Þjóðviljinn - 22.07.1976, Page 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. júll 1976.
Fjölmennt norrænt
endurskoðendaþing
Á mánudaginn hefst i Reykja-
vik fjögurra daga þing norrænna
endurskoðenda, sem á 4 hundrað
manns sækja. Þetta er ellefta
norræna þingið og það fyrsta sem
haldið er hér. islenskir þátttak-
endur verða 55 og er það um
helmingur starfandi löggiltra
endurskoðenda hér á landi.
Umræðuefni þingsins veröa
tvö: Góö endurskoðunarvenja i
nútið og framtlð og áritun og
skýrsla endurskoðanda. Tveir
fyrirlestrar verða um hvort efnið
og verða þeir fluttir að Hótel
Sögu. Bertil Edlund frá Sviðþjóð
og Stig-Erik Schaumburg-Muller
frá Danmörku hafa framsögn um
fyrrnefnda efnið en Erik Amund-
sen frá Noregi og Tagi Andersen
frá Danmörku umhið siöara. Að
loknum framsöguerindum fyrir-
lesara fara fram hópumræður og
á siðasta degi þingsins verða al-
mennar umræður.
Starfsemi löggiltra endurskoð-
anda hefur tekið mikium breyt-
ingum á síðari árum með breytt-
um viðskiptaháttum og aöstæöum
i þjóðfélaginu. Til að mynda hefur
tölvuvinnsla bókhalds leitt til
breyttra starfshátta og nýrrar
tækni við könnun bókhalds og
reikningsskila.
Bæði þau efni sem rædd verða á
þinginu eru ofarlega á baugi með-
al endurskoðenda um þessar
mundir. Fyrra efnið, góð endur-
skoðunarvenja, fjallar um hvern-
ig endurskoðanda ber að haga
endurskoðuri sinni og hvaða aö-
gerðum og tækni hann skuli beita
til þess endanlega að geta látið i
ljósi álit sitt á áreiðanleika árs-
reiknings. En siðara efnið, áritun
endurskoðanda, fjallar um
hvernig eða meö hvaða hætti
endurskoðandi kemur á framfæri
til lesanda (notanda) ársreikn-
ings áliti slnu.
Nú um nokkurt skeið hefur ver-
ið unniö að samræmingu laga um
hlutafélög á Norðurlöndunum og
hafa reyndar ný lög þegar verið
samþykkt I Danmörku og Noregi
um þetta efni en I þeim er m.a.
nánar kveðið á um starf endur-
skoðenda en áður var. Gera má
ráð fyrir að væntanleg ný lög um
hlutafélög hér á landi veröi mjög
svipuð þeim dönsku og norsku.
Hin nýja hiutafélagalöggjöf mun
koma til umræðu á þinginu enda
hefur hún haft og mun hafa veru-
leg áhrif á störf endurskoðenda.
fþróttir
Framhald af bls. 9.
við dómgæsluna. Það likaði
Grétari ekki sem vonlegt er.
Eftir þennan leik er greinilegt
að það er aðeins Fram sem getur
veitt Valsmönnum keppni um
efsta sætið. Þó gætu akurnesing-
ar erin blandað sér i baráttuna,
þvi að þeir eiga eftir heimaleiki
bæði gegn Val og Fram.
—Hj.G.
Víkingur 11 6 1 4 15-14 13
Breiðablik 10 4 2 4 12-13 10
Fjárveitingar
Framhald af bls. 1.
Raunvisinda-
stofnun 3459 1791 5250
Veðurstofan 716 500 1216
Samtals 5954 3656 9610
Til þess að samræma rann-
sóknir og sjá um túlkun og birt-
ingu á niðurstöðum hefur verið
komið á samstarfshópi með ein-
um fulltrúa frá hverri stofnun. Er
gert ráð fyrir að hópurinn sendi
frá sér skýrslu um gang mála
eigi sjaldnar en á þriggja mánaða
fresti. Hópinn skipa: Karl Grön-
vold, formaður, Bragi Guð-
mundsson, Eysteinn Tryggvason
og Ragnar Stefánsson. Með hópn-
um starfar Guðmundur Pálma-
son vegna samræmingar þessara
rannsókna við rannsóknir Orku-
stofnunar.
Á1
Framhald af bls. 16
(460.7) milj. kr., til Kröflu 415,0
(0) milj. kr.
Þau skip sem flutt hafa verið
inn á fyrra helmingi ásins er sem
hér segir eftirtöldum (verð I milj.
kr.)
1 skuttogari frá Noregi 516,9.
1 vöruflutningaskip frá Spáni
185,8.
1 vöruflutningaskip frá V-
Þýskalandi 281,7.
