Þjóðviljinn - 09.04.1976, Blaðsíða 1
UOBVIUINN
Föstudagur 9. aprfl 1976—41. árg.—80. tbl.
Saltfiskhækkun og
rnikil eftirspurn
Verð á saltfiski er nú mun
hærra heldur en það var i haust.
Sölusamtök islenskra fiskfram-
leiðenda hafa gert samning um
sölu á saltfiski til Spánar og
Portúgals fyrir um 7 miljarða
króna. betta er stærsti samn-
ingur um saltfisksölu sem gerður
hefur verið til þessa. Sölu-
samtökin eru nú búin að selja
megnið af þeim saltfiski sem til
fellur á þessari vertið. Undir-
búningur er þegar hafinn að sölu
saltfisks til Grikklands og Italiu.
7 % liækkuii almenns verðlags
Það hefur hvarflað að mörg-
um manninum i þeirri verð-
hækkanaskriðu sem skollið hef-
ur á landsmenn að undanförnu
livort ekki væri þegar búið að
gera kauphækkunina sem
fékkst 1. mars sl. að engu.
Þjóðviljinn hafði tal af As-
mundi Stefánssyni hagfræðingi
Aiþýðusambands Islands og
spurði hann þessarar spurning-
ar. Hann svaraði þvi til að það
væri mjög misjafnt eftir hópum
þvi sumir fengju meiri kaup-
hækkun en 6%, en aðrir fengju
eingöngu það.
— En þær verðhækkanir sem
orðnar eru hafa valdið rúmlega
7% hækkun á almennu verðlagi.
beir sem fengu slétt 6% i kaup-
hækkun hafa þvi misst hana alla
en þeir sem fengu meira eru enn
i plús, sagði Ásmundur.
bá spurðum við hann hversu
nálægt verðlagið væri rauða
strikinu sem sett var við 557 stig
1. júni nk. — Það er ekki gott að
gefa einhlitt svar við þvi. Til
dæmis var samið um að búvöru-
frádráttur og hækkanir á áfengi
og tóbaki kæmu ekki inn i dæm-
Kauphækkun
1. mars upp-
étin hjá
stórum
hópum
launafólks
ið. bessar hækkanir nema sex
visitölustigum svo i raun hefur
rauða strikið hækkað i 563 stig.
— bær verðhækkanir sem
orðið hafa á búvöru og opinberri
þjónustu eru mun meiri en gert
var ráð fyrir þegar samning-
arnir voru gerðir og það sem
skiptir ekki minna máli er að
þær eru mun fyrr á ferðinni en
við var búist. Grundvöllur
samninganna er þvi allur meira
og minna snúinn. Eins og er
virðist kaupmáttur launa næstu
3 mánuði eða þangað til visitölu-
hækkunin fer að verka á kaupið
ætla að verða um 3% lakari en
ráð var fyrir gert við samnings-
gerðina, sagði Asmundur.
Að lokum kvaðst Ásmundur
vilja leggja á það áherslu að af
þessari 7% almennu verðlags-
hækkun er aðeins óverulegur
hluti, u.þ.b. 1%, sem rökstyðja
má með kauphækkununum 1.
mars sl. Hin 6 prósentin er ekki
hægt að rekja til þeirra.
—ÞII
Beitarþols-
r annsóknirnar:
F r amhald
tryggt
Þróunarstofnun
SÞ hefur greitt
Islandi meira
en því ber
I frétt frá utanrikisráðuneytinu
segir að bróunarstofnun
Sameinuðu þjóðanna og FAO, og
lándbúnaðarstofnun SÞ, hafi
samþykkt að halda áfram fjár-
veitingum til ýmissa yfirstand-
andi verkefna á Isiandi. bað
þýðir að sérfræðingar, sem samið
hefur verið við i sambandi við isl.
verkefni, halda áfram að starfa
að þeim út samningstimabiiið.
bannig virðist vandamálið vegna
ákvörðunar FAO um að hætta
stuðningi við beitarþoisrann-
sóknir hér úr sögunni.
Hinsvegar kemur það fram i
fréttinni að Þróunarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna hefur þegar
greitt tslandi meira en sam-
kvæmt samkomulaginu um 1
miljón doliara framlag til til-
raunaverkefna hér á árunum 1972
tilársloka ’76. Um siðustu áramót
haföi stofnunin þegar greitt þessa
1 miljón dollara og i janúar-
mánuði sl. var framlagið komið
98 þúsund dollurum fram úr
umsaminni upphæð.
