Þjóðviljinn - 23.07.1976, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. júll 1976.
Skák Friðriks og Velimirovic
Hvítt: Friðrik Ólafsson 22. Df5 Hd6
Svart: Velimirovic 23. h4 g4
1. C4 Rf6 24. Be2 Be8
2. Rc3 c5 25. Bc4 Kg7
3. Rf3 e6 26. Kh2 Db4
4. e3 Be7 27. He4 a4
5. d4 0-0 28. h5 ab3
6. dxc5 Bxc5 29. Bxf7 Kxf7
7. a3 a5 30. Dg6+ Ke6
8. Be2 d5 31. Hdxd4 Dxd4
9. 0-0 Rc6 32. Hxd4 Hxd4
10. Dc2 De7 33. Bh4 Hf8
11. b3 d4 34. Dbl Hb4
12. exd4 Rxd4 35. del Hb5
13. Rd4 Bd4 36. Dc3 Rd5
14. Bg5 h6 37. Dc4 Hb4
15. Bh4 g5 38. Dc5 Hd8
16. Bg3 e5 39. Bxd4 b2
17. Hadl Bd7 40. Dc8+ Kd6
18. Bf3 Bc6 41. Ba5 blD
19. Hfel Da3 42. Df8 + Kc6
20. Rb5 Bb5 43. De8 + Kc5
21. cxb5 Had8 44. Dc8+, hvitur gefst upp.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
SUMARFERÐ UM
SÍÐUAFRÉTT
Arleg sumarferö Alþýðubandalagsins i
Kópavogi verður farin 13. til 15. ágúst. Lagt
verður af stað frá Þinghól Hamraborg 11
föstudaginn 13. ágúst kl. 18 og ekið að Heiöar-
seli á Siðu og tjaldað þar.
Laugardaginn 14. ágúst verður lagt af stað
árla morguns og ekið að Laka og eldstöðvar
Skaftáreldanna skoðaðar eftir þvi sem timi
vinnst til. Um kvöldið verður komið aftur i
sama tjaldstað, en tjöldin verða látin standa i
umsjá bóndans i Heiðarseli.
Sunnudaginn 15. ágúst verður haldið heim á
leið með viðkomu i Hjörleifshöfða ef veður
verður hagstætt.
Fargjald verður kr. 4500 fyrir fullorðna,en
hálft gjald fyrir 14 ára og yngri. Allir eru vel-
komnir i ferðina.
Allir þátttakendur þurfa að vera vel búnirtil
fjallaferða og hafa viðlegubúnað og nesti til
tveggja daga.
Til þess að unnt verði að fá góða fjallabila
þarf að panta farmiöa fyrir 1. ágúst i sima
40813 -- ‘41279 eða 40471.
Farmiðar verða siðan afhentir i Þinghól
föstudaginn 6. ágúst kl. 17 til 21.
Skákir islendinganna beggja fóru ibið i gær. A morgun fer fram lokaumferð skákmótsins i Amsterdam.
Auðvelt að fyrirbyggja
olíumengun í hafinu
Þegar rætt hcfur verið um
svartoliunotkun i islenskum skip-
um, veiðiskipum og fraktskipum,
hefur oft skotið upp hinum
annarlegustu mótbárum viö að
breyta yfir í svartoliu og þá úr
óliklegustu áttum. Nýjasta dæm-
ið um þetta er, að svartoliutogar-
arnir islensku mengi hafið um-
hverfis landið meira en önnur
skip, en það var sá boðskapur,
scm lesa mátti út úr tilkynningu
frá Siglingamálastofnun ekki alls
fyrir löngu.
Nú hefur það verið hrakið hér i
blaðinu að svartoliutogarar þurfi
að menga hafiö nokkuð meira en
þeir togarar eða þau skip, sem
gasoliu brenna, þvi frá þeim
kemur sist meiri oliusori en öðr-
um skipum.
Vandamálið er annað.
