Þjóðviljinn - 23.07.1976, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.07.1976, Qupperneq 3
Föstudagur 23. júli 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Uganda Allt í hers höndum Efnahagslifið lamað vegna eldneytisskorts og fjórðungur hersins tekur þátt i uppreisninni Nairobi 22/7 reuter ntb — Diplómatar i Nairobi, höfuðborg Kenýa, halda þvi fram að Idi Amin forseti Uganda eigi nú við meiri erfiðleika að stríða en nokkru sinni siðan hann komst til valda árið 1971. Sagt er að meir en fjórðungur þeirra 12 þúsund manna sem her landsins telurtaki nú þátt i andófi gegn Amin. Rikisútvarpið i Kampala staðfesti i dag að nokkru leyti fyrri fréttir um að uppreisn hafi verið gerð i herjum landsins. Var sagt að sex manns, þar af fjórir háttsettir herforingj- ar, hafi verið handteknir fyrir Hípreisnartilraun. Að sögn blaða I Kenýa hefur stór hluti hersins Framhald á bls. 14, Enn er sprengt í Lissabon Lissabon 22/7 reuter — öflug sprengja sprakk i nótt fyrir utan skrifstofur rikisf lugféiags Mósambik i Lissabon, DETA. Olli hún miklu eignatjóni, en engan mann sakaði. Þetta er i annað sinn á tveimur sólarhringum sem sprengjutil- ræði eru gerð við eignir fyrr- verandi nýlendna portúgala. Sólarhring áður voru skrifstofur MPLA i borginni stórskemmdar i sprengingu, en engan sakaöi þá heldur. Portúgalska utanrikisráðu- neytið lýsti þvi yfir i gær að þeir sem gerðu sprengjuárásirnar á skrifstofur MPLA vildu „tefja eða koma i veg fyrir viðræður” milli portúgala og angólumanna. Sambúð portúgala við stjórnvöld i fyrrverandi nýlendum sinum hafa farið mjög versnandi upp á siðkastið. Eignarnám í Nígeríu Accra 22/7 reuter — Stjórnvöld i Nigeriu hafa tekið 121 fyrirtæki i landinu eignarnámi, en þau voru öll i eigu útlendinga, að þvi er fréttastofa landsins skýrði frá i dag. Að sögn fréttastofunnar voru fyrirtækin tekin eignarnámi vegna þess að þau brutu i bága við lög sem kveða á um, að einungis nigeriumenn megi eiga ákveðnar tegundir fyrirtækja. í sömu heimild sagði að fyrir- tækin yrðu öll boðin innfæddum til kaups siðar á þessu ári. Loðnan úr nótinni Fyrsta sumarloðnan barst til Neskaupstaðar i gær er Börkur kom með 500 lestir. Hcfur þá borist loðna til 5 staða I sumar, mesttil Siglufjarðar eða iiðiega 7 þúsund lestir. Þjóðviljinn ræddi i gærkvöld yið Hjálmar Vilhjálmsson leið- angursstjóra á Bjarna Sæ- mundssyni þar sem skipið var við loðnuleit norður af landinu. Hann sagði að bátarnir sem nú munu vera um 20 talsins væru nú að á svæði 75-90 milur norður Og norðvestur af Horni. Þar hef- ur fundist mikið af loðnu, en nokkuð erfiðlega gengur að inn- byrða hana þvi hún er stygg,auk þess sem hún er átulitil og mjóslegin og á þvi auðvelt með að smjúga úr nótum bátanna. Hjálmar sagði að svo virtist sem hún gæfi sig allan sólar- hringinn, en þó einna helst á rtóttunni og fram eftir morgni. Siðustu daga hafa fengið mest 50-60 tonn i kasti, en i gær skán- aði það aðeins og fengust þá aUt upp i 100 tonna köst. — Það get- ur þvi verið mikið verk að fylia einn bát. — Við höfum verið með bát- unum undanfarna daga, en nú höfum við fært okkur til norð- austurs þar sem við erum að leita að þeirri loðnu sem skipin voru að fá á dögunum noiður af Siglunesi. Það var feit og góð loðna.en svo var eins og hún guf- smýgur Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur. aði upp. Nú er ætlunin að leita hana uppi. — Hvernig hefur þessi vertið gengið? — Hún hefur gengið vonum framar má ég segja. Það hefur ekki staðið á að finna loðnuna og hún hefur brugðist vel við af og til. Þaðmá ekki búast við sama kraftinum i þessu og að vetrin- um, en ef þetta fer sem horfir ætti að vera framtið i þessum veiðum. — Hversu gömul er þessi loðna? — Þetta er loðna sem verður 3 og 4 ára I vetur. Meiripartur- inn af henni gengur til hrygn- ingarivetur. Yngri loðnan held- ur sig nær landi. —ÞH Breskir flóttamenn frá Uganda við komuna til Nairobi. Strokukona handtekin Vestur-Berlin 22/7 reuter — Lögregla i Vestur-Berlln handtók i dag Moniku Berberich sem strauk úr fangelsi i borginni 7. júli sl. ásamt þremur öðrum konum. Hún var handtekin á götu úti I Kurfurstendamm sem er þekkt verslunarhverfi. Að sögn lögreglu hafði hún fengið visbendingu um að Berberich héldi sig þarna. Þegar hún sá lögreglumenn nálgast greip húnbyssu upp úr tösku sinni en lögreglanaívopnaði hana áður en hún gæti hleypt af. Hún hafði engin persónuskilriki á sér, en hins vegar margar passamyndir og dró