Þjóðviljinn - 14.07.1976, Side 5
Miðvikudagur 14. júli 1976 ÞJóDVILJINN — SÍÐA 5
Ekki liður svodagur aðlönd-
in fyrir Miðjarðarhafsbotni séu
ekki I fréttunum, stjórnmála-
þrætur þar og vfgaferli. Miklu
færra fréttist af gangi mála
nokkru austar og sunnar, við
Persaflóann og um Arabfuskag-
ann sunnanverðan. Þarna er þó
mikilvægasta ollusvæði heims
og segir sig þvi sjálft að margir
reyna að hafa hönd f bagga með
þróun stjórnmála og valdatafls
á þeim slóðum.
Alþýðulýðveldið Suður-Jem-
en, sem myndað var Ur fýrrver-
andi breskum nýlendum og
verndarsvæðum suðvestan á
skaganum með Aden sem höf-
uðborg, hefur lengi verið grönn-
um slnum og Vesturveldunum
mikill þyrnir i auga. Landið
varð sjálfstætt 1967 eftir langt
og grimmilegt skæ'rustriö við
breta, og skömmu slðar voru
teknir þar upp sósiallskir stjórn
arhættir og þjóðarbúskapur.
Síðan varð Suöur-Jemen griö-
land útlaga frá grannrikjunum,
Múhameð Resa Pahlavi, trans-
keisari. Stórveldishyggja hans
hefur orðið til þess að þjappa
saman hinu sósialíska Suð-
ur-Jemen og afturhaldssömum
grönnum þess.
legar fjárupphæðir aö láni, þótt
svo að þessi riki hafi ekki enn
stjórnmálasamband við Suð-
ur-Jemen. Og á þessu ári brá
svo við að Saúdi-Arabia, svarn-
asti óvinur alþýðulýðveldisins
til þessa, aðalriki skagans og
oliuauöugasta land heims viður-
kenndi stjórn Suður-Jemens og
er slðan farin að veita henni
efnahagsaöstoö.
Stórveldisdraumar
keisarans
Eins og nærri má geta kemur'
þessi stefnubreyting granna
Suður-Jemens ekki til af góöu.
Meginástæðan er ótti þessara
rikja við vaxandi umsvif írans-
keisara á Persaflóasvæðinu og I
Öman. Múhameð Resa Pahlavi
gengst upp I draumum um aö
verða konungur konunganna á
borö við Kýros og Darlos og
vegna ollunnar ogannars er rlki
hans orðið allmáttugt efnahags-
lega og hernaðarlega. Eins og
sakir standa ræður hann inn-
Breytt viðhorf
á Arabíuskaga
sem öll hafa meira eöa minna
Ihalds- eða afturhaldssamt
stjórnarfar: Norður-Jemen,
Saúdi-Arabía, furstadæmin við
Persaflóann, Oman. Suö-
ur-Jemen veitti útlögunum frá
rikjum þessum stjórnmálaleg-
an og efnáhagslegan stuðning
eftir maétti og stúddi aukheldur
við bakið á byltingarhreyfing-
um I grannlöndunum sjálfum,
einkum Alþýðuflylkingunni til
frelsunar Öman, sem I meira en
áratug hefur haldiö uppi strlð
gegn furstanum þar I landi og
hefur fylkið Dofar, vestast I
landinu við landamæri Suð-
ur-Jemens, að miklu leyti á slnu
valdi.
Soldáninn og góðvinir
hans.
Þótt sjaldan hafi verið minnst
á borgarastyrjöldina I óman I
fréttum, hafa rfkisleiðtogar og
fjármálamenn um allan heim
fylgst þar með gangi mála af
ýtrasta áhuga. Vesturveldin,
Ihaldssömu Arabarikin og
Iranskeisari hafa af fáum óvin-
um meiri beyg en þeim fáeinu
hundruðum eða þúsundum
skæruliða ómönsku alþýðufylk-
ingarinnar, sem enn halda velli
iglóðheitum klungrum og auön-
um Dofer. Þessir aðilar svitna
af skelfingu við þá tilhugsun, að
skæruliöum þessum takist að ná
völdum i Óman og útbreiöa
byltingu slna til Sameinuðu
furstadæmanna þar fyrir norð-
vestan. Þetta myndi þýða að
ekki einungis gætu byltingar-
sinnaðir sóslalistar ráðið sigl-
ingum til og frá oliusvæðunum
við Persaflóa heldur og væri
drjúgur hluti ollusvæðanna
kominn I þeirra hendur.
