Þjóðviljinn - 11.04.1976, Side 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. apríl 1976.
Barnaleikföng
Hernaöar-
tæknin
selst
best í ár
Leikfangaframleiðendur hafa
fundið fyrir kreppunni einsog svo
margir aðrir sem eru háðir fjár-
ráðum almennings á timum
versnandi afkomu, en þeir eiga
ráö við þvi: Bjóða fram meira af
hermennskutóium, æ nákvæmari
eftirlikingar af vélbyssum, skrið-
drekum og sprengivörpum. Þetta
er þróunin bæði í Bandarikjunum
og Þýskalandi.
„Bragðer að, þá barnið finnur”
geta þjóðverjar sagt þegar jafn-
vel hægri sinnuð blöð eru farin að
býsnast yfir öllum þeim morðtól-
um og vigvélum sem börnum er
boðið uppá i leikfangabúðum.
Þetta gerðist einmitt i Niirnberg
snemma i febrúar i vetur þegar
efnt var þar til alþjóðlegrar vöru-
sýningar á leikföngum.
Leikfangasýningin i Núrnberg
liktist engu fremur en hergagna-
sýningu i Putalandi. Mikið bar á
tækjum frá heimsstyrjöldinni sið-
ari. Fyrirtækið „Revell Plastics”
bauð ekki upp á neitt annað en
hergögn frá timum Hitlers. 1 128
siðna vöruskrá þess var hægt að
íilli „Fúh' ’ ”
Frá leikfangamarkaðinum i Niirnberg. Hægt er að sctja heilar orustur
á svið mcð hinum margvislegustu hergögnum og fjölda hermanna.
velja á mi
llabrynvagnsins”
(mælikvarði 1:35) og „Fótgöngu-
liða úr herfylkinu Stórþýskaland”
(mælikvarði 1:9), svo að dæmi
séu tekin af gripum sem kostuðu i
kringum 1.200 krónur. Fyrirtæk
ið seldi i fyrra íyrir um 2 miljarða
króna og býst við stóraukningu i
ár.
Heinz Rehringer er nefndur
einn sérdeilis frómur Niirn-
berg—búi, sem á striðsárunum
þjónaði undir Hitler i vélaher-
deild nokkurri. Hann hefur nú
snúið sér að eftirlikingum á þeim
ágætu vélum sem hann umgekkst
i striðinu og gerir gifurlega lukku.
Veltahans jókstum 25% á siðasta
ári, en á markaðinum i Niirnberg
varð hann var við helmingi meiri
áhuga á vigvélalikönum sinum nú
i ár heldur en i fyrra.
Þessi mikla aukning á sölu
þeirra leikfanga sem endurvekja
hinar sælu striðshugyndir meðal
þjóðverja geristá sama tima sem
samdráttar gætir á leikfanga-
markaðinum i heild. Á árinu 1975
var verðmæti leikfanga fram-
leiddra i Vestur—Þýskalandi 12%
minna en verið hafði árið áður.
Particular Pleasures.
Being a personal record of some
varied arts and many different
artists by J. B. Priestley.
Heinemann 1975.
Höfundurinn hefur gert úttekt á
eigin smekk að þvi er tekur til
málaralistar, hljómlistar, leik-
húss, kvikmynda, leikara og
listamanna. Hann fjallar bæði
um verkin og listamennina.
Mörgum hefur hann kynnst um
aðra hefur hann gert sér vissar
hugmyndir. Hann lýsir á hvern
hátt hin ýmsu verk urðu og verða
honum nautn, stundum segjr
hann frá fyrstu kynnum sinum af
hinum ýmsu verkum og lýsir þvi
hvernig mat hans breyttist að
öðru breyttu. Ritið er fyrst og
fremst lýsing höfundar sjálfs,
saga smekks hans og þarmeð
sannasta lýsing mannsins.
Höfundurinn skrifar um þessi efni
og einstaklinga i þægilegum
rabbstil.
Avec Leon Tolstoí.
Souvcnirs. Tatiana TolstoV.
