Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 7
Miflvikudagur 14. aprfl 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7 um. Gist i tjöldum við Illakamb. Verð 15.600 krónur. Gönguferð: Hornbjarg — Hraínsf jörður. '24.-31. júli, 8 dagar. Flugleiðis til tsafjarðar. Með bil til Bolungar- vikur og þaðan með bát sam- dægurs til Hornvikur. Dvalið þar i 2-3 nætur en gengið á 3-4 dögum til Hrafnsfjarðar. Unnt verður að ganga á Drangajökul á leiðinni. Frá Hrafnsfirði með bát til Boiungarvikur og flugleiðis heim frá Isafirði. Þátttakendur verða að hafa góðan útbúnað til viku ferðalags. Gist i tjöldum. Verð í6.800 krónur. Ferð til Borgarfjaröar eystri 20.-25 júli 6 dagar. Flogið til Fgilsstaða og þaðan með bil til Borgarfjarðar. Til baka á sama hátt. Gist i húsi. Timanum varið til gönguferða um sveitina og á nærliggjandi fjöll. M.a. gengið á Dyrfjöll, i Brúnavik og ef til vill til Loðmundarfjarðar. Tilvalin ferð fyrir þá sem hafa áhuga á is- lenskum steinategundum. Þessi ferð farin i samvinnu við FFF. Gönguferð um Arnarvatnsheiði. 20.-24. júli 5 dagar. Haldið með áætlunarbil til Miðfjarðar. Ekið þaðan með jeppum suðuruð Arnarvatni. Dvalið þar einn dag Gengið á 2 dög til Húsafells og með bil þaðan til Reykjavikur. Sumarfegurð á Arnarvatnsheiði er mjög rómuð. t þessari ferð gefst m.a. tækifæri til að skoða hellana i Hallmundarhrauni og ganga á fjallið Strút. Verð 6.800 krónur. Gæsavötn — Vatnajökull. 22. -25, júli 4 dagar. Ekið til Gæsa- vatna og gist þar i tjöldum eða húsi, ef þess verður óskað. A föstudag eða laugardag verður haldið á jökulinn með Snjókettin- um, sem staðsettur er við Gæsa- vötn ef fært verður. Hinn daginn verður litast um i næsta nágrenni Gæsavatna, t.d. haldið i Vonar- skarð. Ath: Gistingin i húsinu við Gæsavötn.eða ferðin á jökulinn er ekki innifalin i þessu verði. Verð 8.200 krónur. Sprengisandur—Kjötur. 23. -28. júli 6 dagar. Ekið til Veiði- vatna og gist þar. Næsta dag ekið til Nýjadals með viðkomu i Jökul- heimum og Eyvindarkofaveri m.a. Gist i Nýjadal tvær nætur og farið i Vonarskarð. Þaðan ekið norður til Skagafjarðar með við- komu i Laugafelli og að Hvera- völlum. Þar verður dvalið i tvær nætur og Kjalarsvæðið skoðað. Þessi ferð gefur glögga mynd af fegurð og sérkennum islenskra öræfa. Gist i sæluhúsum F.t. Ferð i Laka, Eldgjá og um syðri Fjallabaksveg. 24. -29. júli. 6 dagar. Ekið eftir hringveginum austur á Siðu.Það- an i Varmárdal og skoðuð eld- vörpin umhverfis Laka. Siðan ekið i Eldgjá og á Fjallabaksveg syðrium Mælifellssand, Hvanngil og Rangárbotna. Þaðan heim. Gist i tjöldum. Verð: 12.300 krónur. Ferð um miðlandsöræfin 4, -15.ágúst. 12 dagar. Fyrsta dag- inn ekið að Veiðivötnum og gist þar.Þaðan er ekið norður Sprengi- sand, austuí Dyngjuháls og tíl Herðubreiðarlinda. Siðan um Norð-austurlandogheimleiðis um Kjöl. t þessari ferð gefst mönnum kostur á að sjá marga fegurstu og þekktustu staði isl. öræfa s.s. Veiðivötn, Þórisvatn, Þjórsárver. Nýjadal, Vonarskarð, öskju, Herðubreiðarlindir, Dettifoss, Þjóðgarðinn i Jökulsárgljúfrum. Hveravelli og Hvitárnes. Auk þess verður komið að Mývatni og á heimleiðinni að Gullfossi og Geysi. Gist i tjöldum og húsum. Verð: 23.700 krónur. Kverkfjöll — Snæfell. 