Þjóðviljinn - 09.09.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.09.1976, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 9. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Frétt Seðlabankans i gœr um útlánatakmörkun Utlánaaukning verði ekki meiri en 20% Eins og skýrt var frá á sinum tima, geröu Seölabankinn og viöskiptabankarnir meö sér samkomulag i upphafi þessa árs um hámark útlánaaukningar viöskiptabankanna á árinu. Var samkomulagiö i samræmi viö lánsfjáráætlun rikisstjórnar- innar, sem lögö var fram i desember sl. Samkomulag þetta var endurskoöaö i mai sl. meö hliösjón af almennri verölags- þróun frá áramótum. Var þá ákveöiö aö stefna aö þvi, aö aukning annarra útlána en endur- seljanlegra birgöalána til atvinnuveganna og reglulegra viöbótarlána til sömu greina yröi ekki meiri en 16% á árinu. Aö meötöldum birgöalánum til atvinnuveganna skyldi útlána- aukningin ekki veröa meiri en 20%. Formaöur Sambands islenskra sparisjóöa tók þátt i fundum Seölabankans og viöskiptabankanna og Seölabank- inn beindi þeim tilmælum til allra sparisjóöa, aö þeir fylgdu þeirri útlánastefnu, sem aö framan greinir. Útlánaaukning bæöi viöskipta- banka og sparisj. hefur, þaö sem ■ af er ánnu, veriö verulega mein en aö var stefnt meö framan- greindu samkomulagi. Sú þróun hefur aö nokkru ráöist af árstiöa- bundinni aukningu útlána yfir sumarmánuöina, en ljóst er þó oröiö, aö gera þarf mikiö átak I stjórn útlánamála til aö takast megi aö ná settu marki i þessum efnum á árinu. Samkvæmt tölum, sem nú liggja fyrir, hafa heildarútlán viöskiptabankanna aukist um riimlega 20% fyrstu átta mánuöi ársins. Eru útlán bankanna þvi þegar komin fram úr þvi hámarki, sem sett haföi veriö fyrir áriö i heild. Birgöalán til atvinnuveganna munu aukast verulega siöustu mánuöi ársins og veröa bankarnir þvi aö draga úr öörum útlánum á næstu mánuöum til aö settu marki veröi náö. Strangt aöhald I útlánamál- um er jafnframt nauösynlegt til aö bæta mjög erfiöa lausajfar- stööu viöskiptabankanna. Framangreind viöhorf hafa veriö rædd siöustu daga á fundum Seölabankans og innlánsstofn- ana. Hafa viöskiptabankarnir þar lýst þeim ásetningi sinum aö gera þær ráöstafanir, sem til- tækar eru, til aö tryggja, aö útlánin veröi i árslok innan þess ramma, sem markaöur er i láns- fjáráætlun og meö samkomu- laginu viö Seölabankann. Jafn- framt mun Seölabankinn nú itreka tilmæli sin i þessum efnum til einstakra sparisjóöa. A fundum Seölabankans og viðskiptabankanna voru menn samdóma um þaö, aö áfram- haldandi aöhald i útlánum inn- lánsstofnana sé nauösynleg for- senda þess, að unnt veröi aö ná þeim bata i viðskiptajöfnuði, sem aö hefur veriö stefnt á þessu ári. Þótt bætt viðskiptakjör hafi þegar létt nokkuö róöurinn i þessu efni, er enn útlit fyrir nálægt 12 milj- aröa króna viöskiptahalla á árinu. Auk þess munu afborganir af erlendum lánum nema rúmum 8 miljörðum króna á árinu. Þetta hvort tveggja veröur aö jafna með nýjum erlendum lántökum aö óbreyttri gjaldeyrisstöðu. Enn frekari bati i viðskiptajöfnuði er þvi nauðsynlegur, ef stööva á sivaxandi skuldasöfnun