Þjóðviljinn - 05.06.1976, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. júni 1976.'
Umferðarfræðsla
Brúðuleikhús — kvikmynd
Lögreglan i Reykjavik og Umferðarnefnd
Reykjavikur efna til umferðarfræðslu fyr-
ir 5 og 6 ára börn i Reykjavik, dagana 8.-
28. júni n.k. Börnin eiga þess kost að koma
tvisvar, eina klukkustund i hvort skipti.
Fræðslan fer fram sem hér segir:
6 ára 5 ára
8.-9. júni
Melaskóli Kl. 9.30 11.00
Breiðholtsskóli — 14.00 15.30
10.-11. júní
Hliðaskóli — 09.30 11.00
Austurbæjarskóli — 14.00 15.30
14.-15. júnl
Hvassaleitisskóli — 09.30 11.00
Álftamýrarskóli — 14.00 15.30
16.-18. júni \
Laugarnesskóli — 09.30 11.00
Árbæjarskóli — 14.00 15.30
22.-22. júni
Langholtsskóli — 09.30 11.00
Fossvogsskóli — 14.00 15.30
23.-24. júni
Fellaskóli — 09.30 11.00
Vogaskóli — 14.00 15.30
25.:28. júni
ölduselsskóli — 09.30 11.00
Breiðagerðisskóli — 14.00 15.30
Æskilegt er að börnin hafi með sér tösku
eða poka undir verkefni.
Lögreglan i Reykjavik.
Umferðarnefnd Reykjavikur.
Utboð
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps óskar eft-
ir tilboðum i smiði skólahúss á Álftanesi.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Ármúla 4, Reykjavik, frá og með
föstudeginum 4. júni næstkomandi gegn
5000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 2. júli kl. 11 fh.
Lögtök
vegna ógreidds orlofsfjár
Samkvæmt úrskurði uppkveðnum 21. mai
s.l. og skv. heimild i 7. gr. 1. nr. 87, 1971
fara fram lögtök fyrir orlofsfé, sem gjald-
fallið var og ógreitt hinn 30. april 1976, á
ábyrgð Póst- og simamálastjórnar, en á
kostnað gerðarþola, að liðnum átta dögum
frá birtingu þessarar auglýsingar.
Yfirborgarfógetinn i Reykjavik.
2. júni 1976.
Verslunin hættir
Nú er tækifæriö aö gera góö kaup. Aliar vörur seldar meö
miklum afslætti. Aiit fallegar og góöar barnavörur.
Barnafataverslunin Rauðhetta
Iönaöarhúsinu v/Hallveigarstlg
Minningarorð
Björn Benediktsson
prentari
Huldukonur Kjarvals — hraun-
breiöur — Reykjavik i rökkri —
lyng og mosi. Þetta var fyrsta
myndlistarreynsla min, og hana
öölaðist ég i Tjarnargötu 47,
heima hjá Birni og Bubbu.
Sjómenn Schevings, einfaldar og
sterkar teikningar, allt þetta
orkaöi sterkt á hugarheim barns,
sem litið sá af myndlist. Og Björn
unni þessum myndum sinum og
opnaöi hug minn fyrir töfrum
þeirra.
Björn unni bæöi tónlist og
myndlist, og hann var góður
vinur og hjálparhella þeirra lista-
manna, sem vináttu hans nutu.
Hann haföi áreiöanlega oft af litlu
að taka, þegar hann keypti
málverk af vinum sinum. Hlýr
hugur hans og hjálpsemi brást
aldrei, og fram á siðasta dag
haföi hann óskertan áhuga á
baráttumálum alþýöunnar.
Mig langar ti aö þakka Birni
allar góöar stundir meö honum og
myndunum hans, sem fyrstar
opnuöu mér sýn inn i heim mynd-
listarinnar. Og ég þakka lika
minni góðu móöursystur og
dætrum þeirra Björns fyrir að ég
hef alltaf átt annaö heimili i
Tjarnargötu 47.
Sigrún Guöjónsdóttir
Ein mynd. Bara ein litil mynd
getur breytt tilveru manns. Hann,
sem samkv. stöðu sinni ætti aö
helga sig brauðstriti og spari-
sjóösinnleggi, er allt i einu orðinn
þátttakandi i gildismati listrænna
verömæta samtlöarinnar. Þannig
orkaði Björn Benediktsson á mig,
þegar ég kynnitist honum fyrst.
Hann sýndi mér eina litla mynd
eftir Kjarval, sem hann hafði
keypt af þvi aö Kjarval vantaði
peninga. Siðan varð myndlistin
honum ástriöa og aldrei brást
hann hæíileikann til aö meta list-
giidiö. Hann átti fágætt safn lista-
verka, sem hann naut i rikum
mæli og hvað mest þegar hann
fékk aöra til þess aö njóta þeirra
meö sér.
En B jörn átti fleira til að miöla
vinum sinum en máiverkin
góöu, hann var sjálfur meistari
viöræðna og frásagna. Ég hef fáa
heyrt segja betur frá liðnum at-
buröum og einkenniiegu fólki og
kom þar berlega i ljós sami hæfi-
leikinn til að sjá þaö óvenjuiega
og lýsti sér i vali hans á
myndum og dálæti hans á frum-
legum málurum.
