Þjóðviljinn - 09.04.1976, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.04.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. april 1976. Formannaskipti hjá Félagi bifvélavirkj a Aöalfundur Félags bifvéla- virkja var haldinn laugardaginn 27. mars s.l. Fráfarandi formaður féiagsins flutti skýrslu stjórnar um starfsemi féiagsins frá siðasta aðalfundi. Þar kom meöal annars fram að gerðir voru þrir kjarasamningar á þessu timabiii sem félagið átti aöild aö. Atvinna hefur veriö aligóð i greininni. Fjöldinýrra féiaga gekk i félagið á s.l. ári, eða 43 og voru féiags- menn alls um áramótin 353 . Tveir félagsmenn létust á starfs- árinu og tuttugu og þrir voru teknir af skrá félagsins vegna þess að þeir hafa tekið upp ný störf. A þessum aðalfundi lét Sigur- gestur Guðjónsson af störfum sem formaður félagsins, en þvi starfi hafði hann gegnt i 16 ár, íslendingar UNNU portúgali Landsleik íslendinga og portúgala i körfuknatt- leik, sem fram fór i Laugardalshöll í gær- kvöldi, lyktaði með sigri islendinga 92-76. i hálf- leik hafði staðan verið 46-40 fyrir íslendinga. áður hafði hann verið ritari félagsins í 25 ár, eða alls i stjórn félagsins i 41 ár, jafn lengi og félagið hefur verið við lýði, hefur tekið þátt i öllum samningum félagsins frá upphafi. Var hann i þakklætisskyni kosinn heiðurs- félagi félagsins. 1 stjórn félagsins voru kosnir fyrir næsta kjörtimabil: Formaður: Guðmundur Hilmarsson, varaformaður: Sigurður Óskarsson, ritari: Snorri Konráðsson, gjaldkeri: Samson Jóhannsson, gjaldkeri Styrktarsjóðs: Björn Indriðason. Til vara : Jón Magnússon. Meðstjórnandi: Gústaf Ólafs- son. r Island og NATO Næstkomandi laugardag, 10. april 1976, kl. 15, verður haldinn fundur á vegum funda- og menningarmálanefndar Stúd- entaráðs Háskóla islands. Fundurinn fjallar um efnið island «g NAT0. Fundurinn verður haldinn i Lögbergi, húsi laga- deildar. stofu 101. Framsögu- menn verða Jón E. Ragnarsson, Már Pétursson, Svavar Gestsson og Unnar Stefánsson. Framsögu- menn munu m.a. fjalla um það, hvort aðild islands að NATÓ hafi orðið islendingum til góðs og hvort islendingar eigi að stefna að áframhaldandi aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu. Pianókennsla Tek að mér pianókennslu i sumar. Upplýsingar i sima 35081. Snorri Sigfús Birgisson fÓskum eftir að ráða til starfa eftirtalið starfsfólk: 1. Félagsráðgjafa við Heilsuverndarstöð- ina. 2. Læknaritara við heilsugæslu i Domus Medica. 3. Læknaritara við heilsugæslustöð i Ár- bæjarhverfi. 4. Ritara fyrir framkvæmdastjóra Heilsu- verndarstöðvarinnar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar. Upplýsingar um störfin veitir fram- kvæmdastjóri. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til framkvæmdastjóra fyrir 21. april n.k. Heilsuverndarstöð Reykjavikur RITARI Starf ritara á skrifstofu landlæknis er laust frá 1. mai næstkomandi eða siðar. Leikni i vélritun áskilin. Stúdentsmenntun æskileg. Upplýsingar um fyrri störf skulu fylgja umsókninni. Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna rikisins. Um- sóknir óskast sendar skrifstofu landlæknis fyrir 21. april næstkomandi. Landlæknir. „F imm konur” frumsýndar Leikritið Fimm konur eftir norsku skáldkonuna Björg Vik var frumsýnt i Þjóðleikhúsinu i gærkvöldi við góðar undirtektir áhorfenda. Björg Vik var við- stödd frumsýninguna og var henni vel fagnað. Leikstjóri er Erlingur Gíslason, en konurnar fimm lcika Briet lléðinsdóttir, INÚK Framhald af bls. 16 Colombiu og loks i Panama, Costa Rica og að likindum einnig i Guatemala. Leikförin stendur i mánaðartima. Inúk hefur verið sýndur i ellefu löndum i Evrópu.og boð um leik- farir eru enn að berast. Sýningar á Inúk eru nú alls orðnar 186 og verða siðustu sýningarnar á Litla sviði Þjóðleikhússins fyrir leik- förina til Mið- og Suður-Ameriku á sunnudags- og þriðjudags- kvöld. Krafla Helga Jónsdóttir, Bryndfs Pétursdóttir, Kristin Anna Þórarinsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir. Leikmynd teiknaði Þorbjörg Höskuldsdóttir. i gær flutti Björg Vik erindi um lcikritið i Norræna hiisinu, og var myndin tekin við það tækifæri. — Mynd: EK. APN Framhald af bls. 3. þegár æ fleira fólk á vesturlönd- um skilur hið langsótta og falska eðli „sovésku ógnunarinnar”. Leonid Brézjnéf, aðalritari mið- stjórnar Kommúnistaflokks Sovétrikjanna, sagði á 25. flokks- þingi KFS: „1 reynd er að sjálf- sögðu ekki um að ræða neina sovéska ógnun, hvorki gagnvart vestri eða austri. Þetta eru allt hrópleg ósannindi frá upphafi til enda. Sovétrikin hafa ekki hið minnsta i hyggju að ráðast á nokkurn. Sovétrikin þarfnastekki striðs.” #ÞJÓÐLEIKHÚSIfl CARMEN i kvöld kl. 20. NATTBÓLIÐ laugardag kl. 20. KARLINN A ÞAKINU laugardag kl. 15, sunnudag kl. 15. FIMM KONUR 2. sýning sunnudag kl. 20 Handhafar aðgangskorta athugi að leikritið Fimm konur er á dag- skrá leikhússins i stað Sólarferðar sem áður var fyrirhugað. Litla sviðið: INUK sunnudag kl. 15 Næst siðasta sinn. Miðasala 13.15 — 20. Simi 1-1200. EIKFEXAG ykjavíkur: SKJALPHAMRAR i kvöld. — Uppselt VILLIÖNPIN laugardag kl. 20.30. KOLRASSA sunnudag kl. 15. EQUUS sunnudag kl. 20.30. SKJALPHAMRAR þriðjudag. — Uppselt. SAUMASTOFAN miðvikudag kl. 20.30. VILLIÖNPIN fimmtudag kl. 20.30. Miðasalan i Iðnó opin kl. 14 til 20.30. Simi 1-66-20. Pípulagnir Nýlagnir, brcytingar, hitaveitutengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og I og cftir kl. 7 á kvöldin). Framhald af bls. 3. tekjur og greiðslugetu manna að loknu námi, og fella niður eftir- stöðvar að 20 árum liðnum. Voru nefnd mörg dæmi um misjafnar atvinnutekjur langskólageng- inna, og sýnist námsmönnum þvi fráleitt að binda sig við ákveðnar lágmarks endurgreiðslu - upphæðir. Halldór Asgrimsson, þingmaður, benti á aðnámsmenn mættu gjarnan virða það á betri veg, að aðeins væri i frumvarpinu gengið til móts við þá skoðun að miða ætti endurgreiðslur við tekjur. Svava Jakobsdóttir, alþingismaður, tók einnig þátt i umræðunum og studdi málstað námsmanna. Leiðrétting 1 frétt i blaðinu f gær var sagt að Miinchner Akademie Kammerorchester kæmi hingað til lands i hljómleikaferð i boði Kammersveitar Reykjavikur. Hið rétta er að þessi þýska kammersveit kemur hingað fyrir tilstilli Reykjavikur Ensamble, sem á ekkert skylt við Kammer- sveit Reykjavikur. BLAÐBERAR Vinsamlega kornið á afgreiðsluna og sækið rukkunarheftin. ÞJÓÐVILJINN BLAÐBERAR óskast í eftirtaiin hverfi Fossvog Seltjarnarnes Mávahlíð Langholtsveg Brúnir Hjallaveg Vinsamlegast haf ið sarnband við afgreiðsluna — sírni 17500. ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.