Þjóðviljinn - 14.07.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.07.1976, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. júli 1976 1>J(4DV1I.JINN — SÍÐA 3 Aftökur í Eþíópíu Nairobi 13/7 reuter ntb — Eþi- ópiskur hershöföingi var skot- inn til bana i átökum viö örygg- issveitir og 18 herforingjar og óbreyttir borgarar teknir af lifi sl. laugardag i Addis Ababa aö þvi er segir i fréttum frá Eþfópiu i dag. I yfirlýsingu frá stjórninni i Addis Ababa segir að hershöfð- inginn Getachew Padew hefði fengið það hlutverk að brjóta uppreisnina i Eritreu á bak aft- ur en siðan hefði hann svikið byltinguna og verið kallaður heim til höfuðborgarinnar. Getachew hefur stjórnað Eritreu með harðri hendi und- anfarna 17 mánuði. Hann lenti siðan i andstöðu við þjóðnýting- arstarfsemi að þvi er segir i yf- irlýsingunni. Hann var skotinn i átökum sem urðu eftir að hann neitaði handtöku. Meðal þeirra 18 sem teknir voru af lifi fyrir aðild að samsæri Getachews var formaður utanrikisnefndar byltingarráðs hersins, Sisay Habte majór, en hann var löng- um álitinn einn valdamesti maður landsins. LOKSINS RIGNDI! London, Frankfurt 13/7 reuter ntb — 1 dag gerði rigningu og þrumuveður viöa i Vestur-Evrópu og telja menn sig nú sjá fyrir endann á verstu hitabylju sem gengið hefúr yfir álfuna i hálfa þriöju öld. Hún hefur viöa staöiö i hartnær tvo mánuöi. í Belgiu fögnuðu menn rign- ingunni ákaft og sama máli gegndi um bændur i vestan- og sunnanverðu Vestur-Þýska- landi. Sérfræðingar segja þó að regnið hafi komið of seint til að afstýra uppskerubresti á korni og kartöflum. 1 Bretlandi er talið að kornuppskeran verði 13 milljónum tonna undir meðal- lagi og óttast menn að verð á matvælum kunni að hækka vegna þessa. 1 Bretlandi hefur það lika gerstað viða ber nú á skorti á bjór þrátt fyrir það aðbjórverk- smiðjur starfi dag og ótt. Veld- ur þvi að bretar hafa skipt frá sterkum bjór yfir i veikan og hafa verksmiðjur ekki undan að framleiða þann veikari. Ein miljón „pints” (rúmlega hálfur litri) af bjór er drukkin á hverri klukkustund sem bjórkrár eru opnar. 1 görðum Lundúnaborgar baða stúlkur sig i tjörnum og gosbrunnum naktar að beltis- stað. Þó þetta varði við lög seg- ist Scotland Yard ekki getað fengið sig til að gera neitt i mál- inu nema það verði kært. Boris Volinof og Vitali Zjolobof heita geimfarar þeir tveir, sem á dögunum fóru á loft i sovéska geimskipinu Sojús-21 og vinna nú að ýmislegum rann- sóknum eftir sovéskri áætlun um könnun geimsins næst jörðu. Myndirnar sýna þá Volinof (t.v.) og Zjolobof i fullum skrúða. Libanon Barist í Baalbek Beirut 13/7 reuter — Talsmaður palestinumanna i Beirut sagöi i dag aöharðir götubardagar geys-N uðu nú i borginni Baalbek i austurhluta Libanon. Ættust þar við hersvcitir sýrlendinga vopn- aðar skriödrekum, hersveitir palestinumanna og ibúar borgar- innar sem slegist hafa i liö meö þeim siöarnefndu. Hann sagði einnig að mikið mannfall hefði orðið meðal ibúa borgarinnar sem er fræg fyrir rómverskar rústir sem i henni eru. Fyrir þrem dögum visaði Verkamannanefndir Spánar Stjórnin ræðir við andstöðuöflin Paris 13/7 reuter — Hinn nýi forsætisrá ðherra Spánar, Adolfo Suarez, kom i dag i óvænta skyndiheimsókn til Parisar og átti hálfrar annarrar klukkustundar fund með starfs- bróður sinum Jacques Chirac. Eftir fundinn sagði Suarez að þettaværifyrsta heimsóknhans af mörgum sem hann myndi fara í til Evrópulanda á næst- unni. Frakkarhafa löngum ver- ið helstu stuðningsmenn spán- verja innan Efnahagsbandalags Evrópu en spænska stjórnin hefur lengi litið aðild að EBE hýru auga. Blaðamenn spurðu Suarez hvort hann hygðist taka upp við- ræður við stjórnarandstöðu- flokka heimafyrir. Hann svar- aði: — Ég ætla mér að ræða við alla spánverja, hvar svo sem þeir eru I pólitik. Hann kvaðst mundu gefa út stefauyfirlýsingu stjórnar sinnar á föstudaginn. Franskir embættismenn sögðu að ráðherrarnir hefðu rætt samskipti rikjanna og al- þjóðamál. Virtust þeir báðir ánægðir með niðurstöður við- ræðnanna. ítalskir sósialistar Forystan sagði af sér Róm 13/7 reuter — Fram- kvæmdanefnd italska sósialista- flokksins sagöi af sér i dag. Ástæöan er sú hve flokknum gekk illa i þingkosningunum á dögun- um