Þjóðviljinn - 14.07.1976, Page 16
DJOÐVIUINN
Miðvikudagur 14. júli 1976
Ríkisleyndarmál
r
Alagning
á voðka
2491%
Flaskan keypt á
137 krónur til
landsins, seld á
3.550 krónurl
„Þvi miður getum við ekki
gefið upp innflutningsverð á
ákveðnum víntegundum. Það
er rikisleyndarmál,” sagði
einn starfsmaöur ATVR er við
spurðumst fyrir um innkaups-
verð á vissum vintegundum á
dögunum.
Það er alls engin furða á þvi
þótt ekki sé mikill áhugi fyrir
þvi að gefa upp hvert inn-
kaupsverð vins er, þvi svo of-
boðsleg er álagningin, að tek-
ur öllu öðru fram.
En l’eyndarmál eru ekki öll
til þess að þegja yfir þeim.
Þannig hefur blaðið fengið
það upplýst, að innkaupsverð
á pólskum vodka, var á sið-
asta ári 67 cent, en mun hafa
hækkað litilsháttar og er nú
um 74 cent, eða með öðrum
orðum 137 krónur flaskan.
innkaupsverð á bandarfsk-
um vodka mun vera 89,5 cent
flaskan eða 165 krónur is-
lenskar.
Þessar tvær vintegundir eru
þær mest seldu af innfluttum
sterkum vinum. Hver flaska
af pólskum vodka er seld i
Rikinu á 3.550 krónur. Alagðar
krónur pr. flösku 3.413! Alagn-
ingin i prósentum talið 3491%!
Hver fiaska af amerisku
vodka er seld á 3.750 krónur i
ATVR. Alagðar krónur pr.
fiösku eru 3.595! Prósentu-
áiagning 2.172%!
-úþ
Manliattan-
■skákmótið:
Helgi með 2
vinninga úr
3 skákum
Helgi Olafsson er með 2
vinninga úr 3 skákum á al-
þjóðlegu skákmóti á vegum
Manhattan-skákklúbbsins i
New York.
Hann vann Bandarikja-
manninn O.Popvych i 1. umf.
og gerði jafntefli gegn Tisdall
og Weinstwein i 3. og 4. umferð
en skák hans gegn Lein frá
Sovétrikjunum i 2. umferð var
frestað.
Þrir stórmeistarar taka þátt
i mótinu. Að loknum fjórum
umferðum eru fjórir skák-
menn með 3 vinninga: Sham-
kovic (Israel), Weinstein
(bandarikin), Kaimo (Filips-
eyjar) og Rhode (bandarikin).
Vinningsskák Helga úr 1.
umferð mótsins birtist með
skýringum hans i Þjóðviljan-
um á morgun.
FRJALS
VERSLUN
í VERKI
Það er ekki einungis að
það sé ,,góður bissnis" f yr-
ir ríkissjóð að selja áfengi
hér og leggja á það nær
2.500% heldur er fsað ekki
síður ,,góður bissnis" fyrir
íslenska hauphéðna að
hafa umboð fyrir vínteg-
undir og fá í sinn vasa um-
boðslaun af vínsölu í land-
inu.
Vinumboð er að sögn eins ágæts
heildsala hér i bæ eitt hið ágæt-
asta umboð, sem nokkur kaup-
sýslumaður kemst yfir. Fyrir þvi
þarf nánast ekkert að hafa, ÁTVR
3 miljónir fyrir
nánast ekki neitt
sér um allt: pantanir, innkaup og
sölu! Sá sem þetta sagði veit vel
hvað hann er að segja þvi sjálfur
hefur hann umboð fyrir nokkur
vinfirmu.
Eftir sama heildsala hefur
blaðið og það, að venjulegast
muni umboðslaun vera 7-10%, og
10% af þeim tveimur mest seldu
vintegundum, sem hér verður lit-
illega vikið að, en það er vodka
Vibaróva og Smirnoff vodka.
Umboð fyrir Vibaróvu hefur Is.
erlenda verslunarfélagið, co.
Friðrik Sigurbjörnsson, en fyrir
Smirnoff J. P. Guðjónsson.
Af Vibaróvu voru fluttar til
landsins á vegum ÁTVR og Fri-
hafnarinnar á Keflavikurflugveili
samtals 152 þúsund flöskur á sl.
ári. Innkaupsverð hverrar flösku
er nú um 137.50 krónur og um-
boðslaun af hverri því krónur
13.50. Umboðslaun Friðriks Sig-
urbjörnssonar af þessari einu
vintegund eru þvi samkvæmt inn-
fluttu magni siðast liðins árs á
verðlagi þessa árs 2.096.000.00
krónur!
Á vegum ÁTVR og Frihafnar-
innar voru fluttar til landsins 181
þúsund flöskur af Smirnoff. Inn-
kaup^verð hverrar flösku er 165
krónur, umboðslaun af hverru
flösku eru þvi 16,50 krónur. Með
sama hætti og áður sést þvi að
umboðslaunin nema rétt tæpum 3
miljónum króna af þessari einu
vintegund eða 2.986.500.00 krón-
um!