Soldáninn I Óman, sem Kabús
heitir, er fremur illa þokkaður
af þegnum slnum, og leikur
varla nokkur vafi á þvl aðhann
væri fallinn fyrir löngu, ef hann
ætti ekki að sterka góðvini er-
lendis. Óman var um langt skeið
breskt „verndarsvæði”, og
bretar hafa aldrei sleppt af þvl
hendinni. Þeir sjá Kabúsi fyrir
vopnum og „hernaðarráðgjöf-
um”, og svipaðan styrk hefur
soldán fengið frá Jórdaniukóngi
og fleirum. Mest hefur þó mun-
að um Persakeisara, en hann
hefur árum saman haft I Óman
fjölmennan her, llklega tlu til
tuttugu þúsund manns, og má
seg ja að siöustu árin hafi sá her
borið hita og þunga dagsins I
viðureigninni við Alþýðufylk-
inguna. Persakeisara skortir
ekki fé til að búa her sinn öllum
hinum bestu vopnum og tækj-
um, auk þess sem herstyrkur
irana og Ómanssoldáns er
margfaldur á við liðsafla Al-
þýðufylkingarinnar. Þetta hefur
haft þær eðlilegu afleiðingar að
upp á slðkastið hefur hallað
verulega á Alþýðufylkinguna I
stríðinu.
Stefnubreyting gagn-
vart Suður-Jemen
Óvild flestra rikja á Arabíu-
skaga gagnvart Suður-Jemen
vegna stjórnarfarsins þar og
stuðnings við Alþýðufylkinguna
I óman hefur baeði birst I þvl að
þau hafa stutt með ráðum og
dáðsuðurjemenska útlaga, sem
vilja núverandi stjórn feiga, og
einangrað Suður-Jemen eftir
bestu getu stjórnmálalega og
efnahagslega. Nú er hinsvegar
að verða á þessu breyting. Kú-
væt og Abú Dabi, það rlkasta af
Sameinuðu furstadæmunum,
hafa veitt Suður-Jemen veru-
siglingunni I Persaflóann og
hefur töglin og hagldirnar I Óm-
an fyrir tilstilli hers slhs þar.
Eftir að bretar fóru með her
sinn frá Persaflóasvæðinu hefur
keisarinn ekki farið I neina
launkofa með að hann telji að
Iran eigi að taka viö sem drottn-
andi svæðisins og tók tíl dæmis
með vopnavaldi smáeyjar
nokkrar I innsiglingu flóans,
sem einhver fustadæmanna
töldu sig eiga.
Arabisk samhyggja
gegn irönum
Það er einkum smárikjunum
á vesturströnd flóans, Kúvæt og
Sameinuöu furstadæmunum,
sem stendur ógn af stórveldis-
draumum keisarans. Og
Saúdi-Arabía, sem telur sjálf-
sagt að hún sé talin aðalveldið I
Arabluskaganum, er greinilega
einnig þeirrar skoðunar, að timi
sé kominn til að benda Persa-
keisara á að halda sig sin megin
fióans.
Ljóst er að ráðamenn Suð-
ur-Jemens taki þessari afstöðu-
breytingu grannrlkjanna fagn-
andi, enda er land þetta sárfá-
tækt og hefur rika þörf fyrir ut-
anaðkomandi efnahagsaðstoð.
Hætt er við að suöurjemenar
verði að borga þá aöstoö með
þvi að draga úr stuðningi viö
marxlskar byltingarhreyfingar
I Óman og viðar. En stjórn Suð-
ur-Jemens mun vera orðin úr-
kula vonar um að Alþýöufylk-
ingin I Oman sigri á næstunni,
og telur þvi sennilega ekki
stjórnmálalega stætt á þvl að
sinni að grundvalla utanrlkis-
stefnu sina á voninni um snar-
legan sigur sóslalismans á Ara-
biuskaga.
_dþ
Harmóníkumúsik á plötu
Tveir feðgar hér I borg, Karl
Jónatansson og sonur hans
Jónatan, hafa sett á stofn hljóm-
plötuútgáfu sem ber heitið
Akkord. Nú eru tvær fyrstu plötur
þessa nýja forlags komnar út og
er á þeim að finna harmónlkutón-
list eingöngu.
Karl Jónatansson hefur leikið á
harmóniku um áratugaskeið á
böllum, skemmtunum og I einka-
samkvæmum. Hann rak Almenna
músikskólann hér I Reykjavik
fram til ársins 1967 er hann flutt-
ist út til Danmerkur. Eftir fimm
ára dvöl þar kom hann aftur og
tók upp þráðinn við kennsluna.
