Þjóðviljinn - 22.07.1976, Side 7

Þjóðviljinn - 22.07.1976, Side 7
Fimmtudagur 22. jdlf 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 ,,Ég fékk styrk til þess að fara til islands og hef verið hér í mánuð og kynnst íslenskum rithöfundum, en hvort ég á eftir að skrifa eitthvað frá islandi er enn óvíst" sagði sænski rithöfundurinn Inger Brattström, sem hér hefur dvalistað undanförnu. Inger er þekktur rithöfund- ur og hefur skrifað 45 bækur, mest unglingabækur, en einnig barnabækur og ferðalýsingar, m.a. frá Indlandi. Hún hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir rit- störf sin, setiði stjórn sænska rithöfundasjóðsins, rithöf- undasambandsins og einnig hefur hún verið í stjórn rit- höfundamiðstöðvarinnar (Författarcentrum). Hún hef- ur einnig verið í stjórn þess hóps innan rithöfundasam- bandsins, sem skrifar fyrir börn og unglinga og i sam- starfshópi kvenrithöfunda. Fyrstu bók sfna skrifaði Ing- er aðeins 16 ára gömul, en flestar bækur hennar fjalla um daglegt líf unglinga. yáumingja pabbi’ sögðu börnin þegar ég sagðist œtla að byrja á nýrri bók. „Það eru ennþá raddir uppi sem segja að barnabækur eigi fyrst og fremst að vera ævintýri. Börn eigi að fá að vera börn og það eigi að hlifa þeim við öllum vandamálum i bókum. En þessar raddir heyrast þó æ sjaldnar, þvi flestir sjá að það er ekki hægt að ýta til hliðar þeim vandamálum „Flestum karlmönnum leiöist kvenréttindatal” sem við eigum við að striða i dag og geta verið bæði mikil og þung- bær, þó’tt við eigum að búa i vel- ferðarþjóðfélagi. Og þessar bæk- ur höfða oft ekki siður til imynd- unarafls og þær verða að vera spennandi og skemmtilegar. Ég hef lika skrifað töluvert um van- þróuðu löndin og lýst lifinu þar „Barnabækur verða að spegla veruleikann” eins og ég hef kynnst þvi t.d. á Indlandi. Mér finnst full ástæða til að sýna börnum aðra mynda af þessum fjarlægu löndum, en bara ævintýralega frumskóga með spennandi dýrum og brúnum börnum. Þess i stað hef ég reynt að draga fram i minum bókum daglegt lif og vandamál þessara „Ekki hægt að ýta vandamálun- um til hliðar” Rœtt við sœnska rithöfundinn Inger Brattström, sem hefur skrifað 45 bœkur fyrir börn og unglinga. barna, á sama hátt og ég hef reynt að spegla raunveruleika velferðarþjóðfélagsins i öðrum bókum.” „Geturðu sagt okkur eitthvað frá sænsku rithöfundamiðstöð- inni?” „Já, hún hefur bætt mjög stöðu rithöfunda i Sviþjóö og auk- ið tengsl þeirra við lesendur, báð- um hópunum til góða. Viö förum i skóla, fyrirtæki og ýmsar stofn- anir, kynnum bækur okkar og e.fni þeirra, ræðum við fólk og ræðum saman innbyrðis. Þannig fáum við stöðuga umræðu um allt sem rithöfundum dettur i hug að setja á prent. Sem dæmi má nefna að nú fyrir stuttu var haldin Chile vika, þar sem rithöfundar kynntu efni bóka, sem ritaðar hafa verið um Chile og ástandiö þar. Þá hafa rithöfundar sérstakan sjóð, sem greiðir öllum rithöfundum, sem gefið hafa út nokkrar bækur og sýnt hæfni, ákveöin mánaðarlaun sem tryggingu og hefur þessi sjóður bætt mjög aðstöðu rithöf- unda i Sviþjóð.” „Og nú vinnur þú með hópi kvenrithöfunda innan rithöfunda- sambandsins?” „Já, við ætlum að reyna að komast að þvi hvort það sé einhver mismunur ferður á kynjum i rithöfundastéttinni. Þar er fyrst og fremst um að ræða hvort stjórnendur útgáfufyrir- tækja og aðrir aðilar sem rithöf- undar þurfa að eiga mikil sam- skipti við mism'uni kynjunum. Það hefur nefnilega viljað brenna við að útgefendur hafi meiri áhuga á fjarlægum vandamálum, striði og heimspólitik en svo nær- tækum hlut sem jafnrétti kynj- anna i þeirra eigin heimalandi. Karlmönnum finnst gjarnan að barátta kvenna fyrir jafnrétti sé bara leiðinleg en margir kvenrit- höfundar hafa fjallað um þá bar- áttu. Auðvitað eru svo aðrar hlið- ar á þessu sem erfitt verður að kanna. Sjálf á ég 5 börn og varð að skrifa margar minar bækur á nóttunni, á meðan börnin voru lit- il. Þá var