Þá var sagt stopp vegna þess að
Þróunarstofnunin vinnur að þvi
að skera niður verkefni i aðildar-
rikjunum til þess að vega upp á
móti áætluðum 35 miljón dollara
halla á yfirstandandi ári. Niður-
skurðurinn á sér aðeins stað hjá
þeim þjóðum, sem ekki hafa
notað framlag sitt að fullu fyrir
timabiliö 1972 til ’76. Enginn
niðurskurður hefur þvi átt sér
stað gagnvart tslandi, og nú hafa
FAO og UNIDO ákveðið að
standa straum af sérfræðinga-
kostnaði til ársloka, enda þótt isl.
hafi fengið sitt framlag og vel
það.
308 íbúðir í verkamanna-
bústöðum afhentar bráðlega
Stjórnarmenn skoða likan af verkamannabústaðahverfinu. — Sjá baksiðu.
Loðnumjöl
hefur stór-
hækkað
í verði
Enn berast fréttir af umtals-
verðri hækkun á helstu út-
fiutningsafurðum okkar isiend-
inga. Þjóðviljinn hefur áður skýrt
frá hækkun sem orðið hefur á
fiski á Bandarikjantarkaði og
skrcið i Nigeriu, cn þar er unt stór
stökk uppá við að ræða. Sala á
loðnumjöli hefur einnig gengið
mjög vel, allt loðnumjölið sem
framleitt var á þessari vertið er
selt og var verðið frá 4.30 doll-
urunt og uppi 4,70 dollara prótein-
einingin og langmestur hiuti þess
var seldur á verðinu 4,50 til 4,70
dollarar prt.-einingin.
t fyrra fór verðið á loðnumjöli
niður i 3,20 dollara prt.-einingin
og meðalverð þá var undir fjórum
dollurum, þannig að hér er um
verulega hækkun að ræða, eða
sem svarar meira en 100 kr. isl. á
prt.-eininguna.
Heildarloðnumjölsframleiðslan
á þessari vertið er um 50 þúsund
tonn og hefur allt mjölið verið
selt. Heildarverðmæti þessa
magns er 2,5 miljarðar króna. á
núverandi gengi.
Þá hafa verið seld 10.800 tonn af
loðnulýsi og er verðmæti þess 605
miljónir kr. þannig að heildar-
verðmæti þess loðnuafla sem fór i
bræðslu er yfir 3 miljarðar króna.
Jón H. Bergs á aðalfundi atvinnurekenda:
Miðstjórnarvald ASI verði
aukið með lagaboði
Gils skrifar
Matthíasi
svarbréf
SJA OPNU
I ræðu, sem Jón H.
Bergs, formaður Vinnu-
veitendasarnbandsins,
flutti á aðalfundi atvinnu-
rekenda í gær, kvað hann
það vera eindregna ósk
þeirra að rniðstjórnarvald
Alþýðusarnbands íslands
yrði aukið. Hann taldi ólík-
legt að verkalýðsfélögin
næðu innbyrðis sarnkornu-
lagi urn slika tilfærslu
Stjórnin
hundsaði
sameiginlegar
tillögur
VSÍ og ASÍ
valda og stuðla ætti að því
rneð breytingum á vinnu-
löggjöfinni. Taldi hann að
ef horf ið væri að þessu ráði
rnætti betur koma í veg
fyrir verkföll, og greiða
fyrir gerð heildarkjara-
samninga.
I ræðunni gat Jón H. Bergs
þess, að hann teldi furðulega lit-
inn árangur hafa orðiö að þeirri
viðleitni atvinnurekenda og ASI
að taka i byrjun kjarasamninga
upp 15 sameiginleg atriöi við rik-
issQórnina um ýmsar stjórn-
málalegar aðgerðir sem greitt
gætu fyrir kjarasamningum.
Svar rikisstjórnarinnar við þess-
um fimmtán atriöum var á þann
veg, að ekki var um annað að
ræða, en fara hefðbundnar leiöir
við lausn kjaradeilunnar. Það er
semsa gt skoðun Jóns H. Berg^s, að
rikisstjórnin hafi áll sinn stóra
þátt i þvi að til verkfallsátaka
þurfti að koma.