Þjóðviljinn - 22.07.1976, Síða 1
múDviuiNN
Fimmtudagur 22. júli 1976. —41. árg. —159. tbl.
Eftirlitsmenn
Þeir 5 heppnu af 86
\_____________________J
Nýlega auglýsti sjávarútvegs-
málaráðuneytið stöður eftirlits-
manna með fiskveiðum. Eins og
áður hefur verið sagt frá i Þjóð-
viljanum sóttu 86um þessar stöð-
ur.
Nú hafa fjórir úr hópi um-
sækjenda verið ráðnir i stöðurn-
ar. Þeir eru Skafti Jónsson,
Hafnarfirði, Guðmundur Grettir
Jósefsson, Hafnarfirði, Gunnar
Hjálmarson, Reykjavik og Garð-
ar Sveinsson, Reykjavik. Einnig
mun búið að ákveða að Markús
Guðmundsson, Reykjavik verði
ráðinn i fimmtu stöðuna, en hann
er úti á sjó og þvi hefur ekki verið
hægt að ganga frá ráðningar-
samningi við hann enn.
Eftirlitsmennirnir eru allir
þekktir og reyndir skipstjórar.
Þeir munu taka til starfa mjög
fljótlega og fara fyrst á námskeið
hjá Hafrannsóknarstofnuninni,
þvi að auk eftirlitsstarfanna er
þeim ætlað að vinna rannsóknar-
störf um borð i skipunum, taka
sýni úr aflanum og mæla lengd og
aldursgreina. Hj.G.
Fjárveitmgar samþykkt
ar í rannsóknir jarð-
hræringanna
Krafla, Kelduhverfi, Axarfjörður
Ot hefur verið gefin sameigin-
leg rannsóknaráætlun fimm
stofnana vegna umbrota við
Kröflu og i sprungum i Keldu-
hverfi og Axarfirði. Rannsóknir
þessar hófust i desember sl. þeg-
ar eldur kom upp við Leirhnjúk
og skjálftar fóru um land þar
nyrðra. Athugunum hefur siðan
verið haldið áfram,i sumar hefur
verið lagt kapp á að kanna öll
verksummerki sem komu undan
snjó en veðrast fljótt i burtu.
Þar sem ekki hafði verið gert
ráð fyrir þessum verkefnum á
fjárlögum rituðu forstöðumenn
stofnananna fimm bréf til þriggja
ráðuneyta og báðu um fjárhags-
fyrirgreiðslu til þess að sinna
rannsóknum þessum. Hefur rikis-
stjórnin nú ákveðið að fallast á að
ráðist verði i þau verkefni sem
rannsóknaráætlunin tekur til og
verður varið til þeirra sérstakri
fjárveitingu. Skiptist fjár-
veitinganefndin þannig á
stofnanirnar eftir árum:
Stofnun 1976 1977 AUs
Landmælingar 935 1365 2300
Norr. eld-
fjallastöðin 844 844
Framhald ú 14. siðu.
Nú er unnið af kappi við að koma fyrir raflögnum undir gosbrunninn
sem á að vera úti i Tjörninni, en gosbrunnurinn er gjöf fyrrverandi
sendiherra Bandarikjanna, Replogle.til landsmanna. Gerð hefur verið
þurrkvi úti I tjörninni svo að hægt verði að athafna sig og er búið að
grafa upp býsn af leðju og óþrifnaði úr Tjarnarbotninum.
kennara-
40% án
réttinda
— vegna lakra
launakjara
grunnskóla
kennara
1 dómi kjaranefndar á dögun-
um er staðfest sú rótgróna skoð-
un að barnakennsla sé minna
virði i peningum en unglinga-
kennsla.
1 frétt frá Samninganefnd
Sambands isl. barnakennara
segir að nefndinni séu það mikil
vonbrigði að eftir úrskurð
kjaranefndar skuli enn vera
verulegur kjaramunur hjá
kennurum grunnskólans þrátt
fyrir sömu menntunarkröfur.
Kennarar yngri nemenda munu
starfa við kjör, er meta má 12%
lakari en þeir hefðu við kennslu
eldri nemenda.
