Þjóðviljinn - 28.04.1976, Side 5

Þjóðviljinn - 28.04.1976, Side 5
Miðvikudagur 28. april 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Fyrsta ár Kambodíu eftir fall Lons Nol Þessa daga er ár liðið frá þvi Indó-kina styrjöldinni lauk, og þjóðir Vietnams og Kambódiu fengu seint og um siðir frið til að bygfíj3 UPP þjóðlif sitt og at- vinnuvcgi eftir áratuga eyði- leggingu og ofbeldi af hálfu ásælinna stórvelda og innlcndra leppa þeirra. Enginn veit með vissu, hversu mikið afhroð þjóðir þessra landa guldu i frelsisbaráttu sinni, en það segir sig sjálft að það tekur meira en ár fyrir þau ör að gróa. 1 Vietnam virðist þróun mála lofa góðu. Sameining Norður- og Suður-Vietnams stendur fyrirdyrum og i Suður-Vietnam hafa hinir nýju valdhafar lagt áherslu á að taka vægum höndum á þeim, sem áður studdu bandarisku leppstjórn- ina i Saigon nauðugir viljugir, i þeim tilgangi að eyða hatrinu, arfi striðsins, og fá landsmenn til að sameinast um að byggja nýtt og betra þjóðfélag. t grannlandinu Kambódiu virðast málin hafa þróast allmjög á annan veg. Fréttir um fjöldamorö Þaðan hafa undanfarið borist fregnir um fjöldamorð á and- stæðingum hinna nýju valdhafa og stuðningsmönnum Lon-Nol stjórnarinnar, sem hjarði i landinu um fimm ára skeið með stuðningi Bandarikjanna. Sam- kvæmt sumum blaðafréttum hefur allt að tiundi hluti lands- manna látið lifið siðastliðið ár i þessum fjöldadrápum og af völdum hungursneyðar, sem var afleiðing striðsins, þar eð flugherir Bandarikjanna og Lon-Nol-stjórnarinnar höfðu eyðilagt akurlendið að miklu leyti með loftárásum og auk þess varð fjöldi sveitafólks að flýja jarðir sinar vegna hernaðarins. Bandariskir fjölmiðlar hafa mest gert af þvi að slá upp ógnarfréttum frá Kambódiu og má fastlega ráð fyrir þvf gera að þær séu mjög orðum auknar, miðað við fengna reynslu af Indókina-skrifum bandariskra blaða. Engu að siður er ljóst að andstæðingar hinnar nýju Kam- bódiustjórnar hafa verið beittir mikilli grimmd. Til þess bendir meðal annars að fjöldi manna hefur flúið til grannlandanna, Vietnams og Tailands, eða bein- linis verið reknir þangað. Þannig herma fregnir að svo að segja allur vietnamski þjóð- ernisminnihlutinn i Kambódiu, um hálf miljón manna, hafi verið rekinn til Vietnams. Annað stríð en í Víetnam Hitt er svo annað mál að um- heimurinn, og einkum Vestur- lönd, stendur ekki ýkja vel að vigi þegar um það er að ræða að fordæma Kambódiustjórn fyrir hryðjuverk hennar Það, sem undanfarið hefur verið að ger- ast I Kambódiu, er bein afleið- ing atburðarrásar, sem ihlutun Bandarikjanna kom af stað. Bandarikin létu lepp sinn, Lon- Nol hershöfðingja, ræna völdum i landinu 1970 vegna þess að þá- verandi þjóðarleiðtogi, Sihan- ouk fursti, neitaði að hlýða fyrirmælum frá Washington. Afleiðingin varð heiftarleg fimm ára styrjöld, sem skildi landið eftir i flagi, bókstaflega sagt. Striðið i Kambódiu var á margan hátt ólikt átökunum i Vietnam. Bandariska lepp- stjórnin i Saigon var svo að segja gersamlega fylgislaus meðal landsmanna og sýndi það sig eftirminnilega i lokin, þegar her hennar, sem hvað liðsfjölda og vopnabúnað snerti var meðal þeirra öflugustu i heimi, varð að gjalti fyrir sókn Þjóðfrelsis- fylkingarinnar. fbúar borga Suður-Vietnams tóku fagnandi á móti hersveitum Þjóðfrelsis- fylkingarinnar og traustir stuðningsmenn Saigon- stjórnarinnar reyndust varla nokkursstaðar finnanlegir. Andstæður borga og sveita I Suður-Vietnam var þannig vart um borgarastyrjöid að ræða, heldur þjóðfrelsisbaráttu þorra þjóðarinnar gegn Banda- rikjunum og innlendum leppum þeirra, sem reyndust svo fylgis- lausir að veldi þeirra hrundi eins og spilaborg þegar Banda- rikin gáfust upp á beinni þátt- töku i stríðinu. í Kambódiu leysti striðið hinsvegar úr læð- ingi andstæður milli borga og sveita. Þorri sveitaalþýðunnar, mikill meirihluti landsmanna, stóð að visu sameinaður gegn Lon Nol-stjórninni, sem best sýndi sig i þvi að þeirri stjórn