Þjóðviljinn - 09.04.1976, Page 10

Þjóðviljinn - 09.04.1976, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. aprll 1976. Þmgsjá Lagafrumvarp utn fjölbýlishús Fyrir alþingi liggur nú stjórnarfrumvarp um fjölbýlis- hús, skiptingu cignarráða i slik- um húsum og um réttindi og skyldur ibúðareigenda. Frum- varðið er samið af nefnd sem félagsmálaráðuneytið skipaði haustið 1973, en i henni sátu Jón S. Ólafsson skrifstofustjóri i stjórnarráðinu. Hrafn Bragason borgardómari og Páll S . Pálsson hæstaréttarlögmaður. Fjölbvlishús telst hvert það hús sem i eru tvær eða fleiri ibúðir, en ibúð telst hvert það herbergi sem eldhús fylgir. Lögunum er ætlað að gilda um fjölbýlishús þar sem ibúðir eru i eigu fleiri en eins aðila, einnig um raðhús eftir þvi sem við á. Skylt að gera skiptayfirlýsingu Gera skal skiptayfirlýsingu um öll fjölbýlishús enda liggi ekki fyrir þinglýstur skiptasamning- ur. Gera skal það að skilyrði þinglýsingar eignayfirfærslu fjöl- býlishúss eða hluta þess að skiptayfirlýsing liggi fyrir. t skiptayfirlýsingu skal greina: a) Hvar hver ibúð er: götunafn, húsnúmer. hæð i húsi osfrv. b) Stærð hverrar ibúðar og hvað henni fylgir sérstaklega. c) Hver sé hlutfallsstala hverrar ibúðar sem einarhluti i sameign. d) Hvort ibúð fylgir réttur til bil- skúrs aða bilstæðis. Hverri skiptayfirlýsingu skal fylgja teikning yfir hverja hæð fjölbýiishúss i mælikvarðanum 1:200. þar sem hver ibúð er sýnd. Séreign — sameign — hlutfallstala tbúðirnar sjálfar eins og þeim er lýst i skiptayfirlýsingu og það sem þeim fylgir sérstaklega er i séreign ibúðareiganda. Aðrir hlutar fjölbýlishúss eru i sam- eign, þar með talin eignarlóð og leigulóðarréttindi. tbúðunum fylgja eftir hlutfalls- tölu i sameign réttindi og skyldur til að taka þátt i félagsskap allra eigenda um fjölbýlishúsið. Sérhver ibúð i fjölbýlishúsi telst ásamt þvi sem henni fylgir sér- staklega og eignarhluta sinum i sameign sérstök fasteign. Samþykki allra eöa meirihlutaákvörðun Bygging ofaná eða við fjölbýlis- hús eða á lóð þess er háð samþykki allra eigenda hússins, nema gert hafi verið ráð fyrir henni i upphafi á samþykktri teikningu. Allir ibúðareigendur eiga rétt til ákvörðunar um innréttingar og fyrirkomulag þess hluta fasteign- ar sem sameiginlegur er, þar með talið útlit hússins, girðing og skipulag lóðar, ennfremur rekst- ur og viðhald þess sameiginlega, svo og gerð glers i gluggum. Hafi einhver ibúðareigandi ekki verið boðaður á fund þar sem ákvörðun er tekin um framkvæmdir samkvæmt þessari grein, getur hann neitað að taka þátt i kostn- aði vegna þeirra og stöðvað þær þar til lögleg ákvörðun hefur verið tekin um þær samkvæmt húsfélagssamþykktum. Sameiginlegt viöhald, sameiginlegt tjón. Sameiginlegt viðhald telst hvers konar viðhald og viðgerðir á öllu sameiginlegu húsrými i fjölbýlishúsi, enn fremur hvers konar viðhald á sameiginlegu hitunar-, vatns-, skólp, rafmagns- og dyrasimakerfi húss að undan- skildum þeim tækjum, sem tengd eru kerfunum i hverri ibúð. Bili sameignleg leiðsla, skal reikna allt tjón, sem af þvi