Mun láta nærri að nemendur hans
séru um 800 talsins.
Plöturnar sem Akkord hefur
gefið út eru tvær eins og áður
segir, önnur breiðskifa með
harmónlkuleik þeirra Jóhanns
Jósepssonar, Bjarka Árnasonar
og Garðars Olgeirssonar. Hin er
litil og hefur að geyma fjögur lög
leikin af Kvintett Karls Jónatans-
sonar.
A minni plötunni er leikin
venjuleg tónlistsem heyrst hefur
á gömlu dönsunum hér undan-
farin ár. A þeirri stóru er hins
vegar ótruflaður einleikur en að
sögn Karls er oft kvartað undan
þvl að litið heyrist af einleik á
harmóniku, hljómsveitin yfir-
gnæfi hana alltaf. A plötunni eru
jafnt létt lög sem kalssisk.
Þremenningarnir sem leika á
stóru plötunni eru á ýmsum
aldri. Þeirra elstur er Jóhann
Jósepssonsem telst til brautryðj-
enda harmónikunnar hér á landi.
Má segja að lann sé fyrstur
Framhald á 14. siðu.
Um hhidausa
fréttamennsku
Eða bréf til Gísla J. Astþórssonar
frá höfundi
vondrar „Gyðingafréttar”
Sæll gamli nágranni.
A fimmtudaginn I síðustu viku
birtist I blaöi þlnu, og allra
landsmanna aö þvi er manni er
sagt, grein I miðopnu þar sem
þú býsnast yfir hlutleysi Þjóð-
viljans I frásögn af afrekum
israelskra hermanna á Ent-
ebbe-flugvelli I Uganda.
Nú vill svo til aö ég er höfund-
ur þessarar fréttar og þvl lang-
ar mig að eiga við þig orðastaö
smástund.
Ég ætla samt ekki að ræða um
aðgerðir Israelsmanna sem
sllkar heldur frekar aö fjalla ör-
litið um fyrirbæriö „hlutlausan
fréttaflutning” sem þér og öðr-
um blaðamönnum á Morgun-
blaöinuersvotamtímunni. Aö-
ur vil ég þó leiörétta hjá þér
eina rangfærslu. Þú vitnar I
fyrirsögn mina sem er tilvlsun
til ummæla prúðmennisins Kurt
Waldheims og segir hann hafa
boriö það til baka að hafa sagt
við fréttamann að hann áliti
innrás Israelsmanna „brot á al-
þjóðalögum”. Þetta er ekki alls
kostar rétt hjá þér. Waldheim
bar þessi orð aldrei til baka
heldur hitt aö hann hafi kallað
aögerðirnar „svíviröilega árás”
eða „flagrant aggression” á
ensku.
En vlkjum þá að hlutleysinu.
Þú segir að hlutleysi mitt I
„Gyðingafréttinni” sem þú
kallar svo sé forkastanlegt af
þvi aö „Þar (á Þjóðviljanum) er
skoðunum og fréttamiölun hik-
laust hrært saman i einni skál
þegar sá gállinnerá mönnum.”
Þetta er laukrétt, a.m.k. hvað
mig áhrærir. Mér hefur aldrei
nokkurn tlma dottið I hug að ég
væri eöa gæti yfirhöfuö oröiö
hlutlaus I skrifum mlnum. Fyrir
þvi eru ýmsar ástæöur san ég
mun nú tiunda.
Fréttamatið
1 fyrsta lagi er það plássið
sem ég hef til umráöa. Þaö er
svo takmarkað aö ekki kemst
þar fyrir nema örlitið brot af þvl
flóði sem yfir mann streymir
daglega frá fréttastofunum
Reuter og NTB. Ég neyöist þvl
til að vinna úr fréttaskeytunum,
stytta, draga saman. Þetta ger-
ið þið á Morgunblaðinu llka þó
ykkar pláss sé öllu meira. Við
þessa úrvinnslu hlýt ég aö hafa
að leiöarljósi eigið fréttamat
sem vitaskuld er ekkert loft-
kennt, hreint og skært fyrirbæri,
laust úr tengslum við aðra þætti
heilabúsins. Þetta gildir um
ykkur llka.