5. -16. ágúst. 12 dagar. Þessi ferð verður farin i samyinnu við Ferðafélag Fljótsdalshéraös. Ekið norður Sprengisand um Dyngjuháls, Herðubreiðarlindir og komið á 3ja degi að Kverkfjöll- um. Dvalið þar næstu daga og gengið um nágrennið. Komið ma. i Hveradalina og að ishellunum. Frá Kverkfjöllum verður ekið um Hvannlindir og Brúaröræfi með gistingu á Laugavöllum og göngu i Hafrahvammagljúfur, siðan haldið til Snæfells og dvalið þar 5- 3nætur. Gengið m.a. á Snæfell, en þaðan er afar viðsýnt i heiðskiru veðri. Frá Snæfelli verður haldið að Egilsstöðum og siöan heim- leiðis hringveginn sunnan jökla. Gist i tjöldum og húsum. Verð: 23.700 krónur. Fcrö á Þeistareyki, Sléttu, öxar. fjörð og Mývatn. 13.-22. ágúst. 10 dagar. Þessi ferð veður skipulögð i samvinnu við Ferðafélag Húsavikur. Fyrsta daginn verður ekið til Húsavikur. Þaðan á Þeistareyki og dvalið þar i 2 nætur. Siðan ekið um Asbyrgi, Hljóðakletta, Hólmatungur og fl. fagra og sérkennilega staði. Þaðian um ÖKarfjörð og' Melrakkasléttu með viðkomu á Kópaskeri og Raufarhöfn og i Vopnafirði. Að lokum verður dvalið við Mývatn i tvær nætur og skoðað næsta nágrenni, m.a. gengið i Dimmuborgir, farið um Kröflusvæðið o.fl. Ekið heim á tveimur dögum um Sprengisand. Verð: 19.700 krónur. Langisjór — Sveinstindur — Alftavatnskrókur — Jökulheim- ar. 17.-22. ágúst. 6 dagar. Farið i Landmannalaugar og gist þar. Farnar dagsferðir frá Laugum og komiðm.a. að Langasjó, gengið á Sveinstind, komið i Alftavatns- krók, i Eldgjá o.fl. Frá Land- mannalaugum verður haldið að Veiðivötnum og gist þar tvær nætur. Vatnasvæðið skoðað og farið i Jökulheima. Verð: 12.500 krónur. Gæsavötn — Vatnajökull 12.-15. ágúst, 4 dagar. Tilhögun eins og i ferö nr. 15. Verð: 8.200 krónur. Aðalbláberjaferð i Vatnsfjörð 19.-22. ágúst, 4 dagar. Ekið i Vatnsfjörð á einum degi og dvalið þar i tvo daga við berjatinslu. Þetta er tilvalin fjölskylduferð (Ath. Gist i tjöldum; en þeir sem þess óska geta fengið gistingu i Flókalundi, en gistigjaldið er ekki innifalið i fargjaldinu). Verð: 7.800 krónur. Norður fyrir Hofsjökul. 26.-29. ágúst. 4 dagar. Ekið til Hveravalla og gist þar. Næsta dag haldið austur yfir Blöndu, austur með Hofsjökli um Asbjarnarvötn Laugafell og i Nýjadal. Gist þar tvær nætur og farið i Vonarskarð. Heim frá Nýjadal á 4. degi. Verð: 8.000 krónur. Styttri ferðir það sem eftir lifir árs eru þær sem hér greinir. Það skal tekið fram, að ekki er greint frá hvert farið verði i laugardagsferðir né hvenær þær hefjast. Þær verða auglýstar sérstaklega i dag- blöðunum. Kunnir leiðbeinendur og fræðimenn eru jafnan við leiðsögn i slikum ferðum. Páskar: 15. april Þórsmörk 15. — Straumsvik — Hvassahraun 16. — Búrfellsgjá — Búrfell 17. — Þórsmörk 17. — Skálafell á Hellisheiöi 18. — Undirhliðar —Kaldársei 19. — Grótta—Suðurnes 22. — Esja — Kerhólakambur. 22. — Blikdalur 24. — Laugardagsferð 25. — Keilir —Sog 1. mai Skarðsheiði 1. — Kringum Akrafjal! (söguskoðuna rferð) 2. — Meðalfell i Kjós 8. — Laugardagsferð 9. —Fuglaskoðunarferð suður með sjó 15. — Laugardagsferð 16. — Fjöruganga á Kjalarnesi 19. — Heiðmerkurferö kvöldferö, fritt) 22. — Laugardagsíerð 23. — Kjósarskarð : —Stíf-iisdalsvatn 26. — Heiðmerkurferð Kvöldferð fritt) 27. — Krýsuvikurbjarg 27. — Austan Kleifarvatns 28. — Sögustaðir Dalasýslu. 