leiðir, svo og viðgerð og skemmdir, sem sameiginlegt tjón. Bili leiðsla, sem ekki er sam- eiginleg i fjölbýlishúsi, eru ibúðareigendur skyldir til að leyfa viðgerð á henni, enda þótt rjúfa þurfi vegg, loft eða gólf i ibúðum þeirra, að þvi tilskyldu, að þeim sé tilkynnt um viðgerðina i tæka tið og öllu komið i lag, svo sem kostur er, án ástæðulausrar tafar og þeim að kostnaðarlausu. Allt viðhald á húsinu að utan, svo og á lóð og girðingu er sam- eiginlegt, undanskilið er gler i gluggum og hurðir ibúða, að öðru leyti en málning þeirra. Sérábyrgð, lögverö. tbúðareigandi er ábyrgur gagnvart sameigendum sinum fyrir þvi tjóni, sem þeir verða fyrir vegna óhapps i ibúð hans svo sem vegna bilunar á tækjum eða leiðslum. sem ibúð hans tilheyra. Sameiginlegan kostnað, þar með talinn kostnað af framkvæmdum, hússtjórn o.fl., bera húseigendur samkvæmt hlutfallstölu ibúða sinna. Sama gildir um opinber gjöld, sem reiknuð kunna að verða af húsinu sem heild. Greiði einhver ibúðareigandi ekki sinn hluta kostnaðar eignast hinir ibúðareigendurnir lögveð i ibúð hans til tryggingar greiðsl- unni. Sá veðréttur féllur niður ef honum er eigi fylgt eftir með lög- sókn áður en eitt ár er liðið frá þeim degi er greiðslan var innt af hendi. Nánari reglur um stjórn hús- félagsins, reikninga, sameigin- legan hita, afnot sameiginlegs húsrýmis, endurskoðun o.fl., eru ákveðnar i samþykktum, sem félagsmálaráðuneytið setur með reglugerð. Samþykktir þessar gilda, hafi húsfélagið ekki sett sér aðrar samþykktir og þinglyst þeim. Og sé brottrækur ella. Geri eigandi eða annar íbúi húss sig sekan um gróf eða itrek- uð brot á skyldum sinum gagn- vart húsfélaginu eða einhverjum félagsmanni þess getur húsfélag ið eftir a.m.k. eina skriflega að- vörun, gert honum að flytja úr ibúð sinni með eins mánaðar fyrirvara. Sé ibúð i fjölbýlishúsi seld skal seljandi áður en samningur er undirritaður kynna kaupanda reikninga húsfélagsins og stöðu og framlög ibúðarinnar til þess. Sé um hús i byggingu að ræða ber seljanda að gera glögga grein fyrir byggingarstigi svo og áfölln- um byggingarkostnaði og áætlun um endanlegan byggingarkostn- að miðað við rikjandi verðlag. Gömlu lögin, dönsku lögin. í greinargerð segir ma.: Frumvarpi þessu, ef að lögum verður, er ætlað að koma i stað laga nr. 19. 1959 um sameign fjöl- býlishúsa. Töluverð reynsla er nú fengin af þeim lögum. Er sú reynsla að mörgu leyti góð, en þó hefur nokkuð þótt skorta á, að farið væri eftir sumum ákvæðum laganna t.d. um gerð og þinglýs- ingu sameignarsamnings, sem þó er grundvallarákvæði. Hér eru þessi lög tekin, til fyrirmyndar um margt, og mörg ákvæði þeirra tekin upp litið breytt. Þá hefur verið leitað upplýsinga erlendis frá. Árið 1966 voru i Danmörku sett lög um ibúðir i einkaeign. Fyrir þann tima hafði slik eignar- aðild að ibúðum i fjölbýlishúsum ekki tiðkast. Fjölbýlishúsið hafði allt verið i eign eins aðila eða samv.fél. ibúðareigenda. Sama fyrirkomulag gildir á öðrum Norðurlöndum. Aður en danir settu sér löggjöf um fjölbýlis- húsaibúðir i einkaeign, hafði nefnd sú, sem undirbjó frum- varpið, látið frá sér fara mikla og itarlega skýrslu, þar sem miklar upplýsingar er að finna um þetta eignarform að fjölbýlishúsum, þ.