Þjóðviljinn - 22.07.1976, Síða 11
Fimmtudagur 22. júlí 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
QOG3 D©QO[pODQODin]
Nýr skatt-
rannsóknastj óri
Fjarmálaráöherra hetur
skipað Garöar Valdimarsson i
embætti skattrannsóknastjóra
við embætti rikisskattstjóra frá
og með 1. október 1976.
Garðar Valdimarsson er
fæddur 19. ágúst 1945. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla Islands vorið 1966 og em-
bættisprófi i lögfræði frá Há-
skóla Islands árið 1972. Garðar
hlaut löggildingu sem endur-
skoðandi á árinu 1975, en námi
löggiltra endurskoðenda lauk
hann sumarið 1974.
Siðan haustið 1974 hefur Garð-
ar stundað framhaldsnám i
skattarétti við Kaupmanna-
hafnarháskóla, og er nú að ljúka
ritgerð um tekjuhugtak is-
lenskra tekjuskattslaga og þró-
un þess frá 1921-19 71. Ritgerð
þessi er unnin fyrir Nordisk
Skattevidenskabligt Forsk-
ningsraad, sem veitt hef-
ur Garðari sérstakan styrk til
þeirra rannsóknarstarfa, sem
ritgerðin byggist á.
Garðar Valdimarsson er
kvæntur Brynhildi Brynjólfs-
dóttur. .
Helgi Skúli ritar Fræðimenn
samvinnusögu í húsi Jóns
Aðalfundur Sambands isl.
samvinnufélaga samþykkti nú i
vor að fela Sambandsstjórn að
láta rita sögu samvinnu-
hreyfingarinnar á Islandi. Nú
hefur verið ráðinn sérstakur
starfsmaður til þessa verks, i
samráði við Sagnfræðistofnun
Háskóla Islands. Er það Helgi
Skúli Kjartansson B.A., en hann
lýkur kandidatsprófi i íslands-
Sögu nú i haust og mun eftir það
koma til starfa hjá Sam-
bandinu, þar sem hann mun
vinna að þessu verki. Á þessu
stigi er stefnt að þvi að hér verði
um að ræða minnst þriggja
binda verk, sem út komi árið
1982 á aldarafmæli elsta kaupfé-
lags landsins, Kf. Þingeyinga,
og þar með samvinnustarfs á
íslandi.
Sigurðssonar
Stjórn húss Jóns Sigurðssonar
hefur samþykkt að veita eftir-
töldum aðilum kost á afnotum
af fræðimannsibúð hússins á
timabilinu 1. september 1976 til
31. ágúst 1977:
1. Ólafur Bjarnason próf., dr.
méd., frá 1. september 1976 til
30. nóvember 1976.
2. Þór Magnússon þjóðminja-
vörður, frá 1. desember 1976 til
28. febrúar 1977.
3. Páll A. Pálsson yfirdýralækn-
ir, frá 1. mars 1977 til 31. mai
1977.
4. Ari Gisl'ason fræðimaður og
kennari, frá 1. júni 1977 til 31.
ágúst 1977.
Að þessu sinni sóttu alls 21
aðili um dvöl i fræðimannsibúð
hússins.
Plöntu-
greiningar-
ferð í kvöld
Saga Hallgríms
Kristinssonar
Hinn 6. júli voru eitt hundrað
ár liðin frá fæðingu Hallgrims
Kristinssonar. Hallgrimur var
fyrsti forstjóri Sambands isl.
samvinnufélaga og einn mesti
brautryðjandi samvinnustarfs
hér á landi fyrr og siðar.
A aðalfundi Sambands isl.
samvinnufélaga áriö 1962 var
samþykkt að Sambandið skyldi
láta rita sögu Hallgrims. Páll H.
Jónsson frá Laugum, sem þá
var ritstjori Samvinnunnar, var
ráðinn til þessa verks, og lauk
hann þvi fyrir um það bil
tveimur árum. Nú er ráðið, að
rit þetta komi út á næsta hausti
hjá Bókaforlagi Odds Björns-
sonar á Akureyri. Bókin mun
bera heitið „Úr Djúpadal að
Arnarhóli, saga Hallgrims
Kristinssonar”, og verður hún
allmikið rit, á fimmta hundrað
blaðsiður. Er þar rakin ævi
Hallgrims og gerð ýtarleg grein
fyrir afskiptum hans að við-
skipamálum, þar á meðal störf-
um hans fyrir Kf. Eyfirðinga og
Sambands isl. samvinnufélaga.
Þá er einnig rækilega greint frá
þeim erfiðleikum, sem steðjuðu
að á árunum kringum 1920, og
einnig þeim árásum, sem sam-
vinnufélög og forsvarsmenn
þeirra urðu fyrir.
