Þjóðviljinn - 11.07.1976, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 11. júli 1976
MYS OG
MENN
Lewis Milestone var einn af
þessum gömlu góðu Hollywood-
leikstjórum sem stuðluðu að þvi
að lyfta þeim stað á hærra plan
þegar svo virtist sem talmyndin
ætlaði að ganga af kvikmynda-
listinni dauðri. Hann var einn af
þeim sem uppgötvuðu að kvik-
myndin þurfti ekki að „tala”
allan timann, að áhorfandinn
þurfti ekki endilega að heyra allt
sem hann sá og sjá allt sem hann
heyrði. Það þótti mikill viðburður
á sinum tima (1930) þegar hann
kvikmyndaði striðssenur i
„Tiðindalaust á vesturvigstöðv-
unum” með hreyfanlegri vél og
bætti svo sprengjuregni og skot-
hrið inni myndina seinna. Annars
var venjan sú, að stilla leikurun-
um upp fyrir framan mikið bákn,
sem var kvikmyndavél i hljóðein-
angruðum kassa,og Iáta þá leika,
eða réttara tala þindarlaust.
Taliö var svo mikið nýnæmi að
áhorfendur tóku varla eftir þvi að
kvikmyndavélin hreyfðist ekki.
Þetta var á þeim timum.þegar
kvikmyndir hétu „the talkies”.
1931 gerði Milestone mynd sem
hét Forsiðan og var byggö á sama
leikriti og sú mynd sem Laugar-
ásbió hefur sýnt nú að undanförnu
með sama nafni. Af öðrum mynd-
um þessa kvikmyndastjóra má
nefna t.d. Hallelujah, I’m a Bum
(1931), A Walk in the Sun og Of
Mice and Men — Mýs og menn,
sem er mánudagsmynd i
Háskólabió um þessar mundir.
Mýs og menn (1940) er byggð á
samnefndri skáldsögu eftir John
Steinbeck og fjallar um tvo land-
búnaðarverkamenn sem flækjast
á milli búgarða i leit að vinnu.
Annar þeirra, Lennie, er vangef-
inn, hjartagóður kraftajötunn og
risi, en hinn er lágvaxinn og
klókur, George. Lennie þykir gott
að strjúka litlum, loðnum og
mjúkum dýrum en á það til að
strjúka of fast og lendir þá einatt i
vandræðum. George bjargar hon-
um alltaf. Myndin hefst á þvi að
þeir félagar eru á flótta undan
vopnuðum flokki reiðra manna.
Þeir komast undan með þvi að
hoppa uppi vöruflutningalest.
Næst koma þeir á búgarð einn og
fá vinnu. Sonur landeigandans á
fallega konu, sem hann er
hræddur um. Híinn er slagsmála-
hundur mikill. Útfrá þessu
spinnast atburðir, sem ekki verða
raktir hér aö ráði, nema hvað þeir
enda með ósköpum. Þessir ytri
atburðir eru rammi utanum það
sem raunverulega gerist og skipt-
ir máli.
Georg og Lennie dreymir um að
eignast litinn jarðarskika og setja
upp bú með kaninúm og grisum
og hænsnum... Mae, tengdadóttur
landeigandans dreymir um að
komast til Hollywood og verða
fræg kvikmyndastjarna.. Candy
gamli, einhenti sóparinn, á sér
lika draum um litið hús með arni,
þar sem hann geti hvilt lúin bein i
ellinni. Allir þessir draumar eiga
það sameiginlegt að rætast ekki.
Myndin fjallar um einmanaleika
og umkomuleysi. Þessvegna tal-
ar hún til okkar enn i dag.
Auðvitað finnst okkur hún
barnaleg. Okkur finnst allt
barnalegt sem ekki heyrir undir
súperstæl okkar tima. Myndin er
tæknilega gamaldags, bæði hvað
snertir kvikmyndatöku og leik.
En efni hennar — eða boðskapur
— er svo einfalt og sterkt að áður
en við vitum af erum við hætt að
taka eftir þvi að útisenurnar eru
falsaöar, teknar i stúdiói, að lýs-
George (Burgess Meredith) og
ingin er einsog á vinnustofu ljós-
myndara, að aðalleikararnir of-
leika ansi stift, osfrv. Við sitjum
bara með öndina i hálsinum og
reynum að halda I þá fánýtu von
að Lennie standi sig og lendi ekki
i vandræðum og að þeir láti nú
loks verða af þvi að kaupa sér
jarðarskikann og kaninurnar.
Georg er leikinn af Burgess
Meredith, sem ku hafa verið einn
vinsælasti ungi leikarinn i banda-
risku leikhúsi á þessum tima
(1940). Leikur hans hæfir betur
leikhúsi en kvikmynd, en allt um
það nær hann góðum árangri. Lon
Chaney leikur Lennie og er eng-
inn stórleikari, en samt þykir
okkur hálft i hvoru vænt um hann.