Björn var einn litríkasti
persónuleiki sem ég hefi kynnst
og ég mun sakna hans og minnast
meöan ég heyri góðs manns getið.
Gestur Þorgrimsson
• •
Björn Benediktsson var fæddur
3. júll 1894 að Eystrireyni á
Akranesi. Hann fluttist ungur til
Reykjavikur og bjó þar til ævi-
loka. Prentnám hóf hann 1910 i
prentsmiðjunni Gutenberg og
starfaöi þar aö iön sinni i meira
en hálfa öld. Árið 1923 kvæntist
Björn Guöriöi Jónsdóttur frá
Stokkseyri og eignuðust þau 4
börn, tvo syni, þá Jón Gunnar og
Ingólf, og tvær dætur, þær Sig-
r ±
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M/s Esja
fer frá Reykjavik fimmtudag-
inn 10. þ.m. vestur um land i
hringferö.
Vörumóttaka þriðjudag og
miðvikudag til Vestfjaröa-
hafna, Noröurfjaröar, Siglu-
fjaröar, Ólafsfjaröar, Akur-
eyrar, Húsavikur, Þórshafnar
og Vopnafjaröar.
rúnu og Gunnvöru. Syni sína tvo
misstu þau báöa i blóma lifsins.
Guöriður Jónsdóttir lifir mann
| sinn.
Þaö varfyrir u.þ.b. sjö árum aö
fundum okkar Björns Benedikts-
sonar bar saman i fyrsta skipti.
Atvikir höguðu málum þannig aö
ég, sveitastrákur af Ströndum og
hann þá roskinn maöur bundust
böndum sem ekki urðu rofin.
Marga góöa stund sátum viö
saman og spjölluðufh, hann
fræddi mig um menn og málefni
hér sunnan lands, en ég sagði
honum furðusögur úr minni
heimabyggð. Björn var ættfróöur
maður og fróðleikfús og hafði
þann heilbrigða metnaö fyrir
sjálfs sln hönd og sins fóks, sem
einkennir oft óbrotiö alþýöufólk,
þann aö reynast gegn, heiðar-
legur og duglegur. Einlægni og
faisleysi virtust mér áberandi
þættir i skapgerð hans. Mér býöur
i grun að Björn hafi hér fyrr á
árum átt heitt geö,og aldrei eltist
hugurinn svo að glóöin sem undir
brann leyndi sér eða slokknaöi.
Björn var aö eölisfari glaðlyndur
maður og spaugsamur, en lifiö
þyrmdi honum ekki viö and-
streymi, þvi fátt sýnist manni
hörmulegra en að horfa á eftir
mannvænlegum börnum sínum i
dauðann. Allt þaö bar hann af
karlmennsku.
Björn var trúaöur maður, ekki i
þeim bænastafsskilningi sem
margir aðhyllast, heldur skildi
hann boðskap kristninnar þeim
skilningi hjartans, sem kemur
fram ilífssýn og breytni manna. í
samræmi við þetta tók hann svari
hins minni máttar gegn hinum
sterka, svari þess fátæka gegn
hinum rika. Hann var sóslalisti og
þjóðernissinni, sem haföi þungar
áhyggjur af framtlö íslands.
Stéttvis var hann og vildi auka
veg hins vinnandi manns. Þaö er
dæmigert fyrir afstööu og lífs-
skoðun hans aö þegar hann lá
banaieguna hafði hann oft orö á
áhyggjum sinum vegna land-
helgismálsins og þeirra
samninga er þá lágu i loftinu og
nú hafa verið geröir. Slikt
siöferöisþrek haföi hann til hinstu
stundar.
Nú að leiðarlokum er staldrað
viö, heilli mannsævi er lokið.
Eftirsjá og hryggð setur aö nán-
ustu ættingjum og vinum. Hinn
mikli græöari — timinn — mun þó
leggja hönd sina á eymslin, svo að
lokum lifir eftir I brjóstinu hlý
minning. Hér má ekki undan
vikjast. Eitt sinn skal hver deyja.
Ég vottc aðstandendum öllum
mina samúö.
Sveinn Kristinsson
Auglýsing
Sjúkraliðaskóli íslands tekur inn nýja
nemendur i byrjun september næstkom-
andi. Umsækjandi skal hafa náð 17 ára
aldri og lokið 5. bekk gagnfræðaskóla, 1.
bekk fjölbrautarskóla, heilsugæslubraut
eða hafa hliðstæða menntun.
Umsókn skal fylgja:
1. Staðfest afrit af prófskirteini
2. Læknisvottorð
3. Sakavottorð
4. Meðmæli.
Umsóknareyðublöð fást i skólanum að
Suðurlandsbraut 6, IV. hæð, virka daga
frá kl. 13—15. Simi skólans er 84476. Um-
sóknarfrestur er til 31. júli 1976.
Skólastjóri.
Hús til sölu á
Hornafirði
Kauptilboð óskast i húseignina Skólabrú 1,
(Brekkugerði) Höfn, Hornafirði, ásamt
400 fermetra leigulóð. Brunabótamat
hússins kr. 3.555.000.00 Húsið verður til
sýnis þeim er þess óska þriðjudaginn 8.
júni n.k. kl. 5—7 e.h. og eru tilboðseyðu-
blöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorri fyrir kl. 11.00 f.h. föstudaginn 18. júni
n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844