10% afsláttur
hjá Interrent
Félag islenskra bifreiða-
eigenda hefur gert samning við
bilaleigufyrirtækið Interrent
um afslátt fyrir fálagsmenn
F.I.B. Nemur afsláttur þessi
10% af allri leigu.
Interrent er ein af stærstu
bilaleigum heimsins og á um
8000 bila, sem leigðir eru út i
flest öllum löndum heims.
Þar sem mjög margir is-
lendingar taka bil á leigu
erlendis, ætti samningur þessi
að stuðla að auknum gjaldeyris-
sparnaði þjóðarinnar, jafn-
framt þvi að minnka útgjöld
ferðamanna erlendis.
Samningur þessi tekur gildi 1.
ágúst 1976.
íslensk
sj ávarútvegsmál
i World Fishing.
I lok mai dvöldu hér á landi
tveir blaðamenn frá timaritinu
World Fishing i London til að
safna efni i ágúst-hefti timarits-
sins, sem helgað verður íslandi
og Færeyjum. Meðal annars
áttu þeir viðtöl við forsvars-
menn islenskra fyrirtækja, sem
hafa sýnt áhuga á að flytja út
tæki'til fiskveiða og fiskiðnaðar,
og er að vænta greina um þessi
tæki i heftinu.
Þess má geta að World Fish-
ing er annað tveggja stærstu
fiskveiðitimarita sem gefin eru
út i dag. (Frá ÚI)
Markaðskönn-
unarferð
til Alaska
Dagana 12.-28. júni fóru þeir
Þórður Magnússon frá
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
og Tómas Holton i Hildu h.f. til
vesturstrandar Bandarikjanna
og Alaska til markaðsathugana
fyrir Max h.f. Reykjavik, á
regnfatnaði.
A siðatliðnu ári voru tilraunir
i smáum stil hafnar með út-
flutning kvenregnfatnaðar og
báru þær tilraunirþann árangur
að tilraunapantanir bárust á
þessu ári frá Kanada og austur-
strönd Bandarikjanna.
1 þessari ferð var lögð aðalá-
hersla á markaðskönnun fyrir
sjó- og vinnufatnað og voru
vesturströnd Bandarikjanna og
Alaska valin með tilliti til likra
ytri aðstæðna i samanburði við
Island. þ.e. veðurfar og útgerð.
Ingólfur Daviðsson
Skógræktarfélag Hafnar-
fjarðar efnir til plöntu-
greiningarferðar i kvöld kl. 20.
Farið verður stundvislega frá
tþróttahúsi Hafnarfjarðar við
Strandgötu. Ætlast er til að
þátttakendur sjái sér sjálfir
fyrir farkosti.
Farið verður að girðingum
félagsins fyrir ofan Hafnarfjörð
og plöntulif skoðað i girðingun-
um og nágrenni þeirra. Leið-
beinandi verður Ingólfur
Daviðsson, grasafræðingur.
Gott er ef þátttakendur hafa
með sér bók meö stifum spjöld-
um ef þeir óska eftir þvi að
safna plöntum i ferðinni og skrá
heiti þeirra. Ollum er heimil
þátttaka.
P. F. málning í Færeyjum
Nýstofnuð málningarverk-
smiðja i Færeyjum P/F
Málning sem keypt hefur fram-
leiðsluréttindi af H/F Málningu
i Kópavogi, gengur mjög vel að
sögn forsvarsmanna fyrirtækis*
ins. Er áætlað er framleiða um
150.000 litra af oliumálningu á
þessu ári og er hér um að ræða
skipamálningu og Þol. Meðal
stærstu hluthafa i P/F Málningu
eru skipasmiöstöðvar og
dráttarbrautir i Færeyjum og
nota þær nú eingöngu þessa
málningu. Sparar þetta
stöðvunum birgðahald, þvi áður
var málning keypt inn frá verk-
smiöjum i Danmörku. Fær-
eysk/islenska málningin er mun
ódýrari en danska málningin,
þar eð ekki er greiddur inn-
flutningstollur af hráefni i Fær-
eyjum, en innflutningsgjald af
fullunninni málningu er 13%).
(Frá ÚI)
A.
Jóhanna meðal mynda sinna I sýningarsai Súm.
Jóhanna
sýnir
i Eyjum
Jóhanna Bogadóttir opnar sýn-
ingu I Félagsheimilinu i Vest-
mannaeyjum, laugardaginn 24.
júli, kl. 15. Sýningin stendur i
fjóra daga. A henni eru grafik-
myndir og teikningar. Þetta er
sölusýning.
Eg vildi óska að þú létir þér nægja að stilla bara kraftinn i
skellinöðrunn: þinni....
Heyröu elskan, ég held að hr. Möller vilji fara að fá sláttuvélina sina
aftur....