á.m. útbreiðslu þess i heimin- um og löggjöf i öðrum löndum. Þessi álitsgerð hefur verið höfð til hliðsjónar við samningu þessa frumvarps. Lög reglugeröir, húsfélagssamþykktir. Eins og mönnum er kunnugt er eignaraðild að fjölbýlishúsum háttað með mismunandi móti. Fjölbýlishúsið getur verið allt i eigu sama manns, það getur ver- ið háð lögum um verkamannabú- staði (nú IV. kafli laga nr. 30/170 um Húsnæðismálastofnun rikis- ins), lagaákvæðum um bygg- ingarsamvinnufélög og önnur samvinnufélög og einnig getur hver ibúð hússins verið i einka- eign óháð eignaraðild að hinum ibúðunum. Þetta siðast talda form eignaraðildar er hér mjög útbreitt, sérstaklega i Reykjavik. Frumvarpið er aðallega miðað við þetta siðastnefnda form eignaraðildar, en til þess er ætl- ast að það taki einnig til annarra fjölbýlishúsa hafi lagaákvæði, sem sérstaklega gilda um þau, ekki að geyma gagnstæð fyrir- mæli. Þau fjölbýlishús, sem frum- varpið nær til, eru svo margs konar að enginn möguleiki er á þvi að frumvarpið sjálft hafi að geyma tæmandi ákvæði um hvað eina, sem upp getur komið i fjöl- býlishúsi. Þvi er gripið til þess ráðs að setja aðalákvæðin, sem alls staðar geta átt við, i frum- varpið sjálft, en ætlast er til að reglugerð, húsfélagssamþykktir og húsreglur leysi önnur atriði. Nefndin lætur fylgja frumvarpinu drög að reglugerð um samþykktir húsfélags. Ætlast er til að þessar samþykktir gildi, hafi húsfélagið ekki sett sér aðrar samþykktir og þingiýst þeim. Sér reglugerö um útreikning Ákvæðin um skiptayfirlýsing- una eru þannig úr garði gerð, að mögulegt er að hafa sérstakt blaö fyrir hverja ibúð i þinglýsingar- bók og það haft i huga að ákvæði frumvarpsins falli að þeirri skip- an sem ráð er fyrir gert i frum varpi þvi um skráningu og mat fasteigna, sem lá fyrir Alþingi á 94. löggjafarþingi 1973. Lögin þurfa þvi ekki breytingar við þótt slik skipan verði upp tekin. Við það er miðað að ibúðin, það sem henni fylgir sérstaklega og eignarhluti hennar i sameign, skoðist sem sérstök fasteign enda þótt eignarráðtakmarkistaf þvi, að ibúðin er i fjölbýlishúsi. Útreikningi eignarhluta i sam- eign er breytt frá núgildandi lög- um. Lagt er til að sérstök reglu- gerð verði sett um þennan út- reikmng. Drög að slikri reglugerð fylgja hér með sem fylgiskjal. Ekki framar lögtök vegna vanskila annarra. Megn óánægja hefur rikt með það fyrirkomulag að ýmis opin- ber- og hálfopinber gjöld hafa verið innheimt hjá ibúðar- eigendum sem einni heild. Fyrir- komulag þetta hefur leitt til þess, að oft er lögtaks fyrir ógreiddum gjöldum krafist hjá ibúðar- eiganda sem. lokið hefur greiðslu allra sinna gjalda. 