Þjóðviljinn - 11.04.1976, Page 16
KiSÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 11. april 1976.
Umsjón:
Magnús
Rafnsson og
Þröstur
Haraldsson
Jón
Aagot
Jóhanna
Páll Torfi
Jóna Oóra
Guðmundur
Þaö er ekki ýkja langt
siðan nafninu Diabolus in
Musica fór að bregða
fyrir i sambandi við tón-
listaruppákomur í höfuð-
staðnum. Það kom að þvi
að Klásúlur kynntust fyr-
irbærinu af eigin raun, og
þótti forvitnilegt mjög.
Var viðtal pantað á staðn-
um og fylgir það hér á
eftir.
Meðlimir Diabolus in Musica
eru sex. Jón Sigurpálsson leikur
á bassafiðlu, en ekki kontra-
bassa að eigin sögn. Jóhanna
Þórhallsdóttir spilar fyrst og
fremst á flautu, syngur, spilar á
vatnskönnu, þrihorn i einu lagi
og kinaté. Guðmundur Thor-
oddsen er aðalpianóleikari
sveitarinnar, „dútlar” auk þess
við klarinett og sér um heila
slagverksdeild með öllu tilheyr-
andi. Jóna Dóra óskarsdóttir
spilar aðallega á lágfiðlu,
bregður fyrir sig altflautu,
syngur og smellir fingrum.
Aagot óskarsdóttir syngur,
spilar á pianó, saltbauk, fugla-
blistru, blokkflautu og tréspil.
Páll Torfi önundarson leikur á
klassiskan gitar, terpentinu og
syngur, þótt ekki sé hann hrif inn
af. Þeir Páll og Jón eru i minni-
hluta hvað hljóðfærafjölda
áhrærir, en taka hinsvegar
gjarnan að sér að humma,
rymja og syngja úúúú úúú.
Grasrex
og Gabrídur
Sagan af tilurð hljómsveitar-
innar er bæði löng og flókin. Ef
byrjað er á kvennadeildinni þá
fóru Jóhanna, Jóna Dóra og
Aagot að syngja að gamni sinu
þegar enginn heyrði til. Það
gerðu þær þangað til að ein-
hvern tima sungu þær fyrir Pál
Torfa sem ma. kom til af þvi að
hann var með þeim i kór
Hamrahliðarskólans. Nema
hvaö, þetta endaði með þvi að
stúlkurnar tróðu einhvern tima
upp á tónlistarkvöldi i skólanum
og fengu Pál og nokkra aðra
menn úr kóráum heimsfræga til
liðs við sig. Undirleikararnir
tóku sér nafnið Grasrex en
stúlkurnar kölluðu sig Utan-
skólasystur. Eitt lagið sem þær
sungu hét Gabriela og voru þær
siðan kenndar við það. Þetta
var reyndar stutt tilvera og
ævintýrið nú að mestu gleymt
og grafið. En Utanskólasystur
komu einu sinni fram og
Gabrielusystur einnig, en urðu
þá spældar úti hljómsveitina
Grasrex og sögðu henni upp.
Vikjum nú sögunni að jólun-
um 1974. Þá byrja tveir piltar að
syngja og spila saman danskar
drykkjuvisur á gitar og pianó.
Svona bara fyrir sjálfa sig og
kunnu akkúrat ekki neitt. Siðan
skeður það um svipað leyti að
annar drengurinn kaupir sér
segulbandstæki og hinn fer að
vinna á auglýsingastofu. Þetta
voru þeir Guðmundur og Jón.
Fyrstu fundir
Nú. Þarna situr Jón á auglýs-
ingastofunni og vinnur sina rú>
tinuvinnu. Þá fór það að koma
fyrir að inn þustu þrjár stúlkur
og sungu hástöfum: „Gabriela,
ég elska hana voða
hei— ei— ei— eitt”.Þetta trufl-
aði vinnuna og raslcaði gæði
auglýsinganna. Loks stóð Jón
upp og slæddist fram til að at-
huga söngkonurnar nánar. Ekki
vill hann meina að hann hafi á
þessum tima verið heillaður af
söngnum, en honum þótti að
þetta væri eitthvað sjarmer-
andi. Uppúr þessu varð til
hljómsveit. Það var ákveðið að
hittast sisvona án þess að úr ætti
að verða eitthvað sérstakt.
Þetta var fyrir um það bil ári og
fyrsta mottóið i samstarfinu
var: Ekkert stress.
