Þjóðviljinn - 14.10.1976, Page 7

Þjóðviljinn - 14.10.1976, Page 7
Fimmtudagur 14. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 k ÖAGgKRÁ_________ Haust - og leiklistin með vaxtarverki Loksins er haustiö komið! Loksins fáum við að sjá sólina hér sunnan lands eftir rigninga- sumar og snjóavetur. Kannski nægja þessir fáu skáhöllu geisl- ar til að byggja okkur upp, svo okkur takist að þreyja annan snjóavetur og enn eitt rigninga- sumar undir ihaldsstjórn. Það kemur i ljós. I okkar landi, sem ku hafa einhverja hernaðarle^a mikil- vægustu hnattstöðu, sem völ er á, þar sem lægðarsvæðið og lág- launasvæðið eru að sögn sama óviðráðanlega náttúrufyrirbær- ið, i þessu landi lifnar þó alltaf eitthvaðá haustin. Kartöflurnar hoppa upp úr drullublautum görðunum, lömbin renna jarm- andi glöð inn i sláturhúsin, börn- in inn i skólana i klærnar á kommúnistunum, og listin, þessi langa list (ars longa o.s.frv.), listin ódrepandi býr sig undir enn eina atlögu að fólkinu og gerir þá kröfu, að all- irfái að verða jafn saddir til sál- arinnar og likamans. Allt fer i gang, málverkasýningar, tón- leikar, bókaflóð og plötu- straumur, leikhúsin, kvik- myndaklúbburinn, allt I hörku samkeppni við heimilislega skothriðina i sjónvarpinu, þar sem tiu liggja dauðir á stofu- gólfinu á hverju kvöldi. Lista- mennirnir reyna hver með sinu móti að koma sér fyrir i hjörtum fólksins, það rennur á þá haust- móður, sem endist ef til vill langt fram á vor, svo gagnrýn- endur hafa varla undan að gretta sig. Einn hópur þessara lista- manna kallast leikarar. Þeir hafa þann undarlega starfa að likamna hugmyndir höfunda um annað fólk, Þeir eru notaðir til þess að koma á framfæri dæmum um mannlegt lif, þeir segja og sýna sögur með sjálf- um sér öllum. Það hefur vafist fyrir ýmsum að skilja, að þetta geti verið nokkurt starf og bestu leikarar verið spurðir að þvi i fullri vinsemd, hvort þeir ætli nú ekki að fara að hætta þessu leikveseni og fá sér einhverja almennilega vinnu. Listamenn i öðrum greinum hafa sjálfsagt oft mætt svipuðum skilningi, bæði hjá þeim sem passa pen- ingana og fólkinu með hjörtun, og kannski hafa flestir orðið að sjá sér farborða með „almin- legri” vinnu, en stunda list sina i hjáverkum lengi framan af starfsferli sinum. Hvort svona aðstæður skapa góða listamenn eða fúskara, er spurning, sem ekki er beint auðvelt að svara. Sumir vaxa af erfiðleikum og harðri baráttu, aðrir bæklast eða brotna og dæmast úr leik, oft ómaklega. En hverjir eru dómararnir? Hvaðan hafa þeir vald sitt og hvernig beita þeir þvi? Yfir leikurum geta verið býsna margir dómarar. Og þá á ég ekki viö okkar dyntóttu og misvitru gagnrýnendur. Aður en kemur til kasta gagnrýnand- ans að fella nokkurn dóm, er leikarinn búinn að standa bæði fyrir Heródesi og Pilatusi og gott ef ekki Salomoni. Einn á- hrifamikill dómsaðili er fjár- málaráðuneytið, sem hefur úr- slitavald i svo mörgum mennta- og menningarmálum þessarar þjóðar, en ekki menntamála- ráðuneytið, eins og margur kynni að haida. Fjármálaráðu- neytið ákveður fjárveitingar til menningarstofnana á vegum rikisins, og t.d. hversu mörgum skuli greidd laun. Borgin og bæjar- og sveitarfélög hafa sams konar vald yfir hliðstæð- um stofnunum á þeirra vegum. Þar næst má telja leikhússtjóra og leikhússtjórnir, sömuleiðis leiklistarstjóra rikisútvarpsins og forstöðumann LSD hjá sjón- varpinu. Þessir aðilar ráða verkefnavali, að nokkru leyti með tilliti til fjárhags, þó list- rænt mat sé leiðarljósið. Siðan fá þeir verkin leikstjórum i hendur, sem aftur þurfa sam- þykki sinna yfirboðara, þegar þeir hafa valið i hlutverk. Sem sagt, allir þessir geta haft áhrif á það, hvort einn litill leikari fær yfirleitt tækifæri til að koma fram fyrir sina eigin- legu dómara, áhorfendur. Að þessu leyti er leikarinn verr settur en ýmsir aðrir lista- menn, þvi leikarinn getur sjald- an unnið einn að list sinni. Leik- sýning byggiralltaf á samstarfi