Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 15
Laugardagur 5. júní 1976. IjJODVILJINN — SÍÐA 15
Enginn broddur í
liði Þróttara sem
töpuðu 0-2 fyrir
frískum FH-ingum
Stanslaus pressa FH í fyrri hálfleik
gaf þó aðeins eitt mark í aðra
hönd þrátt fyrir mörg færi
Það var Ólafur Danivalsson
sem öðrum fremur lagði
grunninn aö tveggja marka
sigri FH yfir Þrótti i Islands-
mótinu i gærkvöldi. Hann
slapp framhjá bakvöröum
Þróttara hvað eftir annað og
lagði boltann fyrir markiö til
samherja sinna sem i tvigang
þökkuðu fyrir sig með mörk-
um en oftar misnotuöu
sóknarmenn hafnfirðinga þó
góð marktækifæri. Þeir hefðu
getaðskorað miklu fleirimörk
i fyrri hálfleik en voru að visu
nokkuð heppnir að sleppa frá
þessari viðureign án þess að
sækja boltann i eigið mark
a.m.k. einu sinni.
FH lék undan sterkum vindi
i fyrri hálfleik og sótti nánast
látlaust. Engin mótspyrna var
i Þrótturum, neyðarvörn
lengst af og sóknin vita bitlaus
þegar til hennar kasta kom.
Fyrsta markið kom enda
strax á fyrstu miniítunum.
Viðar Halldórssonsendi lag-
legan bolta fram á miðjan
völlinn til Ólafs Danivalssonar
sem var á undan varnarmönn-
um Þróttar á eftir boltanum.
Jón Þorbjörnsson markvörður
kom út á móti og er þeir
skullu saman rúllaði boltinn út
til hliðar þar sem Magnús
Teitsson hafði litið fyrir því að
renna honum ihálftómt mark-
ið. Staðan var orðin 1-0 fyrir
FH strax i byrjun og menn
bjuggust jafnvel við hinni
verstu útreið á unga
Þróttarana.
Fleiri urðu þó mörkin ekki
fyrir hlé þrátt fyrir fjöldann
allan af tækifærum. Leikurinn
áttisiðan eftir að jafnast mjög
i seinni hálfelik og er á leið
tóku Þróttarar völdin algjör-
lega isinarhendurog höfðu þá
hleypt öllu meiri krafti i sig.
Kínverjar eru loks
að fá viðurkenningu
sem badmintonþjóð
Jón Þorbjörnsson markvörður
Þróttar var ekki svona bros-
mildur að loknum leiknum i
gærkvöidi. Þá þurfti hann
tvisvar að sækja boltann i net-
ið.
Það voru þó hafnfírðingarn-
ir sem skoruðu aftur. Gerðist
það á 40. min. að Ólafur Dani-
valsson brunaði upp hægri
kantinn, inn eftir enda-
mörkunum og sendi siðan
boltann til Jóhanns Rikharðs-
sonar sem skaut af örstuttu
færi á markið. Jón varði en
helt ekki boltanum, Jóhann
fékk annað tækifæri til þess að
spreyta sig á og sendi boltann
af öryggi i netið.
Skömmu áður hafði Ólafur
leikið sama leikinn upp vinstri
kantinn og sent boltann fyrir
markið til tveggja samherja
sem stóðu á markteig fyrir
galopnu marki en misnotuðu
báðir tækifærið ... nokkuð sem
Framhald á 18. siöu.
Spurningin umdeilda um aðild
Kina að Alþjóðabadminton-
sambandinu verður tekin fyrir að
nýju hjá sambandinu innan tiðar,
en til þessa hefur aðild kinverja
ekki fengist samþykkt. Kina bað
fyrst um aöild árið 1974 en hélt þá
fast við þá kröfu sina að Formósu
yrði vikið úr sambandinu.
Nú eru taldar likur á þvi aö kin-
verjar hafi sitt fram. Fyrr-
verandi forseti badmintonsam-
bandsins sagði á blaðamanna-
fundii fyrradagað spurningin um
aðild Kina eða Formósu — eða
beggja landanna — yrði tekin
fyrir á ársþinginu sem haldið
verður i mai á næsta ári i Sviþjóð.
Tillaga um að vikja
Suður-Afriku úr sambandinu var
feild nýlega með 60% greiddra at-
kvæða á móti uppástungunni.
Laugardalsvöllur
. deild
Valur —
i í dag kl. 14
Valur
Kornelia Ender hefur sett þrjú heimsmet á sundmótinu i A-Berlin, og nú eiga a-þýsku sundkonurnar
hvert einasta heimsmet ikvennagreinunum..., öll sett á siðustu þremur dögum nema eitt!!
