Þjóðviljinn - 30.05.1976, Page 3

Þjóðviljinn - 30.05.1976, Page 3
Sunnudagur 30. mai 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 VIÐTAL VIÐ BÖÐVAR GUÐMUNDS- SON UM ALÞÝÐU- LEIKHÚSIÐ Frá vinstri: Arnar Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ragnhildur Benediktsdóttir, Maria Arnadóttir, Krisu'n ólaisdóttir, Þráinn Ka -nti. Og farskjótinn á bak viö. Sumar hugmyndir eru merkilegri en aðrar Leikhúsáhugi islendinga hefur löngum veriö mikill, og ýmislegt bendir til þess að hann hafi enn farið vaxandi nú á siðustu miss- erum. Hér i Reykjavik hafa tvö atvinnuleikhús starfað af miklu fjöri um langan aldur og nú sið- ustu árin hefur þriðja atvinnu- leikhúsið starfað á Akureyri, auk- þess sem áhugaleikhúsi um allt land hefur mjög vaxið fiskur um hrygg, bæði i auknu starfi og list- rænum þroska. Á þessum vetri bættist fjórða atvinnuleihúsið i hópinn, Alþýðuleikhúsið, sem hefur aðalstöbvar sinar á Akur- eyri en hefur annars þá sérstöðu að hafa engan fastan sýningar- stað, heldur er hér um að ræða ferðaleikhús sem hyggst halda sýningar I skólum og félags- heimilum um gervallt landið. I tilefni þess að leikhúsið hefur nú hafið sýningar tókum við tali for- mann þess, Böðvar Guðmunds- son, en Böðvar hefur það aðal- tJr Krummagulli starf að kenna islensku við Menntaskólann á Akureyri. Á ferö og flugi — Hvernig hefur störfum Al-' þýðuleikhússins verið háttað fram að þessu? — Frá septemberlokum 1975 og fram að áramótum var starfiö ein göngu fólgið i undirbúningi. Það þurfti að afla fjár svo hægt væri að greiða fastráðnum starfs- mönnum kaup yfir æfingatimann og skipuleggja starfið á allan hátt. Okkur tókst að skrapa saman fjármagn með framlögum velviljaðra einstaklinga til að kljúfa tveggja mánaða æfinga- tima, þannig að hægt var að ráða starfsfólk um miðjan janúar. Þegar kom fram i mars var sýnt að um miðjan þann mánuð yrði hægt að hafa tilbúna sýningu og þá hófst nýr þáttur i starfinu að skipuleggja leikför. Það starf er fyrstog fremst fólgið i þvi að sitja við sima og hringja i húsverði félagsheimila og samkomuhúsa, svo og skólastjóra. — Hvar og hvenær var svo frumsýnt? — Það var frumsýnt á Nes- kaupstað þann 24. mars. Siðan var haldið niður Austfirði og til baka um Noröurland og sýnt i skólum og félagsheimilum fram að páskum. Eftir páska var sýnt á þeim stöðum norðaustanlands sem ekki hafði verið sýnt á, og siðan haldið til Akraness, til Borgarfjarðar, um Suðurland og upp Austfirði og komið aftur til Akureyrar, þannig að nú eru sýn- ingar orðnar alls 35. — Hver ætli sé heildartala áhorfenda á þessum sýningum? — Þeir munu vera nálægt fjórum þúsundum. Best var að- sókn á Austur— og Norðurlandi, og nú er eftir að vita hvernig gengur á Norðvesturlandi, Vest- fjörðum og Snæfellsnesi, en um þessi svæði verður flokkurinn á sýningaferð fram að hvitasunnu. — Nú er tæplega til sú leiksýn- ing i landinu að hún sé ekki að meira eða minna leyti greidd af opinberu fé. Alþýðuleikhúsið hefur hingað til ekki notið slikrar aðstoðar. Telur þú hugsanlegt að reka leikhúsið áfram án hennar? — Ég tel það ekki alveg úti- lokað, en hvers konar opinber að- stoð yrði að sjálfsögðu mjög vel þegin. Vafalaust eru margir þeir Framhald á bls. 18. Ein umferð af þessari frábæru utanhúss- málningu frá Málningu h/f jafngildir 3 til 4 umferðum af venjulegri plastmálningu. Hraun hefur ótrúlega góða viðloðun við flest byggingarefni og frábært veðrunarþol. Hraun fæst með tvennskonar áferð, — fínni eða grófri. HRAUN SENDIN PLASTMÁLNING málninghlf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.