Er hér um harla góðar fúlgur
að ræða fyrir nánast ekki neitt, og
er þó ekki allt talið, þvi umboðs-
laun fá islenskir af vinum, sem
herliðið i Miönesheiði drekkur, en
um þann innflutning sjá banda-
riksir umboðsmenn og fslenskar
hendur koma þar hvergi nærri.
Þess má að lokum geta, að
Þjóðviljinn hefur það eftir áreið-
anlegum heimildum, að skatta-
lögreglan sé þessa dagana að yf-
irfara innflutningsskýrsiur á vin-
um og bera saman við framtöl
innflytjenda. —úþ
Rannsóknaráð ríkisins:
Gefur út skýrslu um
upplýsinguþj ónustu
Hlutverk Rannsóknaráðs rik- að vinna að öflun margháttaðra
isins hefur frá upphafi verið það, upplýsinga fyrir rannsóknar-
Þrennt slasaðist
I gær varð harður árekstur á
horni Miklubrautar og Grensás-
vegar, þar sem rákust saman
sendiferð^bill úr Reykjavik og
fólksbill með G númeri. Okumenn
beggja bifreiðanna slösuðust svo
og farþegi i fólksbilnum og voru
allir fluttir á slysavarðstofuna,
meiðsli þeirra voru ekki alvar-
legs eðlis.
Mjög mikið hefur verið um á-
rekstra i borginni undanfarið og
verður hvorki færð né skyggni
kennt um, nú i góða veðrinu, eitt-
hvað annað kemur þar til. Til að
mynda gerðist það þegar við vor-
um að tala við umferðardeild lög-
reglunnar i gær að kallað var út i
þrjá árekstra i einu.
—S.dór
Millisvœðamótið i Sviss:
Petrosjan með forystu
Nú þegar millisvæðamótinu i
Manilla er lokið tekur hitt milli-
svæðamótið við, en þaö er haldið I
Sviss. Sumir vilja halda þvi fram
að það sé enn sterkara mót en það
sem háð var i Manilla, allavega
vantar ekki stóru nöfnin.
Nú er lokið tveimur umferðum
á mótinu i Sviss og er Petrosjan,
fyrrum heimsmeistari i efsta sæti
með 1,5 vinninga. Annars urðu
úrslit i tveimur fyrstu umferðun-
um sem hér segir:
1 1. umferö lauk aðeins tveim
skákum með sigri. Petrosjan
vann Sanguinetti (Argentinu) og
Castro (Kolombiu) vann Lomb-
ard (Sviss). Jafntefli gerðu Port-
isch og Liberzon. Tal og Czom
(Ungverjal.), Andersson og So-
sonko (Hollandi). Aðrar skákir
fóru i bið.
I 2. umferð vann Portisch landa
sinn, Csom. Matanovic vann Diaz
(Kúbu) en jafntefli gerðu Byrne
(USA) og Sosonko, Geller og Tal,
Smyslov og Gulko, Petrosjan og
Rogoff (USA), Smejkal (Tékkó-
slóvakiu) og Hubner (V-Þýska-
landi). Aðrar skákir fóru i bið.
Petrosjan er þvi efstur með 1.5
vinninga eftir tvær umferðir.
starfsemina i landinu og að dreifa
til atvinnuveganna niðurstöðum
þeirra rannsókna, sem gerðar
eru.
Rannsóknaráð leitaðist við að
vinna að þessu verkefni á árunum
1964—1969. 1 ljós kom, að grund-
völlur fyrir slika upplýsingaþjón-
ustu var þá ekki fyrir hendi hér á
landi og var þvi ekki að gert um
sinn. A siðustu árum hefur þörfin
fyrir hverskonar upplýsingaþjón-
ustu i þágu atvinnuvega, visinda
og hverskonar rannsókna á hinn
bóginn aukist gifurlega. Þvi á-
kvað Rannsóknaráð það á árinu
1974, að taka málið til endurskoð-
unar og var komið á fót sérstök-
um starfshópi eða nefnd til þess
að vinna að þvi. Voru nefndinni
falin eftirgreind verkefni:
1. Að gera tillögur tii Rann-
sóknaráðs rikisins um það,
hvernig koma megi á skipulegri,
nýtri og hagkvæmri dreifingu
tæknilegra og raunvisindalegra
upplýsinga frá
a) erlendum upplýsingamið-
stöðvum
b) innlendum rannsóknaraðil-
um.
2. Nefndin tekur afstöðu til
þess, hvort og hvernig hagkvæmt
sé fyrir islendinga að tengjast
upplýsingakerfi NORDFORSK.
Nefndin hélt alls 29 fundi og var
sá siðasti þeirra 24. maí sl. Þar
var endanlega gengið frá ýtar-
legri skýrslu um þessi mál og var
hún kynnt fréttamönnum i gær.
Rúmsíns vegna verður þessa
fundar og þeirra upplýsinga, sem
þar komu fram, ekki frekar getið
i blaðinu i dag en nánar mun um
málið fjallað á morgun.
mhg
BARUM
BfíEGST EKKI |
Vörubíla I
hjólbaröar I
IKynnið ykkur hin hagstæðu verð. B|
TÉKKNESKA BIFREIOAUMBOÐIO ■
A ISLANDI H/E
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOG! SÍMI 42606