Þjóðviljinn - 22.10.1976, Side 7
Föstudagur 22. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
ÁDAG8KRÁ________
Hagur og réttindi
alþýðuheimila
Svo sem við mátti búast voru
kjaramál alþýðufólks viða-
mesta viðfangsefnið á þingi
BSRB, sem lauk i fyrri viku.
Þegar þetta er skrifað, eru
ályktanir þingsins ekki komnar
fyrir almenningssjónir, en vitað
er, að fram kom á þinginu, að
hagur alþýðuheimila er nú svo
bágborinn, að leita vérður jafn-
vel áratugi aftur i timann til að
finna samjöfnuð. Um mánaðar-
mótin nóv.-des. verður svo hald-
ið þing Alþýðusambands Is-
lands. Ekki er hópur láglauna-
fólks smærri meðal verkafólks-
ins en meðal opinberra starfs-
manna, og er þvi vonandi að á
þinginu veröi ekki tekið neinum
vettlingatökum á launamála-
stefnu rikisstjómarinnar.
SU stefna er harkaleg kaup-
lækkunarstefna, en afleiðingar
hennar bitna að sjálfsögðu
harðast á hinum lægst launuðu.
Stdr hópur manna, flest konur,
hefur 70 þús. króna mánaðar-
laun og þaðan af minna. Margar
þessara kvenna hafa ekki aðrar
tekjur og ófáar eru eina fyrir-
vinna margra barna. Þessar
konur og aðrir með svipuð laun
eru áreiðanlega ekki að vinna
sér fyrir einhverjum „lúxus-
reisum” né að taka þátt i svo-
kölluðu lifsgæðakapphlaupi.
Þetta fjólk er að vinna fyrir lifs-
nauðsynjum sinum og sinna
eins og alþýðufólk á Islandi hef-
ur gert alla tið.
Fyrir þessum stóra hópi er 8
stunda vinnudagur enn fjarlæg-
ur draumur. Þetta er dapurleg
staðreynd, þegar haft er i huga,
að verkalýðshreyfingin hefur
um áratugaskeið háð baráttu
fyrir hagsmunum alþýðunnar i
landinu.
Hér verða ekki leiddar getur
að þvi, hverjar séu orsakir
þessa vanmáttar launþega-
samtakanna. Þær eru áreiðan-
lega margar og við ramman
reip að draga þar sem er þjóð-
félag, sem setur einkagróða og
sérhagsmuni öllu ofar. Augljóst
er hins vegar, að nú verður að
spyrna við fótum. Launþega-
samtökin verða aö marka þá
stefnu i launamálum og standa
við hana, aö unnt verði að fram-
fleyta fjölskyldu á sómasamleg-
an hátt af dagvinnukaupi. Mið-
að við núgildandi verðlag eru
90-100 þús. kr. á mánuði lág-
mark. Það má ekki viögangast
lengur, að samið sé um grunn-
kaup, sem allir vita að varla
nægir einum til að skrimta af,
hvað þá með|ilstórri f jölskyldu.
Launahækkun ein saman
nægir samt ekki til að tryggja
hag alþýðuheimila, þó að vissu-
lega sé hún grundvallaratriði.
Nauðsynleg uppeldisleg þjón-
usta við heimilin veröur einnig
að koma til. Samfélaginu ber
skylda til, aö sjá svo um, að öll
börn eigi kost á dagvistunar-
plássi og börn og unglingar á
skólaaldri eiga rétt á sómasam-
legum vinnustað eins og annaö
fólk. Skólinn sem þau eru skyld-
uð að sækja á að vera samfelld-
uren ekki tvi- og þrisettur eins
og nú er viða.
Varla er lengur talað i alvöru
um skaðsemi af dvöl barna á
dagvistunarheimilum. Einstaka
afturhaldsseggir risa þó enn
upp á afturlappirnar af og til og
vilja kenna dagheimilum og
leikskólum um allt, sem miður
fer i þjóöfélaginu.
Þó læðast þessir sömu menn
með sin eigin börn á þessar
„skaðlegu” stofnanir. Þrátt fyr-
ir heimskulegan málflutning
hafa þessir menn áhrif á al-
menningsálitið og skoðanir
þeirra falla i kramið hjá þeim,
sem ráða fjármagninu. Þörfin
eftir Helgu Sig-
urjónsdóttur,
kennara
fyrir dagvistunarheimili vex
samt stöðugt m.a. vegna þess,
að æ fleiri gera sér ljóst, að
félagslegum þörfum barna i nú-
timaborgarsamfélagi verður
tæplega sinnt svo að vel sé á
himilinu einu saman.