Ég get nefnt ykkur eitt litið
dæmi um þetta. Fyrir nokkru
ræddust þeir sálufélagar og
vopnabræöur John Vorster for-
sætisráöherra Suöur-Afriku og
Kissinger utanrikisráðherra
Bandarikjanna viö I suð-
ur-þýskum smábæ. Reuter
sendi ýtarlegar fréttir af fundi
þeirra. Ég las þessi fréttaskeyti
en I þeim sá ég ekkert nema
samviskusamlega frásögn af
hverju fótmáli höföingjanna og
útlistun á öryggisgæslu þýsku
lögreglunnar. Ég fann bókstaf-
lega ekkert bitastætt um það
hvaö hefði farið þeim á milli,
hvort einhver stefna hefði veriö
mörkuö eöa blað brotiö I sam-
skiptum rikjanna. Ég sleppti
þvi alveg að segja frá þessu þar
sem aörar fréttir og merkilegri
kröfðust birtingar. Til dæmis
fréttin frá höfuðstöövum Sam-
einuöu þjóðanna um að sendi-
maður Apartheid-nefndar SÞ
hefði þaö eftir leiötogum
blökkumanna I Suöur-Afriku aö
tala fallinna I óeirðunum á dög-
unum hefði ekki veriö á annað
hundraö eins og yfirvöld sögöu
heldur á annað þúsund. Þetta
þótti mér merk frétt og sló henni
upp.
A Morgunblaðinu fóruð þið öf-
ugt i hlutina. Þar skipaöi fundur
Vorsters og Kissingers heiðurs-
sess og Reuter-fréttin fór svo til
orörétt inn á forsiðu undir feit-
letraðri fyrirsögn. Einhvers
staöar langt inni i blaöinu, i
framhaldadálki.kom svo fréttin
sem mér fannst merkilegust.
Svona er nú fréttamatið mis-
jafnt.
Heimildirnar
1 öðru lagi eru heimildir þær
sem við báðir vinnum úr langt
frá þvl að vera hlutlausar, þaö
hlýturðu að vita. Ég get ne&it
þér eitt dæmi ef þú veist ekki
hvert ég er að fara.
Ifyrrasumar gekk hér meðal
blaöamanna undirskriftarlisti
þar sem menn gátu látiö i ljósi
stuðning sinn við baráttu Rauls
Rego ritstjóra portúgalska
blaðsins Republica. Hann hafði
lent I þvi að undirmenn hans,
prentarar og blaðamenn, neit-
uðuaö vinna lengur undir stjórn
hans og skipuðu honum að yfir-
gefa ritstjórnarskrifstofur
blaðsins.Þaðanlfrá ætluðu þeir
að reka blaöið sjálfir.
Ef marka mátti heimildir
okkar var þetta svivirðileg árás
á tjáningarfrelsið. Það var ver-
ið að þa gga niöur I merkri rödd I
portúgölskum blaöaheimi. Nú
má það vel vera rétt. En svo bar
við að á f jörur minar rak danskt
blaö sem sent hafði mann til
Lissabon til að kynna sér málið.
Hann átti m ,a. viðtöl viö starfs-
menn blaösins, þ.e. þá vondu
bófa sem höföu úthýst Rego.
Þeir sögðu danska blaöamann-
inum frá þvl að áður en herinn
gerði byltingu I aprfl 1974 hefðu
blaðamenn Republica verið af
ýmsum pólitiskum litarhætti,
þ.á m. bæði kommúnistar og
sóslalistar. Eftir byltingu fór
hins vegar að bera á þvi að
sósialistar hugðust seilast til
yfirráöa á blaðinu. Birtist það
m.a. I þvi að á timanum frá
byltinguhersins fram til þess er
Rego var úthýsthaföi 18komm-
únistum verið vikið úr stöðum
blaðamanna ogsósialistar veriö
ráðnir I staðinn.
Þetta kom aldrei fram I frétt-
um Reuters.
Nú spyr ég þig: finnst þér
Reuter sýna hlutlausa frétta-
mennsku með þvl að þegja um
brottrekstra kommúnistanna en
blása út uppreisn starfsmann-
anna gegn Rego? Eða eiga 18
blaðamenn skilið minni samúð
kollega sinna erlendra en einn
ritstjóri af þvl aö þeir eru rauðir
en hann bleikur? Eða nær tján-
ingarfrelsið aðeins til ritstjóra
og eigenda blaöa?
Ég ætla að láta þetta nægja að
sinni þótt ég gæti bætt heilmiklu
við þetta. öðrum þáttum I að-
finnslum þlnum við meðferö
Þjóðviljans á innrás israels-
manna I Uganda hefur verið og
verður e.t.v. svarað á öðrum
siðum blaðsins.
Aö svo mæltu kveð ég þig og
bið aö heilsa fjölskyldunni.
Þröstur Haraldsson.