3 dagar 29. — Laugardagsferð 30. — Leiti — Eldborgir 2. júni Heiðmerkurferð (kvöldferð, fritt) Hvitasunnna: 4. — - Þórsmörk 4. — Landmannalaugar 5. — Snæfellsnes 5. — Þórsmörk 6. — Vifilsfell 7. — Helgafell og nágrenni 9. júni Selfjall og nágrenni (kvöldferð) 11. — Eyjafjallajökull. 3 dagar. 12. — Laugardagsferö 13. — Hengill 13. — Nesjavellir 16. — Grimmannsfell (kvöldferð) 17. — Skálafell við Esju 18. — Ferð á sögustaði i Húna- þingi. 3 dagar 19. — Laugardagsferð 20. — Botnssúlur 20. — Brynjudalur — Botnsdalur 21. — Sólstöðulerð á Kerhóla- kamb 23. — Tröllaloss Haukafjöll i kviildferð i 25. — Eiriks jokull 3 dagar 26. - Laugani.igsierð 27. — Sögustaðir Njálu 30. Gengið ;i llúsfell i kvöldferði 2. júli. Heklulerð.3 dagar 4.— Marardalur 7. — Grótta — Suðurnes (kvöldferð i 9. — Baula Skarðsheiði • dag- ar 11. — Móskarðshnúkar 14. — Þormóðsdalur — Reykja- fel! (kvöldferði 16. — Einhyrningur — Markar fljotsgljúfur. 3 dag'ar. 18. — Dauðadalnhellar 21. — Um Geldinganes (kvöldferð) 23. — Tindafjallajökull. 3 dagar 25. — Bláfjallahellar 28. — Viðeyjarferð. (kvöldferð) Verslunarmannahelgin: 30. — Þórsmörk 20. Landmannalaugar — Eldgjá 30. — Skaftafell 30. — Veiðivötn — Jökulheimar 30. — Hvanngil —■ Hattfell — Torfahlaup 31. — Snæfellsnes — Flatey 31. — Kjölur — Kerlingarfjöll 31. — Þórsmörk 1. ágúst Skálafell við Esju 2. — Skálfell á Hellisheiði 7. Hreðavatn — Langavatns- dalur. 2 dagar 8. — Fossárdalur — Kjós 13. — Hröðufell — Brúarárskörð 3 dagar 15. — Fjöruganga við Kjalarnes 20. — Hrafntinnusker — Reykjadalir, 3 dagar 22. — Gönguferð um Bláfjöll 27. — Övissuferð. 3 dagar 29. — Hvalfell — Glymur 29. — Raufarhólshellir 4. sept. Hagavatn — Bláfell. 2 dagar 5. — Ferð til Þingvalla. 11. — Laugardagsferð 12. — Vigdisarvellir — Mælífell 18. — Laugardagsferð 19. — Skjaldbreið 19. — Undirhliðar — Helgalell 25. — Laugardagsferð 26. — Seljadalur 2.okt. Laugardagsferð 3. — Fjallið eina — Hrútagjá 9. — Laugardagsferð 10. — Eyrarfjall — Kjós 16. — Laugardagsferð 17. — Geitháls — úlfarsfell 24. — Vifilsstaðahlið — Kaldársel 31. — Kjalarnes — Tindastaða- fjalL 7. nóv. Vifilsfell 14. — Mosfell — Skammidalur — Reykir 21. — Langihryggur i Esju 28. — Gálgahraun 5. des Rauðhólar og nágrenni' 12. des Seltjarnarnes 19. — Rjúpnahæð — Vifilsstaðir 26. — Um Geldinganes 31. — Áramótaferð i Þórsmörk. 3 dagar Þórsmörk/ Landmanna- laugar, Kjölur Þórsmerkurferðir Fyrsta Þórsmerkuferð verður farin 7. mai og sú siðasta 16. októ- ber. Farið verður frá Reykjavik kl. 20.00 á föstudagskvöldum til ágústloka, en i september og október kl. 08.00 á laugardags- morgnum. I júli til september verður einnig fariö til Þórs- merkur á miðvikudögum. Lagt verður af stað kl. 08.00 og komið til baka samdægurs. Þessar mið- vikudagsferðir eru einkum ætlaðar þeim. sem hyggjast dvelja i Þórsmörk hálfa viku eða lengur. Landmannalaugar — Eldgjá Til Landmannalauga verður farið kl. 20.00 á föstudagskvöldum frá júni