Þjóðviljinn - 28.04.1976, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 28.04.1976, Blaðsíða 13
IVliövikudagur 28. apríl 1976 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13 Útvarp í kvöld ’ Trygginga- bœtur í þœtti um * vinnumál Sjónvarp í kvöld útvarp 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og - forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Hreiðar Stefánssor endar lestur sögunnar „Snjallra snáða” eftir Jennu og Hreiðar Stefáns- son (8). 14.30 Miðdegissagan: „Þess bcra menn sár” eftir Guðrúnu Lárusdóttur. Olga Sigurðardóttir les (16). 15.00 Miðdegistónleikar.Julian Bream leikur á gitar Svitu i d-moll eftir Robert de Visée. Félagar 1 Rediviva hljóm- listarflokknum leika Sónötu fyrir flautu, óbó, selló og sembal eftir Godfrey Fing- er. Scherman Walt og Zimblerhljómsveitin leika F'agottkonsert nr. 8 i F-dúr eftir Antionio Vivaldi. Kammersveitin i Prag leik- ur Sinfóniu i Es-dúr op. 41( eftir Antonin Rejcha. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir.) 16.20 Popphorn. 16.40 Litli barnatíminn. Finn- bogi Scheving sér um tim- ann. 17.00 Lagið mitt. Arine-Marie- Markan sér um Jiska- lagaþátt fyrir börn yngri en tólf ára. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Vinnumál. Umsjónar- menn: Arnmundur Back- man og Gunnar Eydal, lög- fræðingar. 20.00 Kvöidvakaa. Einsöngur. Sigriður E. Magnúsdóttir syngur lög eftir Mariu Brynjólfsdóttur, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Markús Kristjánsson og Þórarin Guðmundsson. ólafur Vign- ir Albertsson leikur á pianó. b. isienskar þjóðsagnir, skráðar I Vesturheimi. Halldór Pétursson flytur. c. Kvæði eftir Valdimar Lárusson. Höfundur flytur. d. Kýrábyrgðarfélag Keld- hverfinga. Þórarinn Haraldsson i Laufási segir frá einu elsta tryggingarfé- lagi landsins. e. Að kvöldi Hugleiðingar eftir Þorbjörn Björnsson á Geitaskarði. Baldur Pálmason les. f. Alþýðuvisur um ástina. Söngflokkur syngur laga- flokk eftir Gunnar Reyni Sveinsson, sem stjórnar flutningi. 21.30 Útvarpssagan: „Siðasta freistingin” eftir Nikos, Kazantzakis. Sigurður A. Magnússon les þýðingu Kristins BjörnsMmar (21). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Sá svarti senuþjófur”, ævisaga Ilaralds Björns- sonar.Höfundurinn, Njörður P. Njarðvik.les (4). 22.40 Nútiinatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. ^sjönvarp 18.00 Kjörninn Jógi.Bandarisk teiknimyndasyrpa. Þýðandi Jón Skaptason. 18.25 Kobinson-fjölskyid- an. Breskur myndaflokkur byggður á sögu eftir Johann Wyss. 12. þáttur. ógnir Suðureyjar. Þýðandi Jó- harina Jóhannsdóttir. 18.45 Gluggar. Breskur fræðslumyndaflokkur. Þýð- andi og þulur Jón O. Éd- wald. Illé. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Vaka.Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Umsjónarmaður Magdalena Schram. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.20 Bilaleigan. Þýskur myndaflokkur. Þýðandi Briet Héfcinsdóttir. 21.45 Huliðsheimur Maya. Bresk heimildamynd um menningu Maya-indiána. uppruna hennar og endalok á 11. öld. Eric Thompson, sem helgað hefur lif sitt rannsóknum á þessari fornu menningarþjóð. skoðar rústir gamalla borga i Guatemala og i fylgd með honum er Magnús Magnús- son. Þýðandi Þórhallur Guttormsson. Þulur Ellert Sigurbjörnsson. 