en þá fékk hann sama at- kvæöahlutfall og i kosningunum 1972 en mun minna en i sveitar- stjórnarkosningunum i fyrra. Þetta gerðistá skyndifundi sem boðað var til á miðjum fundi mið- stjórnar flokksins en þar er aðal- umræðuefnið léleg frammistaða flokksins i kosningunum. Fyrst sögðu sex vinstrimenn sig úr framkvæmdanefadinni, þá aðal- Samið í Kröflu í gærmorgun náðist samkomulag I vinnudeil- unni á Kröflusvæðinu. i gærkvöld greiddu að- ildarfélög atkvæði um samningana. Þeir voru samþykktir og átti vinna að hefjast aftur við Kröfluvirkjun kl. 8 i morgun. ritari flokksins, Francesco de Martino, og loks þeir sem eftir voru. Miðstjórnin á eftir að fjalla um afsögnina en ef hún fellst á hana er talið liklegt að Giacomo Man- cini verði kjörinn leiðtogi flokks- ins. Það gæti haft mikil áhrif á möguleikana á stjórnarmyndun i landinu. Sósialistar hafa bæði fyrir ogeftir kosningar staðið fast á þvi að ganga ekki til stjórnar- samstarfs við kristilega demó- krata nema haft verði samráð við kommúnista. Sásem búist er við að verði falin stjórnarmyndun er Giulio Andreotti úr flokki kristi- legra en hann og Mancini eru aldavinir. Búist er við að Leone forseti kalli Andreotti á sinn fund í kvöld og feli honum að reyna stjórnar- myndun. upplýsingáráöherra Sýrlands á bug ákærum palestinumanna um að sýrlendingar tækju þátt i bar- dögum i Libanon. Libanskir hægrimenn hafa engar hersveitir i Baalbek sem er á svæði undir stjórn vinstrimanna. Talsmaðurinn sagði að ibúar flóttamannabúðanna Tel Al-zaat- ar sem hægri menn hafa setið um i þrjár vikur hefðu endurheimt um 100 metra breiða landræmu vestan við búðirnar úr höndum hægrimanna. Sjónarvottar kváð- usthafa séð 35ibúa búðanna gefa sig á vald hægrimönnum sem af- hentu þá Rauða krossinum. Otvarpsstöð hægrimanna sagði i dag að sveitir hægrimanna sem sækja i norður um Koura hérað væru nú við suðurjaðar Tripoli sem vinstrimenn ráða. Palestinumenn kváðust hafa söðvað sókn hægrimanna á þess- um slóðum en þeir bjuggust við að þorpið Dedde sem er sex km fyrir sunnan Tripoli félli á hverri stundu. Eldar loga enn glatt i oliu- hreinsunarstöð nærri hafnar- borginni Sidón i suðurhluta iands- ins en hún varð fyrir sprengju- og eldflaugaárás fyrir fjórum dög- um. Stöð þessi sér Beirut og Suður-Libanon fyrir öllu elds- neyti. t Kairó sitja ráðherrar Araba- bandalagsins enn á fundi og ræða hugsanlega lausn á deilunni i Libanon. I dag þóttust þeir hafa komist niður á lausn en sú von brást stuttu siðar. Kínverjar Afhenda Tan- zam-j árnbraut Lusaka 13/7 reuter ntb — A morgun, miövikudag, taka stjórnir Tansaniu og Sambiu formlega við járnbrautinni frá ParesSalaam til Kapiri Mposi i Sambiu úr höndum kinvcrja sem lögðu hana. • Brautin hefur hlotið nafnið Tanzam-járnbrautin. Hún er 1.860 km löng og hefur verið sex ár i lagningu. Þegar mest var um að vera við gerð hennar unnu við hana 15 þúsund kfaverjar og 36 þúsund innfæddir. Lagning þessarar brautar er langstærsta þróunaraðstoðin sem kinverjar hafa veitt þjóðum þriðja heims- ins. Þegar stjórnir Tansaníu og Sambiu orðuðu lagningu þessarar brautar fyrst og óskuðu eftir stuðningi við hana sagði Alþjóða- bankinn að hún væri óarðbær. Fyrirbragðið neituðu bæði bretar og bandarikjamenn aðtaka þátt i verkinu. Kinverjar buðust til að leggja fram sinn skerf þegar Sambia lokaði landamærum Ródesiu árið 1973/en þar með lokaðist helsta útflutningsleið Sambiu. Auk þess að fjármagna brautina hafa kinverjar veitt Tansaniu og Sambiu vaxtalaust lánað að upphæð 415 miljónir dollara sem á að endurgreiðast i erlendum gjaldeyri á 30 árum og hefjast endurgreiðslur á næsta áratug. Kinverjar taka einnig að sér að greiða 45 miljón dollara kostnaðarauka sem varð við lagningu brautarinnar. Loks sjá kinverjar löndunum fyrirþúsund tæknimönnum sem eiga að annast rekstur brautar- innar fyrstu árin. Jarðskjálftar í Júgóslavíu Ljubljana, Júgóslaviu 13/7 reut‘ er — öflugur jarðskjálfti varp i héraðinu Nova Mesto i norð- vesturhluta Júgóslaviu i dag og olli hann nokkrum skemmdum. Ekki var getið um manntjón i fyrstu fréttum. I gær urðu þrir minniháttar jarðskjálftar á sama svæði. miðja vegu milli Ljubljana og Zagreb.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.