mistókst gersamlega, þrátt fyrir gifurlegan stuðning frá Bandarikjunum, að ná sveita- héruðunum undir sig. Hins- vegar hafði klikuspilling, sem þróaðist i skjóli Sihanouk- stjórnarinnar gömlu, gert hana óvinsæla i borgunum, einkum höfuðborginni Phnompenh, og þær óvinsældir virðist Lon-Nol- liðum hafa tekist að færa sér i nyt. Að minnsta kosti bentu fregnir til að fylgismenn Lon Nol-stjórnarinnar hefðu varið Phnompenh og fleiri borgir af verulegri hörku allt þar til yfir lauk, á sama tima og i Suður- Vietnam fannst varla nokkur innlendur maður, sem fús var til þess að leggja nokkuð i sölurnar fyrir Thieu-stjórnina. Þjóöarstolt og tor- tryggni gagnvart útlendingum Kambódiumenn eiga það sammerkt með öðrum þjóðum, að þeir eru mótaðir af sinni sögulegu fortið. Á siðari hluta miðalda voru þeir öflugasta þjóð Suðaustur-Asiu og mikil menningarþjóö að þvi skapi. Siðan hafa þeir hægt og bitandi mátt láta undan siga fyrir grannþjóðunum, vietnömum og tailendingum, sem öld eftir öld sóttu að þeim að austan og vestan og tóku af þeim hvern landskikann á fætur öðrum. Saigon var þannig kambódisk borg fram á átjándu öld, er viet- namar tóku hana. Þessi saga hefur alið upp i kambódiumönnum mikið þjóðarstolt og jafnframt djúp- tæka og nánast grimmúðuga tortryggni gagnvart grannþjóð- unum. Þeim er jafnlitið gefið um tailendinga, sem hafa bandarisksinnaða stjórn, og vietnama, sem stefna að upp- byggingu sósialisks þjóðfélags. Af stórveldunum munu þeir vin- samlegastir Kina, um hug þeirra til Bandarikjanna þarf ekki að spyrja og Sovétrikin munu litlu vinsælli hjá nú- verandi ráðamönnum i Phnompenh, enda höfðu sovét- menn ambassador hjá Lon Nol- stjórninni allt til siðasta dags þeirrar stjórnar. Grund- völlurinn i stefnu hinnar nýju stjórnar er að Kambódia verði sjálfri sér nóg um hvaðeina og þurfi sem minnst til annarra landa að sækja. Fyrsta skilyrði þess, að svo mætti verða, er að Íandið verði sjálfu sér nógt um matvæli, og i þeim tilgangi var þegar eftir sigur þjóðfrelsis- aflanna tekið til við að knýja þorrann af ibúum borga og bæja Sihanouk fursti, sem formlega var aðalleiðlogi kambódisku þjóðfrelsisaflanna tneðan striðið stóð yfir, hefur nú látið af störfum. til að fara út i sveit og vinna að uppskerustörfum. Þareð akur- yrkjan var i kaidakoli eftir striðið má ætla að ráð- stafanir sem þessi hafi verið nauösynlegar, en vist er um hitt að þær voru knúnar i gegn af mikilli hörku, sem kostað mun hafa miklar fórnir. önnur ástæða til þess að tæma borgirnarkannaðhafa verið sú, að þvi hlaut að fylgja upplausn borgara- ogmillistéttanna þar, sem munu hafa verið að nokkru leyti hlynntar Lon Nol-stjórn- inni. Metuppskera Árangur þessarar herferðar til þess að koma fótum undir akuryrkjuna á ný hefur orðið metuppskera, sem þessi striðs- og hungurhrjáða þjóð hefur vissulega þörf fyrir. Jafnframt heyrist að ógnarátjórnin sé i rénum, og eru það út af fyrir sig góðar fréttir. Ef til vill má þvi gera ráð fyrir að þegar kambódiumönnum tekst að endurreisa atvinnuvegi sina — og þeirra langhelstur er akur- yrkjan — úr rústum striðsins og öðlast efnalegt sjálfstæði, muni draga úr þvi grimma óum- burðarlyndi, sem einkennt hef- ur afstöðu valdhafa þjóðfreisis- aflanna til raunverulegra og hugsanlegra pólitiskra and- stæðinga. —dþ Úr dómi Aftenposten um Islandsmynd í norska sjónvarpinu Lítið til Islands og vitkist 1 byrjun þessa mánaðar var sýnd samtimis i norska og sænska sjónvarpinu klukku- stundarlöng mynd frá Islandi. Nefndist hún „Ragnarök Is- ienskrar menningar” og hafði að meginþema átök auðhyggju og náttúruverndar og hvað yröi um islenska menningu i fram- tíðinni, ef stóriðjusamfélag skapaöist hér. Mynd þessi mun hafa fengið mjög góða dóma þar sem hún var sýnd, en einn undantekning er þó kunn þar frá. Birtist hún i Morgunblaðinu s.l. laugardag, en þar skrifaði Páll Bragi Kristjánsson frá Arósum og fór hinúm verstu orðum um mynd- ina. Hefur hún greinilega hitt hann þar