viö útlönd. Aö þessu marki hefur veriö reynt aö stefna á þessu ári meö samræmdum aðgeröum i rikisfjármálum og peninga- málum innan lánsfjáráætlunar. Útlit er níi sem betur fer fyrir bættan hag rikissjóös á árinu eftir mikinn hallarekstur undanfarin tvö ár. Til þess að sá bati skili árangri veröur stefnan i útlánum bankanna og annarra lánastofn- ana aö miöa aö sama marki. Suður-Afrika: Mótmæli og óeirðir yíða um land HÖFÐABORG 8/9 Reuter — Lög- regla réðist meö kylfum oghagla- byssum aö um 200 kynblönduðum unglingum, sem fóru i dag I mót- mælagöngu inn i miðborg Höföa- borgar og sungu sálminn: Drott- inn er minn hiröir. Nokkrir ungl- ingar voru handteknir. t nótt skaut lögreglan til bana fjóra menn i hverfum kynblendinga umhverfis Höföaborg, samkvæmt tilkynningu lögregluyfirvaldanna sjálfra. Var mótmælagangan inn i miöborgina farin vegna þessara atburöa, og i aö minnsta kosti tveimur útborgum kynblend- inga.Ravensmead og Elsiesriver, kom einnig til mótmælaaögerða vegna drápanna. Kynblendingar eru mjög fjölmennir á Höföa- borgarsvæðinu, en alls eru þeir um 2.250.000 I Suöur-Afriku. Snemma i morgun var kveikt i gistiheimili i Soweto, þar sem fjöldi blakkra verkamanna, margir þeirra súlúar, býr, og brann nokkur hluti byggingarinn- ar. Lögreglan segir að tveir menn að minnsta kosti hafi farist i brunanum. Verkamenn, sem þarna bjuggu, eru sagðir hafa ráðist á aðra blökkumenn i Soweto fyrir tveimur vikum i mótmælaskyni viö verkfall svartra verkamanna, en i þeim óeiröum voru aö sögn 35 blökku- menn drepnir. Sigriður Framhald af bls. 16. ins i ávarpi sfnu I gær frekar en svo oft áöur. Sagöi hann, aö árangur af umtali iönrekenda viö stjórn- endur landsins vegna aöstööu- leysis islensks iönaöar heföi ekki oröiö sem skyldi og spuröi siöan hvort tregöan i kerfinu væri slik oröin, aö leiötogar, sem segjast vilja vel, fái ekki viö neitt ráöiö? Sagöist formaöurinn þó leyfa sér aö halda aö nú hillti undir skilning meö ráöamönnum og sifellt fleiri ráöamenn sæju hvar skórinn kreppti. Sagði Daviö siöan, aö þaö væri slæmt fyrir islenskan iönað og viðgang hans, aö útlendingar nytu forréttinda hérlendis íyrir framleiðslu sina fram yfir islenska framleiöendur. Fullyrti hann, að enginn erlendur iönrek- andi myndi vilja setja á stofn fyrirtæki hér ef hann ætti aö búa viö sömu aöstæöur og islenskur iönaöur býr við. Nefndi Daviö i þessu sambandi aö sama útlánaþak væri hjá lána- stofnunum varðandi peningalán til islensks iönreksturs og til inn- flutnings fullunninnar vöru og aö vextir af fé, sem lánað væri til iönreksturs væru 1/3 hærri en þeir vextir, sem greiddir eru af lánum sem veitt eru til annarra höfuöatvinnugreina landsmanna. Skoraöi Daviö loks- á næsta alþingi aö taka til athugunar vandamál islensks iönaöar og sjá svo til, aö hann nyti sambæri- legra kjara og aöstööu viö aörar höfuöatvinnugreinar og sitji ekki viö lægra borö en erlendir aöilar á íslenskum markaöi, og fuilyrti hann aö isl. iönaöur gæti lyft Grettistaki fengi hann aöstööu til þess. islenskt þjóðarstolt Þessu næst ávarpaöi Sigrlöur Skarphéöinsdóttir, verkakona, gesti