Þjóðviljinn - 22.07.1976, Síða 6

Þjóðviljinn - 22.07.1976, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 22. júll 1976. IBM-SKÁKMÓTIÐ í AMSTERDAM FRÁ GSP ,Allt i járnum hjá íslendingunum” Hvorugum tókst að finna vinningsleiðir Amsterdam, miðvikudag 21. júli — frá Gunnari Steini Pálssyni: Guðmundur og Friðrik höfðu báðir svart I dag og sömdu um jafntefli eftir tiltölulega átakalitl- ar skákir. Þeir eru enn i miöjum hópi keppenda á IBM mótinu og eru að eigin sögn ekki ánægðir með frammistöðuna. Guðmundur tefldi i dag við hol- lenska stórmeistarann Donner og lauk skákinni með jafntefli eftir 34 leiki. — Við reyndum báðir töluvert i þessari skák, sagði Guðmundur i dag eftir skákina. — Donner tefldi byrjunina heldur ómarkvisst og ég náði fljótlega þægilegri stöðu og trúlega nokkuð betri. Senni- lega hef ég þó gert nokkur mistök er ég lék. 23... Rh5. Ég hefði betur leikið 23.Dc7. 24...Db6. En á þeim stað er drottningin vel stað- sett. Sóknarmöguleikar hefðu oröið miklu meiri en samt er lik- legt að Donner hefði alltaf tekist að halda i jafntefli, þótt þetta heföi reynst honum nokkuð erfið staöa. — Eftir uppskipti á drottning- um missti ég það frumkvæði sem éghaföi náð og i endataflinu hafði Donner heldur betri stööu. Peðið mitt á B-5 var veikt og ég þurfti að binda mannskapinn við að valda þaö. Mér tóksthinsvegar að loka taflinu kóngsmegin og gat eftir það labbað meö kóng eða riddara til þess aö valda peðið. Hann komst ekki inn i mina stööu eftir þetta og ég ekki inn i hans svo ekki var um neitt annaö að ræða en að semja. Hvítt: Donner. Svart: Guömundur Kóngs-indverskvörn. l.d4 Rf6 2.C4 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 0-0 5. Rc3 d6 6.Rf3 Rbd7 7.0-0 e5 8. e4 c6 9. h3 Db6 10.d5 Rc5 ll.Hel Bd7 12.Bfl a5 13.b3 Hfc8 14.Hbl Dd8 15. Rd2 Hcb8 16. a3 cxd5 17. cxd5 b5 18. b4 axb4 19.axb4 Ra4 20.Rxa4 Hxa4 21.Hb3 Dc8 22. Kh2 ‘ Bh6 23. Bb2 Rh5 24.Rbl Dd8 25.BC1 Bxcl 26. Dxcl Db6 27.De3 Dxe3 28.Hexe3 Kf8 29.Hec3 Ke7 30. Bd3 f5 31. f 3 Hb7 32.HC2 f4 33. g4 Rg7 34. Rc3 Haa7 Jafntefli. Skák júgóslavneska stórmeist- arans Ivkovs og Friöriks var sömuleiðis nokkuö snubbótt. — Þetta tefldist nokkuð ó- venjulega ibyrjun, sagði Friörik. — Ég var manni undir I eina þrjá leiki og ég dró það svo lengi að taka mann af Ivkov f staöinn að félagi Guðmundur kom til min og spurði hvort ég væri búinn að gleyma þvi að hann væri alltaf með einn mann i dauðanum. — Annars er litið um þessa skák að segja. Það skiptist upp á öllum mönnum nema hrókum og drottningum og staðan var þvi ó- sköp jöfn. Ekki bætti það úr skák að upp kom sú staða að hvorugur aðili gat eiginlega hreyft sig án þessað gefa á sér höggstað. Fyrir mitt leyti kom ekki annað til greina en að