Þjóðviljinn - 14.10.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.10.1976, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN F'immtudagur 14. október 1976 Þingsályktunartillaga Magnúsar Kjartanssonar Réttur sé gagnkvæmur hvað varðar ferðafrelsi Magnús Kjartansson hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunar- tillögu á þessa leiö: „Alþingi ályktar að skora á utanrikisráöherra að tryggja fulla gagnkvæmni i samskiptum viö önnur riki aö þvi er varðar ferðafrelsi. Skal stefna islenskra stjórnvalda vera sú að ryðja úr vegi öllum hindrunum á ferða- frelsi. Vilji önnur rfki ekki fallast á þá skipan, heldur leggi hömlur á ferðir Islendinga, skulu þegnar þess rikis sæta sömu tálmunum ef þeir kjósa að ferðast til Islands.” í greinargerð með til- lögunni segir: ,,Þær reglur, sem hér er gerð tillaga um, eru almennar I samskiptum islendinga við önnur ríki og raunar I samskiptum flestra rikja heims. Þegar undan er skilin sú stefna að hafa frjáls- ræðiðsem mest. A þessu er þó ein veigamikil undantekning. Banda- rlki Norður-Ameiku kappkosta aö tryggja þegnum slnum óskert ferðafrelsi I öðrum löndum, en neita þegnum annarra þjóða um hliðstæð réttindi I Bandarikjun- um. Þannig þurfa bandariskir þegnar engin leyfi islenskra stjórnarvalda til ferðalaga eða langdvalar hérlendis, en islend- ingar þurfa leyfi bandarfskra stjórnarvalda til að stfga fæti inn þingsjá fyrir landamæri Bandarikjanna. Varþessum hömlum á feröafrelsi islendinga beitt af mikilli hörku um langt árabil og leyfisveitingar háðar njósnum um skoðanir manna. Þetta eftirlit hefur verið mildað siðustu árin, en þó er þvi enn beitt á furðulegan hátt. Er skemmst að minnast erfiöleika sem sendinefnd Alþingis Islend- Magnús Kjartansson. inga varð fyrir i Bandarikjunum I sumar á leið sinni til Kanada i boði Kanadiska þingsins. Virtist sú framkoma bera vott um óvild til Alþingis islendinga og fslensku þjóðarinnar. Með þessari tillögu er þvi beint til Islensku rikisstjórnarinnar að hún kanni hvort bandarísk stjórnarvöld eru reiðubúin til að tryggja Islendingum fullt ferða- frelsi i Bandarlkjunum. Haldi Bandarikin hins vegar fa^t.viö hömlur sinar á ferðumislendinga, verði hliöstæöar hömlur settar á ferðir Bandarikjamanna til ts- lands. Sjálfstæði rikis er m.a. háö fullu jafnrétti i samskiptum við önnur riki.” F ullorðinsf ræðsla og skylduskil safna Bæði frumvörpin endurflutt Endurflutt hafa verið á Alþingi tvö stjórnarfrumvörp um menntamál, sem bæði voru lögð fram á þingi i fyrra en hlutu þá ekki afgreiðslu. Annað er frum- varp um skylduskil til safna. Hitt er frumvarpið um fullorðins- fræðslu. Þvi frumvarpi fylgir mikil og itarleg greinargerð og þótt hinar 39 greinar frumvarps- ins taki ekki yfir nema fjórar siður þingskjala, þá er þingskjal- ið i heild, það er frumvarp með athugasemdum, greinargerð og fylgiskjölum heil bók, eða samtals 129 siöur. Það var 26. október 1971, sem Menntamálaráöuneytiö skipaði nefnd til aö semja frumvarp um fullorðinsfræöslu. I nefndina voru skipuð Guðmundur Sveinsson, skólastjóri, sem var formaöur nefndarinnar, Stefán ögmunds- son, prentari samkvæmt tilnefn- ingu A.S.I., dr. Matthias Jónas- son, prófessor samkvæmt tilnefn- ingu Háskólaráðs, Andrés Björnsson, útvarpsstjóri samkvæmt tilnefningu Rikisút- varpsins, Gunnar Grimsson starfsmannastjóri samkvæmt tilnefningu S.I.S., Sigriður Thorlacius, samkvæmt tilnefn- ingu Kvenfélagasambands íslands, Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri samkvæmt tilnefn- ingu Reykjavikurborgar, en hann lét af störfum i nefndinni í októ- Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráöherra ber 1973 og tók þá Ragnar Georgsson, skólafulltrúi sæti I nefndinni i hans stað. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi er niðurstaöan af starfi þessarar nefndar, en frum- varpið var fyrst lagt fram á næst siðasta Alþingi, en hefur enn ekki hlotið afgreiðslu. 1. grein frumvarpsins er á þessa leið: „Fullorðinsfræðsla hefur að markmiði að skapa öllum skilyrði til þroska bæði sem einstakling- um og samfélagsþegnum. Fullorðinsfræðsla er annar þáttur i menntakerfi þjóöarinnar, ævi- menntun, og er hún jafnrétthá hinum þættinum, hinu lögbundna skólakerfi, frummenntuninni. Fullorðinsfræðsla getur veriö með þrennu móti: Guömundur Sveinsson, skóla- stjóri, formaður nefndarinnar, sem frumvarpið samdi. a) Skólanám, hliðstæða frum- menntunarinnar. b) Starfsnám, viðbótarmenntun, endurmenntun og ummenntun i tengslum við atvinnulifið i vfðtækustu merkingu. c) Frjálst nám og fristundamenntun til þekk- ingar og menningarauka.” Nokkrar fyrirspurnir I gær voru lagðar fram á Alþingi þær fyrirspurnir, sem hér greinir frá: 1. Til samgönguráöherra um simakostnaö aldraðs fólks og öryrkja. Frá Magnúsi Kjartanssyni. Hvenær ætlar ráðherra að framkvæma þann einróma vilja alþingismanna aö aldrað fólk og öryrkjar með lágmarkstekjur fái ókeypis sima samkvæmt tiltekn- um reglum, sbr. lög frá 16. mai 1975? II. Til iönaöarráöherra um rafmagn á sveitabýli. Frá Lúðvik Jósepssyni. a) Hver er ástæða til þess að Rafmagnsveitur rfkisins geta ekki sinnt beiönum um teng- ingu Ibúöarhúsa i sveitum viö rafveitukerfi Rafmagnsveitna rikisins? b) Hve margar beiönir liggja nú fyrir um tengingu, sem Framhald á bls. 14. Tvö frum- vörp um umferðarmál Lögð hafa verið fram á Alþingi tvö stjórnarfrumvörp um um- ferðarmál. Efni annars frum- varpsins er að tryggja Umferðar- ráði tekjustofn til umferöarslysa- varna. I frumvarpinu er lagt til að 1 og 1/2% af iðgjaldatekjum vegna lögboðinnar ábyrgðar- tryggingar ökutækja skuli renna til Umferðarráðs i þessu skyni. Ef slik lög heföu verið i gildi nú i ár, hefði slikur tekjustofn gefið um 12 miljónir króna. Hitt frumvarpið um umferðar- mál felur i sér breytingar á ákvæðum umferðalaga i þá veru, að hætt veröi að umskrá ökutæki vegna flutnings milli lögsagnar- umdæma, svo og aö Bifreiöaeftir- lit rikisins annist skráningu öku- tækja I stað lögreglustjóra. Nefndakjör á Alþingi Kosningu i fjárveitinganefnd frestað i gær fór fram nefndakjör á Alþingi. i sameinuöu þingi var kosiö í fjórar nefndir, en kosningu i fjárveitinganefnd var frestað. Þær fjórar nefndir sem kosið var i eru skipaðar sem hér segir: Utanrikismálanefnd: Aðalmenn: Jóhann Hafstein Þórarinn Þórarinsson Friðjón Þórðarson Gils Guðmundsson, Tómas Arnason, Guðmundur H. Garðarsson, Gylfi Þ. Gislason. Varamenn: Ragnhildur Helgadóttir, Steingrimur Hermannsson, Eyjólfur K. Jónsson, Magnús Kjartansson, Ingvar Gislason, Pétur