Þá segir að fjöldi kennara-
menntaðs fólks velji sér önnur
og betur launuð störf en
kennslu. Afleiðingin sé veruleg-
ur kennaraskortur. 1 þvi sam-
bandi megi benda á að um 40%
þeirra er ráðnir voru til kennslu
við grunnskóla haustið 1975 var
fólk án kennararéttinda. Nefnd-
in varar eindregið við þeirri
stefnu sem stjórnvöld virðast
fylgja að nægjanlegt sé að
„manna” skólana, og starfs-
menntun sé ekki úrslitaatriði i
kennslu æskunnar i landinu.
Schtitz
ráðinn
til Saka
dóms
Forsvarsmenn BHM, Banda-
lags háskólamanna, boðuðu
blaðamenn á sinn fund i gær út af
birtingu kjaradóms 17. júlí sl.,
sem þeir telja að hafi sniðgengið
lagaákvæði í úrskurði sbium, og
liti nú nánast út eins og deild i
fjármáiaráðuneytinu. Telja þeir
laun á almennum vinnumarkaði
vera a.m.k. 30% og allt upp i 65%
hærri en hjá sambærilegum
starfshópum háskólamanna i
rikisþjónustu. Einsýnt sé að leið-
rétting fáist ekki nema með verk-
föllum eða öðrum aðgerðum.
Skv. lögum um kjarasamninga
opinberra starfsmanna skal
Kjaradómur viö úrlausnir sihar
hafa hliðsjón af:
1. Kjörum launþega er vinna
við sambærileg störf hjá öðrum
en rlkinu.
2. Kröfum, sem gerðar eru til
menntunar, ábyrgðar og sérhæfni
starfsmanna.
3. Afkomuhorfum þjóðarbúsins.
Háskólamenn segjast áður hafa
lýst þvi yfir, að þeir séu fúsir til
aö taka á sig til jafns við aðra þær
kjaraskerðingar sem nauðsyn-
legar kunna að reynast vegna
timabundinna efnahagsörðug-
leika en sjái hins vegar engin
haldbær rök fyrir þvi aö rikis-
starfsmenn eigi aö liða meiri
kjararýrnun en sambærilegir
starfshópar á almennum vinnu-
markaði, svo og launþegar al-
mennt, en þróunin hefur verið sú
sl. tvö ár. —GFr.
30 til 65% hærri laun
Sjá siðu 13
Vestur-þýski rannsóknarlög-
reglumaðurinn Schutz sem hing-
að kom að frumkvæði dómsmála-
ráðherra til þess að kynna sér
málavöxtu i Geirfinnsmálinu og
sakamálum, sem tengst hafa þvi,
hefur nú verið ráðinn til Saka-
dóms um óákveðinn tima. Herra
Schutz sem er þekktur lögreglu-
maður i heimalandi sinu er nú
kominn á eftirlaun og hyggst
beina sér að rannsókn þeirra
mála, sem islensk rannsóknaryf-
irvöld hafa ekki megnað að leysa
enn. Schutz hefur verið ráðinn til
Sakadóms svo lengi sem þurfa
þykir i sambandi við rannsókn-
ina, en I starfi hans á einnig að
felast kennsla i nýjungum og
nútimavinnubrögðum fyrir Isl.
starfsmenn Sakadóms.
Nokkrir af forsvarsmönnum BHM á blaðamannafundinum I Norræna húsinu I gær. Þeir eru taldir frá vinstri Elfa Björk Gunnarsdóttir bóka
vörður, ritari launamálaráðs BHM, dr. Jónas Bjarnason frm. BHM, Jón Ha inesson ir enntaskólakennari, forr-í. launamálaráðs BHM, Arni
Konráðsson frá Verkfræðingaféiaginu og Hólmgeir Björnsson frá Fél. Isl. náttúrufræðinga (Ljósm:eik)
vegna afstöðu fjármálaráðuneytis og kjaradóms
Sjómenn
stoltir af
starfi sinu
SJÁ BAKSlÐU
BMH HÓTAR HÖRÐU