Af öðrum leikurum þótti mér
mest til Roman Bohnen koma, en
hann leikur Candy gamla, sópar-
ann einhenta sem óttast ekkert
meira en að verða settur á elli-
heimili fyrir fátæklinga þegar
hann er hættur aö geta sópað. Ein
Mae (Betty Field).
minnisstæðasta senan i myndinni
er þar sem segir frá hundi
Candys. Hundurinn er orðinn
gamall og fótafúinn og einum
landbúnaðarverkamannanna,
Carlson, þykir mál til komiö að
skjóta hann. Hann fær loks dræmt
leyfi eigandans til aö fremja
verknaðinn, fer út með hundinn
en Candy leggst fyrir i fleti sinu
og biður eftir skothvellinum. Þeg-
ar hann heyrist loksins er einsog
Candy hafi verið skotinn, en ekki
hundurinn. Annað ógleymanlegt
atriði er þegar Lennie og Mae
sitja i hlöðunni og tala um
drauma sina. Lennie talar um
kaninurnar, sem hann á að gæta
þegar þeir George verða orðnir
landeigendur, en Mae talar um
Hollywood og falleg föt. Tvær ein-
mana sálir gera einskonar tilraun
til samtals en tilraunin endar með
morði, sem hlýtur að vera
hámark sambandsleysisins.
Þetta er einföld mynd um ein-
falda atburði og frumstætt lif.
Lennie tekst ekki að uppfylla þær
kröfur sem grimmt mannfélagið
gerir til hans, hann hlýtur þvi að
deyja. Vinur hans George skilur
þetta og heldur en láta Lennie
falla fyrir ó-vinakúlu tekur hann
sjálfur að sér verkið.
Satt að segja varð ég hissa á
þeim aragrúa af fólki, sem kom-
inn var saman i Háskólabió á
mánudaginn var til að horfa á
þessa gömlu mynd. En við nánari
athugun er það ekkert undarlegt.
Sjónvarpið er I sumarfrii, og i
staðinn fyrirað nota sér þá auknu
aðsókn sem sú staðreynd hlýtur
að hafa i för með sér til að sýna nú
einusinni almennilegar myndir,
bjóða bióin uppá heimsins mesta
rusl, með örfáum undantekning-
um einsog Chinatown og Forsiða.
Þetta kalla ég að þekkja ekki
sinn vitjunartima. Aðsóknin að
Músum og mönnum sannar mál
mitt.
Verðtilboð óskast i nokkurt magn af brotamálmum, eir,
áli og blýi, fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur.
Um er að ræða ónothæfa, pappirseinangraða jarðstrengi
af ýmsum gildleikum með leiðurum úr eir eða áii og kápu
GLENS
Eg fer og kreisti filapenslana úr
smettinu. Svo bursta ég
tennurnar. Ég fer og hringi i
menn sem eru ekki heima.
—x—
úr blýi.
Tílboðin óskast miðuð við einingarverð pr. kg, annars
vegar i jarðstrengi með eirleiðurum og hins vegar i jarð-
strengi með álleiðurum.
Miðað er við að kaupandi taki við strengjunum i birgða-
stöð Rafmagnsveitunnar.
Allar frekari upplýsingar veitir Jón Haukur Jóelsson
verkstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur, Ármúla 31, R.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum, ellegar að skipta kaupum milli bjððenda.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
R. fimmtudaginn 22. júli 1976, kl. 14.00. e.h.
INNKAUP'ASTOFNUN REYKJAVÍKURBOKGAF.
Fríkirkjuveai 3 — Sími 25800
Mýrarhúsaskóli
Seltjarnarnesi
Kennara vantar að Mýrarhúsaskóla til kennslu 10-12 ára
barna. Upplýsingar veittar hjá yfirkennara I sima 22569
kl. 10-11 fyrir hádegi til föstudags 16. júli.
Skólastjóri
Fyrst hlusta ég á barnatimann i
útvarpinu. Svo hlusta ég á barna-
tlmann i sjónvarpinu.
—x—
Ég fer út og ét dauða kind. Ég
þakka fyrir mig og fer og greiði
mér. Ég vigta mig og fer f bað. Ég
les Vikuna i baði.
Svo vaki ég alla nóttina til að
missa ekki af neinu.
Kaupið bílmerki
Landverndar
Kerndum
W. líf
Kerndum
yotlendi
m
\i\
ii
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensinafgreióslum og skrifstofu
Landvsmdar Skóiavöróustig 25
I
BARUM
BREGST EKK/
Fólksbíladekk
Kynnið ykkur
hin hagstæðu verð.
TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Húsbyggjendur athugið:
Eigum fyrirliggjandi steinrör til skolp-
lagna 4ra til 16 tommu. Gangstéttarhellur
litaðar og ólitaðar.
Bjalli h.f., steiniðja, Hellu simi 99-5890.