Prcfacc de naniel Gillés. Albin
Michel, Paris 1975.
Tatiana Tolstjoi', dóttir Leon
Tolstoi' tók að skrifa minningar
um föður sinn og uppeldi sitt
heima i Jasnaja Poljana, 1913.
Siðan urðu það örlög hennar að
flytja frá Rússlandi 1925, settist
fyrst að i Paris og siðar i Róm,
Í---- Ég hefi borðað hjá Lenu, en
' vinnum við ekki leng
Nú er búið að reka Jón og Gunnar.J
Hvenær skvldi rnðin knma að
mér?Og ef þetta væri alminnileg
Það eru minnst fimm verksmiðjur
sem búa til fimm tegundir hver af
tannkermi og allar eru eins nema
umbúðirnar. Ein ætti að vera nóg, og
þá gætum við hinir byggt ibúðir i
staðinn. En það gerist vist ekki fyrr en
við tökum þessar verksmiðjur i eigin
hendur.
Tols toi
þar sem hún lést 1950. Dóttir
hennar Tatiana Albertini varð-
veitti handrit móður sinnar og nú
er það gefið út i fyrsta sinn; þó
hefur kaflinn um dauða skáldsins
birst áður og nokkrar siður úr Ec-
lairs de mémoire hafa birst á
rússnesku. Allt annað efni bókar-
innar hefur legið óbirt allan þenn-
an tima, þar til nú. Tatiana lýsir
barnæsku sinni, afskiptum föður
sins af krökkunum dagfari hans
og vinnuháttum, allt snérist um
hann heima fyrir og hann virðist
hafa verið nokkurskonar sól húss-
ins i augum barnanna. Hún segir
frá æsku sinni og sambúðinni við
föður sinn, og i þriðja kafla eru
raktar margar anektdótur og
koma þar margir við sögu. I
siðustu anektdótunni segir frá
orðaskiptum Tolstois og Solo-
goubs. S: Þér hafið hér allt sem
yður þykir vænt um. T: Nei, þvi
er ekki þannig farið að ég hafi hér
allt sem mér þykir vænt um, en
mér þykir vænt um allt sem ég
hef hér. 1 siðasta kaflanum segir
dóttirin frá þeim ástæðum sem
urðu til þess að koma upp mis-
ræmi bæði milli lærisveina
skáldsins og nánustu vanda-
manna hans. í bókarlok skrifar
Tatiana Albertini um móöur sina.
Það hefur mikið verið skrifað
um Tolstoj' og börn hans hafa
nokkur skrifað um föður sinn, en
þetta er siðasta minningabókin
frá þeirra hendi, sem út kemur.
Minningar Tatiönu sýna enn eina
mynd skáldsins, smáatburöir og
setningar falla inn i fyrri myndir.
Bókin er skemmtileg og liðlega
skrifuð. Margar myndir úr eigu
Tatiönu fylgja.
Beschreibung des Christ-
entums.
Eine historische Ph'ánomeno-
logie. Ernst Benz. Deutscher
Taschenbuch Verlag 1975.
Kristindómurinn hefur i ald-
anna rás verið voldugasta aflið i
heiminum allt fram á siðari hluta
18. aldar. Engin stefna hefur
mótað mikinn hluta mannkynsins
sem hún og jafnframt hafa þessi
trúarbrögð kallað fram andstæðu
sina i mynd andkirkjulegrar
starfsemi. Kristnin er samofin
menningu evrópskra þjóða i
öllum greinum jafnvel i and-
stæðunni. I þessu riti leitast höf-
undur við að rekja sögu kristin-
dómsins frá upphafi og fram á
okkar tima, þátt hans i framvind-
unni og menningu þjóðanna og
stöðu hans á vorum dögum. Þetta
er fræðirit um viðfangsefnið og
laust við þá klerklegu mærð, sem
stundum vill spilla góðum ritum
um þessi efni Höfundurinn er
fræðimaður i trúarbragðasögu og
kirkjusögu og hefur sett saman
mörg rit um slik efni.
Áskriftasíminn
er17505
ÞJÓÐVILJINN