byrjun til septemberloka ef vegir og tiðarfar leyfa. Farið verður i Eldgjá á laugardögum i þessum ferðum, þegar leiðir opnast þangað. Reynt verður að fara i Jökulgilið og Hattver, þegar liður á sumarið. Kjölur — Kerlingarf jöll — Hveravellir Á Kjalarsvæðið verður farið á hverju föstudagskvöldi i júli og ágúst kl. 20.00.1 þessum ferðum verður komið i Hvitárnes, á Hveravelli og i Kerlingarfjöll. Ef næg þátttaka fæst verður unnt að fara á báti um Hvitárvatn. n.a i Karlsdrátt. Kostnaður við slika Framhald á bls. 18. Þessar leiðir fer Guðmundur Jónasson með farþega slna i sumar. Guðmundur Jónasson hf: 16 ferðir um örœfin Guðmundur Jónasson hefur um margra ára skeið haldið uppi ferðum um öræfi landsins. og er einn af frumherjum slikra lerða hér á landi. Guömundur Jónasson er reyndar orðinn hlutafélag og það hefur nú sent frá sér áætlun um öræfaferðir sumarsins. Þar eru taldar upp einar 16 ferðir vitt og breitt um hálendið. Páskaferðin verður farin 15. april um öræfasveit og Horna- fjörð. Þetta er fimm daga ferð og kostar 8.500 krónur án matar, en 14.500 krónur með mat. Panta verður mat sérstaklega um leið og ferðin er pöntuð. Þá er sérstök hvitasunnuferð á Snæfellsnes. Sú lerð er þriggja daga ferð og fylgir ekki matur með i verðinu, eins og gert er i flestum öðrum ferðum. Þessi ferð kostar 4.500 krónur. Tiu 12 daga tjaldferðir verða farnar á leiðinni Askja—Sprengi- sandur, sú fyrsta 20. júní og sú siðasta 22. ágúst. Þessar ferðir kosta 51.200 kr. og er fæði inni- falið i verðinu. Þrettán daga tjaldferðir á leiðinni öræfi — Kverk- Ijöll—Sprengisandur veröa tvær. Slikar ferðir kosta 56.000 krónur og er fæði þar innifalið eins og i öðrum langferðum. Gæsavötn—Askja nefnist þrettán daga tjaldferð sem farin verður 9. ágúst. Sú ferð kostar 56.000 kr. með fæði. Loks er að nefna fjögurra daga ferð um Fjallabaksleiösem farin verður 30. júli. Sú ferð kostar 6.200 krónur og er án fæðis. —Iim Ferðaleiðir úlfars Jacobsen Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen: „SAFARI”- FERÐIR Ferðaskrifstofa úlfars Jacob- sen gengst i ár eins og undan- gengin ár lyrir svokölluðum ,,safari"-ferðum um hálendiö. Hér er um að ræða átta 13 daga tjaldferðir, sem kallaðar eru „hálendis-safari" og „suð - austur—hálendis-safari" (þetta eru hálfgerðir tungubrjótar, enda það sem kalla mætti orðabóka- þýðingu upp úr enskum bækling); 12 daga „hringleiðarsafari" og loks er páskaferðin sem er sýnu styst, aðeins 5 dagar. Ef við byrjum á páskaferðinni, þá er á fyrsta degi farið frá Reykjavik austur að Kirkju- bæjarklaustri. þaðan daginn eftir austur yfir Skeiðarársand og gist næstu nótt i Skaftafelli.Þaöan er svo farið i ökuferð að Jökulsá á Breiðamerkursandi og Jökullóni og siðan aftur að Hofi og annarri nótt eytt þar. Fjórða deginum er siðan eytt að mestu i þjóðgarðin- um að Skaftafelli en farið að Klaustri siðla dags og gist þar. Siðan er haldið sem leiö liggur á fimmta degi. til Reykjavikur þar sem ferðinni lýkur. 1 þessari ferð er innifalin gisting (með svefn- pokum og vindsængum) en hægt er að velja hvort tekinn er matur Framhald á bls. 18.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.