Þjóðviljinn - 05.06.1976, Side 9
Laugardagur 5. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Gunna viö Gunnuhver (1916).
Sumarsýning
Asgrímssafns
Mánudaginn 7. júni, 2. dag
hvitasunnu, verður hin árlega
sumarsýning Asgrimssafns
opnuð, og er hún 43. sýning
safnsins siðan það var opnað
almenningi árið 1960.
Sýning þessi er yfirlits-sýning,
nær hún yfir 60 ára timabil. Eru
þá m.a. haföir i huga erlendir
gestir sem safnið skoða á
sumrin. Skýringartexti á ensku
fylgir hverri mynd.Nokkrar af
myndum safnsins eru nú sýndar
i fyrsta sinn i húsi Ásgrims
Jónssonar, vatnslitamyndir og
nokkrar teikningar i heimili
hans, oliumyndir i vinnu-
. stofunni.
Asgrimssafn hefur látið
prenta kynningarrit á ensku,
dönsku og þýsku um
Ásgrim Jónsson og safn hans.
Einnig kort i litum af nokkrum
landslagsmyndum i eigu safns-
ins, ásamt þjóðsagnateikning-
um.
Asgrimssafn, Bergstaða-
stræti 74, verður opið alla daga i
júni, júlí og ágúst, nema laugar-
daga, frá kl. 1,30—4. Aögangur
ókeypis.
Skákmót í
Bætum
DSTÖÐU Barna
með hentugum og fjölbreyttum leiktækjum.
FORM hefur hafið
innflutning margra tegunda, sem bjóða upp á mikla að-
lögun hvað varðar stað og fyrirkomulag. Leita má samráðs
við FORM um hvað best er talið henta, hvort sem um ræðir
leikvelli, dagheimili, gæsluheimili stofnana eða lóðir fjöl-
býlishúsa. Vegna þess hveléttarog meðfærilegar sumar
gerðir eru, er einnig hægt að
mæla með þeim til notkunar
við sumarbústaði. Tækin eru
hönnuð með tilliti til þols, hag-
kvæmni og margbreytni og
fjölbreytni í litum er mikil.
Gjörið svo vel að hringja eða
skrifa til okkar og við höfum
við höndina kynningarbæklinga
og allar nánari upplýsingar.
F®R4'l
INNFLUTNINGSDEILD
bankastræti 11
sími 27366
pósthólf 795
reykjavik
hreinu lofti
Dagana 8. og 13. júni verður
haldið i Reykjavik skákmót á
vegum Skáksambands tslands og
Taflfélags Reykjavikur.
Mótið verður haldið i Skák-
heimilinu við Grensásveg og hefst
kl. 20 þriðjudaginn 8. júni.
Tefldar verða 11 umferðir eftir
Monradskerfi, 5 fyrri mótsdaginn
og 6 hinn seinni.
Mótið er haldið undir kjör-
orðinu SKAK 1 HREINU LOFTI.
öllum er heimil ókeypis þátttaka
meðan húsrúm leyfir, en
keppendur og áhorfendur hlita
blaðið
semvitnaðerí
Áskriftarsimi 175 05
þeirri reglu að reykja ekki i skák-
sal.
Ýmsir aðilar utan skák-
hreyfingarinnar hafa stutt að
framkvæmd mótsins meö fjár-
framlögum til verðlauna og
öðrum hætti, einkum Samstarfs-
nefnd um reykingavarnir,
Abyrgð — tryggingafélag
bindindismanna og Krabba-
meinsfélag Reykjavikur.
Veitt verða 15 verðlaun að
heildarupph. 250 þús. kr.: 9 aðal-
verðlaun fyrir 1,—9. sæti, hæst 50
þús. kr., lægst 10 þús. kr, , tvenn
kvennaverðlaun 10, þús, kr. og 5
þús. kr. og fern verðlaun til ung-
linga, 14 ára og yngri, hæst 8 þús.
kr. og lægst 3 þús. kr.
Allir keppendur á mótinu hljóta
viðurkenningarskjal fyrir þátt-
töku.
Nánari upplýsingar um mótið
eru veittar i Skákheimilinu,
Grensásvegi 46, simi 83540 og þar
fer fram skráning þátttakenda,
en auk þess má tilkynna þátttöku
á skrifstofu Krabbameinsfélags
Reykjavikur, Suðurgötu 24, simi
15033.
Ragnar
Hjalti
Stefán
Umræðukvöld um
atvinnulýðræði
Fundur verður haldinn að Grettisgötu 3, fimmtudags-
kvöld 10. júni kl. 20.30,og verður þar rætt um ýmsar hliðar
atvinnulýðræðis. Fundurinn er liður i stefnumótun flokks-
ins og er hugsaöur til undirbúnings slðari ráðstefnu um
þetta mál. Fundurinn er opinn öllum flokksmönnum.
Að loknum inngangsorðum formanns flokksins,
Ragnars Arnalds, verða flutt fjögur 10—12 minútna er-
indi:
Hjalti Kristgeirsson ræðir um hugmyndir I nágrarina- Böðvar
löndum um atvinnulýðræði og eignaraðild starfsmanna að
fyrirtækjum.
Stefán Bergmann ræöir um atvinnulýðræði i sósialisk-
um rikjum.
Böðvar Péturssonsegir frá umræðum i samvinnuhreyf-
ingunni um atvinnulýðræði.
Asmundur Stefánssonræðir um atvinnulýöræöi I ljósi Is-
lenskra aðstæðna og um hlutverk verkalýðshreyíingar-
innar i þvi sambandi.
Siðan verða almennar umræður.
Alþýöubandalagið
ilílllí BPlTflíiiil
„„Bip, NESTI h.f.
Ártúnshöfða — Elliðaár — Fossvogi
Nú getur þú áhyggjulaust boðiö gestum kalda
drykki heima hjá þér. Engin biö eftir að vatnið frjósi í
ískápnum.
Hjá Nesti færðu tilbúna ísmola, — og þú átt ekki á
hættu að verða ís-laus á miðju kvöldi.
Renndu við í Nesti og fáðu þér ísmola í veizluna!
Þú færð ísmola í veizluna
í Nesti