Eins og málum er háttað
reyna foreldrar aö leysa vand-
ann með einkagæslu. Hún er
hins vegar svo dýr, að lágtekju-
fólk getur ekki notfært sér hana.
Fólk með 70-80 þús. kr.
mánaöarlaun hefur ekki efni á
að borga 20-25 þús. kr. á mán.
fyrir hvert barn, jafnvel þó að
báðir foreldrar vinni fyrir
kaupi. Konan verður þá að
hætta að vinna enda þótt fjár-
hagur heimilisins leyfi það ekki
og stundum verður eina úrræðið
að gerast „dagmamma”.
Hverra hagur er þetta fyrir-
komulag? Areiðanlega ekki
barnanna, ekki heldur foreldr-
anna og sennilega engra nema
e.t.v. einhverra misviturra
pólitikusa, sem skilja ekki, að
sparnaður til uppeldis- og skóla-
mála getur orðið þjóðinni i
heild margfalt dýrari i bein-
hörðum peningum en upphæðin,
sem spara átti.
Framtiðarstefnan i dag-
vistunarmálum er að sjálfsögðu
sú, aö rikið byggi og reki þessi
heimili á sama hátt og grunn-
skóla. A ráðstefnu láglauna-
kvenna sl. vor var mikið rædd
sú hugmynd að leggja sérstakan
skatt á allan atvinnurekstur i
landinu meðan uppbygging dag-
vistunarstofnana stæöi yfir, og
var talið timabært, að stéttar-
félögin beittu sér fyrir fram-
gangi málsins.
Launþegasamtökin hljóta að
búa yfir þvi afli, sem þarf til aö
hrinda i framkvæmd þessu
mikla nauðsynjamáli og það er
ekki eftir neinu að biða. Ekki er
lengur verjandi að afgreiða
þessi mál með þvi að hér sé
bara um að ræða eitt af svoköll-
uðum „sérmálum kvenna”,
sem öðrum komiekki við. Þetta
er ekki sérmál eins eða neins,
þetta er eitt brýnasta hags-
munamál alls almennings i
landinu og það kemur öllum við.
Lifvænleg laun fyrir átta
stunda vinnudag, góð, ókeypis
dagvistunarheimili fyrir öll
börn og samfelldur skóli, hljóta
þvi að verða þær kröfur, sem öll
launþegasamtök setja á oddinn
á næstu árum.
Hagkvæm innkaup
Vilt þú
spara?
KJÖT & FISKUR
býöur kostaboö á kjarapöllum,
og sértilboð
1. TILBOÐ
Grænar
1/1 dós
178 kr.
baunir
kr.
2. TILBOÐ
1 pk. kaffi
kr. 215 kr.
4. TILBOÐ
Hveiti 50 kg,
ÖAft kr.
5779 kr.
5. TILBOÐ
Strásykur 25
kg. 2875 kr.
3. TILBOÐ
Egg kr. pr.
kg. 395 kr. pr.
kg.
AUKINN
VELTUHRAÐI
LÁGT VÖRUVERÐ'
Hvað getur 5 manna
fjölskylda
sparað á mánuði eða ári?
KJÖT & FISKUR H/F
SELJABRAUT
54
SÍMI 74200 - 74201
Læknaritari
Starf læknaritara við Heilsugæslustöðina i
Ólafsvik er laust til umsóknar, starfið
veitist frá 1. desember nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til oddvita
Ólafsvikurhrepps fyrir 15. nóv. nk.
Ólafsvik 15.10. 1976.
Heilsugæslustöðin ólafsvík.
Blikkiðjan
Ásgarði 7,
Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu —ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö.
SIMI 53468
Gerið góð
Nautahakk 1. kg.
Kindahakk 1. kg
Gúllas 1 kg.
Kindakæfa lkg
Lambakjöt III. fl. pr. kg.
Hangikjöt framp. pr. kg.
Hangikjöt læri pr. kg.
Svið 1 kg
Opið til 10. í kvöld
kaup
Leyft Okkar
verð verð
1,080.- 700.-
979.- 650.-
1.687.- 900.-
1.200.- 1.015.-
606.- 503.-
00 *i 610.-
998.- 853.- 295.-
VörunjarkaDarinn kf
Matvörudeild simi 86111.