sýningarinnir og opnaöi hana formlega. Sagöi hún þá sögu, aö hún heföi séö hér I fata- búö fallega kápu, sem hún ætlaöi að kaupa. Heföi hún spurt hvort kápan væri ekki islensk, en fengiö það svar, aö hún væri dönsk. Siðar heföi þó komiö I ljós aö kápan var islensk. — Hvers vegna var mér sagt aö kápan væri útlensk, spuröi Sigriöur. — Ef verk okkar eru svo góö að hægt er aö selja þau sem útlensk þvl þá ekki aö nota þjóðarstolitiö og selja fram- leiösluna sem Islenska gæöa- vöru? Loks mælti Sigriöur eitthvaö á þessa leiö: — Hér væri engin sýning nú ef ekki væri islenskt iönverkafólk, iönverkafólk, sem þó fær lægst laun verkafólks á íslandi I dag. islensk föt '76 Aö lokinni ræöu Sigriöar hófst ein viöamesta tlskusýning, sem hér hefur verið haldin. Mátti af henni sjá, aö Islenskur fataiön- aöur stendur á háu stigi, og varö ekki annaö séö með ófagmanns- legum augum blaðamanns, en framleiösla þessi stæði fyllilega jafnfætfs þvi, sem til landsins er flutt af þessu tagi, og selt er I verslunum. Rétt er aö geta þess, aö tlsku- sýningar veröa daglega á meðan á fatasýningunni stendur og frekar tvær hvern dag en ein. Að lokinni tiskusýningu gekk blaðamaöur um sýningarsvæðiö. tók hann tali framkvæmdastjóra og aöaleiganda önnu Þórðar- dóttur hf. prjónastofu, eins og firmaö heitir, Hörö Sveinsson. Sagöi hann aö fyrirtæki sitt hefði einvörðungu selt á innan- landsmarkaöi til þessa, en nú yröi reynt á erlendum markaöi og eru til sýnis peysur úr isl. ull, sem fyrirtækiö ætlar aö reyna aö selja úti I hinum stóra heimi, en þar verður einnig reynt aö selja jakka og kápur. Sagöi Höröur aö aöstaöan á innanlandsmarkaöi væri aö veröa mjög erfiö fyrir Islenska fram- leiöendur. Astæöan er sú, aö til landsins eru flutt fullunnin föt frá Ausut-Evrópu, sem eru ódýr svo og frá láglaunasvæðum Asiu. Mun Island vera eina landið viðloöandi Efnahagsbandalagiö, sem ekki hefur reist sér tolla- múra vegna Aslufatnaðarins til verndar sinni eigin framleiöslu. Hvaö er þá til ráöa? spuröi blaöamaöur. Jú, aö gengiö sé rétt skráö, svaraði iönrekandinn að bragöi. Taldi hann aö islenska krónan væri skráö I of háu veröi nú miöaö viö erlendan gjaldeyri. — Verðbólgan hér innanlands vex svo mikið meöan gengi stendur nærri þvi i staö, sem þýöir aö viö veröum aö taka á okkar sifelldar verðhækkanir hér en erlenda varan hækkar ekki i neinu samræmi viö aukinn til- kostnaö hjá okkur. Þetta veikir að sjálfsögöu samkeppnisaöstööu okkar, sagöi Höröur aö lokum. —úþ Erlendar fréttir í stuttu máli Carter biðlar til atvinnuleysingja SCRANTON, Pennsylvanlu 8/9 Reuter — Jimmy Carter hét I dag aö beita áhrifum sinum sem forseti til þess aö ráöa fram úr vandræöum atvinnuleysingja i Banda- rikjunum, ef hann yröi kosinn. Bandariskir atvinnu- leysingjar eru nú hálf áttunda miljón talsins eða nærri átta af hundraöi vinnuaflsins I landinu. Carterkom fram meö þessi loforð i viöræöum viö atvinnulausan múrara, af- greiöslustúlku á veitingahúsi, sem aöeins hefur vinnu nokkurn hluta dags, og starfs- mann vindlaverksmiðju sem hefur verið lokaö. Carter gæti haft fulla þörf fyrir