Þjóðviljinn - 14.07.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 14.07.1976, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. júli 1976 Hæg heimatökin Rætt við Vilborgu Sverrisdóttur sundkonu „Stóri bróðir” hefur auga með hverjum manni Miklar öryggisráðstafanir á Olympiuleikunum „Stóri bróöir” er enn á Ufi og hefur vakandi auga á öllum f Oly mpiuþorpinu i Montreal. Hinir 4 þúsund keppendur sem þegar eru búnir aö koma sér fyrir þar veröa þess ekki varir, en eru þó undir stööugri gæslu sex sjón- varpsmyndavéla á lokaöri rás I beinu sambandi viö aöalstöövar lögreglunnar i Montreal. Sex myndatökuvélar til viö- bótar eru á aöalieikvanginum og hafa vakandi auga meö ef til ein- hverra vandræöa skyldi koma þegar leikarnir veröa settir á laugardag. Viö veröum strax varir viö allar mótmælaaögeröir og getum náö nærmyndum af hverjum manni i hópnum, sagöi Andre de Luca lögreglustjóri á fundi meö blaöamönnum I gær. Myndsegul- böndin veröa varöveitt ef þeirra íerður þorf viö réttarhöld sagöí iögreglustjórinn ennfremur, en hann bar ábyrgö á öllu öryggis- eftirliti á Montreal-sýningunni áriö 1967. Þeir embættismenn sem stjórna öryggisráöstöfunum hafa gert nákvæma áætlun um hugsanlegar neyöarráöstafanir. Ef eitthvaö kemur fyrir á aöal- leikvanginum munu iþróttamenn og aörir verða fluttir af hættu- svæöinu. Ef þörf krefur á aö vera hægt aö rýma leikvanginn á 20 mta. — ef ekki veröur reynt aö hefta útgöngu um aöalhliöin, bætti lögreglustjórinn viö. Frá aöalstöövum þeirra sem aögeröum stjórna eru 26 „heitar” linur til fjölmargra stööva og einnig beint útvarpssamband viö aörar öryggisstöövar. Allt þetta kerfi er svo tengt viö aöalstjórnstöövar sem hafa beint simasamband viö yfirvöld sam- bandsstjórna ef stjórnmálalegra ákvaröana verður þörf vegna að- geröa skæruliöa. Lögregluyfirvöld segja að þessi stranga aögæsia meö gestum i Olympluþorpinu sé nauösynlegur liöur i öllum aögeröum sem tryggja eiga öryggi þeirra sem á leikunum eru. Þegar hermdar- verkamenn létu til sín taka meö hörmulegum afleiöingum i Miinchen á Olympiuleikunum 1972 var fjöldi manns I heimildar- leysi án skilrikja innan keppendur i Ibúðum þeirra. um Jeran Drapeau, borgarstjói Ólympiuþorpsins f Kanada. honum hvila miklar skyldur o þar á meöal öryggisgæslan. Vilborg Sverrisdóttir i sundfélagi Hafnar- fjarðar keppir i þrem greinum á Oiympíu- leikunum, 100 m 200m og 400 m skriðsundi. Vilborg er 19 ára gömul og er nemandi í menntadeild Flens- borgarskóla, lýkur stúdentsprófi næsta vor. Hún fluttist til Hafnarfjaröar úr Reykjavik á 1. aldursári og tók þaö skýrt fram er hún ræddi viö blaöamann Þjóöviljans daginn sem hún hélt til Montreal aö hún væri hafnfirö- ingur i húö og hár. Hún er fyrsti hafnfiröingurinn sem keppir i einstaklingsgrein á Olympiu- leikum, en nokkrir hinna fræknu hafnfirsku handknattleikskappa hafa keppt á leikunum. Þaö voru hæg heimatökin hjá Vilborgu aö læra fyrstu sund- tökin þvi sundlaug þeirra hafn- firöinga er aöeins nokkrar hús- lengdir frá heimili hennar vestast á Langeyrarvegi, þar sem hún hefur átt heima frá þvi hún fluttist i Fjöröinn á 1. ári eins og áöur var sagt. Ég fór i laugina fyrst meö pabba minum, segir Vilborg, en siöar á námskeiö hjá Ingva Rafni Baldvinssyni. Fyrstu kynni min af sundi sem keppnis- iþrótt voru þau aö Lára eldri systir min keppti hjá Sundfélagi Hafnarfjaröar, hætti raunar 13 ára gömul. Ég fór þá fyrst i þetta sem grislingur I skjóli hennar. Ég var 13 ára þegar ég fór aö stunda sundiö af alvöru og fór þá aö mæta á hverri æfingu, þrjúkvöld i