Enn setti Kornelía
Ender nýtt heimsmet
Tveggja mínútna múrinn í 200 m
flugsundi karla var rofinn
Kornelia Ender, hin
sautján ára gamla a-þýska
sunddrottning setti i fyrra-
kvöld sitt þriðja heimsmet
á a-þýska meistaramótinu
í sundi. Áður hafði hún sett
met í 100 og tvöhundruð m.
skriðsundi og i fyrrakvöld
stal hún tæplega ársgömlu
meti Ulrike Richter í 100
m. baksundi. Timi Ender
varð 1.01.62 mín. sem er
einni sekúndu betra en
eldra metið.
Árangur þessarar ljóshærðu
skólastúlku hefur vakið mikla at-
hygli en féll þó að nokkru i skugg-
ann i gær fyrir heimsmeti Rogers
Pyttel i 200 m. flugsundi. Hann
varð fyrstur allra til þess að rjúfa
tveggja metra múrinn i þeirri
grein og synti á timanum 1.59.63
min.
Pyttel haföi i undanrásunum
fyrr um daginn slegið fjögurra
ára gamalt heimsmet Mark Spitz
og fékk þá timann 2.00.21 en timi
Spitz var 2.00.70.
Þar með hafa átta ný heimsmet
litið dagsins ljós i A-Berlin á
þremur dögum og vafalaust
verður langt að biða þess að jafn
sterkt eða árangursrikt sundmót
einnarþjóðar verði haldið. Aðeins
eitt heimsmet i kvennagreinum
hefur ekki veriö bætt á þessu móti
og er það met þó a-þýskt. Methaf-
inn er Karla Lunke, sem synti 200
m. bringusundið á betri tima en
nokkur hefur getað leikiö eftir
henni.
Barbara Krause bætti i fyrra-
dag heimsmet bandarisku
stúlkunnar Shirley Babashoff i
400 m. skriðsundi og fékk timann
4.11.69 en bandariski árangurinn
var 4.14.76. 1 ööru sæti á a-þýska
meistaramótinu varö Petga
Thuemer sem einnig synti undir
eldra heimsmetinu á timanum
4.12.71.
Metin hans Mark Spitz, sem tók
sjö gullverðlaun á siðustu Ol-leik-
um, falla hvert af öðru og aðeins
eitt heimsmet hans stendur
óhaggað eftir fjögurra ára tima-
bil. Roger Pyttel, sem sló met
hans i 200 m. flugsundinu sagði að
enginn vafi væri á þvi að met
bandarikjamannsins hefðu verið
frábær, ekki sist i 100 m. flug-
sundinu, sem enn hefur staðist al-
ar árásir og stendur óhaggað. —
Annars datt mér aldrei i hug að
ég næði þvi að rjúfa tveggja
metra múrinn á þessu móti.
Vissulega var það á dagskránni,
en ekki svona fljótt, sagði Pyttel
og gat ekki dulið gleði sina yfir
árangri.ium, —gsp
Blakþingi
frestað
Arsþingi Blaksambands ts-
lands sem fram átti að fara I dag,
hefur verið frestað til laugar-
dagsins 19. júni nk., en þá verður
það haldið að Hótel Loftleiðum og
hefst kl. 13.30.
Golfkeppni
kvenna
hjá Keili
Opin golfkeppni kvenna verður
haldin hjá Golfklúbbnum Keili,
Hvaleyri, á annan dag hvita-
sunnu, og hefst hún kl. 1.30.
Halídór Jónsson, WELLA-
umboðið hf, hefur gefið glæsileg
verðlaun með og án forgjafar.
Eru allar golfkonur hvattar til
þess að mæta.
Fyrstu stórátök
in í 1. deildinni
í dag þegar Valur og ÍA mætast
á Laugardalsvelli — ÍBK og UBK
mætast í Keflavík
Fyrstu stórátökin i 1. deild-
arkeppni islandsmótsins i
knattspyrnu veröa i dag þegar
topplið deildarinnar. Valur og
iA mætast á Laugardalsvelli.
Þessi tvö lið hafa tapaö fæsi-
um stigum i deildinni. einu
stigi hvort liö, en Valur er meö
leik meira en ÍA og hefur þvi 7
stig en skagamenn 5.
Það liöið sem sigrar i dag
hefur náö mjög góðu forskoti,
sein erfitt verður eflaust fyrir
hin liöin aö vinna upp. enda
hafa Valur og IA sýnt bestu
leikina þaö sem af er mótinu
og veröa eflaust bæði með i
toppbaráttunni i sumar.
Þaö vekur athvgli aö eftir
leikinn i dag hefur Valur leikiö
5 leiki þar af 4 á heimavelli, en
lA 4 leiki. þar af 3 á útivelli.
Og þegar Valur hefur leikiö 5
leiki hefur L'BK aöeins leikiö 2
leiki. Skrýtin niðurrööun
þetta.
Annars bætir l'BK sinum 3ja
leik viö i dag, þegar liðiö f'er til
Keflavikur og leikur þar gegn
heimainönnum. Leikur Vals
og ÍA liefst kl. 14.00 en leikur-
inn i Keflavik kl. 16.00.