Þjóðviljinn - 14.10.1976, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. október 1976
„Þetta ár verður
okkur erfitt”
Mikið hefur verið taiað
um erfiðleika þeirra
bænda, sem eiga afkomu
sina undir sól og vindi,
meðan heyannir standa
sem hæst og vissulega eru
þeirra erfiðleikar miklir,
sem hafa orðið að þola
samfelldar rigningar hér
sunnan og vestanlands í
allt sumar. En það eru
fleiri bændur en þeir sem
heyja, er farið hafa illa
útúr sólarleysinu í sumar.
Garðy rk jubændur hafa
vissulega fengið sinn
skammt af erfiðleikunum,
enda eiga þeir ekki svo lltið
undir því að sól og birta sé,
meðan uppskeran er að
vaxa.
Fyrir nokkru áttum við tal við
Birgi Pálsson garðyrkjubónda i
Gufudal við Hveragerði og sagði
hann að þetta sumar væri garð-
yrkjubændum afar erfitt, eitt hiö
erfiðasta, sem komiö hefði um
árabil. Þar færi að visu margt
saman, en verst af öllu væri þó
sólarleysið i ágústmánuði, sem
veldur þvi að haustuppskeran
verður bæði minni og lélegri en
ella.
Birgir ræktar bæði blóm, og
grænmeti, aðallega agúrkur og
tómata, en meirihlutinn af hans
ræktun eru þó afskorin blóm.
Voruppskeran er sett niður i
febrúar og mars en haustupp-
skeran i júli og einmitt þegar
mest þörfin var á birtu fyrir þann
hluta uppskerunnar má heita að
um samfellda úrkomu og sólar-
leysi hafi verið að ræöa, i ágúst og
framan af september. Og þótt það
komi afar illa við allt sem ræktað
er i gróðurhúsi, fer það sýnu verr
með blóm heldur en grænmeti,
Þar ofan á bætist svo að fram-
leiöslukostnaöur viöþessa ræktun
hefur aukist næsta ótrúlega og
hefur sl. 3 ár til að mynda, farið
langt framúr verðhækkunum á
— segir Birgir
Pálsson
garðyrkjubóndi
i Gufudai
við Hveragerði
framleiðslu-
kostnaður hefur
farið uppúr öllu
valdi —
sólarleysið i
sumar veldur
lélegri
haustuppskeru
milli 10 og
20% offram-
leiðsla hjá
garðyrkju-
bændum
afurðunum. Má sem dæmi nefna,
að verö á þeim lyfjum, sem nauð-
synleg eru við blóma og græn-
metisræktun, hefur hækkað um
300% , þrjú hundruð prósent, á
þessu timabili. Sama er að segja
með verð á áburöi, það hefur
hækkað uppúr öllu valdi. Sagði
Birgir að verö á grænmeti hefði
fylgt heldur betur eftir þessum
kostnaðarhækkunum, en verð á
blómum. Og sem dæmi um
blómaveröiö má nefna, að garð-
yrkjubændur fengu 125 kr. fyrir
eina rós i júni sl. en þessi sama
rós var svo seld á um 400 kr. útúr
blómabúö. En blómaverslanir
leggja 100 til 160% á blóm og siðan
bætist 20% söluskattur ofaná.
Birgir sagði að lltil aukning
væri i garðyrkjubúskap I Hvera-
gerði. Hann sagðist ekki vita um
nema eina stöð i byggingu þar nú,
enda væri þaö svo, að um offram-
leiðslu væri að ræða á afurðum
garðyrkjubænda. Talið væri að
offramleiöslan næmi á milli 10 og
20% nokkuð misjafnt eftir teg-
undum. Það væri þvi ljóst aö
markaðurinn hér heima þyldi
ekki aukningu, ef menn ættu að
geta lifaö af þessum búskap. Mið-
að viö þann vinnutima, sem fer i
þessi störf, ná garðyrkjubændur
ekki timakaupi verkamanns, að
sögn Birgs.
Venjulegur kúa og fjárbúskap-
ur nýtur ákveðinna styrkja eins
og allir vita, en garðyrkjubændur
njóta alls engra styrkja, hvorki i
einu éða öðru formi. Ef að þeirra
afurðir seljast ekki, verða þeir
sjálfir að taka á sig þann skaða
sem af þvi hlýst.
Uppi hafa verið hugmyndir hjá
mönnum, um að hefja útflutning
á blómum frá tslandi. Birgir
sagðist ekki telja nokkurn grund-
völl fyrir sllkum útflutningi. t
fyrsta lagi væri mjög erfitt aö
komast inná markaöi erlendis og
þótt svo að það tækist, þá værum
við alls ekki samkeppnisfærir
vegna þess mikla flutningskostn-
aðar sem kæmi ofan á verðiö þeg-
ar farið væri að selja blómin er-
lendis. Við ættum enga möguleika
á að keppa við hollendinga, sem
liggja mun nær þeim svæöum,
sem frekast hefur verið talað um,
sem hugsanlegan sölumarkað.
Það er þvi allt annað en giæsi-
legt ástandið hjá garðyrkjubænd-
um um þessar mundir, þegar
saman fer óáran bæði af manna
og náttúrúvöldum. —S.dór
Birgir Pálsson sker blóm i einu af
gróðurhúsum slnum.
(Ijósm. S.dór)
Ríkisútv arpið - S j ón v arp
óskar að ráða viðskiptafræðing eða mann
með sambærilega menntun i stöðu skrif-
stofustjóra Sjónvarpsins. Laun skv. 21.
flokki B.H.M.
Umsóknum sé skilað til aðalskrifstofu
Sjónvarpsins að Laugavegi 176 fyrir 25.
október n.k. á eyðublöðum sem þar fást
afhent.
Yerkamenn óskast
Völur h.f.
Bolholti 4.
Simi 31166.
Tilboð óskast
i International vörubifreið, 10 tonna, og
nokkrar fólksbifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi9 þriðjudaginn 19. október kl.
12-3. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu
vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna