Þjóðviljinn - 09.04.1976, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 09.04.1976, Blaðsíða 7
Föstudagur 9. april 1976. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7 ''' v > Glatt á hjalla m .ólík börnin leika best’ 1 I; Aldursmunurinn skipti heldur ekki mali Þeir sem vinna að málefnum lamaðra, fatlaðra og vangef- inna hafa æ meir beint starfi sinu að þvi að rjúfa einangrun þessara hópa. 1 fyrrakvöld var haldin skemmtun og dansleikur i Tónabæ, sem er gott dæmi um það hvaða árangur þessi við- leitni getur borið. Þar skemmtu sér saman um þrjúhundruð manns, og bar ekki á öðru en vel færi á með samkomugestum, þótt misjafnir væru að andlegu og likamlegu atgervi. Ómar Einarsson, forstöðu- maður Tónabæjar, tjáði blaðinu að fyrir nokkru hefði áhugafólk um málefni lamaðra og fatlaðra komið til máls við forráðamenn Tónabæjar og hreyft þeirri hug- mynd að efna til skemmtunar með vistmönnum á heimilum lamaðra og fatlaðra og „heilbrigðum”. Frumkvæði að þessu átti m.a. Andrea Þórðar- dóttir. Þessi hugmynd þróaðist siðan áfram, og ákveðið var að gefa vangefnum einnig kost á að sækja skemmtunina. Hún var auglýst á Reykjalundi, að Hátúni 12, Skálatúni og á Kleppsspitalanum, svo eitthvað sé nefnt.Einnig voru sett upp plaköt i framhaldsskólum borgarinnar. ,,Ég var sérstaklega ánægður með það”, sagði Ómar Einars- son, ,,að verulegur hluti af sam- komugestunum voru yngri en ég gerði ráð fyrir fyrirfram. Þannig kom talsvert af krökk- um sem eru vön að koma á aðr- ar skemmtanir tjá okkur.” Allt starfsfólk Tónabæjar gaf vinnu sina i sambandi við þessa skemmtun. Það sama gerðu þjóöalagaflokkarnir Randver og Tónskrattar og hljómsveitin Dynamik. Aðgangseyrir var enginn. ,,Þetta tókst alveg framúr- skarandi vel, og allir voru mjög ánægðir. Það verður áreiðan- lega reynt að halda áfram á þessari braut. Við höfum verið með opið hús fyrir vistmenn á Bjarkarási, Lyngási og nemendur i öskjuhliðarskóla hálfsmánðarlega, og á laugar- daginn er ætlunin að 30 manna hópur „heilbrigðra” taki þátt i skemmtuninni. Við höfum einn- ig á annan hátt reynt að koma til móts við vangefna með þvi að halda árshátiðir, t.d. fyrir öskjuhliðarskólann og vist- heimilin. Samband okkar við Styrktarfélag vangefinna og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra er mjög gott, og ég held að reynslan frá þvi i fyrrakvöld sýni að blandaðar samkomur af þessu tagi geti átt drjúgan þátt i þvi að brjóta niður fordóma- múra allskonar”, sagði Ómar Einarsson forstöðumaður Tóna- bæjar að endingu. — ekh. s* —r-sr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.