Þjóðviljinn - 12.06.1976, Side 1

Þjóðviljinn - 12.06.1976, Side 1
Líbanon Laugardagur 12. júni 1976 — 41. árg. —126. tbl. OLJOST ÁSTAND BÓKUIS 6: F r estur á frest ofan Nú til máriudags Gkki eru samningarnir viö breta i landhelgismálinu skýrari en það, að þaö vefst fyrir Ráði fastafulltrúa Efnahagsbandalagsins að samþykkja bókun 6. Fundi ráðsins lauk i fyrrakvöld án þess að ákvörðun væri tekin og segir i fréttum frá Brössel að málið verði tekið aftur fyrir á fundi ráösins á mánu- daginn. Mismunandi bókanir Cros- lands og Einars Agústssonar um hvort bókun sex falli endanlega úr gildi með sam- komulaginu i fiskveiðideil- unni eða einungis meðan á gildistima samkomulagsins stendur, valda miskliðinni i ráðinu, að þvi er búast má við, en fundir þess eru lok- aðir. Liðsfundur herstöðva- and- stœðinga t dag kl. 10.00 árdegis hefst liðsfundur herstöövaand- stæðinga i Glæsibæ (á mótum Álfheima og Suður- landsbrautar). Rætt verður sumarstarfið, drög að lögum fyrir heildarsamtök her- stöðvaandstæöinga, sem stofnuð veröa i haust og drög að stefnuskrá. Allir andstæðingar her- stöðva og Nató eru hvattir til að taka þátt i liðsfundinum. BEIRCT 11/6 NTB-Reuter — 1 frétt frá Damaskus segir að Sýr- landsstjórn hyggist ekki i bráð kalla her sinn frá Libanon, þar eð ástandið þar sé enn óljóst, og I Beirút er sagt að sýrlendingar hafi i viðbót sent um 500 hermenn til landsins. Sex liðsforingjar, tveir sýr- lendingar, tveir libiumenn og tveir palestinumenn, hafa opnað bækistöð i Beirút i þvi skyni að stjórna viðleitni Arababanda- lagsins til að koma á friði i Libanon. Makmúd Raid, aðalrit- ari Arababandalagsins, fór frá Damaskus til Kairó i dag til að undirbúa stofnun friðargæslu- sveitaiLibanon, sem ætlast er til að Arabarikin standi sameigin- lega að. Lkki er ljóst hve samstarf Ara- barikjanna um þetta stendur á traustum grunni. Gaddafi leiðtogi libi'umanna sagði i dag að þar eð sýrlendingar hefðu gert innrás i Libanon i þvi skyni að mola bar- ^áttuhreyfingu palestinumanna *yrðu önnur Arabariki að snúast gegn sýrlendingum. 1 gær fréttist að yfir 1000 alsirskir libiskir og súdanskir hermenn væru komnir til Libanon, væntanlega til friðar- gæslu, en nú hefur það verið boriö til baka að Súdan hafi sent nokkra menn. útvarpsstöð nokkur i Bei- rút tilkynnti i dag að fjöldi manns hefði látið lifið i Beirút I nótt, þegar störskotaliðssveitir áttust þar viö. Þá tilkynnti útvarpið i Beirút að sýrlendingar hefðu styrkt aðstöðu sina i fjalllendinu með þvi að senda þangað þungvopnað stórskotalið Sunnudagsblaðið er helgað sjómannastéttinni A morgun fylgir sunnudagsblaði Þjóðviljans efni i tilefni Sjó- mannadagsins. Er þar að finna viðtöl við sjómenn um lif þeirra og starf, kaup og kjör og annað það sem heitast brennur. Meðal efnis er spjall viðfyrrverandi skipstjóra, varðskipsmenn á Óðni, skipverja á togbátnum Sæhrimni, auk viðtala við Gest Kristinsson frá Suður- eyri um Samstarfsnefndina, Jón Timóteusson um sjómanna- samtökin og siðast en ekki sist viðtal við Magnús Magnússon fyrrv. , skipstjóra sem nú gerir út á grásleppuna frá Hafnarfirði. Myndina tók —gsp af Magnúsi í grásleppuróðri. Dauft atvinnuástand: BIÐLISTAR I STAÐ EFTIRSPURN AR lýsa ástandinu betur en flest annað, sagði Guðmundur J, Guðmundsson formaður Verkamannasambands Islands — t stað þess, sem verið hefur undanfarin ár að fólk vantaði I flest störf er ástandið nú þannig að biðlistar eftir atvinnu eru hjá flestum fyrirtækjum og þar er helst um að ræða ungt verkafólk og svo skólafólk sem erfiðlega gengur að fá vinnu um þessar mundir, og segir þetta meira um atvinnuástandið en flest annað, sagöi Guðinundur J. Guðmunds- son formaður Verkantannasam- bands islands er við spurðum hann um atvinnuástandið uin þessar mundir. Hann sagði að hér i Reykjavik gengju verkamenn ekki atvinnu- lausir sem stendur, en skólafólk Framhald á bls. 14. Flotakapphlaup USA og Sovét: Floti USA hefur í sjö árvaxið miklu hraðar Sovéskur kjarnorkubátur af gerðinni Viktor. Sovéski flotinn mun ganga úr sér Hvenær sem deilt er um útgjöld til hermála I Washington eða þá herstöð i Keflavík hér heima eru hafðar á lofti tölur um mikinn og ógnvekjandi og sivaxandi mátt sovéska flotans og látiö að þvi liggja að bandarfski flotinn hafi senn ekki roö við honum. Það vekur þvi athygli, að i skýrslu sem gerð hefur verið fyrir fjarveitinganefnd öldungar- deildar bandariska þingsins kem- ur i ljós, að: — um tima fjölgaði skipum örar i sovéska flotanum en hinum bandariska, en bandarfsku skipin voru alltaf miklu stærri og öflugri. — undanfarin sjö ára hafa Bandarikin haft vinninginn bæði að þvi er varðar fjölda nýrra her- skipa og stærð þeirra, meöan sovétmenn hafa ekki við að smiða i staðinn fyrir þau skip sem ganga úr sér. Allar likur benda þvi til að sovéski flotinn sé að skreppa saman. 1 skýrslunni, sem byggir á heimildum frá leyniþjónustu bandariska hersins. segir, að á árunum 1958-69 hafi sovéska flotanum aö visu bæst miklu fleiri skip en þeim bandariska. En mörg þeirra hafi veriö litil skip, frekar til strandvarna en úthafs- siglinga, en slik skip hafi Banda- Bandariskur kjarnorkukafbátur af gerðinni Poiaris rikin hætt við að smiða og nota um 1963. Siöan 1969 hafa sovéska flotan- um bæst 17,4 skip á ári, og er það meira en helmings niðurskurður á uppbyggingu flotans frá þvi að hún var mest. Bandariski flotinn hefur hinsvegar fengið 19 skip á ári, eða 12% fleiri. Og þau eru að meðaltali 71% stærri en hin sovésku. 1 þennan samanburö vantar aö Sovétrikin eru eina umtalsveröa flotaveldiö i Varsjárbandalaginu, en Bandarikin njóta styrks af breskum, frönskum, vestur-þýsk- um, og itölskum flota. Nánarer gerögrein fyrir þessum samanburði í grein i sunnudagsblaðinu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.