Þjóðviljinn - 30.05.1976, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 30.05.1976, Qupperneq 5
Sunnudagur 30. maí 1976. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 Kosningar á Ítalíu: 51% duga ekki Það er engu likara en fjórða hver fréttaskýringargrein sem skrifuð er um þessar mundir fjalli um væntanlegar kosningar á ttaliu þann 20sta júni. Annar fjórðungur þessara greina er svo um bandarisk forsetaefni. t borgar- og héraðsstjórnakosn- ingum á Italiu i fyrra fékk kommúnistaflokkurinn 33% atkvæða, sósialistaflokkurinn PSI 12% og tveir litlir flokkar yst til vinstri, PdUP (Einingarflokkur öreiga) og AO (Framvarðarsveit verkamanna) samtals 2%. Þetta umbótastarf marxista. En nú hef- ur hún brýnt brandinn á nýjan leik. Antonio Poma kardináli hef- ur varað italska kaþólika við þvi, að þeir muni sjálfkrafa settir út af sakramentinu ef að þeir kjósi kommúnista. En Poma þessi var i forsæti á fundi italskra biskupa á dögunum. Hitt er svo liklegra að kirkjan sé mjög tvistigandi og klofin i 'bannfæringarmálum þessum. Það er ekki þægilegt fyrir hana að negla sig enn upp við kristilega demókrata, sem sannir eru að firnalegum ódugnað og spillingu, en fordæma kommúnista, sem allir vita af reynslu að stjórna borgum og héruðum betur og heiðarlegar en öllum öðrum flokkum tekst. (Og, n.b. ekki hef- ur frést að kirkjan hafi sent nein reiðiskeyti til nýfasista italskra). Eitt dæmi nýlegt má taka um vissan geðklofa i kirkjunni. Um leið og Poma flytur reiðilestur sinn heima fyrir snýr Luigi Poggi biskup heim frá Póllandi þar sem hann átti „opnar og innilegar” viðræður við kommúniska ráða- Berlinguer i forsetahöllinni: eina vonin um breytingar. Spinelli: formaður iðnaðarmálanefndar EBE býður 'sig fram fyrii kommúnista. Hin sögulega málamiölun og andstæðingar hennar erualls47%.lkosningunum i júni er búist við að allir þessir flokkar bæti við sig og gæti svo farið að vinstriarmurinn (án sósialdemó- krata sem eru hér ekki talir með) fengi rúman meirihluta atkvæða. En eins og menn vita, þá telja kommúnistar, að ekki sé unnt að stjórna landinu með svo litlum meirihluta. Þeir óttast, að þá færu á kreik óprúttin öfl yst til hægri, sem reyna myndu valda- rán (sporin frá Grikklandi og Chile hræða). Auk þess sem hæg- ur vandi væri fyrir stórauðvaldið að heyja efnahagslega styrjöld gegn slikri stjórn með meirihátt- ar fjárflótta. Það er af þessum ástæöum að Berlinguer formaður kommúnista heldur fast við hug- myndina um hina sögulegu mála- miðlun, sem felur i sér sam- ábyrgð kommúnista og kristi- legra demókrata á stjórn lands- ins. Frægir menn Þessi hugmynd nýtur verulegs fylgis á ttaliu. Það kemur meðal annars fram i þvi, að ýmsar þekktar persónur fara nú á lista hjá kommúnistum. Meðal þeirra eru Nino Pasti, áður hershöfðingi i flughernum og Raniero la Valle, áður aðalritstjóri II Popolo, sem er málgagn kristilegra demó- krata. Þekktastur þessara manna er Altiero Spinelli, sem hefur ver- iðeinhver atkvæðamestur fulltrúi Italiu hjá Efnahagsbandalaginu og nú um fjögurra ára skeið for- maður tækni- og iðnaðarnefndar EBE. Spinelli var ungur kommúnisti og sat lengi i fangelsi hjá Mussolini. En hann sagði skil- ið við flokkinn vegna andúðar á réttarhöldunum i Moskvu 1937. Hann hefur eftir strið haft sam- starf bæði við kristilega og sósialista en staðið við fyrirheit sin frá 1937 um að hann mundi ekki ganga i pólitiskan flokk aft- ur. Spinelli segir i viðtali vð Spiegel á dögunum að hann beri fuilt traust til kommúnista og telji að það ætti ekki að valda neinum vanda i „öryggismálum” þótt þeir sætu i stjórn. Enda myndu þeir aldrei gera tilkall til að fara með hermál eða innanrikismál. Hann telur að stuðningur þeirra við Efnahagsbandalagið sé eðli- leg afleiðing af þvi að þeir vilja að menn um sambúð rikis og kirkju þar. Og