Þjóðviljinn - 15.05.1976, Síða 10

Þjóðviljinn - 15.05.1976, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. mal 1976 ÚTBOÐ Tilboð óskast I smlði á 400 galvanlseruðum girðingarstóip- um fyrir Fræðsluskrifstofu Reykjavlkurborgar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 25. mal 1976, ki. 14.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN R£YKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvcgi 3 —j Sími 25800 nm ||| UTBOÐ Tilboð óskast I lögn Skammadaisæðar fyrir Hitaveitu Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, gegn 10.000.- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstudaginn 28. mal 1976, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍ TALINN: AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir að- stoðarlæknar óskast til starfa á spi- talanum. Annar frá 15. júni n.k. og hinn frá 1. júli n.k. Ætlast er til að þeir starfi við spitalann i 6-12 mánuði. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að senda Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 10. júni n.k. VÍFILSSTAÐASPÍTALINN. HJtJKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast til starfa á spitalann nú þeg- ar eða eftir samkomulagi. Upplýs- ingar veitir forstöðukonan, simi 42800. HJtJKRUNARFRÆÐINGAR óskast til afleysinga og i fast starf. Vinna hluta úr fullu starfi, svo og einstaka vaktir kemur til greina. Upplýsing- ar veitir forstöðukonan, simi 42800. LANDSPÍTALINN. HJtJKRUNARDEILDARSTJÓR- AR. Tveir hjúkrunardeildarstjórar óskast til starfa á handlækningar- deild spitalans (deild 4-B og 4-C) nú þegar eða eftir samkomulagi. Upp- lýsingar veitir forstöðukonan, simi 24160. HtJKRUNARFRÆÐINGAR óskast til afleysinga og i fast starf. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina svo og einstakar vaktir. Upplýsing- ar veitir forstöðukonan, simi 24160. Reykjavik, 14. mai, 1976. SKRIFSTOFA RlKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 Guy Binsfcld (t.h.) ásamt Hilmari Foss formanni tsiandsdeiidar Amnesty Internationai. Á milli þeirra er merkið sem gert var I tiiefni ,,Árs hins póiitlska fanga ”. Amnesty International efnir til herferðar til kynningar á starfsemi sinni, og stendur hún yfir allt næsta ár Ár pólitískra fanga Síðastliðinn fimmtudag var hér á ferð maður ætt- aður frá Lúxembúrg, Guy Binsfeld að nafni, og var hann í erindagjörðum fyrir Amnesty Inter- national. Héðan hélt hann vestur um haf en ferð hans er liður i undirbún- ingi alþjóðlegrar herferð- ar sem Amnesty hyggst fara á næsta ári í því skyni að útbreiða upplýs- ingar um starfsemi sam- takanna og ástandið í málefnum pólitískra fanga. Amnesty International verður 15ára 28. mai nk. Sagði Binsfeld að mönnum heföi þótt orðið timabært að gera nú öflugt al- þjóðlegt átak til að gera heimin- um ljós þau brot á mannrétt- indayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem eiga sér stað víösvegarum heim. Verður árið 1977 helgað málefnum „sam- viskufanga” eða hvernig sem þýða ber enska heitið „prisoner of conscience”. Markmiöið er að sýna mönn- um að til er alþjóðleg hreyfing sem berst fyrir rétti þessara manna og vitaskuld að afla starfseminni stuðnings, hvort sem er i formi þátttöku i starfi eöa með fjárframlögum. Til þess að koma sem mestum upplýsingum á framfæri verða farnar ýmsar leiðir. Aðgerðirn- ar hefjast 10. desember á þessu ári en sá dagur er mannrétt- indadagur Sþ og þvi lýkur sama dag árið 1977. Verður leitað eftir samstarfi við alþjóðastofnanir, svo sem kirkjuna og verkalýðs- hreyfinguna, en starfið mun þó hvila mest á deildum einstakra landa. Þær munu nota allar leiðir til að dreifa upplýsingum, fjöl- miðla, skóla, kirkjur, verka- lýöshreyfingu og ýmsar fleiri stofnanir. Efnt verður til sam- keppni meðal listamanna og nemenda i listum um gerð plakata o.