22.45 í kjallaranum. Björn R. Einarsson. Gunnar Orm- slev. Guðmundur Stein- grimsson. Arni Scheving og Karl Möller flytja nokkur jasslög. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. ' 23.15 Dagskrárlok. Huliðsheimur Mayja 1 kvöld kl. 21.45 er á dagskrá sjónvarpsins bresk heimilda- mynd um Mayja-indiánana i Mið-Ameriku og menningu þeirra sem hnignaði mjög á 11. öld. Astekar hirtu það sem eftir stóð, og hefur verið eignað mun meira en rétt er, þar sem margt af þvi, sem Evrópumenn töldu þá hafa gert, var frá Mayjum komið. Það er Magnús Magnús- son sjónvarpsmaður i Edinborg, sem fylgist meö þekktum fræði- manni um rústir gamalla borga Mayjanna i Guatemala. Heitir sá Eric Thompson og hefur helgað lif sitt rannsóknum á hinni fornu menningarþjóð. Mynd þessi er án efa mjög áhugaverð og ættu menn ekki að missa af henni. Vinnumál eru á dagskrá út- varpsins að loknum fréttum i kvöld, en um þáttinn sjá þeir Arnmundur Bachmann og Gunnar Eydal. 1 gær var ekki búið að taka upp þáttinn, en Gunnar sagði að i honum yrðu tryggingamálin tekin fyrir, einkum þeir liðir sem stæðu i beinum tengslum við atvinnu eins og sjúkra-og slysabætur. Þó yrði einnig fjallað nokkuð um aðrar tryggingar sem Tryggingastofnun rikisins ann- ast. Þá verður spjallað um tengsl verkalýðsforystunnar við al- menna félagsmenn, en oftlega heyrast þær raddir að þau séu harla litil. Munu stjórnendur m.a. taka til umræðu aukna út- gáfustarfsemi ASI og BSRB, sem sé stórt skref i rétta átt til aukinnar upplýsingamiðlunar. Loks verður svo talað um sjó- mannadeiluna og hvernig hún standi, en hljótt hefur verið á þeim vettvangi að undanförnu, en viða ósamið. Ekki var ljóst hver kæmi til viðtals af hendi sjómanna. m Arnmundur Bacbmann Magdalena Schram m ■ jpjj s Gunnar Eydal Grœnlandsvikan í Vöku Börn I Jakobshöfn á Grænlandi á hafnarbakkanum þar. Myndin er sett hér til að vekja athygli á Vöku sjónvarpsins i kvöld þar sem fjaiiað verður um Grænlandsvikuna. Að loknum fréttum i sjónvarpi i kvöld er Vaka á dagskrá. Um- sjón með þættinum hefur Magdalena Schram og mun hún fyrst fara i heimsókn til Bjargar Þorsteinsdóttur á vinnustofu hennar, en Björg sýnir nú i sal Byggingaþjónustu arkitekta að Grensásvegi 11. Eru myndir hennar gerðar með grafiskri að- ferð, ætingu og aquatintu, og mun Björg skýra fyrir áhorf- endum i hverju þær eru fólgnar. Mestur hluti Vöku verður þó helgaður Grænlandsvikunni sem nú stendur i Norræna hús- inu. Verður sýningin skoðuð vitt og breitt og auk þess talað við tvo listamenn, þau Hans Lynge, sem er elstur þeirra er sýna, og unga konu Aka Höegh. Sýningin er á ljósmyndum, listmunum ýmsum málverkum og fornum gripum, auk sýningar á bókum og timaritum i bókasafni húss- ins. Þá eru kvikmyndasýningar á hverjum degi og verður sýnd- ur kafli úr einni þeirra, Palos ‘Brudefærd, 1 sem Knud Rais- mussen gerði fyrir meira en 40 árum og þykir mjög góð. Að iok- um ræðir svo Magdalena við Maj-Britt Imnander forstöðu- mann Norræna hússins, sem senn lætur af þvi starfi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.