stuöning atvinnuleys- ingja, þvi aö kaþólikkar viröast honum margir gramir sökum þess aö hann hefur neitað aö koma banni viö fóstureyöingum inn i stjórn- arskrá Bandarikjanna. Þegar hann kom til Scranton i gær- kvöldi, sóttu að honum reiöir kaþólskir mótmæla- menn, og varö hann aö fá Bandariskir forsetaframbjóö- endur bregöa sér i ýmissa kvikinda liki til aö skemmta kjósendum. Hér er Carter meö dátahúfu á samkomu uppgjaf- arhermanna. aöstoö lögreglu til að komast frá þeim inn I hótel þaö, sem hann býr I þar i borg. Nató vill fá að skoða þotuna TóKtó 8/9 Reuter — Kó Marújama, aöstoöarvarnar- málaráöherra Japans, skýröi svo frá I dag aö Nató-rfki hefðu mælst til þess aö fá aö - skoöa sovésku orrustuþotuna af gerðinni MIG-25, sem enn er á flugvellinum viö Hakó- date i Norður-Japan eftir aö sovéskur flugmaöur, sem leitaö hefur hælis i Banda- rikjunum, flaug henni þangaö á mánudag. Marújama sagöi að tilmælin frá Nato heföu veriö óformleg og er ekki enn vitaö hvernig japanir bregöast við þeim. Um 20 japanskir sér- fræðingar eru þegar farnir aö skoöa flugvélina, sem hefur verið sögð hraöfleygasta orrustuflugvél heims. Allt varðandi flugvélartegund þessa var algert hernaöar- leyndarmál, og þykjast jap- önsk heryfirvöld þvi þarna hafa komist i feitt. Búist er viö að flugmaðurinn fari fljótlega til Bandarikjanna. Borges hælir herforingjaklikum MADRID 7/9 Reuter — Argentinski rithöfundurinn Jose Luis Borges, sem nokkrum sinnum hefur verið talinn standa nærri Nóbels- verðlaunum, hældi i dag her- foringjastjórn lands sins á hvert reipi og sagöi að ástandiö i landinu færi stöðugt batnandi undir leiðsögn hennar. Hann sagbi frétta- mönnum einnig að hann væri hollur herforingjakliku Pino- chets i Chile ogkvaöst álitaaö lýöræði væri ekki nema hjátrú. Borges, sem er 77 ára, lét sér þessi ummæli um munn fara i Madrid, en þangað er hann kominn til þátttöku i sjónvarpsdagskrá. Solsénitsin til Bandarikjanna WASHINGTON 8/9 Reuter — Sovéski rithöfundurinn Alex- ander Solsénitsiiv hefur flutt ásamt fjölskyldu sinni frá Sviss til Bandarikjanna, aö sögn bandariskra yfirvalda um innflutning fólks. Ekki er vitaö hvar hann hyggst setjast að i Bandarikjunum til fram- búðar. Blað i Ziirich hélt þvi fram i dag aö rithöfundurinn heföi fengið hótunarbréf á rússnesku, og hafi til- gangurinn með bréfunum verið aö fá Solsénitsin til aö láta af áróöri gegn Sovét- rikjunum. Svissneskur embættismaður hefur upplýst að rithöfundurinn hafi aldrei veriö undir lögregluvernd, meðan hann dvaldi i Sviss. Solsénitsin Tass véfengir einlœgni Kissingers MOSKVU 8/9 Reuter — Sovét- ríkin sökuöu i dag Henry Kiss- inger, utanrikisráðherra Bandarikjanna, um aö vinna að þvi að styrkja stjórnir kynþáttahyggjumanna I sunnanveröri Afriku og vernda fjárfestingar banda- riskra aðila þar. Sagði Tass- fréttastofan i Moskvu aö þótt svo væri látið heita aö Kiss- inger vildi koma á friði milli kynþátta af óeigingjörnum ástæðum, þá gengi Banda- rikjunum það fyrst og fremst til aö þau óttuðust um efna- hagsleg Itök áin i Afriku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.