biða og sjá hvað and- stæöingnum dytti i hug. Ivkov hafðivissamöguleika.Hann hefði getað sótt upp á b-linu en um leið hefði komiðhjá honum veikleiki á a-3, og það leist honum litið á. Þá hefði hann getað ólmast e-ð á miðboröinu, en einnig það bauð hættu á veikleikum heim. Úr þvi að hann vildi ekki sprella var ekki um annað að gera en að semja jafntefli. Hvitt: Ivkov Svart: Friörik. Rakosinafbrigöi bragöi: 1. d4 2. C4 3. Rf3 4. Rc3 5. cxd5 6. Bg5 7. Bxf6 8. Da4+ 9. Re5 10. Rxc6 11. e3 12. Be2 13. Dc2 — 14. a3 15. Bd3 16. Dxc3 17. Dxd3 18. 0-0 19. Habl 20. Hfcl 21. Hc3 22. h3 23. g 3 af drottnmgar- Rf6 e6 d5 Bb4 exd5 h6 Dxf6 Rc6 Bd7 a5 0-0 Bxc6 Bd7 Bf5 Bxc3 Bxd3 c6 a4 Ha6 De7 g6 Kg7 jafntefli. Kortsnoj leggur Boehm lið Baráttan um efsta sætið i IBM mótinu er farin að harðna veru- lega, og eftir óvænt tap Szabo i dag, eru það einkum sovét- maðurinn Kortsnoj og englend- ingurinn Miles sem bitast um það. Ungverjinn Sax hefur einnig teflt vel i mótinu og haft mögu- leika á efsta sætinu. I dag lauk hörkuskák hollend- ingsins Boehm, sem er aðeins 25 ára, við Miles meöþvi að hún fór i bið og á að tefla hana áfram i kvöld. Skákin er fremur jafn- teflisleg, en Boehm veittist óvæntur liöstyrkur þegar hann settist hér niður i Rai-bygging- unni til þess að kanna möguleik- ana i stöðunni. Kortsnoj hefúr nefnilega setið við hlið hans þegar þetta er sent i rúman klukkutima og lagt honum lifsreglurnar fyrir endarimmuna við Miles. Sýnir það hvaö sovétmanninum er mikið i mun að hann finni vinn- ingsleið, þannig að Miles nái honum ekki á toppnum aftur. Tap Kortsnojs gegn Friðrik á tima var mikið áfall fyrir hannyen sigur Behams yfir Miles yrði kær- komin sárabót. Ungverjinn Szabo missti alla von um efsta sætið i dag er hann tapaði fyrir landa sínum Farago i skák sem var sannkallaö bræðra- vig, en ekki vinsamleg bræðra- bylta, eins og i skákum sumra landa hér áður. Skákin var einkar mikilvæg fyrir báða. Szabo barðist fyrir möguleika á efsta sætinu, en Farago fyrir að ná stórmeistaraárangri i fyrsta sinn. Leikinn var enskur leikur. Szabo tók mikla áhættu i 19. leik er hann drap peð á Ara 7. með drottningu sinni. Fyrir vikið lenti hann i miklum vandræðum, og varð að lokum i 26. leik að láta drottninguna af hendi fyrir hrók og riddara. Staða Szabo var engu að siður eldci töpuö, þar eð hann átti peð á A-linu, sem var mjög sterkt. En Farago átti möguleika á sterkri kóngssókn með drottn- inguna I broddi fylkingar, og I fer- tugasta leik tókst honum að koma henni innfyrir varnarmúr Szabo og þrengja aö kóngi hans. Eftir hróksfórn Farago i 42. leik var ekki um annað að ræða fyrir Szabo en að gefast upp. Skák þessi var tefld af míkilli list og baráttuhug og bauð upp á marga skemmtilega möguleika eins og þegar skákir gerast bestar. Hvitt: Szabo Svart: Farago. Enskur leikur. l.c4 Rf6 2.g3 e6 3. Bg2 d5 4. Rf3 Be7 5. 