I upphafi voru æfingar heldur
lausar i reipunum, sennilega
vegna hljóðfæralegra kom-
plexa. Menn treystu sér ekki al-
mennilega til að spila, slógu öllu
uppi kæruleysi og gripu i rauð-
vin til að styrkja andann. Um
sumarið var litið starfað þvi all-
ir voru útum allt. En þá bar svo
við að einhvern tima sem oftar
sat Jón á auglýsingastofunni og
var að lesa. Hann hrökk við,
hljóp út á flugvöll, pantaði flug-
vél og flaug til Akraness. Þaðan
i bæinn aftur og hafði þá með
sér bassafiðlu. Þar með var
hljómsveitin gitarleikaralaus,
en um haustið þegar æfingar
hófust að nýju var Páll Torfi
kominn i hópinn.
Sorgarsaga
— Hvenær byrjiði svo að
koma fram?
— Við æfðum mjög óreglulega
og óstressað fram eftir hausti,
og til að byrja með áttum við i
erfiðri baráttu við að losa okkur
við rauðvinið. En einhvern veg-
inn tókst vinnuhóp um Kvenna-
fri að snuðra okkur uppi og vildi
fá okkur til að koma fram. Þá
hófust æfingar með það mark-
mið að hafa eitthvaö á hreinu
fyrir 24. október. Þessu fylgdi
smástress i nokkra daga, en
fjögur lög urðu tilbúin sem við
spiluðum á jafnmörgum kaffi-
húsum þennan pierka dag til að
fullnægja kröfum húsmæðra i
bænum.
— Hvernig voru undir-
tektirnar?
— Mjög góðar. — „Þið eruð
aðrir Stuðmenn”. Við spilum
enn þessi sömu lög, en i dáldið
öðrum útsetningum. Þegar
þetta var hétum við Hljómsveit-
in hlær. Annars á hljómsveitin
sér Iika langa sögu i nafngiftum.
Þar á meðal eru nöfn einsog Sex
á sviði. Sviðsex, Luracombó,
Stud. mus., Gerðarbók efri
deildar Alþingis, Stormsveit
efri deildar, sómi hennar sverð
og skjöldur, til sjávar og sveita,
hnifs og skeiðar.
— Hvert var svo næsta skrefið
á framabrautinni?
— Eftir kvennafrisdaginn ætl-
uðum við að koma fram á tón-
listarkvöldi i M.H. Þetta var
mánuði fyrir jól og við hétum
Stormsveit efri deildar. Þetta
átti að gerast á mánudaags-
kvöldi en á laugardeginum æfð-
um við nokkuð vel og þá voru
tilbúin sjö lög sem átti að skella
á liðið. Einn meðlimurinn fór þá
um kvöldið i læknanemaparti og
siðan á eitt öldurhús borgarinn-
ar. Þar varð hann vitni að þvi að
einn stór réðist á einn litinn og
hann gekk i milli og réðist á
þann stóra. Maður á náttúr-
lega að vera skynsamur og
hjálpa þeim stóra þegar svona
stendur á. Endalokin urðu sem
sagt þau að hljómsveitarmeð-
limurinn fór úr axlarliðnum og
ekkert varð úr fyrirhuguðum
hljómleikum i það skiptið.
Helvítis sjónvarpið
— Var Klúbbur 32 önnur upp-
troðsla?
— Já, en i millitiðinni höfðum
við gert sjónvarpsþátt fyrir
skitnar 10.000 krónur. Það er
eiginlega alveg sjálfsagt að nota
tækifærið og segja eitthvað
verulegaógeðslegt um sjónvarp-
ið, einsog til dæmis, — helvitis
sjónvarpið. En uppúr þvi að við
komum fram hjá Klúbb 32 fóru
dagblöðin að taka við sér og þá
byrjaði stressið. Bannað að taka
með sér rauövin og hætt að
segja: Ekkert stress.
— Og um sama leyti farið það
að taka upp plötu?
— Okkur var boðið að gera
þrjú lög á svokallaða kreppu-
plötu sem við og gerðum og
erum búin að. Þetta kom þannig
til að Steinar Berg og ólafur
Þórðarson hlustuðu á okkur æfa
fyrir konsertinn i Hamrahlið
sem aldrei varð úr. Þeir spurðu
okkur svo hvort við vildum vera
með á kreppuplötu. Svo einfalt
var það nú. I heiia viku æfðum
við lika á morgnana. Hræðileg
upplifun. Þurfa alltíeinu að
d
i(rr---------p
nrz
kammcr&vtít
éi poppvetmngi
Li_iu_______i_i—I_
Diabolus in IVIusica (á islensku Tónskratti eöa Óvinur sönglistarinnar). Páll Torfi var ekki mættur þegar myndin var tekii^svo Haukur ljósmyndari skellti honum bara í rammann á
veggnum.