1 sumum lönd- um, t.d. Þýskalandi, Belgiu og Bandarikjunum er hver ibúð i einkaeign metin og skattlögð sér. Frumvarpið er samið með það i huga að svo verði einnig hér. Hins vegar eiga bein ákvæði um skatt- heimtu og mat fasteigna ekki hér heima. A það skal bent, að enda þótt ibúðirnar séu ekki metnar sérstaklega og gjöld séu reiknuð af þeim i heild geta innheimtu- aðilar skipt gjöldum á einstaka ibúðareigendur eftir eignarhlut- föllum, liggi fyrir skýrar upplýs- ingar um hver þau séu. Almenna ábyrgöin er „solidarisk" Af þeim atriðum, sem ekki eru nefndir i lagafrumvarpinu, er hér rétt að nefna spurninguna um ábyrgð einstakra ibúðareigenda gagnvart aðilum utan húsfélags- ins, jafnt þeim sem hafa fjár- munakröfu á húsfélag og þeim sem eiga skaðabótakröfu á það. 1 hópi lögfræðinga hérlendis hefur þessi spurning nokkuð verið rædd. Spurningunni er ekki eins svarað alls staðar i erlendri lög- gjöf. 1 núgildandi lögum eru ekki ákvæði um þetta atriði og danir hafa ekki heldur þann háttinn á. Sé slikum ákvæðum sleppt leiðir það af almennum reglum um á- byrgð, að ábyrgðin er i þessu tilfelli „solidarisk” þ.e. eigendur bera ábyrgð einn fyrir alla og all- ir fyrir einn. Þessi tilhögun getur vart talist ósanngjörn þar sem tryggingar munu venjulega mæta skaðabótaábyrgðinni og húsfélag, sem sæmilega er rekið, stofnar ekki án samþykkis til skyldbind- inga, sem ekki má greiða með venjubundnum framlögum til félagsins. Húsfélag getur gert breytingar hér á meðþví aðtaka i samþykktirsinarákvæði um aðra skiptingu ábyrgðar. Hins vegar er ekki hægt að ráðleggja slikt þar sem frekar eru likur til að það skemmi lánamöguleika hús- félagsins. Greinin sem mælir fyr- fyrir um lögveðsrétt þess er verður að borga meira en honum ber, dregur enn frekar úr áhættu við „solidariska” ábyrgð. Graskögglaverksmiðjur Þrefalt arðbœrari en járnblendiverksmiðja Tveir stjórnarliðar, þeir Vigfús Jónsson frá Laxamýri og Pálmi Jónsson frá Akri hafa flutt tillögu til þingsálvktunar að rikisstjórnin beiti sér fyrir að graskögglavcrk- smiðjurnar sem ráðgcrt er að koma á í Hólminum í Skaga- firði og Saltvik i S—Þingeyjar- sýslu verði fullgerðar og teknar i notkun árið 1979 Við umræðurnar upplýsti Hall- dór E. Sigurðsson landbúnaðar- ráðherra að i framhaldi af álykt- unum búnaðarþings verð skipað- ar nefndir til undirbúnings þessu máli. Stefan Jónsson sagði að allur dráttur á smiði verksmiðjunnar i Saltvik hlyti að teljast beint tap vegna ræktunar sem þegar er orðin á góðu landi vegna þessa máls. Þá sagði Stefán að gras- kögglaverksmiðjurnar væru þre- falt arðbærari en járnblendiverk- smiðjan fyrirhugaða á Grundar- tanga var sögð vera þegar sem ákafast var mælt fyrir henni. F'járskuldbindingar vegna járn- blendiverksmiðjunnar væru nú að verða einn miljarður en fyrir það fé mætti reisa margar gras- kögglaverksmiðjur. Steingrímur Hermannssonlýs.ti einnig stuðningi sinum við málið og lagði áherslu á að það yrði að byggja við jarðvarma þar sem hann er mestur. Rafmagn væri lika hagkvæmt þar sem hey- kögglaverksmiðjur starfa og geta starfað á þeim timum þegar afgangsorka er mest þ.e. á sumr- in og nóttunni. Pálmi Jónsson sagði að gjald- eyrissparnaður vegna þessara tveggja graskögglaverksmiðja yrði 180—200 miljönir króna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.