Sigurðsson, Benedikt Gröndal. Atvinnumálancfnd: Guömundur H. Garöarsson, Steingrimur Hermannsson, Jón G. Sólnes, Gils Guðmundsson, Páll Pétursson, Sverrir Hermannsson, Karvel Pálmason. Allsherjarnefnd: Lárus Jónsson, Jón Skaftason, Olafur G. Einarsson, Jónas Árnason, Jón Helgason, Ellert B. Schram, Magnús T. Ólafsson. Þingfararkaupsnefnd: Sverrir Hermannsson, Ingvar Gislason, Friðjón Þórðarson, Helgi F. Seljan, Gunnlaugur Finnsson, Sigurlaug Bjarnadóttir, Eggert G. Þorsteinsson. Að loknu nefndakjöri i sam- einuðu þingi fór fram kjör nefnda i deildum. t éfri deild var kjörið I nefndir sem hér segir: 1. Fjárhags- og viðskipta- nefnd: Albert Guðmundsson, Halldór Asgrimsson, Jón G. Sólnes, Ragnar Arnalds, Jón Helgason, Axel Jónsson, Jón Arm. Héðinsson. 2. Samgöngunefnd: Jón Arnason Jón Helgason, Steinþór Gestsson, Stefán Jónsson, Halldór Asgrimsson, Jón G. Sólnes, Eggert G. Þorsteinsson. 3. Landbúnaöarnefnd: Steinþór Gestsson Asgeir Bjarnason Jón Arnason, Ingi Tryggvason Axei Jónsson, Jón Arm. Héðinsson Ragnar Arnalds 4. Sjávarútvegsnefnd: Jón Arnason, Steingrímur Hermannsson, Oddur ólafsson Stefán Jónsson, Halldór Asgrimsson, Jón G. Sólnes, Jón Arm. Héðinsson. 5. Iönaðarnefnd: Þorv. Garðar Kristjánsson Steingrimur Hermannsson Jón G. Sólnes, Stefán Jónsson, Ingi Tryggvason Albert Guðmundsson Eggert G. Þorsteinsson. 6. Félagsmálanefnd: Þorv. Garðar Kristjánsson Steingrimur Hermannsson, Axel Jónsson Helgi F. Seljan, Jón Helgason, Steinþór Helgason, Steinþór Gestsson, Eggert G. Þorsteinsson. 7. Heilbrigðis- og trygginga- nefnd: Oddur ólafsson, Ásgeir Bjarnason, Steinþór Gestsson, Helgi F. Seljan, Halldór Asgrimsson, Albert Guðmundsson, Eggert G. Þorsteinsson. 8. Menntamálanefnd: Þorv. Garðar Kristjánsson, Steingrfmur Hermannsson, Axel Jónsson, Ragnar Arnalds, Ingi Tryggvason, Steinþór Gestsson, Jón Arm. Héðinsson. 9. Allsherjarnefnd: Oddur ólafsson, Ingi Tryggvason, Jón G. Sólnes, Geir Gunnarsson, Halldór Asgrimsson, Eggert G. Þorsteinsson, Þorvaldur Garðar Kristjáns- son. t neöri deild var kjörið I ncfndir sem hér segir: 1. Fjárhags- og viðskipta- nefnd: Ólafur G. Einarsson, Þórarinn Þórarinsson, Eyjólfur K. Jónsson, Lúðvik Jósepsson, Tómas Arnason, Lárus Jónsson, Gylfi Þ. Gislason. 2. Samgöngunefnd: Friðjón Þórðarson Stefán Valgeirsson, Sverrir Hermannsson, Páll Pétursson, Garðar Sigurðsson, Sigurlaug Bjarnadóttir, Karvel Pálmason. 3. Landbúnaðarnefnd: Pálmi Jónsson, Stefán Valgeirsson, Ingólfur Jónsson, Eðvarð Sigurðsson, Þórarinn Sigurjónsson, F’riðjón Þórðarson, Benedikt Gröndal. 4. Sjávarútvegsnefnd: Pétur Sigurðsson, Jón Skaftason, Guölaugur Gislason, Tómas Arnason, Garðar Sigurðsson, Sverrir Hermannsson, Sighvatur Björgvinsson. 5. lðnaöarnefnd: Ingólfur Jónsson, Þórarinn Þórarinsson, Lárus Jónsson, Magnús Kjartansson, Ingvar Gislason, Pétur Sigurðsson, Benedikt Gröndal. 6. Félagsmálanefnd: Ólafur G. Einarsson, Stefán Valgeirsson, Ellert B. Schram, Gunnlaugur Finnsson Eðvarð Sigurösson, Jóhann Hafstein, Magnús T. Ólafsson. 7. Heilbrigöis- og trygginga- nefnd: Ragnhildur Helgadóttir, Jón Skaftason, Guðmundur H. Garðarsson, Magnús Kjartansson, Þórarinn Sigurjónsson Sigurlaug Bjarnadóttir Karvel Pálmason. Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.