lögreglan þá ályktun að hún hefði ætlað að fá sér falsað vegabréf. Berberich var dæmd i 12 ára fangelsi árið 1974 fyrir bankarán og „aðild aö glæpasamtökum”, þe. Rauðu herdeildinni sem gjarna er kölluð Baader-Meinhof hópurinn. Hinar þrjár sem flýðu um leið og hún ganga enn lausar. Hérerverið að bera lik fallinna palestinumanna út úr flóttamannabúð- unum Tal El-zaatar i Beirut sem hægrimenn hafa setið um i fimm vik- ur. Libanon Viðræður hafnar Beirut 22/7 reuter — Sendinefnd frá samtök- um palestinumanna átti i dag tveggja klukku- stunda fund með Abdel Halim Khaddam utan- rikisráðherra Sýriands og fleiri leiðtogum Baath-flokksins sýr- lenska, að þvi er tals- maður palestinumanna sagði i Beirut. Hann sagði litið um það sem fram fór á fundinum en gat þess að forsætisráðherra Libýu, Abd- el-Salam Jalloud, heföi setið hann lengst af. Sendimaður Arababandalags- ins i Beirut lýsti i dag ánægju sinni með aðgerðir friðargæslu- sveita frá Saudi-Arabiu sem komu i dag upp vopnlausu belti milli sveita hægrimanna sem ráða eystri hluta Beirut og vinstrimanna og palestinumanna sem ráða vestari hlutanum. Skot- iö var á friðargæslusveitirnar og féllu þrir menn úr röðum þeirra. Sveitir úr Alþjóða Rauöa krossinum urðu enn i dag að hætta við að fara inn i flótta- mannabúðirnar Tel Al-Zaatar i Beirut þar sem margir særðir menn biða flutnings á sjúkrahús. Sveitir þær sem berjast um búðirnar höfðu fallist á að virða vopnahié i umsátrinu um þær i gær svo hægt yrði að sinna sjúkraflutningum þessum en það samkomulag hefur nú verið brot- ið tvo daga i röð. Suður-Afrika Skólar opnaðir á ný Jóhannesarborg 22/7 reuter — Skólar I blökkumannahverfum Pretoriu og Jóhannesarborgar opnuðu dyr sinar nemendum i dag eftir að hafa verið lokaðir siðan 16. júni sl. þegar óeirðirnar miklu hófust i Soweto. Ekki kom til alvarl. átaka af þessu tilefni, nema á einum stað að sögn yfirvalda. í bænum Boipatong um 50 km suður af Jó- hannesarborg beitti lögregla táragasi til að dreifa um 100 svertingjum, aðallega skólabörn- um, sem tóku að grýta lögreglubil og annan bil I eigu rikisins. Til stóð að skólarnir hæfu störf að nýju 20. júni, en dómsmálaráð- herra landsins frestaði þvi um óá- kveðinn tim a af ótta við frekarió- eirðir i blökkumannahverfunum. Ráðherrann, James Kruger, sagði i dag að hann hefði rætt við leiðtoga blökkumanna i gærkvöld og hefðu þeir sannfært sig um aö hætta væri á frekari óeirðum ef skólanemendur gengju mikið lengur um iðjulausir. Heitir neðan- jarðar- klettar London 22/7 reuter — Breskir oliuleitarmenn hafa fundið klettabelti langt undir botni Norðursjávar sem er svo heitt að nægjanlegt er til að sjóða vatn við hitann, að þvi er segir i nýútkominni skýrslu breskrar stjórnarstofnunar á sviði orku mála. I skýrslunni segir ennfremur að viða undir breskri jörð megi finna heita kletta og neðan jarðarhveri sem vert sé að athuga hvort ekki megi nýta. Miklum upplýsingum hefur verið safnað um klettana undir botni Norðursjávar og hefur þar mælst meiri hiti en á nokkrum öðrum stað á Bret- landseyjum. I skýrslunni er hvatt til þess að menn athugi möguleika nýtingu þessa neðanjarðarhita eftir að oliulindirnar i Norðursjó fara að þverra i lok aldarinnar Bretland Stjórnin hyggst spara miljarð London 22/7 reuter — Breska rikisstjórnin tilkynnti i dag að húnhygðistdraga úr rlkisútgjöld- um sem næmi einum miljarði sterlingspunda á fjárhagsárinu' sem hefet I april á næsta ári. Stærstu liðirnir sem spara á eru fjárfestingar i þjóðnýttum iðn- fyrirtækjum, lán til húsnæðis- mála og varnarmál. Þó verður ekki sparað á hernaðaraðstoð við erlend riki. Þingmenn stjórnarandstöðunn- ar fögnuöu þessari ákvörðun sem skrefi i átttil jafnvægis i efnahgs- málum og tú styrktar á stöðu pundsins. Úr viðskiptalifinu heyrðust þær raddir að þessi sparnaður væri bæði of litill og kæmi of seint. Þingmenn úr vinstra armi Verkamannaflokksins hristu hins vegar höfuðin og einn þeirra sagði við f jármálaráðherrann: — Það kann að vera með þessu aukirðu tfaust alþjóðlegra lána- stofnana en þú glatar trausti verkalýðshreyfingarinnar i stað- inn. Atvinnideysi hefur aldrei verið meira i Bretlandi frá striðs- lokum. Nær það til 6,3% verk- færra manna eða alls 1.463.000. Fjármálaráðherrann, Denis Healey, sagðist vona að tala at- vinnulausra færi að lækka fyrir árslok, en viðurkenndi þó að sparnaðaráætlanirnar myndu draga úr batanum i atvinnumál- um.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.