margra, þar sem leikarinn er aðeinseinn þátturinn, að visu sá mikilvægasti, þegar allt kemur til ails, þvi án leikarans, engin leiksýning. En hvernig er þá að vera svona mikilvægur fyrir leiklist- arlifið i landinu? Harla gott, segja sumir.. Helviti erfitt, segja aðrir. Yndislegt, ömur- legt, mannbætandi, mann- skemmandi, upphefð, niðurlæg- ing. Hvers vegna eru svörin svona andstæð? M.a. vegna þess, að samkeppnin er hörð, árangur af erfiðinu misjafn, launamunur innan stéttarinnar mikill, at- vinnuöryggi litið nema fyrir fáa fastráðna og hreint atvinnuleysi og langa-löng vonlitil bið um batnandi ástand hlutskipti fjöl- margra. Sumir eru inni i hlýj- Eftir Steinunni Jóhannes- dóttur, leikkonu unni, aðrir úti i kuldanum. Það mætti tina til ófá dæmi um auð- mýkta leikara, auðmýkta af ár- angurslitlu betli um vinnu árum saman, alltaf öðru hvoru með, eins og það er kallaö, án þess forráðamönnum leikhúsanna takist að gera það upp viö sig, hvort eigi að kippa þeim inn fyr- ir eða ýta þeim út. 5-15 ára pislarganga i hálfvelgjunni út oginn um gluggann er ekki óal- geng. Til að halda i sér lifinu, er oft eina leiðin að gifta sig til fjár. þ.e.a.s. láta aðra vinna fyrir sér En hvað er til bóta? Undan- farin ár hefr orðið mikill fjör- kippur i leiklistarstarfsemi i landinu, tvö ný atvinnuleikhús hafa haslað sér völl, Leikfélag Akureyrar og Alþýðuleikhúsiö, auk þess sem áhugamannaleik- félögin hafa verið mjög at- hafnasöm, jafnvel tekið að sér að frumsýna ný islensk verk, eins og Leikfélag Isafjaröar og Leikfélag Þorlákshafnar s.l. vetur, og þaö siðarnefnda riður aftur á vaðið nú i haust með leikrit eftir ungan höfund, Þor- stein Marelsson. Þarna hefur skapast aukinn starfsgrundvöll- urfyrir leikhúsfólk, sömuleiöis i skólum, sem hafa margir tekið upp kennslu i einhverju, sem lýtur að leiklist, námskeið eru haldin viða um land, og allt hef- ur þetta orðið til þess að al- mennur leikhúsáhugi hefur auk- ist og var hann þó ekkert litill fyrir. Er þá nokkur ástæða til kviða? Jú, eins og fram hefur komiö eru launakjör og atvinnu- öryggi leikara ekki upp á marga fiska, en þeir þurfa að lifa eins og annað fólk. öll leiklistar- starfsemi kostar peninga og getur ekki staðið undir sér nema að litlu leyti. Það er þvi undir skilningi f jármálayfirvalda komið, hvort tekst að halda þessum vaxtarbroddi lifandi. Ef sá skilningur verður fyrir hendi er bjartara framundan, þvi nóg er framboð af vinnufúsu fólki. Og núna þegar fjölgað hefur i stéttinni, og fyrsti hópurinn hef- ur útskrifast úr nýjum Ríkis- leiklistarskóla, harðduglegur hópur með mjög óvenjulega reynslu i lýðræðislegum vinnu- brögðum, hópurinn, sem fyrir fjórum árum stofnaði SÁL-skól- ann, stjórnaði honum og réði sjálfur sina kennara, — þá biöur margur spenntur, hvort eitt- hvað fleira spennandi gerist. Hvað verður nú um þetta fólk? Trúlega finna þau einhver ráð sjálfum sér til bjargar, eins og áður. Trúlega setja þau ekki allt sitt traust á þær leikhússtofnan- ir.sem fyrir eru, þar sem þekk- ist varla enn, að léikarar velji sér sjálfir leikrit, siðan leik- stjóra og segi þetta viljum viö fást við, þ.e.a.s. að ákvarðan- irnar séu teknar neðan frá. En kannskikemurþetta með þeim? Kannski kemur svona með nýju fólki? Ef hæstvirtir alþingis- menn vildu til dæmis hlusta á yfirlýstan vilja Starfsmanna- félags Þjóðleikhússins og Félags islenskra leikara um aukið lýðræði, næst þegar þeir fara að velta fyrir sér nýju lögunum um Þjóðleikhús, þá væri miklu borgið. Steinunn Jóhannesdóttir. Metsölubók um þrælahald- ið í Bandaríkjunum Ein af metsölubókum Bandarikjanna nú, sem verið er að gera sjón- varpsþætti eftir, er 587 siðna söguleg skáldsaga sem nefnist „Rætur" (Roots) og er eftir þel- dökkan blaðamann að nafni Alex Haley. Upphaflega var það ætlun blaðamannsins, sem hafði áður samið ævisögu Malcolms-X og verið i ritstjórn tímaritsins Playboy, að semja miklu styttri bók um uppruna svertingja i