viku. Fyrsti þjálfari minn hjá Sundfélagi Hafnar- fjaröar var ólafur Guömundsson. Hjá honum var ég þar til Ólafur Gunnlaugsson tók viö haustiö 1974. Þó varö ég aö hætta æfingum f eitt ár vegna þess aö ég fékk i eyrun og varö aö fá mig góöa af þeim kvilla. Ég komst fyrst I landsliö 1972 þá 15 ára gömul og hef veriö þar aö mestu siöan. Þá var Guö- mundur Haröarson landsliös- þjálfari, en þegar hann fór tii framhaldsmáms i Banda- rikjunum hætti allt kvennaiiöiö en fór samt til Noregs i 8 landa keppnina. Raunar var áriö 1974 besta áriö mitt I sundinu þar til nú á þessu ári, aö mér hefur tekist aö bæta árangurinn. Fyrsta tslandsmetiö setti ég i fyrra I 25 m laug i 100 m skriö- sundi 1:03.2min. Metin sem égá nú eru i 100 m skriösundi I 25 m laug 1:03.2, f 200 m 2:14.9 og giidir þaö bæöi fyrir styttri og lengri laugog í 400 m 4:46.7 bæöi i styttri og iengri iaug. — Hvenær fór þig fyrst aö dreyma um aö komast á Olympiuleikana? — Mig hefur alltaf dreymt um þaö, en fór ekki aö eygja möguleika fyrr en eftir keppnina i Wales i sumar. Var þó ekki alltof bjartsýn, enda gekk þaö ekki þrautalaust aö ná lágmarkinu. Ég reyndi þrfvegis viö 200 m og tókst þaö loks daginn áöur en liöiö var valiö. Lágmarkiö var 2:15.0, en mér tókst aö synda þessa vegalengd á 2:14.9 svo ekki munaöi miklu. Þetta var erfltt, ég haföi enga keppni og synti ein og einnig truflaöi þetta mjög æfingar hjá mér. Þetta veröa sjáifsagt fyrstu og einu Olympiuleikarnir sen„ ég tek þátt I. Treysti mér alls ekki til aö haida þessar ströngu æfingar út I 4 ár, enda verö ég þá oröin alltof gömul. Þegar ég kom heim tek ég mér alveg hvild frá sundinu i tvo mánuöi en veit ekki hvaö veröur meö framhaldiö. Næsta ár er siöasta áriö mitt fyrir stúdents- próf og ég verö aö láta námiÖ ganga fyrir, þvi þaö er ótrúlega timafrekt aö halda sér f þeirri æfingu I sundinu sem dugir. —Hj. G. Þeir óþekktu að koma fram í dagsljósið Þaö er eins vist og tvisvar ustu helgi. Ognúhefur pólskur tveir eru fjórir, aö á ólymplu- leikunum sem hefjast i Montreal á laugardaginn mun margt óvænt gerast. Þannig hefur þaö alltaf veriö á Ólym- piuleikum, og þannig mun þaö alltaf veröa. Enda er þaö eitt hiö skemmtilegasta viö fþrótt- ir hve óvænt úrslit eiga sér oft staö. Þannig hefur þaö til aö mynda veriö I allt vor og sum- ar, aö lftt eöa óþekkt iþrótta- fólk hefur skotist uppá stjörnuhimininn. Má þar nefna sovétmanninn sem setti heimsmet i kúluvarpi um siö- hástökkvari komiö mjög á óvart. A alþjóölegu frjálsi- þróttamóti sem fram fór i Varsjá um siöustu helgi stökk hann 2,6 m. og gæti þvi hæg- lega blandaö sér i toppbarátt- una á leikunum f næstu viku. Og annar af hinum kunnu stangarstökkvurum pólverja, Wladyslaw Kozakiewics, stökk 5,60m. á þessu móti, en þaö kemur ekki svo mjög á óvart. Hástökkvarinn heitir Jacek Wszola og menn ættu kannski aö leggja nafn hans á minniö; hver veit nema hann komi á óvart I Montreai. Landsleikjunum frestað Ofært var til Færeyja i gær Eins og skýrt hefur veriö frá i fréttum, stóö til aö islendingar og færeyingar lékju tvo landsleiki i knattspyrnu i gærkveldi, en þeim varö báöum aö fresta vegna þess aö ekki var flugfært milli Islands og Færeyja i gær. Hér á landi átti ieikur leik- manna 16-18 ára aö fara fram, en úti i Færeyjum leikur 14-16 ára leikmanna. Ekkier vitaö hvenær leikjunum veröur komiö á, en sjálfsagt veröur erfitt aö koma þeim fyrir ef þeir geta ekki fariö fram I þessari viku, þar sem 1. og 2. deildarkeppnin hefst aftur af fullum krafti um næstu helgi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.