinni sá ég þig hugsa i 20 minútur yfir 1. leik svarleik á svart, hvernig getur slikt gerst? — Já, það gat komið fyrir. Þá hef ég sjálfsagt verið að rif ja upp hvernig andstæðingur minn tefldi viðkomandi byrjun, sem ég hef verið með i huga. Erfiðir andstæðingar — Hverjum af þekktustu skák- mönnum heims i dag þykir þér mest gaman að mæta i keppni? — Ég veit ekki hverju svara skal, þaðer nú allt annað en gam- an að mæta sumum þessum körl- um. Ætli ég hafi ekki mest gaman af að tefla við Tal. Hann er nefni- lega mannlegur þrátt fyrir hvassan skákstil. Hann gefur manni oft höggstað á sér, þótt hann sé kannski um leið að djöfl- ast á manni. Tal er ansi skemmti- legur maður. Það var til að mynda á einu móti sem hann tók þátt i hér á landi, að Jón Kristins- son var kominn með þá stöðu gegn honum að geta þráleikið og náð jafntefli. Tal var aftur á móti ekki sáttur við það og fórnaði drottningunni fyrir tvo létta menn og vann skákina. Hann sagði eft- irá þegar menn spurðu hvers- vegna hann hefði ekki sætt sig við jafnteflið, (þetta var nefnilega ingu og framþróun og öllu þessu bókaflóði um skák, verði þetta alltaf viðameira og viðameira og þá um leið erfiðara að ná uppá toppinn Bronstein — Hver heldur þú að sé mesti núlifandi hugsuður i skák, ég á þar við þann skákmeistarann, Tal Bronstein sem hefur komið fram með mest af nýjungum i skákinni? — Þessu er nú dálitið erfitt að svara, en ég hygg að Bronstein sé einn sá mesti á þessari öld. Fyrir strið, á árunum 1920—1940, var allt annar still rikjandi i skákinni en nú er. Þá var þessi svokallaði klassiski stíll. Hans helstu ein- kenni voru að allt var mun fast- ara i formi en nú er, meira um kreddukenningar. Menn máttu ekki fara útfyrir þetta eða hitt, þá var voðinn vis. Þá voru menn eins og Cabablanca, sem tefldu þenn- an einfalda, tæra stil, nær alveg spennulausan. Aljekin var aö visu á undan sinni samtið að sumu leyti og má segja að hann hafi TEXTI: S.DÓR — Það kemur öðruvisi út hjá þeim, sú vinna sem við leggjum á okkur milli móta kemur bara úti mótunum sjálfum hjá þeim. Þeir eru kannski að reyna eitthvað á- kveðið i þessu móti, takist það ekki breyta þeir bara um og reyna nýtt i næstu skák, næsta móti. Þetta er hægt með árangri að vissu marki en ég held að þeir komistaldrei mjög djúpt i hlutina með þessu móti. Menn verða að gefa sér tima til að stúdera i ró og næði. Þetta er að minnsta kosti mitt álit. — Maður heyrir oft talað um hin dæmigerðu stórmeistarajafn- tefli. Getur stórmeistari teflt það mikla varnarskák til jafnteflis að ekki sé hægt að rjúfa múrinn? — 1 flestum tilfellum er það hægt. Ef góður skákmaður hugs- ar aðeins um það eitt að ná jafn- tefli þá er ákaflega erfitt að rjúfa vörnina, ég segi kannski ekki að það sé ómögulegt en það er erfitt. Og kannski getur tilraun til sliks kostað mann sjálfan skákina, þvi maður rifur ekki slikan jafnteflis- múr nema hætta einhverju. Þeir sem ætla sér bara að ná jafntefli hætta aldrei neinu, en taka alltaf áhættuminnsta kostinn. Mjög gott dæmi um þetta er einvigi Karp- ovs og Kortsnoi um réttinn til að skora á Fischer. Þar tefldi Karp- ov mjög yfirvegað og varfærnis- lega en Kortsnoi sótti og tók á- hættu og tapaði. Hann var allt i einu orðinn tveimur vinningum undir og tekur það þá til bragðs að tefla eins og Karpov og það verða 10 jafntefli i röð. Kortsnoi mátti ekki við að tapa fleiri skák- um. Það er ekki fyrr en i lokin að hann reyndi aftur, þá var annað- hvort að duga eða drepast fyrir hann. Hann náði að visu að minnka muninn i lokin en þá held ég að úthaldið hafi verið farið að bresta hjá Karpov. — Þegar þú minnist á úthald, stundarðu sjálfur likamsæfingar til að halda þér i formi? — Ja, ég hef stundað sund tölu- vert, ég tel að það sé nóg að vera vel hress likamlega. ef við getum orðað það svo og ég hef reynt að halda mér þannig. Það .þarf vissulega gott úthald til að sitja yfir skák i 5 tima daglega á löngu móti, auk þess sem aðbúnaður á keppnisstað er oft ekki uppá það besta. Aðbúnaður á keppnisstað — Er aðbúnaði oft ábótavant? — Já, það kemur fyrir að að- búnaðurinn er ekki eins og best verður á kosið. Gallinn er sá. að það eru engar reglur sem segja til um hvernig aðbúnaður á keppnis- stað á að vera. Þær eru ekki alveg úti höt.t þessar frægu kvartanir Fischers um aðbúnað á keppnis- stað, þótt það hafi stundum virst ganga út i cígar hjá honum. Menn mega ekki glevma þvi að við þurfum að sitja og einbeita okkur i 5 klst. i senn og það er erfitt að gera slikt ef aðbúnaðurinn er slæmur. Það er ætlast til að við sýnum okkar besta á þessum mótum. teflum góðar skákir og þá verðum við auðvitað að gera kröfu um viðunandi aðbúnað. — Eru nógu mörg stórmót hald- in hér á landi Friðrik? — Ég tel að við verðum að stefna að þvi að halda hér eitt al- þjóðlegt mót á ári. Hér er mikið af efnilegum skákmönnum. sem ekki fá tækifæri til að tefla við er- lenda stórmeistara nema að hér ' séu haldin alþjóðleg mót og þessir skákmenn okkar verða að fá þá reynslu sem slik mót gefa. Efnilegir skákmenn — Eigum við marga efnilega skákmenn i dag? — Já. við eigum það. menn eins og til að mvnda Helga Ólafsson og Framhald á bls. 22

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.