Þjóðviljinn - 30.05.1976, Side 19
Sunnudagur 30. mai 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
Ctgefendur Appollós: Þorri Hringsson 9 ára, Arni Alfreösson 10 ára, Steingrimur Sigurgeirsson 10 ára
og Gunnur Sif Sigurgeirsdóttir 8 ára. Myndina tók ljósmyndari Þjóöviljans i enskustofu Austurbæjar-
skólans.
ALLT HREYFIST
Nokkrir krakkar í
Austurbæjarskólanum
hafa tekið sig til og hafið
útgáfu blaðs sem þau
kalla Appolló. Blaðið er
einstaklega menningar-
legt og frágangur allur
framúrskarandi vandað-
ur. Það er sex síður og
f lytur f jölbreyttefni bæði
frumsamið og þýtt.
Krakkarnir heita Árni
Alfreðsson, 10 ára, Stein-
grímur Sigurgeirsson, 10
ára, Þorri Hringsson, 9
ára, og Gunnur Sif Sigur-
geirsdóttir, 8 ára. Strák-
arnir eru í sama bekk,
4.H.G., en Gunnur Sif er
systir Steingríms og var
þess vegna tekin í hópinn.
Kompan hitti þessa
hressu krakka nokkrum
dögum eftir að fyrsta
blaðið kom út.
Kompan: Hver fann
upp á því að gef a út blað?
Steingrímur: Það byrj-
aði með því að strákar
ímínum bekk gáfu út
blað, sem hét Máninn, ég
var með í því.
Kompan: Nú — var það
blað kannski eins
skemmtilegt og þetta?
Oll: Ne e—ei. Manni
finnst alltaf sitt það
besta.
Kompan: Hvernig at-
vikaðist það, að þið fóruð
að vinna saman?
Arni: Við fórum að tala
um að gera blað og svo
urðum við vinir á meðan
við unnum að blaðinu.
Þorri Hinir strákarnir í
bekknum voru alltaf að
hrekkja okkur og ráðast á
okkur, af því að við tók-
um okkur út úr og vorum
að tala um blaðið og
hrinda því í framkvæmd.
Það þjappaði okkur
saman.
Steingrfmur skrifar framhalds-
söguna Vélmaöurinn, en Þorri
myndskreytir hana. Þetta er
spennandi visindahrollvekja.
Arni: Mig var lengi
búið að langa til að vinna
að blaði. Þegar ég var á
Bretlandi voru krakkarn-
ir í mínum bekk öll að
hugsa um svona blað, en
það var ekki búið að
vinna það, þegar ég fór
heim í sumar.
Kompan: Varst þú
lengi á Bretlandi?
Arni: Ég var núna í tvö
ár og þar fyrir utan hef
ég fariðþangaðoft. Ég er
fæddur i Belf ast á Norður
— Irlandi, en ég fór þaðan
svo ungur að ég man
ekkert eftir mér þar, en
ég hef mikinn áhugaá
fréttum þaðan. Mér
finnst að breski herinn
eigi að fara þaðan.
011: Og hann ætti líka
að hypja sig af miðunum
okkar — fara strax út
fyrir 200 mílnatakmörk-
in.
Kompan: (Við Stein-
grím) Þú hefur stundum
skrifað í Kompuna. Er
það það fyrsta sem þú
kemur í blöðunum?
Steingrímur: Ég var
fyrst i Visir spyr.
Kompan: Hvað spurði
Vísir þig um?
Steingrímur: Það var
eitthvað rosaiega fúllt!
,,Langar þig í sveit þegar
veðrið er gott."
Kompan: Gunnur, þú
hef ur lika verið dugleg að
skrifa okkur og senda
myndir, en hvað skrifar
þú i blaðið?
Sunnur: Ég samdi tvær
skrítlur.
Kompan: Þið systkinin
eruð að fara til Svíþjóðar
í haust, ætlíð þið ekki að
skrifa okkur fréttir frá
Uppsala?
Gunnur: Jú, jú.
Kompan: (Við Þorra)
Þú teiknar í blaðið.
Þorri: Já, forsíðuna og
myndí framhaldssöguna.
Kompan: En nafnið —
hvernig datt ykkur það í
hug?
Steingrimur: Það var
eiginlega pabbi sem
stakk upp á því að við
kölluðum blaðið Appolló.
Þorri: Appolió var
grískur guð — sólarguð.
Og hann er tengdur geim-
fræðum. Geimferðaáætl-
un Bandarikjamanna, um
að senda mannað geim-
far til tunglsins, er kölluð
Appolló 1. og 2. eða eitt-
hvað svoleiðis.
Myndina af Appolló
fann ég í bók um gallisk-
an dreng, Alex heitir
hann og var uppi á dögum
Júlíusar Sesars. Á mynd-
inni stendur Appolló á
sólinni. Ég bætti stjörn-
um og geimfari inn á
myndina. Utan á næsta
blaði verður afstaða
himintunglanna önnur —
allt hreyfist — og líka
höndin á Appolló. Þá
verður komið geimfar
fráMars og hefur lent á
sólinni við fætur Appollós
og fljúgandi diskur frá
öðru sólkerfi svífur yfir
hendi hans.
Kompan: Þig hafið
brennandi áhuga á
stjörnuf ræði. Hvernig
gengur ykkur að ná í
bækur?
Arni: Ég á margar
st jörnuf ræðibækur á
ensku.
Steingrimur: Pabbi á
nc kkrar bækur á ensku og
dönsku, svo fékk ég tvær
lánaðar í bókabílnum.
Þær eru á íslensku.
Kompan: En skólinn,
hvað gerir hann með
stjörnuf ræðiáhuga
ykkar?
öll: Ekkert! Það er
ekki kennd stjörnufræði.
Steingrimur: Það ætti
að kenna hana og ekki
sem aukafag, heldur
svona þrjá tima á viku.
Hún gæti verið partur af
stærðfræði og eðlis-
fræðinni. Og það ætti að
fá vinnubók og sérstakan
kennara i faginu. Það
ætti helst að halda nám-
skeið fyrir kennara í
sumar svo hægt væri að
byrja strax í haust. Sjón-
varpið gæti líka hjálpað
til og sýnt góðar kennslu-
myndir, það koma stöku
sinnum myndir um geim-
inn í Nýjasta tækni og vís-
indi, en alltof sjaldan.
Arni: Og líka geim-
hryl lingsmyndir og
vísindaskáldskap eins og
t.d. Innrasin f rá Mars eða
myndir eftir bókum Jule
Verne Förin til tunglsins
og fl. Ekki framhalds-
myndir. Það er óþolandi
að búta niður allt efni
handa börnum.
Steingrimur: Ég missti
t.d. af tveimur þáttum af
Gulleyjunni eins og það
var góð mynd.
Allir: Svo á ekki að
banna myndaflokka sem
eru fræðandi fyrir börn.
Arni: Það átti ekki að
banna myndirnar um
þrælahaldið og nú heim-
styrjöldina síðari.
Þeim hitnar öllum í
hamsi þegar þau fara að
tala um allt sem þau
langar til að sjá — Stein-
grímur stynur þungt og
segir: — meira að segja
stjörnurnar sjást ekki
núna: þegar við höfum
svona mikinn áhuga á
þeim er bjart allan
sólarhringinn.
Arni: í vetur koma
frostnætur fullar af
stjörnum.
Forsiöa Appollós er teinuö af Þorra.
Skrítla eftir Gunni Sif
— Mamma af hverju eru
hestarnir með fax?
— Jú, annars væru þeir
sköllóttir.