Þjóðviljinn - 28.04.1976, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 28.04.1976, Qupperneq 6
(í SlDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2S. apríl 197(> Kissinger í Afríkuferð: Ir&u IOWDON tiULOMOON \ KINSHASA DAR ES SALAAM ilíSAKA SENEGAL 1-2 Maj LIBERIA 30 Apr.- 1 Maj Lofar að virða viðskiptabann SÞ á Ródesíu Smith svarar með því að skipa ættarhöfðingja i ráðherraembætti Lusaka og víðar 27/4 reuter ntb — Henry Kissinger utanrikis- ráðherra Bandarikjanna sem nú er á ferðalagi um sjö Afriku- riki fór i dag frá Sambiu áleiðis til Zaire. Aður en hann fór frá Sambiu hélt hann ræðu sem menn segja að marki timamót i stefnu Bandarikjanna i málefn- um Afriku. Pólitiskir spekúlantar i Lusaka, höfuðborg Sambiu, voru þeirrar skoðunar að ræða Kissingers fæli i sér sálfræði- lega og efnahagslega striðsyfir- lýsingu á hendur stjórn hvita minnihlutans i Ródesiu. Hann hefði gengið eins langt og hægt var án þess að brjóta þær grundvallarreglur sem utan- rikisstefna Bandarikjanna byggir á. Kissinger lýsti þvi yfir að stjórn sin myndi beita sér fyrir þvi að þingið gerði nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að Bandarikin gætu komið til móts við kröfu Sameinuðu þjóðanna um algert viðskiptabann á Ródesiu og þar með að hætta innflutningi á krómi frá Rodesiu. Kvað hann stjórn sina mundu hvetja aðrar rikisstjórn- ir til að gera slikt hið sama. Kissinger sagði að stjórn hans styddi i einu og öllu kröfu breta Henry Kissinger — hótar að beita hvíta minnihlutann i Ródesiu hörðu. á hendur stjórn Ians Smiths um að hún semji hið fyrsta um stjórnlagabreytingu sem ryðji brautina fyrir meirihlutastjórn blökkumanna innan tveggja ára. Einnig sagðist hann myndu ráðleggja löndum sinum að ferðast ekki til Ródesiu og biðja þá sem þar eru að snúa heim. Hins vegar kvað Kissinger stjórn sina ekki geta lýst yfir stuðningi við vopnaða baráttu gegn stjórn hvita minnihlutans. í Sambiu hitti Kissinger að máli þá Kenneth Kaunda for- seta landsins og Joshua Nkomo leiðtoga hægfara arms samtaka ródesiskra blökkumanna, ANC. Til Sambiu kom hann frá Tansaniu þar sem hann ræddi við Julius Nyerere forseta. Samora Machel forseti Mósam- bik kom i skyndiheimsókn tii Tansaniu i dag og átti fund með Nyerere. Er talið að sá siðar- nefndi hafi gefið skýrslu af við- ræðum sinum við Kissinger. Það stóð ekki lengi á svarinu frá Ródesiu. Stuttu eftir að Kissinger fór frá Sambiu til- kynnti Ian Smith að stjórn sin hefði ákveðið að skipa fjóra nýja ráðherra úr hópi" blökku- manna og sex aðstoðarráð- herra. Þessir ráðherrar verða að öllum likindum sóttir i hóp ættarhöfðingja sem eigá sæti i efri deild þingsins i Salisbury. (Þessir höfðingjar eru allir auðsveipir þjónar hvita minni- hlutans og á launum hjá honum. Þeir eru þvi til allra hluta lik- legir annarra en að skerða völd hvita mannsins i Ródesiu. — Aths. Þjv.). Smith gaf þessa yfirlýsingu i sjónvarps- og útvarpsræðu sem hann hélt i dag. Þar svaraði hann einnig ræðu Kissingers i Lusaka. Sagði Smith að Kissinger hefði „fyrirfram- Á þessu korti má sjá feröaáætlun Kissingers um Afriku. ákveðnar” skoðanir um gang mála i Ródesiu og að nú hefði hann ákveðið að ganga til liðs við þá sem reyna að beita stjórnina i Salisbury sálfræði- legum þrýstingi. Þess vegna hefði hann ákveðið að koma ekki til Ródesiu og „dæma sjálf- ur um raunverulegt ástand mála áður en hann tekur ákvarðanir sem snerta okkur.” Smith setti fram þá kröfu að amk. einn fulltrúi stjórnar sinnar fengi að heimsækja Bandarikin til að skýra málstað sinn Italía: Ekkert getur nú afstýrt kosningum Róm 27/4 reuter - Flokkur sósialdemókrata rak i dag enda- hnútinn á 10 vikna feril minni- hlutastjórnar Aldo Moro með yfirlýsingu um að þingmenn hans muni ekki greiða atkvæði með stjórninni i atkvæðagreiðslu um tillögu um vantraust á stjórnina sem sennilega fer fram i vikulok. Þar með virðist fátt geta komið i veg fyrir þingrof og nýjar kosningar i júnimánuði nk. Sósialistar sem stutt hafa kristi- lega demókrata óbeint með hjásetu við atkvæðagreiðslur lýstu þvi yfir i gærkvöld að þeir muni greiða atkvæði gegn stjórninni héreftir. Umræður um vantraust- tillöguna hefjast á morgun, mið- vikudag. Ekki er vist að til at- kvæðagreiðslu um hana komi, kunnugir telja liklegra að Moro segi af sér áður en til þess kemur á þeim forsendum að grundvöllur stjórnarsamstarfsins sé brostinn. Flestir búast