ekki tii umræðu að karl- mennirnir hugsuðu um börnin eins og konan. Ég man t.d. þegar ég sagði eitt sinn við matarborðið heima að nú yrði ég að fara að koma mér til að skrifa bók, sem ég hafði samið um við útgefanda, en ekki getað gefið mér tima til að byrja á. Þá sagði eitt barnanna minna: „Aumingja pabbi”. En nú er þetta sem betur fer allt að breytast. Ungt fólk i dag hugsar yfirleitt öðru visi en við gerðum þegar við vorum ung.” „Hverju þakkarðu þessar breytingar fyrst og fremst? Hefur skóíinn átt stóran þátt i þessari breytingu? „Nei, ég er hrædd um að skól- anum verði litið þakkað i þessu sambandi. 1 raun og veru hefur þetta fylgt aukinni þátttöku kvenna i atvinnulifinu. Konur hafa kannski ekki endilega fariö út á vinnumarkaðinn af þvi að þær vildu fara að heiman og fara út að vinna heldur frekar af þvi að velferðarkapphlaupið hefur náð tökum á þeim og þær orðið að fá sér vinnu til að geta staðist sam- anburð við aðra i efnahagslegri velferð. Oft hefur gleymst að taka börnin inn i umræðuna um jafn- rétti kynjanna. Aðrir segja: „Já, en börnin eru mikilvægust. Að ala upp börn er þýðingarmesta starf- ið sem hægt er að velja sér”. En einhverra hluta vegna er þetta ekkert sérstaklega mikilvægt fyr- ir karlmenn, heldur bara fyrir konur. Þvi má ekki gleyma þvi að i nútimaþjóðfélagi er oft hægt að skapa börnum miklu þroskavæn- legra og öruggara uppeldi á dag- vistunarstofnunum, en það má Framhald á 14. siðu. Sigurður A. í „opnuhúsi” Bindindismót í Galtalækjarskógi Umdæmisstúkan nr. 1 og um- dæmisráð islenskra ungtemplara halda mót i Galtahekjarskógi um verslunarmannaheigin;a, og er þetta niunda mótið, sem haldið er á þessum stað. Tilgangur bindindismótanna er sá, að gefa fólki kost á að njóta fagurs umhverfis og góðrar skemmtunar án áfengis um verslunarmannahelgina. Eins og að undanförnu, verður fjölbreytt dagskrá alla mótsdag- ana. Hljómsveitirnar Mexikó og Næturgalar leika fyrir dansi á stórum danspalli og i stóru sam- komutjaldi öll kvöldin. Auk þess skemmta Baldur Brjánsson, Gisli Rúnar Jónsson, Edda Þórarinsdóttir, Jörundur Guðmundsson, Kristinn Hallsson og Magnús Jónsson. Inga og Silja frá Akranesi syngja og dansa i barnatimanum kl. 15 á sunnudeg- inum. Ýmislegt fleira verður til skemmtunar, svo sem flugelda- sýning, góðaksturskeppni og hátiðaræða. Kl. 13.30 á sunnudeg- inum verður flutt messa undir stjórn sr. Bjöns Jónssonar prests á Akranesi. Dagskráin i heild verður aug- lýst siöar. „Sumarsýning99 opnuð á laugardag Frá Galtalækjarskógi tilefni 1100 ára afmælis Islands- byggðar, sýnd. Með myndinni er norskur texti. llúsið verður opið frá kl. 20:00- 23:00. I bókasafninu veröa til sýnis nokkrar bækur um Island á norð- urlandamálunum, og ennfremur islenskar bækur, sem þýddar hafa verið á hin noröurlandamál- in, svo og ýmist annað efni, sem varðar Island. 1 anddyri hússins hefur verið komið upp sýningu um islenska torfbæinn. Forsagan er sú, að hópur nemenda i byggingarlist við Arósarháskóla ferðaðist i fyrrasumar um Skagafjörð og rannsakaði og gerði uppdrætti af gömlum skagfirskum torfbæjum, og er árangur þess hér til sýnis. Fimmtudagskvöldið 29. júli verður Hörður Agústsson, list- málari, i „opnu húsi”. Ræðir hann um forna islenska bygging- arlist og sýnir skuggamyndir til skýringar máli sinu. Að lokum má geta þess, að laugardagurinn 24. júli verður opnuð „Sumarsýning” i sýning- arsölum Norræna hússins. Þar sýna Hjörleifur Sigúrðsson, Ragnheiður Jónsdóttir Ream og Snorri Sveinn Friðriksson oliu- og vatnslitamyndir. Verður sú sýn- ing opin daglega kl. 14:00-22:00 til 15. ágúst. Siguröur A. Magnússon, rithöf- undur, spjallar um islenskar nútimabókmenntir i „opna hús- inu” fimmtudagskvöldið 22. júli kl. 20:30. Flytur hann mál sitt á sænsku. Siðar um kvöldið verður kvik- myndin „Þrjú andlit Islands”, sem Magnús Magnússon gerði i Siguröur A. Magnússon

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.