fyrir sem hann var aumastur, og tekið fyrir mál- efni, sem hann og hans skoðana- bræður vilja helst þegja i hel: Framtið islendinga i landi sinu, ef þau öfl sem nú ráða fá að halda um taumana öllu lengur. Fyrir bragðið fer Páll hinum hæðilegustu orðum um þá is- lendinga flesta sem fram komu i myndinni, enda fæstir þeirra með „réttar skoðanir”. Má af þeim nefna Jónas Arnason, Einar Braga, Bryndisi Schram, Thor Vilhjálmsson, Halldór Laxness, Guðmund Inga Kristjánsson og Magnús Sigurðsson á Gilsbakka. Þá má enn telja Matthias Johannessen sem er hinn eini þóknanlegi hjá Páli Braga. Auk viðtala við þetta fólk var sýndur kafli úr Skjaldhömrum Jónasar Arnasonar i myndinni, en leikhúslif höfuðstaðarins væri helsta glætan i þvi sam- félagi sem þróaðist i þéttbýlinu. Cþess má hér geta að atriði úr Skjaldhömrum hefur einnig verið tekið upp i hollenska sjón- varpinu.) Enn voru svo i þættin- um myndir viða að.en fegurstar þó haustmyndir úr Borgarfirði. Svo vitnað sé i dóma um myndina má geta þess að Aftenposten i Osló telur hana af- burðagóða (utmerket) og hrós- ar sérstaklega þeim mönnum sem fram hafi komið i henni, svo og þeim er að gerð hennar stóðu fyrir heiðarlega og trausta fréttamennsku. Telur blaðamaðurinn sem dóminn skrifar réttast fyrir norðmenn að taka sér til fyrirmyndar þá islendinga sem fram komu og lagsbræður þeirra. Af myndinni og islendingunum megi margt læra, og það liggi á að tileinka sér það. Bandarikin: Læknis- þjónusta stórhækkar í verði Washington 26/4 reuter — Kostn- aður viö læknaþjónustu og heilsu- gæsludeild i Bandarikjunum hef- ur rokið upp úr öllu valdi að und- anförnu. I nýútkominni skýrslu stjórnskipaðrar nefndar segir að þvi valdi að læknar og sjúkrahús hafi litið sem ekkert aðhald i þá vcru að halda kostnaðinum niðri. A fyrstu þrem mánuðum þessa árs jókst kostnaður sá sem hver bandarikjamaður þarf að leggja i læknisþjónustu um 14% miðaðvið eitt ár á sama tima og almennur framfærslukostnaður jókst aðeins um 2.9%. í skýrslunni segir að flestar greiðslur til lækna og sjúkrahúsa séu reiddar fram af þriðja aðila, þ.e. tryggingafélögum eða stjórn- völdum. Ennfremur segir þar: — Þegar málum er svo háttað er ekkert sem hvetur sjúkrahús til að sýna hagkvæmni i rekstri. Sama gildir um lækna sem fá greitt beint fyrir þá þjónustu sem þeir inna af hendi. Það rekur þá ekkert til að gæta sparsemi og nýtni. Þessi skortur á aðhaldi virðist leiða til bruðls með lyf og lækningatæki. segir i skýrslunni. 1 fyrra greiddu bandarikja- menn 118.5 miljarða dollara fvrir læknisþjónustu en það samsvarar 8.3% af brúttóþjóðarframleiðsl- unni. Gretskó marskálkur Grétsjkó marskálkur látinn Moskvu 26/4 reuter nlb - Varnar- málaráðherra Sovétrikjanna. Andrei Gretsjkó marskálkur. lést i dag 72 ára að aldri. Banamein hans var hjartaslag. Hann hafði ekki legið sjúkur og kom siðasl fram opinberlega sl. föstudag. Grétsjkó var skipaður i embætti varnarmálaráðherra árið 1967 en áður hafði hann verið yfirmaður herafla Varsjárbanda- lagsins. Arið 1973 var hann skipaður i pólitiska framkvæmdanefnd kommúnista- flokksins sem er æðsta stjórnar- stofnun hans. Grétsjkó fæddist árið 1903 inn i úkrainska bændafjölskyldu. Hann hóf að klifa metorðastigann innan hersins á fjórða áratugnum um likt leyti og Stalin stóð i hreinsununum miklu. A striðs- árunum stjórnaði hann her- sveitum i Norður-Kákasus sem vörnuðu þýsku herjunum aðgangi að oliulindunum i Adserbædsjan. Arið 1953 komst hann i svtðs- Ijósið er hann stjórnaði sovésku hersveitunum sem brutu á bak aftur uppreisnina i Berlin. Eftir það sæmdi Krústjof hann marskálkstign og árið 1957 var hann kallaður heim til Moskvu þar sem hann tók við embætti aðstoðarvarnarmálaráðherra. næstur á eftir Malinovski þáverandi varnarmálaráðherra að völdum. Árið 1960 tok hann við yfirstjórn herafla Varsjárbanda- lagsins og hélt hann þvi embætti þar til hann varð ráðherra 1967. Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.