við þvi að Giovanni Leone forseti rjúfi þing fyrir eöa á 5. mai nk. og boði þing- kosningar sem gætu þá orðið 20. júni. Þá er allt útlit fyrir að kommúnistar bæti mjög við fylgi sitt, flestar skoðanakannanir sem birst hafa undanfarið benda til þess að kommúnistar nái þvi að verða stærsti flokkur landsins en i þvi sæti hafa kristilegir verið siðustu þrjá áratugina. En kosningabaráttan gæti reynst hörð og jafnvel blóðug þvi þegar er farið að bera á vaxandi - ofbeldisöldu i itölsku stjórnmála- lifi - sprengjutilræði, mannrán og skotárásir hafa verið nokkuð tiðar að undanförnu. Argentína: Höfuðsmaður skotinn Buenos Aires 27/4 reuter — Höfuðsmaður i iandher Argentinu var skotinn til bana af vinstri- sinnuðum skæruliðum að þvi er heimiidir með samhönd inn i öry ggissveitir landsins staðhæfðu i dag. Eftir atburðinn lýstu skæru- liðasamtök róttækra perónista, Montoneros.á sig sök á morðinu i simaviðtölum við fréttastofur i höfuðborginni. Blöðin skýrðu þó ekki frá atburðinum þarsem her- foringjastjórnin hefur lagt bann við fréttaflutningi af pólitiskum ofbeldisverkum. Eftir öðrum leiðum fréttist að tveir menn sem taldir eru vera róttækir skæruliðar hafi verið drepnir i bardaga við lögreglu rétt við þinghúsið i Buenos Aires. Lögreglan neitaði að staðfesta eða hafna þessari frétt. Lögreglan neitaði einnig að tjá sig um fréttir þess efnis að lik 10 ungmenna sem að öllum likindum urðu fórnarlömb hægrisinnaðra morðsveita hafi fundist og veríð flutt i h'khús herspitala i Buenos Aires um helgina. Ef þessar fréttir reynast sannar er fjöldi þeirra sem myrtirhafa verið i pólitisku skyni siðan herforingjastjórnin tók völdin i landinu 24. mars sl. kominn upp i amk. 170. Af sem áður var Það varð heldur brátt um Otelo Carvalho sem í haust var á góðri leið með að verða valdamesti maður í portúgölskum stjórnmálum en var sviptur öllum völdum og metorðum í hreinsunum sem fylgdu í kjölfar uppreisnartilraunarinnar í nóvember sl. Hér sést hann greiða atkvæði í kosning- unum sem fram fóru í landinu sl. sunnudag. Hefja olíuútflutning London 27/4 reuter — A morgun, miðvikudag, bætast bretar i hóp þeirra rikja sem flytja út oliu. Þá verður fyrsta farminum af hrá- oiiu dælt um borð i tankskip sem flytur það til Vilhelmshavcn sem er helsta oiiuhafnarborg vestur- þjóðverja við Norðursjó. Tony Benn orkumálaráðherra Bretlands skýrði frá þessu i breska þinginu i gærkvöld. Hann sagði að oliufélagið British Petroleum sem er að 70 hundraðshlutum i rikiseigu bygg- ist við að flytja út rúmlega 400 þúsund tonn af hráoliu á öðrum fjórðungi þessa árs. Þessi fyrsta olia sem bretar flytja út kemur úr oliulindum á svonefndu Forties svæði en þar hefur BP einkaieyfi á vinnslu. Benn sagði að þessi 400 þúsund tonn væru þriðjungur þeirrar oliu sem fæst á svæðinu, afgangurinn verður unninn i Bretlandi. Fyrsti farmurinn verður 60 þúsund tonn og fer til Vestur- þýskalands eins og áður segir. Næstu skammtar fara til Svi- þjóðar og siðan til annarra Evrópulanda þar sem BP starfar. Verðmæti útflutningsins næstu þrjá mánuði er áætlað 20 miljónir sterlingspunda. Tony Benn sagði að þessi útflutningur myndi hafa hagstæð áhrif á greiöslustöðu breta gagnvart útlöndum og stjórnin vonast til að þetta verði Kairó 27/4 reuter — Dagblaðið Al- akhbar i Kairó skýrir frá þvi i dag að kinverjar muni á næstunni sjá egyptum fyrir vopnum og vara- hlutum i hergögn án þess að krefjast greiðslu fyrir. • Þetta erisamræmi við samning sem stjórnir Kina og Egyptalands gerðu með sér i Peking i fyrri viku er Hosni Mubarak varafor- seti Egyptalands var þar á ferð. Blaðið sagði að kinverjar hefðu staðfest það að þeir óskuðu ekki eftir greiðslum fyrir hergögnin. til þess að glæða breskt atvinnulif nýju lifi. Ýmsir sérfræðingar vara þó við óþarfa bjartsýni og segja að búast megi við að at- vinnuleysi og verðbólga standi i stað enn um nokkurt skeið. — Kina gefur þeim vopn sem eru að berjast fyrir frelsi sinu eða liggja undir erlendri árás en við verslum ekki með vopn, hefur blaðið eftir Maó formanni. 1 siðasta mánuði létu kinverjar egypta fá vélar i 30 herþotur af MIG-gerð og mikið magn vara- hluta. Kom tilkynningin um þessa gjöf i kjöifar þeirrar ákvörðunar- egypta að rifta vináttu- og sam- vinnusáttmála sem þeir höfðu gert við Sovétrikin en hún var Framhald á bls. 14. Kinverjar gefa egyptum vopn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.