allir vita reyndar að ein- mitt italskir kommúnistar hafa á margan hátt lagt sig fram um að ekki væri þjarmað að kaþólikum i Póllandi. Yst til vinstri Frá Páfagarði mætti taka stórt pólitiskt stökk og finna andstæð- inga hinnar sögulegu málamiðl- unar til vinstri við kommúnista- flokkinn. Yst til vinstri eru til f jölmargir hópar, en flestir þeirra eru smáir. PdUP (Einingar- flokkur öreiga), sem er byggður upp af þeim kommúnistum og vinstrisósialistum sem stóðu að Manifesto og svo AO (Avanguardia Operaia, Fram- varðarsveit verkalýðsins) eru hinsvegar allfjölmenn samtök. Þau buðu fram saman i borgar- og héraðsstj.kosningunum og náðu á sumum stöðum sæmileg- um árangri (um 2% á landsmæli- kvaröa). Þriðju samtökin sem nokkuð kveður að er Lutta Continua (Baráttan heldur áfram), það eru vigreifir vinstri- sinnar, sem hafa miklar mætur á „beinum athöfnum” — til dæmis að aðstoöa húsnæðisleysingja við að setjast að i auðum lúxusibúð- um. LC er mjög gagnrýnin á ko m m ún is ta f lokk i n n , en mælti samt með þvi að menn greiddu honum atkvæði i fyrra. Nú hefur LC hinsvegar eftir langa mæðu og flókna samninga gengið inn i samfylkingu með PdUP og AO og bjóða þessir aðilar þrir saman undir heitinu Democrazia Proletaria, Oreigalýðræði. Þessi samtök öll keppa að þvi að hindra það að hin sögulega málamiðlun nái fram að ganga og reyna að þrýsta á um að mynduð verði verkamannastjórn sem byggi á meirihluta verklýðsflokk- anna, jafnvel þótt naumur yrði. PdUP segir sem svo, að það sé ekki hægt að koma á sósialisma á ttaliu með þvi að eyðileggja kommúnistaflokkinn heldur hljóti hann að verða það afl sem úrslit- um ræður um þá þróun. Þetta þýðir, að reyna verði að þrýsta fíokknum til að taka þátt i mjög róttækum breytingum á sam- félaginu og á sjálfum sér. Þetta geti ekki skeð með vélrænni skiptingu vinstrisinna i byltingar- nauðsynlega vegna þess að þeir séu eina aflið sem getur andæft hinni djúptæku pólitisku spillingu i landinu og komið þvi á réttan kjöl. Kristnir og Kissinger Þá hefur allmikið aðstreymi verið að samtökum kaþólskra vinstrisinna sem lita sósialiskar kenningar hýru auga: hér er átt við félagið „Kristnir menn með sósialisma”, svonefnda „undir- stöðusöfnuði” og svo verka- mannapresta sem standa mjög nálægt kommúnistum og sósialistum. Sjálfir hafa sósialist- ar (PSI) tekið hugmyndinni um sögulega málamiðlun með nokkr- um fyrirvara vegna þess, að þeir hafa óttast að með henni myndu þeir sjálfir kafna milli hinna stóru flokka tveggja, kristilegra og kommúnista. En hitt skiptir þó meira máli, að sósialistar taka virkan þátt i þvi að stjórna með kommúnistum mörgum stærstu borgum ttaliu nú þegar og þeir standa saman i verklýðshreyfing- unni. Ekki vantar að ramakvein séu höfð uppi bæði heima fyrir og erlendis um hættur þær sem fylgt gætu kosningasigri kommúnista nú. Henry Kissinger heldur varla ræðu án þess að brýna raustina um að Bandarikin mundu lita stjórnaraðild kommúnista hinum alvarlegustu augum, en margir telja raunar, að bandariski utan- rikisráðherrann hafi sungið þetta stef af sliku offorsi að það muni hafa þveröfug áhrif miðað við það sem til var ætlast. Muni italir enn fúsari en ella að kjósa kommúnista til að láta i ljósi and- úð sina á hótunum um afskipti af innanlandsmálum þeirra. Geðklofi í kirkjunni Útifundur I Róm. ttalia sé sem minnst háð Banda- rikjunum og að þeir sjálfir séu sem óháðastir Sovétrikjunum. En fyrst og siðast telur hann hina sögulegu málamiðlun, stjórnar- aðild kommúnista, blátt áfram Kaþólska kirkjan á ítaliu er mikill kapituli i þessari sögu. Hún hafði — ekki sist á dögum Jóhannesar páfa 23ja, reynt að losa nokkuð um tengsli sin við flokk Kristilegra demókrata og gat þá stundum haft ýmislegt jákvætt að segja um félagslegt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.