1 skipsskrokkur frá Noregi
210.6.
10 flotaprammar frá Noregi
14.1.
5 þangskurðarprammar frá
Bandarikjunum 53.6.
Flugvélainnflutningurinn er
þessi: 1 þyrla frá Bandarikjunum
35.9 milj. kr., 3 litlar flugvélar 9.7
milj. kr. og 2 svifflugur 0.9 milj.
kr.
Harðorð
Framhald af bls. 16
rýmkun verkfallsréttarins er
brýnt viðfangsefni. Nú má öllum
vera ljóst að leiðrétting fæst ekki
á kjörum félagsmanna ef ekki er
hægt að setja þunga verkfalls-
vopnsins á bak við kröfurnar. 1
þessu tilviki ber að undirstrika að
kröfugerð félagsins var hógvær
og langt frá því að nálgast þær
viðmiðanir, er félagsmenn hafa
út á hinn svo nefnda frjálsa
vinnumarkað. Þó er niðurstaða
Kjaranefndar langt frá þvi að
mæta kröfugerðinni.
í 4. tbl. Félagstiðinda starfs-
mannafélagsins segir:
„Niðurstaða Kjaranefndar
mun væntanlega gefa vlsbend-
ingu um, hvernig haga verði
kjarabáráttu I komandi samning-
um. Ef ekki verður gengið veru-
lega til móts við kröfur SFR,
hlýtur að verða litið á „dóminn”
sem hvatningu til að hefja um-
fangsmikinn undirbúning fyrir
beitingu verkfallsréttar að ári.”
Niðurstaðan liggur nú fyrir og
hún felur I sér að undirbúningur
fyrir næstu samninga eé hafinn.
Nú reynir á samtakamátt og
virkni rlkisstarfsmanna, þar sem
viö hljótum að stefna að þvi að
brúa það bil, sem er á kjörum
okkar og annarra, sem þó hafa
slst við of góð kjör að búa.”
Seinni ályktun fundarins er á
þessa leið:
„Trúnaðarráð SFR felur stjórn
félagsins að leita nú þegar eftir
samstöðu og samvinnu við önnur
félög innan BSRB til undirbún-
ings aðalkjaraasamningi á næsta
ári, þá með verkfallsréttinn að
bakhjarli, og fá á þann hátt leið-
réttingu þá sem nú var hafnað.”
Nánar verður sagt frá
trúnaðarmannaráðsfundi SFR á
siðunni Vinnan og verkafólk I
Þjóðviljanum á laugardag.
—GFr.
Pabbi
Framhald af 17. siðu.
bara eki hafa börnin of lengi þar.
Margir virðast ekki skilja þörf
barnanna fyrir að vera á slikum
stofnunum og lita bara á þær sem
geymslustað, fyrir börn t.d. ein-
stæðra mæðra, sem verða að
vinna úti.”
„Hafa samt ekki orðið gifurleg-
ar breytingar I Sviþjóð á undan-
förnum árum hvað snertir dag-
vistunarmál?”
„Jú, en þó vantar mikið á að
þörfinni sé fullnægt. Það hefur
mikið verið rætt um þörfina á að
lögbinda 6 tima vinnudag fyrir
foreldra ungra barna, en það hef-
ur þó ekki verið samþykkt enn,
þar sem margir vilja krefjast 6
tima vinnudags fyrir alla, en á
þvi höfum við ekki efni ennþá. Nú
fá foreldrar allt að 8 mánaða
barneignarfri og er þá bundið við
að faðirinn taki einhvern hluta
frisins. Það bætir um leið stöðu
konunnar á vinnumarkaðinum,
þar sem barneignarfri eru ekki
lengur eingöngu fyrir konur,
heldur verða vinnuveitendur I öll-
um greinum að vera tilbúnir að
veita slik fri fyrir starfsmenn
sina, hvort sem þeir eru konur
eða karlar. 3ja mánaða barneign-
arfri, eins og er t.d. hér er allt of
litið, en með þvi að veita 8 mán-
aða fri sparar hið opinbera sér
lika að byggja vöggustofur.”
„Að lokum, Inger, hvað ferðu
að fást við þegar heim kemur?”
i.Mig langar mikið til að
skrifa meira um vanþróuðu lönd-
in og vonast til að komast til
Kashmir og skrifa bók þaðan.”
sagði Inger Brattström að lokum.
Hærri laun
Framhald af 13. siðu.
hjá rikinu um rúm 20%.