þ.h., ritgerðarsam- keppni fer fram og i blaða- mannaskólum verður efnt til samkeppni I greinaskrifum um markmið og starfsemi Am- nesty. Reynt verður að fá áhrifa- menn einstakra landa til liðs við herferðina og einnig listamenn. Til dæmis hefur bandarlski hljómsveitarstjórinn Leonard Bernstein fallist á að stjórna hljómleikum i Múnchen sem verða hljóðritaðir og gefnir út á plötu. Verður hún seld um allan heim i ágóðaskyni fyrir Am- nesty en á umslagi hennar verða ýtarlegar upplýsingar um samtökin. Þegar hafa margir listamenn gert plaköt I tilefni herferðar- innar og verða þau sýnd um all- an heim um eða upp úr 10. des- ember nk., m.a. hér á landi. Einnig hefur verið rætt um að ef einhvers staðar kemur upp t.d. góður konsert eða annað list- rænt efni i einhverju ákveðnu landi þá væri hægt að fara með það um heiminn. Þetta er fyrsta alþjóðlega herferðin af þessu tagi sem Am- nesty hefur beitt sér fyrir en áð- ur hafa verið farnar herferðir gegn pyntingum og gegn ógnar- stjórninni i Uruguay. Henni lýk- ur eins og áður segir 10. desem- ber 1977 og nær þá hámarki i samstöðuaðgerðum og yfirlýs- ingum um allan heim. Binsfeld vinnur nú að þvi að hvetja ein- stakar deildir til dáða og sam- ræma aðgerðir þeirra en þvi verki á að ljúka i september. Binsfeld sagði að i upphafi hefðu menn rætt um að nefna árið ,,ár skoðanafrelsis”, en „viö erum ekki komin nógu langt til þess, vonandi gefst tækifæri til þess seinna.” t Amnesty International eru nú rúmlega 70 þúsund félagar i u.þ.b. 60 löndum en formlegar deildir eru starfandi i 34 lönd- um. Hér á landi er starfandi deild og er formaður hennar nú Hilmar Foss stórkaupmaður. —ÞH Aðalfundur Verkamannafélagsins Hlifar: Skorað á ríkisstjórnina að r segja Island úr NATO Aöalfundur Verkamanna- féiagsins Hlifar var haldinn miðvikudaginn 12. maf s.L. A árinu gengu I félagið 75 nýir félagar og eru nú i félaginu 787 félagar. Formaður: Hermann Guð- mundsson, og var hann kjörinn i 35. sinn i formannssæti. Varaform: Guðni Kristjánsson. Ritari: Hallgrímur Pétursson. Gjaldkeri: Hermann Valsteins- son. Vararitari: Halldór Helgason. Fjármálar: Sigurður T. Sigurðsson. Meöstjórnandi: Gunnar S. Guðmundsson. Varastjórn er þannig skipuð: Guömundur Skúli Kristjánsson. Guðbergur Þorsteinsson og Finn- bogi Finnbogason. Meðal annars voru eftirfarandi tillögur samþykktar: Aðalfundur V.m.f. Hlifar haldinn 12. maí 1976telur að hinar gengdarlausu veröhækkanir sem orðið hafa frá þvl og fyrir undir- ritun kjarasamninga 27. febr. s.l., hafi eyðilagt grundvöll þann sem samningarnir byggðust á, og svo sé nú komið að fyrir aðgeröir stjórnvalda, standi verkalýöurinn ver aö vigi, en áður en samningar voru gerðir. Telur fundurinn þvi óhjá- kvæmilegt að verkalýðshreyfing- in búist til sóknar til að bæta hlut sinn. Aðalfundur V.m.f. Hlífar 12. maí 1976, telur aö eigi verði lengur unaö við aðgerðarleysi Atlantshafsbandalagsins I land- helgisdeilu islendinga og breta, þar sem ein bandalagsþjóðin, bretar, sýni annarri bandalags- þjóö, Islendingum, skefjalaust of- beldi, sem líkja má við innrás I landiö. Skorar fundurinn á rlkisstjórn- ina að segja tsland nú þegar úr Atlantsha fsbandalaginu og utanrlksirráðherra aö sýna andúð okkar islendinga I verki nú þegar með þvi að mæta ekki á fund Nato er haldinn verður I Oslo. Aðalfundur V.m.f. Hlífar 12. mal 1976, samþykkir að fela stjórn Hlifar að aðstoöa félags- menn við innheimtu á öllu ógreiddu orlofsfé, ef félagar Hlifar óska þess. Skulu birtar auglýs- ingar I blöðum þess efnis.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.