öll skip hafa innbyrðis svokall-
aðan oliusoratank. t slikan tank
safna þau öllum þeim oliusora og
afgangsoliu, sem um borð mynd-
ast. F.f til væri rétt að segja, að
þau ættu að gera þetta, en óvist er
um framkvæmd á þvi. Siglinga-
málastofnunin, sem á að fylgjast
með þessu og sjá svo til að oliu-
sora sé ekki dælt i sjóinn, sem er
brot i alþjóðareglum um varnir
gegn mengun á hafinu, fullyrðir
að meira eða minna sé dælt af
oliusora i sjóinn, þá annað hvort
úr oliusoratönkunum eða beint
með kjölvatninu. Þetta er vanda-
málið sem viö er að glima, annað
ekki. En sjálfsagt hefur þeim hjá
Siglingamálastofnun ekki gengið
annað til, en að fá menn til að
hætta sliku háttarlegi þegar þeir
gáfu út tilkynningu sina um oliu-
sora frá svartoliutogurum. En
þeir ágætu embættismenn mega
ekki láta atriöi fjarskylt vandan-
um blinda sig svo, að vandamálið
sjálft sjáist ekki, hvað þá lausn á
þvi.
Nú er það svo, að þrjú oliufélög
sjá um að selja islendingum oliu
frá Sovétrikjunum. Það hefur
komið fram hér i blaðinu, að oliu-
félögin myndu tapa af hreinum
gróða, amk. 5 miljónir króna á
ári, við hvern þann togara, sem
hættir að nota gasoliu en tæki að
nota svartolíu vegna mismunandi
magnálagningar á þessar tvær
oliutegundir. Jafnframt hefur i
blaðinu verið skýrt frá þvi, að
engar kvaðir eru lagðar á oliu-
félögin viðkomandi þvi, að losa
þau skip við oliusora, sem þau
selja oliu, hvort heldur það er
gasolia eða svartolia.
Við athugun tveggja siðustu
atriðanna hér að framan má
finna lausn á oliumengunarvanda
þeim, sem Siglingamálastofnunin
er að burðast við að leysa.
Lausnin er einfaldlega sú, að
gera oliufélögunum það skylt, að
taka oliusora frá skipshlið i hvert
sinn, sem þau afgreiða oliu, en
þeim sora yrði siðan fyrirkomiö á
viöunandi hátt, sem vafalaust má
gera. Skili skip ekki oliusora fær
það ekki afgreiðslu með nýja oliu,
fyrr en sekt hefur verið greidd
fyrir að brjóta alþjóðalög með því
að dæla oliusora I sjóinn.
Og vegna þess að blessuð oliu-
félögin verða nú ekki þjóðnýtt á
næstu misserum, en einsýnt er,
að þau munu tapa hundruðum
miljóna við það eitt að islenski
flotinn tæki upp á þvi að brenna
svartoliu i stað gasoliu, mætti
gera þeim hagnaðarminnkunina
betur viðunandi með þvi að þau
fengju i sinn hlut þær sektir, sem
þau innheimtu, en með þvi væri
einnig komið til móts við þau f jár-
hagslega vegna aukins kostnað-
ar, sem þau verða fyrir við að
hirða oliusora frá skipshlið.
Og n ú á Siglingamálastofnunin
næsta leik. —úþ
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Báðar skákir
íslendinganna
fóru í bið
Kortsnoj er enn efstur, en
Miles og Sax fast á eftir
Biðskákir úr 14. umferð:
Kortsnoj — Miles 1/2-1/2
Farago — Ligterink 0-1
Langeweg — Donner 1-0
Friðrik —Velimirovic 0-1
Guðmundur — Szabo afturibið
Biðskák úr 13. umferð:
Boehm—Miles 1/2-1/2
Orslitin i 14. umferð IBM-móts-
ins i Amsterdam urðu sem hér
segir:
Kortsnoj — Miles biðskák
Ree — Boehm 0-1
Farago — Ligterink biðskák
Guðmundur — Szabo bið
Langeweg — Donner bið
Kurajica — Sax 1/2-1/2
Friðrik — Velimirovic — bið
Gipslis — Ivkov 1/2-1/2
Kortsnoj.
Staöan eftir 14 umferðir:
1. Kortsnoj 9 vinn.
2. -3. Miles, Sax 8 1/2 v.
4. Velimirovic 8 v.
5. -6. Farago, Boehm 7 1/2 v.
7. Szabo 7-1- biðskák
8. -9. Kurajica, Gipslis 7 v.
10. Guðmundur 6 1/2+biðskák
11. -13. Friðrik Ivkov, Ree 6 1/2 v.
14. Ligterink 5 1/2 v.
15. Langeweg 5 v.
16. Donner 4 1/2 vinn.
Siðasta umferðin verður tefld á
morgun, laugardag.