0-0 0-0 6.b3 b6 7. Bb2 Bb7 8.cxd5 exd5 9.d4 Re4 10. Rc3 Rd7 ll.Hcl Rdf6 12. Re5 c5 13.dxc5 Rxc3 14. Hxc3 bxc5 15. Hc2 Db6 16.Dcl Hac8 17.DÍ4 De6 18.Da4 Bd6 19.Dxa7 Hc7 20. Db6 Ha8 21. Bh3 De7 22.Rd3 d4 23. Bg2 Rd5 24.Db5 Bc6 25. Dxc4 . Rb6 26. Bxc6 Rxc4 27.Bxa8 Rxb2 28. Hxb2 h5 29.BÍ3 h4 30.Hcl f5 31. Hbc2 g5 32.g4 h3 33.gxf5 g4 34. Bxg4 De4 35. f 3 De3+ 36. Khl Hg7 37. Hgl Kf8 38. f6 Hg6 39. Rxc5 Df2 40. f 4 Bxc5 41.HXC5 Hxg4 42. Hxg4 Dxe2 Hvitur gefst upp. Guðmundur er ekki ánægöur meö frammistööu sina á IBM-mótinu Mynd: GSP. „Nú er að brýna vopnin” Amsterdam, miövikudag, 21. júli, frá Gunnari Steini Pálssyni: Guðmundur Sigurjónsson var ekki yfir sig hrifinn eftir skákina gegn Donner i dag. Hann hefur nú sex og hálfan vinning eftir 13 umferðir, og margt bendir til þess að hvor- ugur islendinganna nái stór- meistaraárangri aö þessu sinni, þe. niu vinningum. — Eina skýringin sem ég hef á þessari slælegu frammist., sagði Guðmundur i dag, er þreyta. — Ég er búinn að tefla nær látlaust siðan i desember á siðasta ári og það virðist vera kominn timi til að setjast niður og fara að brýna vopnin sem eru hætt að bita eftir langa notkun. Það má segja að þessi törn hafi byrjað hjá mér þegar ég tefldi i Hastings um jólin og i byrjun janúar. Eftir strangt mót þar fór ég til Spánar og kom þaðan heim til Islands eftir tveggja mánaða útivist i lok febrúar. Skömmu siðar kom langt mót i Las Palmas og svo Cabablanca mótiö á Kúbu, mánaðarlangt. Að þvi loknu fékk ég tveggja vikna fri fyrir IBM mótið hér i Amsterdam og i raun og veru sé ég ekki fram á langt og gott fri fyrr en i október. Framundan er á tslandi alþjóðlegt mót i ágúst og að þvi loknu tefli ég með Friðriki i Júgóslaviu. — Það verður þvi komið fram i október þegar ég get sest niður til þess að stúdera svolltið. Ekki er vanþörf á og ég held ég þurfi talsverðan tima til þess að reyna aö drifa mig upp aftur. A morgun, fimmtudag, teflir Guðmundur við ungverjann Szabo, en Fr'.ðrik við júgó- slavann Velimirovic. Urslit og staða Orsliti 13. umferð IBM-mótsins 2.Sax— 8 i Amsterdam: 3. Miles —- 7 1/2 Gipslis — Kortsnoj 1/2-1/2 + biðskák. Ivkov —Friðrik 1/2-1/2 4. Farago 7 1/2. Velimirovic — Kurajica 1/2-1/2 5.-6. Velimirovic, Szabo — 7 Sax — Langeweg 1-0 7.-11. Guðm. Kurajicia, Donner — Guðmundur 1/2-1/2 Friðrik ogGipslis 6 1/2 Szabo — Farago 0-1 12. Boehm — 6+biðskák. Ligterink — Ree 0-1 13. Ivkov — 6. Boehm — Miles Staðan eftir 13. umferð. Biðskák 14.-15. Donner — Ligterink 16. Langeweg — 4 1/2 1. Kortsnoj — 8 1/2 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.