Þjóðviljinn - 12.06.1976, Síða 9
SH$
LEIKUST Á
LISTAHÁTÍÐ:
Grænlensk
hátíð
MIK-söngflokkurinn hélt fyrstu
tónleika sfna aö Kjarvalsstööum
á fimmtudagskvöldiö fyrir troö-
fullu húsi og viö frábærar undir-
tektir áhorfenda. Þessi 12 manna
hópur er afar geöþekkur og kem-
ur vel fyrir, og dagskráin sem
hann flutti i söng og dansi var um
margt hiö athyglisveröasta. Þaö
sem einkanlega vakti til umhugs-
unar var hversu mikill hluti af
henni virtist eins konar evrópsk
útþynning á grænlensku efni, eöa
evrópskt efni meö grænlenskum
viöbótum. Þetta átti viö um hinar
mörgu raddsetningar á græn-
lenskum lögum sem hóDurinn
söng, þar sem hin danskættaöa
margröddun viröist i hrópandi
ósamræmi viö hiö upprunalega
lag sem greina má i gegnum Ivaf-
iö. Hópurinn dansaöi einnig all-
marga hópdansa, sem byggjast
upp á hinum sigildu „gömlu
dönsum”, polka í.s.frv., en eru
meö sérkennilegum græn-
lenskum viöbótum, einskonar
traöki, sem geriö þá mjög
skemmtilega.
Nokkur atriöi f dagskránni
skáru sig úr og vöktu óöara þá til-
trú aö hér væru upprunalegir
hlutir á feröinni. Ung stúlka söng
vögguljóö, ein, og þá var öll
danska sykurkvoöan á bak og
burt og þjóölagiö kom til manns
sterkt og hreint. Ungur maöur
söng einsöng meö kórviölagi um
manninn sem er útskúfaöur úr
þorpi sinu og veröur aö hverfa á
vit hinnar óbliðu náttúru. Þetta
var sungið áf krafti og drama-
tiskum tilþrifum sem greip mann
föstum tökum. En hápunktur
dagskrárinnar var þó tvfmæla-
laust trumbudansinn. Þessar sér-
kennilegu grænlensku danshreyf-
ingar (sem islendingar þekkja
liklega best úr Inúk), seiðmagn-
aöur trumbuslátturinn, undar-
lega sönglandi laglinan og siðast
en ekki sist hin ósvikna glettni
i andliti trumbudansarans: allt
verkaöi þetta saman til aö gera
stundina ógleymanlega. Þegar
trumbudansarinn stökk úti salinn
til aö reka burt illa anda úr áhorf-
endum stóö salurinn á öndinni, og
þegar hann sýndi okkur hvernig á
aö vekja konur meö trumbudansi
ætlaöi allt aö rifna af kátinu. Ég
hef þvf miöur ekki nafn þessa
trumbudansara, þar sem engin
skrá var fáanieg, en hann er
ómótstæðilegur snillingur, ósvik-
inn náttúrukraftur sem heims-
menningin hefur ekki náö aö
spilla.
Þaö var mjög eftirtektarvert
hvaö þau atriði sem virtust hvaö
upprunalegust vöktu mesta hrifn-
ingu áhorfenda. Slíkt finnst mér
mætti vera lærdómur fyrir MIK-
flokkinn. Hann mætti gjarnan
leggja meiri rækt viö þau atriöi
en minni viö danskan kórsöng.
Aö lokum vil ég þakka hópnum
komuna hingað og ágæta
skemmtun, og forráöamönnum
listahátíöar fyrir aösjá til þess aö
hátíöin hefur loks gefið okkur
tækifæri til aö kynnast list næstu
nágranna okkar, grænlendinga og
færeyinga, sem hefur veriö
skammarlega vanrækt fram til
þessa.
Sverrir Hólmarsson.
Híbýli alþýöu á kreppuámnum — 5
Aö þessu sinni birtum viö mynd úr Sögusafni verkalýöshreyfingarinnar
sem tekin var I Glerárþorpi á Akureyri á árunum 1930-1940. Eins og
fyrr er þaö Siguröur Guttormsson sem tók myndina en hann eyddi
sumarleyfum sinum á þessum árum f aö feröast um landiö og taka
myndir af þeim húsakynnum sem aimúgafólk varö aö láta sér lynda.
Þetta ibúöarhús á Akureyri þætti a.m.k. ekki upp á marga fiska nú til
dags.
Laugardagur 12. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
'
m&íw
Olíuverzlun íslands hefur
Á næstunni mun nýtt, íslenskt einkenni
Vináttufélag
íslands og
Kú|bu auglýsir
VINNU
FERÐTIL
KÚBU
(Brigada Nordica
1976)
Vinnuferð verður farin til Kúbu i ár eins
og undanfarin ár. Að þessu sinni verður
farið um miðjan desember nk. og dvalið á
Kúbu um mánaðartima, þ.e. til miðs
janúar 1977.
Umsóknir um þátttöku i ferðinni sendist
til stjórnar VIK, sem velur þátttakendur
úr umsækjendum.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk.
Umsóknir sendist til:
Vináttuféiag tslands og Kúbu, pósthólf
318, Reykjavik.
Bensíntankar, birgöageymslur, bifreiðar
og tæki félagsins veröa m.a. þannig
merkt framvegis. Olís hefur þó áfram
vörur þessara framleióenda.
OLÍUVERZLUN
ÍSLANDS HF.