Sem dæmi um launakjör há-
skólamanna má nefna, að byrjun-
arlaun háskólamenntaðra gagn-
fræðaskólakennara., miðað við 1.
júli 1976 voru kr. 92.788 á mánuði,
byrjunarlaun presta kr. 109.091 og
menntask. kenn. 95.636 og sérfr. á
visindastofnunum 92.788. Staö-
reyndin er að um 70% allra há-
skólamanna i rikisþjónustu hafa
byrjunarlaun lægri en 113.000.
Auk þess bera opinberir starfs-
menn mun þyngri skattabyrðar
en almennt gerist vegna mikils
undandráttar tekna og skattsvika
og átelur BHM harðlega aðgerða-
leysi stjórnvalda i þessum efnum.
Afstaða fjármálaráðuneytisihs
I viöræðum við BHM i lok sl. árs
sem yfirleitt áður var með þeim
hætti, að BHM telur sig ekki geta
tekið þátt i slikum sýndarviðræð-
um á nýjan leik, en samn. nefnd
rikisins virðist hvorki hafa umboð
tilsamninga né tima til samn.við-
ræðna.
Mikil óánægja rlkir nú i röðum
rikisstarfsmanna og virðist nú
þrautreynt að nauðsynleg leið-
rétting mun ekki ná fram að
ganga án verkfalls eða annarra
aðgerða,
Ekiö verOur um Mývatnssveit og viOar.
Sumarferð AB á Norðurlandi vestra 24.-25. júli:
Vesturdalur
Sprengisandur
Bárðardalur—Krafla
öllum er heimil þátttaka i
þessari sumarferð Alþýöu-
bandalagsins á Norðurlandi
vestra. Farið verður frá
Varmahllð laugardaginn 24. júli
n.k. ki. 10. ÞátUakendur koma
til Varmahliðar að morgni laug-
ardags,ýmist i einkabflum eða
langferðabilum og verður það
skipulagt, þegar meira er vitað
um þátttöku.
Fyrsti áfangastaðurinn er
eyðibýlið Þorljútsstaðir i Vest-
urdal, en þar veröur haldlð upp
á hálendið og ekið um Reyöar-
fell og Orravatnsrústir að sælu-
húsi við Laugafell og siðan
noröur Sprengisandsleið niður I
Bárðardal þar sem gist er I
tjöldum aöfaran. sunnud. og
efnt til kvöldv. I HaUdórsst. sk.
A sunnudag liggur leiöin um
Mývatnssveit, þar sem margt
er að skoða og þaðan til virkjun-
ar og jarðeldasvæðis við Kröflu,
en siðan verður ekið um Akur-
eyri til Varmahliðar, þar sem
teiðir skilja á sunnudagskvöld.
Allir þátttakendur i ferðinni
þurfa að hafa með sér viðlegu-
búnar og nesti til tveggja daga.
Þátttökugjald veröur kr.
5.000,-, en þátttakendur yngri en
12 ára borga hálft gjald.
Væntaniegir þátttakendur
láta skrá sig og fá nánari upp-
lýsingar hjá eftirtöldum:
Hvammstangi:
Þóröur Skúlason, Hvamms-
tangabraut 19, sfmi 1382.
Blönduós:
örn Ragnarsson, kennarabú-
stað Kvennaskólans, slmi 4249.
Skagaströnd:
Eðvarð Hallgrimsson, Fella-
braut 1, sfmi 4685.
Varmahlið.:.
Hailveig Thorlacius, Mánaþúfu,
simi 6128.
Sauðárkrókur:
Svava Hjaltadóttir, Ægisstig 10,
simi 5237.
Hofsós:
Gisli Kristjánsson, Kárastig 16,
simi 6341.
Siglufjörður:
Sigurður Hlöðversson, simi
71406.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
iagsins á norðurlandi vestra.
Skrifstofan Grcttisgötu 3
Skrifstofan að Grettisgötu 3 veröur þennan mánuð opin daglega frá
kl. 11 til 13 og frá kl. 16-19. Siminn er 28655.
Neskaupstað — Gönguferð sunnu-
daginn 25. júlí
Alþýðubandalagið I Neskaupstað efnir til gönguferðar I Fannardal og
á Fönn sunnudaginn 25. júli, ef veöur leyfir.
Lagt verður upp frá Egilbúð kl. 9 um morguninn og ekið inn i Fannar-
dal á einkabilum og með rútu fyrir þá sem þess óska með fyrirvara, og
eru þeir beðnir að hafa samband við Kristinu Lundberg eðaSigrúnu
Þormóðsdóttur. öllum er heimil þátttaka, en börnum þó aðeins I fylgd
fulloröinna. Vanir leiösögumenn stjórna ferðinni og miðlað verður
ýmsum fróðleik.
Muniö nesti, hliföarföt og góöan göngubúnað!
Stjórn Alþýöubandalagsins
i Neskaupstaö.