Bandarikjunum. En um leið og hann byrjaði á verkinu óx það stöðugt i höndum hans, uns úr þvi varð þessi bók. Það tók hann mörg ár og tuttugu ferðir til Afriku að safna efninu. Fyrsta skref rannsóknarinnar var að kanna afrisk orð sem varðveist höfðu i fjölskyldu Haleys, kynslóð eftir kynslóð, og hann hafði lært af ömmu sinni. Hún sagöi honum að ætt- faðirinn hefði verið maður að nafni Kunta Kinte, sem hefði verið hernuminn i þorpi sinu, þegar hann var að höggva tré til að búa til trumbu og siöan send- ur i skipi i þrælahald og kallaður „afrikumaðurinn”. Þessi mað- ur hafði kallað gitar „ko” og hann hefði búið við fljót, sem hefði heitið „Kamby Bolongo”. Ýmis önnur orö fylgdu með og byrjuðu flest á „k”. Haley byrjaði nú á þvi að ieita að upp- runa þessara orða, og eftir nokkra leit komst hann i sam- band við belgiskan málfræðing, dr. Jan Vansina, sem gat sagt honum að orðin væru úr mandinga-máli, sem talað væri i hluta Gambiu i Vestur-Afriku. Eftir þessa uppgötvun lagði Haley af stað til Gambiu og ferðaðist þar um mörg þorp. Loks fann hann þorp þar sem bjuggu menn af Kinte-ættkvisl, og eins og venja er i þorpum á þessum slóðum voru þar sagna- þulir, sem nefndir voru griotog kunnu sögu þorpsins margar aldir aftur i timann. t þorpi að nafni Juffure, fann Haley loks sagnaþul, sem gat sagt honum söguna af Kunta Kinte, sem farið hefði 17 ára gamall, árið 1767, að höggva við og aldrei komið aftur. Þegar Haley hélt áfram ferð sinni i Kunta Kinte i sjónvarpsmynd- inni gegnum þessi héruð fögnuðu landsmenn honum með hrópinu „Meester Kinte! Meester Kinte!” Þetta var áriö 1966 en Haley hélt áfram rannsókn sinni i næstum þvi áratug. Eftir að hann var búinn að kynna sér að- stæður i þorpum forfeðra sinna i Gambiu, fór hann að leita i gömlum skjölum og bókum að þvi skipi sem flutt hefði Kunta Kinte yfir til Norður-Ameriku. Hann gekk svo langt að hann fékk sér far með skipi sem sigldi frá Liberiu til Flórida og lá þar nakinn á fjölum i tiu daga til að reyna að imynda sér þau skil- yrði sem Kinte hefði orðið að búa við á leiðinni til Ameriku. 1 bók sinni, sem kom út fyrir skömmu og hefur mjög slegið i gegn i Bandarikjunum, segir Haley svo frá ævi Kunta Kinte, þrældómi hans i Ameriku og örlögum afkomenda hans fram að fæðingu höfundar sjálfs. Hann hefur fyllt allar eyður i sagnfræöinni með sinu eigin imyndunarafli, en þó er allt byggt á sögulegum raunveruleika þess tima, þegar sagan gerist. Haley hefur sjálf- ur sagt, að þessi saga sé i raun og veru saga alira blökkumanna i Bandarikjunum: sérhver svertingi sé kominn af manni sem lifði i einhverju afrisku þorpi, var siðan hnepptur i þrælahald og sendur til að vinna á plantekru i suðurrikjum Bandarikjanna, Þetta sé þvi saga heillar þjóðar. Gagnrýnendur hafa sagt að á vissan hátt megi likja „Rótum” við hina frægu sögu „A hverf- anda hveli” —en frá sjónarmiði svertingja. Þess vegna hefur hún vakið mjög mikla athygli þvi að þarna er sagt á alþýðleg- an hátt frá atburðum, sem höfðu vitanlega grundvallarþýðingu fyrir bandariska sögu en margir þekkja þó mjög illa. Vegna þeirrar athygli, sem bókin hefur vakið er nú búið að gera eftir henni sjónvarpsmyndaþátt, sem verður sýndur i niu köflum næsta janúar. Höfundar þessara mynda segja að i þeim sé fjall- að á mjög sterkan hátt um þrælahaldið. Þrælasalar hafi verið hinir verstu menn, og sé ekki reynt að draga fjöður yfir það. Atriðin i skipinu, þegar Kinte er fluttur til Ameriku, séu eins áhrifarik og nokkuð annað sem sýnt sé i sjónvarpi. En höf- undarnir taka það lika fram að ekki hefði veriö unnt að sýna svona mynd fyrir aðeins fimm árum: hvorki yfir- menn sjónvarpsstöðva né mikill hiuti áhorfenda hefðu þolað það. Hins vegar er búist við þvi að myndin muni fá góðar viðtökur meðal svertingja: þetta er nefnilega i fyrsta sinn sem sjónvarpsmynd fjallar um sögu þeirra frá sjónarmiði þeirra sjálfra. (Endursagt)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.